Morgunblaðið - 19.12.1992, Qupperneq 12
StíBI HMilMMf-iMCl .er HUOAtfHAtJUA I CIK-fAjaHUOítOM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992
%
,.>-> Við erum
í C5 I I I með jólagjöfina
handa henni
Ný sending:
Síó pils, silkipeysur, fallegar tóskur.
Sendum í póstkröfu.
Opið í dag til kl. 22.00
Sunnudag frá kl. 13.00-17.00.
Laugavegi 97, sími 17015.
Nýsköpun er leið að
langl ímamarkmið um
eftir Þorvald
Finnbjörnsson
Þegar harðnar í dalnum í íslensku
efnahagsiífi vaknar almennur áhugi
á nýsköpun í atvinnulífinu. Leikir
og lærðir þeysa fram á ritvöll dag-
blaða eða halda þróttmiklar ræður
á ráðstefnum og við hátíðleg tæki-
færi. Efnahagsvandann á að leysa
með nýsköpun og eru oft nefnd
dæmi í því sambandi. Virkja á auð-
lindir okkar í hafí og á landi og er
lykillinn að öllu þessu sá mannauður
sem til er í landinu.
Omarkviss umræða
Þessi áhugi er vissulega góðra
gjalda verður og bráðnauðsynlegur
ef taka á til hendinni við nýsköpun
i landinu. í þessari umræðu hefur
nýsköpun mismunandi og oft óljósa
meiningu. Eitt vandamál er það að
nýsköpun er flókið ferli aðgerða sem
nær yfir breitt svið atvinnurekstrar
og stuðnings við hann og koma þar
margir við sögu. Hugtakið nýsköpun
(innovation) er flókið og erfitt að
skilgreina. Nýsköpun í víðu sam-
hengi á sér stað þegar lausn er fund-
in á tæknilegu-, félagslegu- eða
skipulagslegu vandamáli, sem upp
hefur komið einhvers staðar í
þjóðfélaginu. Tæknileg nýsköpun er
hins vegar aðferð sem fyrirtæki
nota til að bæta samkeppnisstöðu
sína og þar með afkomu. OECD
hefur í svokölluðum „Oslo Manual“
sem kemur út um þessar mundir
skilgreint tæknilega nýsköpun:
„Tæknileg nýsköpun nær yfir nýjar
framleiðsluvörur og framleiðsluað-
ferðir eða afgerandi tæknilegar
breytingar á framleiðsiuvörum og
framleiðsluaðferðum. Nýsköpun er
orðin staðreynd þegar framleiðslu-
varan hefur verið færð á markaðinn
(framleiðslunýsköpun) eða hefur
verið notuð við framleiðslu (aðferð-
anýsköpun). Nýsköpun hefur í för
með sér röð vísindalegra, tækni-
legra, skipulagslegra, fjárhagslegra
og viðskiptalegra aðgerða."
Með framleiðslu er einnig átt við
þjónustu.
Þegar talað er um að auka ný-
sköpun í atvinnulífinu verða menn
að hafa í huga að um er að ræða
margþætta starfsemi sem þarf að-
gang að margvíslegri sérþekkingu
og öðrum aðföngum. Það þarf því
að undirbúa jarðveginn fyrir ný-
sköpun í landinu.
Ábendingar OECD
Sérfræðingar OECD sem skoð-
uðu vísinda-, tækni- og nýsköpunar-
kerfið í landinu fyrr á þessu ári,
lögðu til að mótuð verði nýsköpunar-
stefna í landinu. Að þessari stefnu-
mótun ættu að standa bæði stjórn-
völd og fulltrúar atvinnulífsins og
stoðstofnana þess. Hlutverk þessar-
ar stefnumótunar er meðal annars
að koma á umhverfi þar sem fyrir-
tæki geta leitað stuðnings við ný-
sköpunarstarfsemi sína. Þessi
stuðningur gæti verið í formi þekk-
ingar á öllum hliðum atvinnustarf-
semi og lausnum vandamála, svo
sem á sviðum rannsókna og þróun-
ar, tækni, fjármála og markaða svo
eitthvað sé nefnt. Jafnvel stærri
fyrirtæki hafa ekki oft á sínum
snærum fólk sem býr yfir allri þeirri
JANUARUTSALAN
Nei, nei, þetta er örugglega ekkert grín
Við hjá TÓNVERI vitum nefnilega hvað það er ergilegt að sjá allar jólavörurnar, sem keyptar
eru dýrum dómum, hríðfalla í verði í janúar. Það er aðeins hægt að bregðast við því á einn veg:
JANÚARÚTSALA FYRIR JÓL!
20“ litsjónvarpstæki með
fjarstýringu +
myndbandstæki með
fjarstýringu.
Rétt verð kr. 62.000,-
Jólaútsöluverð
kr. 49.900,- stgr.
Þú sparar kr. 12.100,-
ekki í janúar, NÚNA!
21" litsjónvarpstæki með
flötum skjá og fjarstýringu
+ myndbandstæki með
fjarstýringu.
Rétt verð kr. 74.222,-
Jólaútsöluverð
kr. 59.900,- stgr.
Þú sparar kr. 14.322,-
ekki í janúar, NÚNA!
Þetta frábæra ferðatæki er með
tvöföldu kassettutæki,
geislaspilara, útvárpi og
hátölurum, ásamt 3ja banda
tónjafnara.
VERÐ AÐEINS kr. 18.900,- stgr.
Hljómtækjastæða á ómótstæðilegu
verði. Geislaspilari, plötuspilari, tvöfalt
kassettutæki, útvarp, hátalarar.
Jóla jóla verð aðeins kr. 31.900,- stgr.
ekki í janúar, NÚNA!
Þetta ferðatæki er tiivalið í
sumarbústaðinn, bílskúrinn
eða herbergið.
Tvöfallt kassettutæki, útvarp,
CD tengi, 3ja banda tónjafnari
og „bassa booster".
VERÐ AÐEINS kr. 7.950,-
Vasadiskó handa þeim
litlu eða stóru frá
kr. 1.500,-
Frábært úrval af
útvarpsverkjaraklukkum.
VERÐFRÁ kr. 1.500,-
Ferðatæki frá kr. 2.900,-
TOPER
-betri verð NÚNA
Garðastrarti 2, sími 627799,
bílageymsla beint á inóti.
Abyrgð-IVlunalán-Þýzk gæðamerki. Sendum hvert á land sem e
þekkingu og færni sem nauðsynleg
er fyrir nýsköpunarferlið og því síð-
ur minni fyrirtæki. Áhersla á einn
þátt ferilsins er engum til góðs. Ef
tíma og peningum er til dæmis var-
ið til að þróa fram vissa afurð án
þess að tekið hafi verið tillit til fjár-
mögnunar á þróun og framleiðslu
hennar eða hugað að viðbrögðum
markaðar er oftast betur heima set-
ið en af stað farið. Það er nauðsyn-
legt að ráða yfir þekkingu á öllum
þáttum málsins ef umbreyta á vís-
indum í dollara eða ECU.
Islendingar eru nýgræðingar á
sviði tæknilegrar nýsköpunar. Iðn-
ríkin hafa stundað skipulagða ný-
sköpun um áratuga skeið og mótað
stefnu í því sambandi og í mörgum
tilfellum fijósamt umhverfi þar sem
þekking er fyrir hendi. Á meðan
hafa íslendingar treyst á auðlindir
í hafi og á landi. Fýrirtækin hafa
stundað nýsköpun hvert fyrir sig
án venilegs stuðnings frá umhverf-
inu. Orfá ný fyrirtæki sem byggja
á nýrri þekkingu hafa verið sett á
stofn á síðari árum og enn færri
hafa staðist þá ókýrrð sem að þeim
hefur steðjað. Það er meðal annars
vegna dugnaðar stofnenda þeirra
við að leita stuðnings í umhverfínu
að þau eru enn til í dag.
Að velja framtíð
Margir hafa vakið athygli á nauð-
syn þess að koma fleiri stoðum und-
ir atvinnulífið þó lítið hafí verið
unnið að því á skipulegan hátt.
Tæknileg nýsköpun ætti að hafa í
för með sér auknar fjárfestingar,
aukan tekjuöflun þjóðarinnar, fleiri
ársverk og væntanlega aukin út-
flutningsverðmæti. Pjárfestingar í
iðnaði hafa dregist saman á níunda
áratugnum en verðmætaaukning
hefur verið nokkur. Fjöldi ársverka
sem óx lítillega fram til 1987 hefur
farið niður fyrir þann fjölda sem var
1980.
Utflutningsverðmæti á föstu
verðlagi og verðmæti miðað við
magn hefur verið að dragast saman
á tímabilinu. í sjávarútvegi hefur
fjárfesting farið vaxandi, þó hún
hafí lækkað talsvert undir lok
níunda áratugarins. Verðmæta-
sköpun í greininni hefur aukist jafnt
og þétt yfír tímabilið og örlitla auk-
ingu ársverka er hægt að sjá í grein-
inni. Útflutningsverðmæti sjávaraf-
urða hefur aukist á síðasta áratug
og má segja það sama um verð-
mæti miðað við magn, en útfiutt
magn hefur minnkað nokkuð. En
það eru meðal annars markmið
tæknilegrar nýsköpunar að auka
verðmæti afurða og draga úr til-
kostnaði við þær. Erfitt er að gera
sér grein fyrir hvort verðmæti sjáv-
arafurða hafí aukist vegna áhrifa
framboðs og eftirspurnar eða hvort
aukningin sé vegna þess að nýjar
og verðmætar vörur, afieiðing
tæknilegrar nýsköpunar, hafa verið
fluttar út. Af þessu má sjá vísbend-
ingar um að í sjávarútvegi og iðn-
aði hafa ekki skapast þau störf sem
vonast var eftir og verðmætaaukn-
ing í greinunum hefur verið of lítil.
Eina starfsemin sem dregið hefur
til sín vinnuafl er opinber starfsemi
og fjármálaþjónusta.
Hlutverk ríkisins
ísland stendur frammi fyrir því
að atvinnuástandið lagist líklega
ekki í bráð og að þjóðarframleiðsla
haldi áfram að minnka ef ekki verð-
ur haldið skipulega á málum ný-
sköpunar í þágu atvinnulífsins. Það
nægir ekki að lítil fyrirtæki hvert í
sínu lagi, séu að vinna að bættri
samkeppnisstöðu í stöðugt erfíðara
umhverfi. Allir þurfa að leggjast á
eitt og vinna að sama marki. Því
þarf að hefja strax þá vinnu að
móta langtímastefnu um nýsköpun.
Stjórnvöld sem ættu að hafa frum-
kvæðið að nýsköpunarstefnu, hafa
gert eða ákveðið að gera ýmislegt
til að auðvelda framkvæmd nýsköp-
unar í atvinnulífinu. Má nefna