Morgunblaðið - 19.12.1992, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.12.1992, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992 Erfiðlega gengur að sækja mjólk til bænda vegna ófærðar Geymslurými á þrotum o g mjólk hellt niður Ekki hægt að senda 22 þúsund lítra suður vegna ófærðarinnar „VIÐ gerum allt sem í okkar valdi stendur til að koma kalor- íunum í bæinn á réttum tíma,“ sagði Þórarinn E. Sveinsson mjólkursamlagssljóri í Mjólkur- Eining Ófærð tef- ur uppsögn TILLAGA um að segja upp kjarasamningi var borin undir atkvæði á félagsfundum hjá Verkalýðsfélaginu Einingu á fimmtudagskvöld, en úrslit at- kvæðagreiðslunnar liggja ekki fyrir þar sem ekki hefur verið hægt að senda seðlana frá þrem- ur stöðum vegna ófærðar. Bjöm Snæbjömsson formaður Einingar sagði að haldnir hefðu verið fundir í öllum fimm deildum félagsins, á Akureyri, Hrísey, Dal- vík, Ólafsfírði og Grenivík á fímmtudagskvöld. Borin hefði verið undir atkvæði tillaga um að segja upp gildandi kjarasamningi frá og með 1. janúar þannig að þeir yrðu lausir 1. febrúar. Ófært var í gær frá Grenivík til Akureyrar og einnig á milli Óiafs- fjarðar og Dalvíkur og þá var ekki heldur mögulegt að senda at- kvæðaseðla frá Hrísey af sömu sökum. Úrslit atkvæðagreiðslunnar liggja því ekki fyrir fyrir en á mánudag, að sögn Bjöms. Hann sagði að þungt hljóð hefði verið í fólki sem sótti fundinn á Akureyri. samlagi KEA. Mjólkurbílstjórar hafa átt fullt í fangi með að ná í mjólk til bænda á samlagssvæð- inu að undanförnu vegna ófærð- ar og ekki hefur verið hægt að sækja mjólk á þijá bæi í Skíða- dal frá því á föstudag í síðustu viku. Þá hefur líka verið erfitt að komast fremst inn í Eyjafjörð og víðar, en Þórarinn sagði að næg neyslumjólk fengist af svæðinu næst Akureyri. Vegna þess hve erfíðlega hefur gengið að nálgast mjólkina í stór- hríðinni undanfarið sagði Þórarinn að ekki yrði hægt að senda mjólk- urbílana suður til Reykjavíkur eins og til stóð, en samkvæmt samningi um flutning á mjólk milli Akur- eyrar og Reykjavíkur á eftir að senda um 22 þúsund lítra að mjólk suður. Taldi mjólkursamlagsstjóri að það kæmi ekki að sök, sama magn væri flutt frá Reykjavík til Hornafjarðar þar sem búinn er til Mozarellaostur. „Það gæti komið til þess í kjölfarið að vantaði þenn- an ost á pizzur, en fólk verður þá bara að borða hangikjöt um jólin,“ sagði Þórarinn. Einn mjólkurbíll átti að fara síð- asta mánudag og annar eftir helgi, en þar sem erfiðlega hefur gengið að smala saman mjólkinni á sam- lagssvæðinu sagði Þórarinn að hann mætti ekki missa bílana suð- ur í því tvísýna veðri sem hrellt hefur landsmenn að undanförnu. „Þetta hefur verið mesta staut og seinfarið yfír og bílstjórar hafa verið að fara í sumar ferðir tveir saman,“ sagði Þórarinn. „Þeir hafa verið að sæta lagi að komast strax á eftir vegheflunum, annars er allt orðið ófært um leið.“ Flestir bændur á Eyjafjarðar- svæðinu hafa geymslurými fyrir á bilinu 1.500 tii 2.200 lítra og er víða allt að fyllast. Sagði Þórarinn brýnt að ná þeirri mjólk sem geymd hefur verið nú um helgina, en ef ekki rættist úr veðri og færð yrðu bændur að hella niður. Hann sagði að þokkalega hefði gengið að ná í mjólk á þá bæi sem næst eru Akur- eyri og þannig fengist nóg neyslu- mjólk fyrir íbúa svæðisins. Morgunblaðið/Rúnar Þór Snjóruðningarnir setja svip á Akureyri þessa dagana. Akureyring- ar segja þeir breyti bænum ótrúlega mikið. Þessi mynd var tekin upp eftir Kaupvangsstræti síðdegis í gær. Bæir í Skíðadal einangraðir í viku vegna stórhríðar og ófærðar Lét mjólkina í svelginn — segir Óskar Gunnarsson bóndi á Dæli „ÉG VARÐ að láta vaða í svelginn í morgun," sagði Óskar Gunnars- son bóndi á Dæli í Skíðadal, en hann hellti þá niður á þriðja þús- und lítrum af mjólk. Vegna stórhríðar og ófærðar hefur ekki verið hægt að sækja mjólk á þijá bæi í Skíðadal, Dæli, Hnjúk og Syðra- Hvarf, síðan á föstudag í síðustu viku. Geymslurými er á þrotum og því ekki um annað að ræða en hella mjólkinni niður. Óskar sagðist hafa geymslurými fyrir tvö þúsund lítra af mjólk og það uppurið, þá bentu veð- urspá og fréttir af færð ekki til þess að hægt yrði að ná í mjólkina fyrir en í fyrsta lagi á sunnudag svo um annað hefði ekki verið að ræða en hella mjólkinni niður. Sagðist Óskar vera búinn að hella niður mjólk að verðmæti eitthvað .Strembið að koma út pósti vegna veðurs og ófærðar „ÞETTA er búið að vera ansi strembið," sagði Jón Ingi Cesarsson fulltrúi hjá Pósti og síma á Akureyri um útburð á jólapósti síðustu daga. „Við höfum fengið póst úr Reykjavík, en það hefur gengið nokkuð treglega að koma honum áfram, sérstaklega héma austur um í Norður-Þingeyjarsýslu. Þetta er orðinn töluvert myndarlegur stafli sem við bíðum eftir að koma frá okkur," sagði Jón Ingi. Hann sagði að færðin innanbæj- ar sem og stórhríðarveður hefðu sett sitt strik í reikninginn og væri nokkrum erfíðleikum háð fyrir bréfbera að komast um. „Við erum með hóp af jólabréfberum hjá okk- ur núna og höfum þurft að senda þá út tvisvar á dag fullhlaðna þeg- ar hefur viðrað," sagði Jón Ingi, en hver bréfberi hefur farið út með tugi kflóa af pósti þá daga sem hægt hefur verið að senda þá út. Sagði Jón Ingi að víða væri erf- itt fyrir bréfberana að komast heim að húsum með póstinn. „Fólk er misjafnlega duglegt að moka hjá sér og sumstaðar er mjög erfitt að komast heim að húsum.“ Enginn póstur hefur verið fluttur fram í Eyjafjarðarsveit frá því á miðvikudag vegna ófærðar og hjá Flugfélagi Norðurlands fengust þær upplýsingar að pósturinn flæddi orðið um allt hús. Seinni partinn í gær hafði ekki verið hægt að fljúga neitt á vegum félagsins, en einkum hefur hlaðist upp póstur til íbúa á Kópaskeri, Raufarhöfn, Þórshöfn og Vopnafírði og svæðun- um þar í kring. Um eitt hundrað farþegar biðu flugs með Flugfélagi Norðurlands í gær. „Þetta á allt eftir að smella sam- an, ástandið hefur oft verið svart, en aldrei svo að ekki hafi ræst úr og allir fengið jólasendingarnar sín- ar. Það á bæði við um þá sem fara landleiðina og í lofti að þeir leggja mikið á sig til að koma póstinum til skila," sagði Jón Ingi Cesarsson hjá póstinum. á annað hundrað þúsund króna. „Þetta er auðvitað hábölvað, en mér sýnist allt stefna í umfram- framleiðslu hjá mér á þessu verð- lagsári, svo kannski skiptir ekki máli hvort mjólkinni er hellt niður núna eða í ágúst. Kúabú eru á þremur bæjum í Skíðadal og á einum er búið með loðdýr og sagðist Óskar hafa frétt að þar væru menn að verða fóður- lausir. Þá væri hann sjáifur að verða kjamfóðurlaus. „Maður ætl- að nú að vera farinn i kaupstaðar- ferð fyrir nokkru síðan, en við þetta er ekki ráðið. Okkur líður ágætlega hérna og svo mikið er víst að við höfum að minnsta kosti nóg að drekka." Rannveig Guðnadóttir á Hnjúki, sem er fremsti bær í Skíðadal sagði í gær að enn hefði ekki þurft að grípa til þess að hella niður mjólk- inni. Tankurinn tæki tæpa þúsund lítra og væri fullur, en auk þess væri búið að setja mjólk í 5 brúsa sem tækju 40 lítra hver. Yrði mjólkin ekki sótt í dag, laugardag, væri sjálfsagt ekki um annað að ræða en hella niður, en verðmæti þeirrar mjólkur sem í tankinum væri næmi á milli 50 og 60 þúsund- um.„Það munar auðvitað um það, sérstaklega hjá minni framleiðend- um eins og okkur.“ Rannveig sagði að þrátt fyrir einangrun og það að geta ekki nálgast ýmsan varning liði fólki vel. „Við björgum okkur ágætlega fullorðna fólkið, en við erum með ungbarn sem síst sættir sig við fá ekki krukkumat, vill sinn mat og engar refjar,“ sagði Rannveig. Þá hafa íbúar bæjanna í Skíða- dal ekki komið frá sér jólapóstinum enn, en Rannveig sagðist vona að brátt yrði rutt heim að bæjunum svo menn gætu losað sig við pinkl- ana. -------^--------- Grímseyingar hafa fengið jólasteikina Grímsey. JÓLASTEIK Grímseyinga barst með Eyjafjarðarferjunni Sæ- fara, sem kom hingað milli élja á fimmtudag. Jólakjötssendingin er heldur fyrr á ferðinni nú en í fyrra, en þá mátti vart tæpara standa að hún næði til okkar fyrir jól vegna veðurs og ætluðu menn ekki að brenna sig aftur á þeirri óvissu að vita ekki hvort hangikjötið yrði á borðum yfir hátíðarnar. Annar varningur til jólanna, mjókurvörur, grænmeti og brauð kemur með feijunni á þriðjudag í næstu viku og þá er m.a. von á 65 lítrum af ijóma sem Grímsey- ingar ætla að gæða sér á yfir jól- in, en það er um hálfur lítri á mann. Vona menn að vel viðri svo feijan komist með varninginn. Leiðindaveður var hér í Grímsey í gær, föstudag, ofankoma og skaf- renningur og skyggni afar lítið, en veðrið versnaði heldur er á daginn leið. Sáu menn rétt grilla í ljóstýr- ur úr næstu húsum ef fast var lýnt. HSH Mosfellsbær Geta hoggið eiginjólatré Skógræktarfélag Mosfellsbæjar býður fólki að koma í dag og á morgun og velja sér jólatré úr lundi sínum og jafnvel höggva það sjálft. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Skógræktarfélagsins, sagði að reyndar gæti fólk ekki valið sér hvaða tré sem er, heldur aðeins þau sem ákveðið hefði verið að fella til að grisja skógarlundinn. Einnig eru í boði jólatré sem þegar hafa verið felld. Tré höggvið í Mosfellsbæ. Morgunblaðið/Árni Sæberg Háteigskirkja Mósaikverkið María, móðir Guðs sett upp VIÐ hátíðarmessu kl. 14 á kirkjudegi Háteigskirkju, sunnudaginn 20. desember, mun Kvenfélag Háteigssóknar afhenda söfnuðinum mósaikverkið María, móðir Guðs, sem prýða mun altarisvegg kap- ellu kirkjunnar. Benedikt Gunnarsson listmálari gerði frummynd af þessu verki að beiðni kvenfélagsins og vann lista- maðurinn að því af mikilli alúð og natni. Fyrirtækið Hans Mayer’sche Hofkunstanstalt í Múnchen, Þýska- landi, færði myndina í mósaik og er maður á þess vegum að ljúka við að setja hana upp. María, móðir Guðs minnir okkur fyrst og fremst á hið stórbrotna fagnaðarerindi, sem berst okkur svo kröftuglega á jólum, að Guð varð maður og vitnar um kærleika Guðs til okkar mannanna. Listamaðurinn vill tjá þennan veruleika í um- hyggju og mildi móðurinnar, sem umvefur barn sitt. (Fréttatilkynning)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.