Morgunblaðið - 19.12.1992, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992
Tommi og
Jenni til
Islands
TVÆR af ástsælustu persónum í
sögu teiknimyndanna, Tommi og
Jenni, eru í heimsókn á íslandi.
Þeir félagar munu koma víða við
á þeim stutta tíma sem þeir eru á
landinu, m.a. í Keflavík og á Akur-
eyri. Bíómyndin um Tomma og Jenna
verður frumsýnd í Regnboganum,
Reykjavík, Borgarbíói, Akureyri, og
Félagsbíói, Keflavík, 26. desember.
Tommi og Jenni spóka sig i Kringlunni í gær.
Hjúkrunarfélagið Líkn
HJÚKRUNARFÉLAGIÐ Líkn
var stofnað í Reykjavík árið
1915. Starf Líknar var mikil-
vægnr þáttur í heilbrigðismál-
um Reykjavíkur þar sem haft
var frumkvæði að því að veita
og skipuleggja hjúkrun í
heimahúsum og lagður grund-
völlur að víðtæku heilsuvernd-
arstarfi. Félagið var formlega
lagt niður árið 1956 þegar
Heilsuverndarráð Reykjavíkur
tók til starfa.
Á Borgarskjalasafni Reykjavík-
ur er varðveitt nokkuð af skjölum
varðandi Hjúkrunarfélagið Líkn
enda er það merkilegur kafli í
sögu Reykjavíkur. Stefnt er að því
að gera skjalasafn Líknar sem
heillegast á safninu.
Óskað er eftir að þeir sem kunna
að hafa undir höndum gögn frá
eða varðandi Líkn eða upplýsingar
um slíkt hafi samband við Borgar-
skjalasafn Reykjavíkur. Þar getur
t.d. verið um að ræða fundar-
gjörðabækur, bréf, ljósmyndir o.fl.
(Fréttatilkynning)
ÆHk f»V|■ ■ A I yC//\/(OAp
mm. ■ T 0/1 vU-nK
Bristol - Myers Squibb - ísland
Lyfjafræðingur
Óskum eftir að ráða lyfjafræðing, sem fyrst,
til starfa við lyfjakynningu og að hluta til við
stjórnunarstörf.
Þetta starf er fyrir einstakling sem:
★ Getur unnið sjálfstætt og hefur reynslu
sem lyfjakynnir.
★ Getur samið sölu- og verkefnaáætlanir.
★ Getur talað og ritað ensku og eitt til tvö
Norðurlandamálanna.
Umsóknir skulu sendast í pósthólf 5340, 125
Reykjavík, fyrir 30. desember 1992.
Aðalumboð
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI
Röntgentæknar
Óskum að ráða til afleysinga í 1 ár
röntgentækni
í 100% starfshlutfall frá 1. mars 1993.
Upplýsingar veitir deildarröntgentæknir
og/eða framkvæmdastjóri í síma 94-4500.
Skriflegar umsóknir sendist framkvæmda-
stjóra í pósthólf 215, 400 ísafjörður, fyrir
10. janúar nk.
HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á ÍSAFIRÐI
Hjúkrunarfræðingar
Óskum að ráða nú þegar eða eftir nánara
samkomulagi
hjúkrunarfræðinga
Umsóknir, ásamt upplýsingum hvenær um-
sækjandi getur hafið störf, sendist H.S.Í., póst-
hólf 215, 400 ísafjörður, fyrir 1. janúar nk.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri
og/eða framkvæmdastjóri í síma 94-4500
aila virka daga frá kl. 8-16.
■» AÐ A L JGl YSINGAR
Vkk / V V—/ Vw/ L / 1 / N/ / V / v
rnsöiu
sfmi620705
Hlutabréf
Af sérstökum ástæðum eru til sölu nokkur
hlutabréf í íslenska Hótelfélaginu h/f.
Einstaklingar hafa heimild til skattfrádráttar
lögum skv. vegna hlutafjárkaupa í félaginu.
Skrifstofa félagsins verður opin 21. til 23.
og 28. til 30. desember milli kl. 13.00-17.00
og á gamlársdag milli kl. 11.00-13.00.
Stjórnin.
ÝMISLEGT
Fasteignir
í Algarve í Portúgal
kynntar á Hótel Holiday Inn sunnudaginn
20. desember nk. milli kl. 15.00 og 18.00.
Hallgrímur Hallgrímsson, fasteignasali, sem
búsettur er í Algarve í Portúgal, mun kynna
valkosti í fasteignum í Algarve í máli og
myndum.
Viðtalspöntunum veitt móttaka í síma
93-11140 fram að kynningu.
Verið velkomin á kynninguna.
Framhald uppboðs
á Stórholti 13, 3. hæð C, (safirði, þingl. eign Hafrúnar Huldar Einars-
dóttur og Páls Sigurðssonar, fer fram eftir kröfu Jóns Jóhannesson-
ar á eigninni sjálfri mánudaginn 21. desember 1992 kl. 11.00.
Sýslumaðurinn á isafirði.
TILKYNNINC G<
Greiðsluáskorun
Sýslumaðurinn í Keflavík skorar hér með á
gjaldendur, sem ekki hafa staðið skil á skipu-
lagsgjaldi, álögðu 1992 og fyrr, að greiða
það nú þegar og ekki síðar en innan 15 daga
frá dagsetningu áskorunar þessarar.
Jafnframt er skorað á gjaldendur að gera
skil á virðisaukaskatti fyrir 32. tímaþil 1992
með eindaga 5. otk. 1992 og 40. tímabil
1992 með eindaga 5. desember 1992.
Tryggingagjald fyrir júlí, ágúst, septem-
ber, október og nóvember með eindaga
15. ágúst, 15. september, 15. október,
15. nóvember og 15. desember 1992.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara
fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna
ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem
af innheimtu skuldarinnar kann að leiða,
15 dögum frá birtingu áskorunar þessarar.
Keflavík, 18. desember 1992.
Sýslumaðurinn í Keflavík.
Ársgömul
Siemens eldavél
60 cm breið, selst á kr. 35.000.
Upplýsingar i síma 98-78107.
Heimsfriðarsamband
kvenna
Fyrirlestur,
Hlutverk kvenna í heimsfriði,
sunnudaginn 20. desember á
Hótel Loftleiðum kl. 20.00.
Þátttökugjald 300 kr.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ CÍMI 682533
Sunnudagur 20. des.
Esja - Kerhólakambur
Sunnudaginn 20. des. kl. 10.30
Esja um vetrarsólstööur.
Gengið sem leið liggur upp frá
Esjubergi á Kerhólakamb (856
m). Munið vetrarklæðnað yst sem
innst og þægilega skó. Göngu-
ferðin tekur um 4 klst. Farar-
stjóri: Jóhannes I. Jónsson. Verð
kr. 1.000,-. Fólk á eigin bílum
velkomið með i hópinn. Brottför
frá Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin, og Mörkinni 6.
Ferðafélagið óskar þátttakend-
um í ferðum ársins og öðrum
velunnurum gleðilegra jóla!
Ath.: Enn eru nokkur sæti laus
i ævintýralega áramótaferð til
Þórsmerkur. Grípið tækifærið
fyrir jól og tryggið ykkur sæti!
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænasamkoma í kvöld kl. 20.30.
Dagskrá vikunnar
framundan:
Sunnudagur:
Almenn samkoma kl. 16.30.
Umsjón Svanur Magnússon.
Aðfangadagur:
Aftansöngur kl. 18.00.
Einar J. Gíslason.
Jóladagur:
Hátíðarsamkoma kl. 16.30.
•Hafliði Kristinsson.
Sunnudagur 27. des.:
Brauðsbrotning kl. 11.00.
Mike Fitzgerald.
Mánudagur:
Stjörnutónleikar kl. 21.00.
JL, Nýja
Tj/ postulakirkjan,
AJ/Aíslandi,
IF JTArmúla 23,
108 Reykjavík
Guðsþjónusta verður haldin
sunnudaginn 20. des. kl. 11.00.
POSTULI JESÚ KRISTS,
WILHELM LEBER, ÞJÓNAR.
Gestir eru boðnir velkomnir á
guðsþjónustuna. Kaffiveitingar.
Safnaðarprestur.
UTIVIST
Holiveigarstig 1 » simi 614330
Dagsferð sunnudaginn
20. desember
Kl. 13.00 Álftanes-Skansinn.
Gangan hefst við Bessastaði og
þaðan að Skansinum, út með
Seylunni og síðan suður með
Bessastaðatjörn.
Brottför frá BSÍ, bensinsölu.
Verð kr. 600/500. Frítt fyrir börn
í fylgd fullorðinna.
Sjáumst í ferð með
Útivist.
Tekið er til starfa
söðlasmíðaverkstæði
í Stangarhyl 6, Reykjavík,
sími 91-684655.
Pétur Þórarinsson,
söðlasmiður.