Morgunblaðið - 19.12.1992, Blaðsíða 28
0 s
28
seef fl33M333CI .et HUDAQHADUAJ QiaAiaHUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992
SMITH & NORLAND
FIP og Félag bókagerðarmanna
Meira en þú geturímyndaó þér!
Fólk er hvatt til að kaupa að-
eins bækur prentaðar hérlendis
FÉLAG íslenskra prentiðnaðar-
ins og Félag bókagerðarmanna
hafa tekið höndum saman um að
vekja athygli á þeim bókum sem
prentaðar eru á íslandi með því
að láta útbúa auglýsingaspjöld
til að hengja upp í bókabúðum
jafnframt því sem allmargir út-
gefendur hafa fallist á að merkja
bækur prentaðar á Islandi með
sérstökum límmiðum. Þórir Guð-
jónsson, formaður Félags bóka-
gerðarmanna, segir að þetta sé
gert til að berjast gegn atvinnu-
leysi í prentiðnaði. Það fari vax-
andi á sama tima og sumir ís-
lenskir útgefendur láti í auknum
mæli prenta bækur sínar erlend-
is, án þess að séð verði að íslensk-
ir neytendur njóti góðs af í lægra
verði, og sljórnvöld hafi áform
um að leggja 14% virðisáuka-
skatt á bækur, blöð og tímarit,
sem seld séu hér á Iandi. Félag
íslenskra prentiðnaðarins mun
veita sérstaka viðurkenningnu í
byijun næsta árs fyrir bækur,
sem þykja skara fram úr fyrir
útlit og vörugæði, og prentaðar
eru hér á landi.
Samhliða átakinu til að beijast
gegn atvinnuleysi bókagerðar-
manna, sem nú er 4,5% og stefnir
í 8-10% á næstu mánuðum miðað
við fram komnar uppsagnir, að sögn
Þórarins Gunnarssonar, fram-
kvæmdastjóra FÍP, verða birtar
auglýsingar í blöðum þar sem al-
menningur er hvattur til að kaupa
íslenskar bækur til jólagjafa og
stuðla þannig að meiri atvinnu.
Verðlaun fyrir handverk
Þá hyggst FÍP veita viðurkenn-
ingu fyrir bækur, sem prentaðar
eru á Islandi árið 1992, og þykja
skara fram úr hvað varðar útlit og
vörugæði. Þriggja manna dómnefnd
mun meta þær bækur sem tilnefnd-
ar verða en gert er ráð fyrir að
bæði prentsmiðjur og bókaútgef-
endur geti tilnefnt bækur til verð-
launanna. Þórarinn sagði að FÍP
vonaðist til að viðurkenningin, sem
verður veitt fyrir fagvinnu bóka-
gerðarmanna en ekki menningar-
legt gildi, geti orðið prentiðnaðinum
Skilti sem vekur athygli á íslenskum prentiðnaði hefur nú verið
sett upp hjá Eymundsson í Austurstræti.
lyftistöng og hvatning til að mæta
erfiðum tímum af baráttuhug.
Þórir Guðjónsson, formaður Fé-
lags bókagerðarmanna, sagði við
Morgunblaðið að mjög mismunandi
væri hvort forlög létu prenta fyrir
sig bækur erlendis eða ekki. Sum
létu prenta alla sína útgáfu hérlend-
is, aðrir að verulegu leyti erlendis.
íslenskir bókagerðarmenn drægju í
efa fullyrðingar útgefenda sem
kysu að láta prenta bækur erlendis,
oft í Belgíu eða löndum Asíu, um
að með því spöruðust stórar Qár-
hæðir, jafnvel þótt víða erlendis
þekktust sérstök lánakjör til fyrir-
tækja sem flyttu út vinnu við prent-
vinnslu. Kostnaður við prentvinnslu
hér á landi væri 5-600 krónur á
hveija bók, að meðtöldu bókbandi,
og vafasamt væri að erlendis byð-
ust kjör, sem að teknu tiliiti til flutn-
ingskostnaðar, væru svo miklu betri
að réttlætti að flytja prentvinnsluna
úr landi.
Ef ávinningur væri af því virtist
hann að minnsta kosti ekki koma
fram í því sem að kaupendum sneri.
Hins vegar væri það áhyggjuefni
einkum í ljósi fyrirætlana stjórn-
valda um að leggja virðisaukaskatt
á bækur að með aukinni skattlagn-
ingu yrði það hagstæðara fyrir út-
'?ÆjBSS$k ■
■ rif
• j mr : '/
sérverslun
meö baðvörur
Hvað er notalegra en heitt og ilmandi bað cftir erilsaman dag?
Bað og heilsa er ný sérverslun í Borgarkringlunni með einstakt
úrval af baðvörum fyrir þá sem vilja dckra við sjálfa sig - og
aðra! Auk þess höfúm við á boðstólum ýmislegt flcira sem
eykur ánægjuna af notalegu baði s.s. þykk, ffeistandi hand-
klæði, baðsloppa og úrval skemmtilegra fylgihluta fyrir bað-
herbergiö s.s. tannburstaglös og sápuskálar.
í Baði 0£ Heilsu fierðu mikið úrval af skemmtilegum og
hagnýtum jólagjöfum.
Mikið úrval af náttúrulcgum baðvörum m.a. frá
Neal's Yard Remedies í Lundúnum. Dýrindis
baðolíur, baðsölt, nuddolíur, andlitsvöm og sápur
unnar úr jurtum og hreinum olíum.
Bað ðc
Heilsa
t03.Rcylcja.irik
Sími 6,7722«
gefendur að láta prenta erlendis og
leysa upplag úr tollvörugeymslu
eftir því sem það seldist í stað þess
að þurfa að standa skil á greiðslum
og gjöldum um leið og prentun lyki.
Neskirkja
Neskirkja
Fyrstujólin
sviðsett
EINS OG undanfarin ár verða
jólasöngvar í Neskirkju kl. 2
fjórða sunnudag í aðventu sem að
þessu sinni er 20. desember.
Sú nýbreytni verður á höfð að fjár-
húsið sem staðsett var utan kirkju-
dyra fyrir tveimur árum verður nú
reist í anddyrinu. Er fólki gefínn
kostur á að koma að jötunni með
böm sín og leyfa þeim að gefa til
Hjálparstofnunar kirkjunnar um leið
og minnst er hvers vegna við höldum
jól.
Dagskráin verður í stórum drátt-
um þessi: Lúðrasveit Seltjamamess
leikur undir stjóm Kára Einarssonar,
skólakór Grandaskóla syngur jólalög
undir stjóm Eyrúnar Finnbogadótt-
ur, Bergþór Pálsson ópemsöngvari
syngur við undirleik Reynis Jónas-
sonar og fermingarböm sýna helgi-
leik undir stjóm Jónu Hansen kenn-
ara. Þá verður mikill almennur söng-
ur og sr. Frank M. Halldórsson flytur
lokaorð. (Fréttatilkynning)
-------------
Jólablót ása-
trúarmanna
EINS og flestir vita eru jólin forn
hátíð ljóssins sem rekja má aftur
til heiðins tíma er fólk fagnaði
endurfæðingu sólarinnar. í tilefni
hátíðanna munu ásatrúarmenn og
Þjóðbrók, félag þjóðfræðinema,
efna til jólablóts á sólstöðum,
mánudaginn 21. desember, á Café
Hressó.
Blótið verður sett stundvíslega kl.
20 en í framhaldi af því verða settir
um Skímisleikar í garðinum á Café
Hressó. Skímisleikar em Skímismál
í leikrænni uppsetningu en margir
telja að sum eddukvæðin hafí upp-
haflega verið helgisiðaleikir sem
fluttir hafi verið á blótum fom-
manna. Eftir leikanna verður efnt
til blótveislu með mat, kveðskap,
söng og dansi. (FréttetUkynning)