Morgunblaðið - 19.12.1992, Side 18
GUCCI
Frábœr úr
útlit og gœði
GUCCI
úrin fást hjá
Garðari Ólafssyni
úrsmið, Lækjartorgi.
Ql seer aaaMaaaa ei sruoAaaáOUiu araAjaynjoaoM
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992
Jsabdh
Lancray
PARIS 7
*
Aform um að rífa Hótel Vík
Þjóðminjavörður tekur mál-
ið upp í húsafriðunarnefnd
Húsið er ekki á lista yfir byggingar sem borgaryfir-
völd vilja vernda, segir formaður skipulagsnefndar
Taugastríðið
eftir Ruth Rendell
Sálfræðiþriller eins og hann gerist best-
ur; þráhyggja sakamanns að kynnast
fórnarlambi sínu og unnustu hans. Af-
leiðingarnar eru ófyrirséðar.
Út í hönd
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður skipulagsnefndar Reykjavík-
ur, sagðist hafa staðfest við Póst
og síma, áður en stofnunin keypti
Hótel Vík, að húsið væri ekki á
tveggja ára gömlum lista, sem borg-
aryfirvöld samþykktu fyrir sitt leyti
um hús, sem þau hefðu sérstakan
áhuga á að varðveita, enda hefði
legið fyrir staðfest deiliskipulag mið-
bæjarins, sem samþykkt var 1986,
og þar væri gert ráð fyrir að húsið
mætti víkja fyrir nýbyggingu. Vil-
hjálmur sagðist auk þess hafa bent
Pósti og síma á að kynna sér þjóð-
minjalögin frá 1989, þar sem eru
ákvæði um að ekki sé leyfilegt að
rífa eða breyta húsum, sem eru eldri
en frá 1900, án umsagnar minja-
varðar og húsafriðunarnefndar.
„Ef borgaryfirvöld myndu vilja
halda í húsið og varðveita það, kæmi
til ákveðinn kostnaður af hálfu sveit-
arfélagsins," sagði Vilhjálmur.
„Þetta höfum við stundum gert, að
kaupa eldri hús til að halda í þau.
Það kostar að sjálfsögðu eitthvað
að neita eigendum um að neyta rétt-
ar síns. Ef sveitarstjórnir meta það
svo að hús hafi varðveizlugildi, kost-
ar það þær einhveija upphæð að
halda fram þeirri stefnu sinni. Ef
hins vegar húsafriðunamefnd eða
menntamálaráðherra ákveða að
friða hús í samræmi við ákvæði þjóð-
minjalaga, tel ég tvímælalaust að
ríkið beri allan kostnað gagnvart
húseiganda sem af slíkri friðun kann
að hljótast."
-----♦ ♦ ♦
Starfsmiðlun
Stúdentaráðs
fyrirjólin
Á SKRIFSTOFU Stúdentaráðs
Háskóla íslands er fyrir þessi jól
rekin svokölluð jólastarfsmiðlun
þar sem stúdentar bjóða fram
starfskrafta sína í jólafríinu. At-
vinnurekendur geta leitað til
miðlunarinnar ef þeir vilja fá liðs-
auka með skömmum fyrirvara í
jólaösinni og er reynt að bregðast
fljótt og vel við öllum erindum.
Hvers kyns störf koma til greina
enda eru stúdentar fjölskrúðugur
hópur með margvíslega reynslu og
fjölbreytta menntun. Þjónusta Jóla-
starfsmiðlunar Stúdentaráðs er
ókeypis.
(Fréttatilkynning)
GUÐMUNDUR Magnússon þjóðminjavörður, sem sæti á í húsafriðun-
arnefnd ríkisins, segist munu taka upp í nefndinni þau áform Pósts
og síma að rífa Hótel Vík við Ingólfstorg, sem stofnunin festi nýlega
kaup á. Næsti fundur húsafriðunarnefndar er á dagskrá í janúar.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður skipulagsnefndar Reykjavíkur,
segir að húsið sé ekki á lista yfir byggingar, sem borgaryfirvöld hafi
ákveðið að vernda.
„Ég mun óska eftir því að starfs-
maður okkar kanni þetta mál. Það
þarf að athuga húsið sjálft og skjöl
um það og fá nánari upplýsingar
um áform Pósts og síma,“ sagði
Guðmundur í samtali við Morgun-
blaðið.
Hann sagði að jafnframt þyrfti
að kanna hvaða sjónarmið væru
uppi hjá borgaryfirvöldum um varð-
veizlu hússins. I Morgunblaðinu hef-
ur komið fram að Margrét Hall-
grímsdóttir borgarminjavörður telur
ekki koma til greina að rífa það. „Ég
er sammála því, sem haft var eftir
Margréti Hallgrímsdóttur í Morgun-
blaðinu," sagði Guðmundur. „Þetta
hús er bæði menningar- og bygging-
arsögulega merkilegt. Það sér raun-
ar hver maður sem gengur um Vall-
arstræti og Ingólfstorg að húsið er
merkileg smíði.“
Danska skáldkonan Synnöve Söe sló í
gegn með bók sinni í TÆTLUM sem
✓ / /
kom út hérlendis í fyrra. I bókinni UT I
HÖND slær hún á nýja strengi og leiðir
lesendur inn í heim sterkra tilfinninga,
tryggða, vináttu, vonar og vonbrigða.
Góð bók
frá Fróða
FRÓI )I
BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA
Furðuflug
Stephen King bregst ekki aðdáend-
um sínum í þessari kyngimögnuðu
spennusögu. Venjulegt farþegaflug
milli borga í Bandaríkjunum breyt-
ist í sannkallaða martröð. Stephen
King spenna frá fyrstu blaðsíðu til
hinnar síðustu.