Morgunblaðið - 19.12.1992, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19, D.ESEIVIBER 1992
11
Helgi Hálfdanarson
Yísa Gríms
Góðu heilli hefur Thor Vil-
hjálmsson samið minningabók.
Sú nefnist Raddir í garðinum og
er bæði fróðleg og bráðskemmti-
leg eins og vænta mátti. Þar
segir meðal annars ýmislegt af
merkisfólki í Þingeyjarsýslu sem
Thor komst í kynni við í æsku.
Einn þeirra sem um getur er
Grímur Sigurðsson, bóndi á Jök-
ulsá á Flateyjardal, gáfaður
maður og skáldmæltur vel. Af
kveðskap hans fer Thor með vísu
eina sem ég hef löngum haft
mætur á og hljóðar svo:
Ég hef kynnzt til þrautar því
að þeim mun logar minna
sem menn skara oftar í
eldinn vona sinna.
Thor mun hafa lært vísuna
af kunnugum fyrir norðan, enda
er hún næstum samhljóða þeirri
gerð sem prentuð er í Þingeysk-
um ljóðum, safni sem út kom
1940, og mun vera sú heimild
sem næst stendur höfundi sjálf-
um.
Nú vill svo til, að mér er um
það kunnugt, að Grímur orti vísu
þessa nokkuð á annan veg í önd-
verðu, og í þeirri gerð kemur hún
jafnan mér í hug. Hún er á þessa
leið:
Ég hef reynt til þrautar það:
þeim mun logar minna,
sem menn skara oftar að
eldum vona sinna.
Aldrei sá ég Grím Sigurðsson;
en fyrir þessu hef ég ekki
ótraustari heimildarmann en
Karl Kristjánsson alþingismann,
sem reyndar var annar tveggja
útgefenda að Þingeyskum Ijóð-
um á sínum tíma. Hann sagði
mér frá þessu fáum árum eftir
að sú bók kom út.
Einhver hafði haft orð á því
við Grím, að til þess að lífga eld
í glóðum væri skarað í þær, en
ekki skarað adþeim; það gerðu
menn hins vegar þegar eldur
væri „falinn“.
Þessa réttmætu athugasemd
tók Grímur svo nærri sér, að
hann breytti vísunni samkvæmt
henni.
En þrátt fyrir allt þykir undir-
rituðum sem þarna hafi Grímur
stórspillt prýðilegri vísu. Því
hvað sem líður bókstaf eldhús-
fræða hygg ég að upphafsgerðin
hæfi mun betur þeirri yfirfærðu
merkingu sem í vísunni er fólgin.
Naumast er það álitamál, hvað
þessu ljóði, sem ort er í moll, fer
a-hljóð í endarími miklu betur
en j-hljóð. Og sú athöfn að skara
að eldi til að lífga hann minnir
á umhyggju og alúð. þegar hlúð
er að einhveiju sem er kært en
veikburða. Þar í grenndinni er
orðtakið „að skara eld að sinni
köku“, þó að svipur þess sé ann-
ar. En sá verknaður að skara í
eld, reka deyjandi glóðina í gegn,
minnir fremur á fjandsamlegan
verka. Þá má einnig benda á
það, hvað fallendingin -um í orð-
inu eldum er miklu tilkomumeiri
en þarflaus greinirinn í eldinn. í
Þingeyskum ljóðum er lokalína
vísunnar raunar: elda vona
sinna, og naumast er hún þekki-
legri, þar sem þijár samhljóða
endingar raða sér upp í hvum-
leiðu tilbreytingarleysi. Síðast en
ekki sízt er á það að líta, hvað
sögnin reyna í fyrstu línu er
miklu máttugri en kynnast. Það
virðist vera sitt hvað að hafa
kynni af einhveiju, ef til vill af
afspurn, og að reyna það á sjálf-
um sér.
Mér þótti vænt um að sjá
þessa fallegu vísu á svo góðum
stað sem í bók Thors Vilhjálms-
sonar, þar sem hún er að sjálf-
sögðu höfð eins og sveitungar
skáldsins kunna hana. En ég get
ekki stillt mig um að hafa orð á
þeirri gerð hennar, sem vitað er
að fullort var og uppi höfð í
fyrstu, en var af annarlegum
ástæðum breytt. Og því aðeins
er ég að minnast á þessa frum-
gerð, að mér þykir hún svo miklu
betur ort og langt um fallegri,
enda sprottinn úr huga höfundar
síns ótrufluðum af því sem ég
vil helzt kalla misskilning.
Einhvern tíma sagði vinur
minn Árni Jörgensen, ritstjórn-
arfulltrúi Morgunblaðsins, við
mig að gefnu tilefni: „Þegar þú
þykist vera að skrifa um Iðnó,
ertu bara að skammast út af
ráðhúsinu.“ Kannski segir hann,
að nú sé ég að spjalla um Grím
heitinn á Jökulsá til þess eins
að koma mér upp tækifæri til
að hrósa bók Thors Vilhjálms-
sonar. Það væri að vísu ekki jafn-
satt og sú undirhyggja væri rétt-
mæt.
Bílastæði við
Kringluna
AÐ UNDANFÖRNU hefur verið
mikið aðsókn í Kringluna og þó
að bílastæðin séu rúmlega 2.000
hefur komið fyrir á mestu álags-
tímum að erfitt hafi verið að
finna bílastæði. Til að bæta úr
þessu hefur bílastæðum í ná-
grenni Kringlunnar verið fjölgað
um 900 nú fram til jóla, segir í
fréttatilkynningu frá Kringl-
unni.
Þessi viðbótarstæði eru starfs-
mannastæðin bak við Kringluna en
þau eru nú einungis nýtt fyrir við-
skiptavini. Heimilt er að leggja á
lóð Verslunarskólans og á nýja bíla-
stæðinu bak við Sjóvá-Almennar
hf. Einnig hefur verið útbúið bíla-
stæði á túninu fyrir norðan Hús
verslunarinnar og verður það nýtt
fyrir viðskiptavini ef frost er í jörðu.
Þá hefur Kringlan afnot af bíla-
stæði norðan við Útvarpshúsið við
Efstaleiti og verður sérstakur bíll í
ferðum allan daginn frá stæðinu
norðan Útvarpsins og að Kringl-
unni.
Verslanir í Kringlunni verða opn-
ar lengur nú um helgina. Á laugar-
dag er opið til kl. 22 og á sunnudag
verður opið frá kl. 13 til 17. Veit-
ingastaðir Kringlunnar eru opnir
lengur en verlanirnar.
(Fréttatilkynning)
Kostnaður vegna reyk-
inga mun hærri en
tekjur af tóbakssölu
KOSTNAÐUR þjóðfélagsins af reykingum árið 1990 var á bilinu
200 til 700 milljónir króna umfram tekjur ríkisins af tóbakssölu
sama ár. Þetta kemur fram í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla
íslands fyrir Tóbaksvarnarnefnd um þjóðfélagslegan kostnað
vegna reykinga á íslandi árið 1990. Þá kemur fram í skýrslunni
að a.m.k. 240 manns Iátist á hverju ári hér á landi af völdum
reykinga.
Talið er að beinn heilbrigðis-
kostnaður vegna reykinga árið
1990 hafi verið á bilinu 370 til
400 milljónir króna og að almenn-
ur sjúkrahúskostnaður vegna
sjúkdóma af völdum reykinga hafi
numið um 470 milljónum króna. í
skýrslunni kemur fram að óbeinn
kostnaður þjóðfélagsins vegna
reykinga hafi verið í kringum 3
milljarðar króna, þar af í kringum
2 milljarðar vegna framleiðslu- eða
vinnutaps vegna ótímabærra
dauðsfalla, öorkuþega og veik-
indaforföll reykingamanna.
Þá er talið að annar þjóðfélags-
legur kostnaður, svo sem eldsvoð-
ar af völdum reykinga og fram-
leiðslutap fyrirtækja vegna reyk-
inga á vinnustöðum, aðallega í
formi reykingahléa, hafi numið
rúmum milljarði króna. Þjóðfé-
lagslegar tekjur ríkisins af sölu
tóbaks fyrir árið 1990 voru hins
vegar rúmir 3 milljarðar króna.
Skýrslan er unnin af Björgvini
Sighvatssyni, sem ritgerð til hag-
fræðiprófs með styrk frá Tóbaks-
varnarnefnd. Á fundi, sem haldin
var til að kynna skýrsluna, sagði
Guðmundur Magnússon prófessor
að um varfærnislegar tölur væri
að ræða. Forsvarsmenn Tóbaks-
varnanefndar telja að í raun sé
kostnaður þjóðfélagsins vegna
reykinga þó nokkuð hærri en fram
kemur í skýrslunni.
Björgvin Sighvatsson segir að
a.m.k. 14% af þeim sem létu lífið
árið 1990 hafi látist vegna reyk-
inga.
METEOR ELDVARNAREFNI
ELDVÖRNIN, SEM BEÐIÐ HEFUR VERIÐ EFTIR.
ÞÚ ÚÐAR METEOR YRIR BLÓMASKREYTINGUNA, JÓLAKRANSINN OG ALLT, SEM
DREGUR í SIG EFNIÐ, Þ.E.A.S. GLUGGATJÖLD, BORÐDÚKA O.FL. O.FL.
FÆST HJÁ: HAGKAUP, MIKLAGARÐI, BLÓMAVALI, KAUPF. ÁRNESINGA,
BENSÍNSTÖÐVUM ESSO OG BLÓMAVERSLUNUM VÍÐA UM LAND.
HEILDSÖLUDREIFING VEITIR HF., SÍMI 91-688838.
Dömu- ojí herm-
peysur í úrvalí
Einnig: Bolir - vesti - skyrtur - blússur
o.m.fl.
ALLT A GOÐU VERÐI
KARNABÆR
Borgarkringlunni, sími 682912
Laugavegi 66, sími 22950.