Morgunblaðið - 19.12.1992, Síða 10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992
Fagrar myndir og
tregafullur blær
Bókmenntir
Skafti Þ. Halldórsson
Matthías Johannessen: Árstíða-
ferð um innri mann. Ljóð. 70
bls. Iðunn 1992.
Innri maður kemur mjög við
sögu í nýrri ljóðabók eftir Matthí-
as Johannessen, Árstíðaferð um
innri mann. í henni skoðar skáldið
hug sinn og opnar okkur sýn inn
í hann með því að færa tilfinning-
ar sínar í búning ljóðsins.
Sjálf hugmyndin um innri mann
leiðir strax hugann að klofningi
sálar og líkama, vitundar og ver-
undar. Hún vekur upp minningar
eða grun um að einhvern tímann
hafi verið samruni og eining líkt
og greinir frá í helstu trúarbrögð-
um heimsins. Af sama toga er
hugmyndin um sameiningu sálna,
ástina og kærleikann. Að slíkri
sameiningu víkur Matthías oft í
kvæðum sínum. Þráin um samein-
ingu er hreyfiafl þeirra margra
og sömuleiðis sorgin við aðskilnað,
söknuðurinn og treginn. Sá sökn-
uður tengist einnig glímunni við
tímann, forgengileikann og dauð-
ann.
Um slíka sameiningu er m.a.
fjallað í kvæðunum Snerting og
Vængjatak í búri. í síðamefnda
kvæðinu er ljóðmælandi í líki flugu
sem dregst að hinu elskaða eins
og að ljósi „og þú breytir mér/ í
ósýnilega/ hugsun þína“. Söknuð-
ur og sorg vegna aðskilnaðar er
þó ekki síður ásækið yrkisefni.
„Sakna þín/ einsog sakni/ sólar
hver dagur,“ segir í kvæðaflokkn-
um Vötn eru augu þín.
Um sameiningu og aðskilnað
er einnig fjallað í fögrum ljóða-
flokki Haustið er hugmynd um
dauðann. Hann er ástar- og sakn-
aðarljóð og segir frá sameiningu
elskenda. Hugsanir snertast og
hendur þeirra „eru greinar/ flétt-
ast saman/ laufgast“. En hin elsk-
aða hnígur að foldu: „Augu þín
hverfa/ í myrkur/ og sex fet af
þögn“ og ljóðmælandi fylgir sakn-
andi „til grafar/ þeim ilmi/ sem
eitt sinn/ varst þú“.
Sé tákn- og myndheimur ljóða-
flokksins skoðaður sést að Matthí-
as leikur sér með myndir og tákn
haustsins, til dæmis stjömur og
lauf. í seinni hluta ljóðaflokksins
er kvæði þar sem hinnar elskuðu
er minnst:
Kulnuð stjama
hverfur þú
í hreyfingarlausa þögn
en ljós þitt
fylgir okkur
í gagnsæju myrkri
En söknuðurinn tengist einnig
forgengileika ljóðsjálfsins. „Hægt
kveður tíminn,“ segir í kvæðinu
Ellin, lokaþáttur sjónleiks og síðar
í sama ljóði segir:
augu þín hverfa
himni sem áður
var ungur af laufí
og vindgrænum stráum
við Qallbláa kliðandi
vængi í uppstreymi
hugans
en hugmynd þín máist
í íjarlægð sem deyr
einsog dagur
við eirbrúna sól
undir himni sem hnígur
til hafs
Sömuleiðis verður dauðahugs-
unin skáldinu ásækin. í kvæðinu
Sigðgulur tími fremur dauðinn
„haugbrot/ í hugsun þína“. Þar
er „hús tímans/ bmnnið/ að köld-
um kolum“.
í Árstíðaferð um innri mann
em allmargir ljóðaflokkar og
lengri ljóð. Flest eru ljóðin í þess-
um flokkum knappar og tálgaðar
ljóðmyndir og minna sum hver á
þá ljóðkjama sem birtust í bókinni
Flýgur örn yfir (1984). Þó em
einnig mælsk ljóð innan um þar
sem hver ljóðmynd tekur við af
annarri í haganlegri fléttu. Styttri
ljóð er einnig að finna.
Eitt stuttu ljóðanna í bókinni
nefnist Ljóð eiga að lýsa áhrifum,
ekki sannfæringu. Þetta er sam-
kvæmt skáldinu vísun í enska
skáldið Thomas Hardy (1840-
Matthías Johannessen
1928) en það er ekki fráleitt að
lesandi falli í þá freistni að skoða
skáldskap Matthíasar í ljósi þessa
ljóðheitis. Varla verður raunar sagt
að hann hafi alltaf farið eftir slíkri
kennisetningu og nægir að vísa til
háðsádeiluljóða seinustu ljóðabók-
ar hans, Fuglar og annað fólk
(1991), því til staðfestingar. En í
hinni nýju bók er ekki fjarri sanni
að henni sé fylgt. Mörg kvæðanna
em að ytra borði náttúruljóðræna
eða ástarkvæði sem einkennast
fremur af túlkun á tilfinningaleg-
um upplifunum en skoðunum.
Þetta eru kvæði sem hæglega
mætti líkja við málverk þeirra af-
strakt expressionista hér á landi
sem fundu sína tjáningarleið í
landslagsmálverkinu. Styrkur ljóð-
anna byggist ekki hvað síst á sam-
spili litaorða, tákna, vísana og ljóð-
mynda þar sem leitast er við að
láta náttúmmyndir kveikja eða
endurvekja tilfínningar í huga les-
enda.
í ljóðaflokknum Árstíðaferð um
innri mann teflir Matthías þannig
fram ljóðrænni náttúraveröld, feg-
urðarheimi. Hver náttúrumyndin
rekur aðra þar sem leikið er á fjöl-
skrúðugan litaskala frá lagðhvítu,
páskadagsgulu og bláfextu að
sandgráu og grámosóttu. Saman
koma kosmísk öfl; sól, tungl,
stjörnur og himinn en einnig hin
smágervari náttúra; þrestir og
lauf. Inn í árstíðabundnar náttúm-
myndir fellir skáldið tilfínninga-
Iegar upplifanir. Stundum era þær
ljúfsárar: „Setjast snjóflyksur/ í
sárar greipar// hvítasunnufugl-
ar“. Eða tjáning ástar: Ást// fugl-
ar/ við flögrandi/ hreiður/ án þess
vita/ hvers vegna“.
í þessum ljóðaflokki em margar
áhrifaríkar en orðknappar ljóð-
myndir. Má eiginlega segja að þær
séu eitt helsta einkenni hans og
ef því er að skipta bókarinnar allr-
ar. Oft eru þær dvergasmíð eins
og lokaljóð flokksins þar sem túlk-
uð er endurfæðing sumars í hinum
eilífa hring árstíðanna og sigur
lífs á dauða:
Rauðari en rauða
í eggi
nsandi sól
úr skumi
dauðans.
Árstíðaferð um innri mann er
athyglisverð bók full með fagrar
myndir og tregafullan blæ. Hún
er samin af kunnáttusemi, ríkri
sköpunarþörf og þrótti. Ég hygg
hún sé með bestu verkum skálds-
ins. Ljóðmálið er agað og knappt,
knappara en oft áður, og ferðalag-
ið um hinn innri mann er um
margt áhugavert.
HAIR
if^- Stamir
if^~ Póstsendum
if^~ Barnast. i 8 -35
LAGIR
if^- Má þvo í þvottavél
if^ Verð kr. 2.100 - 2.500,-
if^- Fullorðinsst. 36-47
g íi-1471 1 r—0 g 96-24123
GÍSLI
FERDINANDSSON HF
tÆKJARGÖTU 6A - 101 REYKJAVÍK ■ HAFNARSTRÆTI 88 • 600 AKUREYRI
if^- Hvítir, svartir og brúnir
leðurklossar
if^- Sveigjanlegur sóli
if^ Stærð 35 - 47
ifþ* Verð 3.500,- kr.
if^- Sendum í póstkröfu
S 20937
GISLI
FERDINANDSSON HF
LÆKJARGÖTU 6A ■ 101 REYKJAVÍK ■ HAFNARSTRÆTI 88 ■ 600 AKUREYRI
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
„Síðara dæmi Óðins“ í Háva-
málum, öðm nafni Gunnlaðar-
þáttur, hefst á þessari merki-
legu vísu:
Heima glaður gumi
og við gesti reifur,
svinnur skal um sig vera,
minnugur og málupr,
ef hann vill margfróður vera,
oft skal góðs geta,
fimbulfambi heitir
sá er fátt kann ségja,
það er ósnoturs aðal.
Þessi kveðskapur hefur ekki
alltaf verið tekinn saman og
skýrður á einn og sama veg.
Ég reyni það svona: Svinnur
gumi skal vera glaður heima og
reifur um sig við gesti, minnug-
ur og málugur og geta oft góðs,
ef hann vill vera margfróður.
Sá er fátt kann segja, heitir
fimbulfambi. Það er aðal ósnot-
urs. Endursögn: Vitur maður á
að vera glaður heima hjá sér og
hress við gesti sína (kannski ríf-
legur bæði í orðum og veiting-
um). Hann á að vera minnugur
og ræðinn og geta þess helst sem
gott er (ekki vera umtalsillur),
ef hann verðskuldar að kallast
margfróður. Sá sem ekki kann
að koma laglega fyrir sig orði,
kallast fímbulfambi. Slíkt (það
að kunna ekki að koma fyrir sig
orði) er einkenni hins óvitra
manns.
Freysteinn Gunnarsson þýddi
orðið fimbulfambi = „rugludall-
ur, vaðalskollur, masgepill",
enda skorti hann ekki orðvísi.
Finnur Jónsson þýddi fimbul-
fambi með danska orðinu ærke-
tosse, enda var fimbulfambinn
dæmigerður heimskingi. Nú á
dögum er þetta orð víst lítið
notað, en hvomgkynsorðið
fimbulfamb talsvert. Það merk-
ir mgl og froðusnakk, og eru
þess dæmi ófá í ræðum manna.
Reyndar var umsjónarmaður
einkum að hugsa um boðskap-
inn: oft skal góðs geta. Þetta
fínnst honum spaklegt, en fer
stundum eins og manni þeim
sem sagðist ekki gera það góða
sem hann vildi. Mig langar til
að segja að ég sé skóginn fyrir
trjánum. Ég meina að margir
starfsmenn fjölmiðla eru prýði-
lega máli farnir. Þess vegna er
svo gremjulegt þegar fáeinir
glapyrðingar (sem Arni Krist-
jánsson samkennari minn kallaði
taðjarpa) koma óorði á stéttina.
Við þessu dugar held ég ekkert
nema fræðsla og leiðbeining, og
fyrir hvern og einn lestur góðra
bóka, lestur og aftur lestur.
Lestur sígildra bókmennta okk-
ar, og nóg er af þeim, lestur
þjóðsagna og höfuðskálda. „Þeir
sem ekki þekkja classicos, era
ónýtir,“ sagði Gröndal.
Og svo hefst jag og nudd og
nagg:
Langar mig til að ítreka fáein
atriði úr fyrri þáttum:
a) Burt með „sjónmengun“. Slíkt
heitir óprýði eða lýti. b) Eitt-
hvað er augnayndi eða eyrna-
yndi. Sr. Jón á Bægisá kallaði
slíkt eyrna lyst. „Eyrnakon-
fekt“ er með ólíkindum mis-
heppnuð fyndni, ef ekki einber
kauðaháttur. c) Vilja menn ekki
í kyrrð og ró athuga hvort ekki
megi með góðu móti losna við
orðið „barnabarnabarnabarn"?
Þetta minnir mig á orm. Orð
eins og afkomendur, niðjar,
vandamenn, venslafólk,
frændur og tengdamenn geta
hér oft átt við eftir atvikum, svo
að forðast megi ofanprentaða
langloku.
★
„Þegar litið er yfír íslenzk
allsherjarmanntöl frá 19. öld,
kemur þar margt kynlega fyrir
671. þáttur
sjónir, það vekur blátt áfram
furðu, hversu mikið veður þar
uppi af ónefnum og skrípanöfn-
um ýmiss konar . . . Duttlungar,
hégómaskapur og fordild virðist
þar svo oft hafa átt völdin og
ráðið um nafnavalið ... í skól-
um, ýmiss konar félagsskap og
starfshópum, verða nú af-
skræmislegu nöfnin skotspænir
kerskni og aðkasts í mörgum
myndum. Slíkt aðkast getur
hæglega valdið ungri og við-
kvæmri sál truflunum, sem
draga úr sjálfstrausti og af-
kastagetu og varpa Jafnvel
skugga á framtíð alla. í návist
þess, sem ónefni ber, er því oft
brýnust þörfin á að hafa í huga
orð skáldsins: „Aðgát skal höfð
í nærvem sálar.“
(Sr. Jón Skagan í Iiugurinn
flýgur víða 1972.)
★
Þegar líður að jólum, taka
ýmsir að amast við tískuorðinu
jólaglögg. Ég held það sé kom-
ið úr sænsku og merki ,jóla-
glóð“. Svo vill Bjarni Sigtryggs-
son hafa það. En Haukur Ragn-
arsson á Mógilsá vill heldur taka
g í burtu og hafa jólalögg. Aft-
ur á móti langar umsjónarmann
til að minna á orðið jólafasta
sem haft var í minni sveit, en
virðist nú ómaklega þoka fyrir
orðinu aðventa.
★
Nú er jólna sopið sumbl,
sálminn lýk ég við.
Ef drykkurinn er daufur,
drósir, forlátið.
Slítum mjaðar ei mót,
meðan blundar sól;
enginn veit, hvort aftur hittumst
önnur jól.
(GrímurThomsen 1820-96: Jólnasumbl.)
Svo óskar umsjónarmaður
ykkur öllum gleðilegra jóla.
Næsti þáttur kemur 29. þ.m.