Morgunblaðið - 19.12.1992, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAQUR 19, DESKMBKR 1992
.35
Morgunblaðið/RAX
Atburðirnir á Torgi hins himneska friðar voru skrumskældir af
vestrænum fjölmiðlum, segir Wang Jianxing nýskipaður sendifull-
trúi Kínverska alþýðulýðveldisins á Islandi.
að kjósa æðstu stjóm ríkisins beinni
kosningu. Til þess er landið öf stórt
og hagsmunir héraðanna of ólíkir."
Jianxing segir að Kína hafi tví-
mælalaust færst til lýðræðisáttar.
„í Kína er fólki frjálst að gagnrýna
ríkisstjómina og þegnarnir em
hvattir til þess að benda á galla í
stjómkerfinu eða óreiðu stjórn-
málamanna. En við búum við mið-
lægt lýðræði — sem er ekki það
sama og alræði. Ef við létum und-
an þrýstingi öfgaaflanna, myndi
það aðeins leiða til stjórnleysis og
óreiðu. Það er ekki leiðin til að
bjarga Kína.“
Sendifulltrúinn segir að virða
beri þann árangur sem náðst hefur
með núverandi þjóðskipulagi í
Kína. „Okkur urðu á mistök, sér-
staklega í menningarbyltingunni,
en hugmyndafræði Maos Tses
Tungs hefur reynst vel. Við nefnum
þetta sósíalisma með kínverskum
formerkjum — þar sem áhersla er
lögð á velferð þegnanna en ekki
hugmyndafræði. Eins og Deng Xia-
oping sagði sjálfur: Það skiptir
ekki máli hvort kötturinn er svartur
eða hvítur, ef hann veiðir mýs.“
Jianxing leggur áherslu á að
Kínvetjar hafi fullt frelsi til þess
að stofna fyrirtæki og halda eftir
hagnaði af atvinnurekstri. Landið
eigi nú fjölda auðmanna sem aki
um á glæsibifreiðum og gisti bestu
hótel víða um heim.
Kínverskur iðnaður hefur tekið
stakkaskiptum hin síðari ár og
mikil áhersla er lögð á vélvæðingu
og nýsköpun. Landið flytur nú í æ
ríkari mæli út tæki til iðnaðar,
vélbúnað og flugvélar, í stað smá-
vöru sem krefst mikils vinnuafls.
Jianxing segir að íslendingar geti
hæglega nýtt tækifæri á sviði sjáv-
arútvegs og orkumála í Kína en til
þessa hafi borið lítið á samstarfi
landanna í þessum greinum.
A síðasta ári nam verðmæti við-
skipta landanna rúmum 100 millj-
ónum íslenskra króna, innan við
hálfu prósenti utanríkisverslunar
íslendinga. Alþýðulýðveldið hefur
nú skipað sér í fremstu röð á sviði
utanríkisviðskipta, og óx útflutn-
ingur landsins um 20% fyrstu tíu
mánuði ársins frá fyrra ári.
„Kínveijar þekkja og virða ís-
lenska menningu. Bækur íslenskra
höfunda hafa verið þýddar á kín-
versku og það er algengt að fréttir
séu af íslenskum málefnum í kín-
versku sjónvarpi," segir Jianxing.
„Sérstaklega dáum við íslenskar
konur sem hafa borið hróður lands-
ins víða. Ég hef verið svo heppinn
að hitta Vigdísi Finnbogadóttur
forseta, Salome Þorkelsdóttur for-
seta Alþingis og Guðrúnu Erlends-
dóttur forseta hæstaréttar að máli
og ber djúpa virðingu fyrir hæfi-
leikum íslenskra kvenna. Af þeim
getum við margt lært,“ sagði Wang
Jianxing.
Benedikt Stefánsson
Clinton út-
nefnir tvo
ráðherra
Little Rock. Reuter.
BILL Clinton verðandi Banda-
ríkjaforseti var trúr málstað sín-
um um að ríkisstjórn hans ætti
að endurspegla fjölbreytilega
menningu og þjóðernislega sam-
setningu Bandaríkjamanna er
hann útnefndi mann af spænsk-
um uppruna í ráðherrastarf.
Clinton útnefndi Henry Cisneros
fyrrum borgarstjóra í San Antonio
í Texas í starf ráðherra húsnæðis-
og skipulagsmála. Cisneros er 45
ára. Þá valdi Clinton 48 ára blökku-
mann, Jesse Brown, í starf ráðherra
sem fer með málefni fyrrverandi
hermanna í stjórn hans. Brown er
fatlaður fyrrverandi liðsmaður
landgönguliðs bandaríska flotans
og barðist í Víetnam. Hershel Gob-
er, sem Clinton útnefndi aðstoðar-
ráðherra Browns, gerði það sömu-
leiðis en hann var 20 ár í hemum.
Gober fór með málefni fyrrverandi
hermanna í ríkisstjórn Arkansas í
ríkisstjóratíð Clintons.
.....♦ ♦ ♦----
Þýskaland
Mótmæla för
hermanna
til Sómalíu
Bonn.Reuter.
Stjórnarandstæðingar mót-
mæltu í gær þeirri ákvörðun
Helmuts Kohls kanslara að senda
1.500 þýska hermenn til starfa í
Sómaliu eftir áramót. Gerd
Schmiickle, fyrrum aðstoðaryfir-
maður herja NATO, sagði í út-
varpssamtali að hann drægi í efa
að stjórnarskráin leyfði íhlutun
hermanna á erlendri grund.
Þýski Jafnaðarmannaflokkurinn
hyggst láta reyna á lögmæti ákvörð-
unarinnar fyrir stjómlagadómi. Sós-
íaldemókratar telja að breyta þurfi
stjómarskrá landsins, áður en hægt
verði að fela þýska hemum hlutverk
utan varnarsvæðis NATO. Kohl hef-
ur beitt sér fyrir rýmri túlkun á
ákvæðum stjórnarskrárinnar, en
þýska stjómin varð fyrir gagnrýni
þegar hún hélt að sér höndum í
Persaflóadeilunni.
Húsgögn frá
Cassina C ■ligneroset
XO og fleirum.
Ljos frá Artemide ©g
FLOS
arteluce
Rúmteppi og púðar frá
miklu úrvali
Gjafavörurfrá ALESSI og FontanaArt
Við kynnum íslenska framleiðslu:
Borðstofuhúsgögn, hönnuð af Guðrúnu
Margréti Ólafsdóttur og Oddgeiri Þórðarsyni
Borgartúni 29, sími 620640.
Sigurður L. Hall matreiðslumeistari kynnir
koparpottana frá í Kringlunni um helgina.
ALESSI
Kringlunni 8 -12, sími 680633.
SIEMENS
Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara!
Traustir umboösmenn okkar eru víðs vegar um landið!
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
• Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
• Borgarfjöröur: Rafstofan Hvítárskála.
• Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaðarhóli 25.
• Grundarfjörður: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
• Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7.
• Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
• ísafjörður: Póllinn hf., Aðalstræti 9.
• Blönduós: Hjörleifur Júlfusson, Ennisbraut 1.
• Sauöárkrókur: Rafsjá hf„ Sæmundargötu 1.
• Siglufjörður: Torgið hf., Aðalgötu 32.
• Akureyri: Ljósgjafinn, Reynishúsinu, Furuvöllum 1
Húsavík: öryggi sf„ Garðarsbraut 18a.
Pórshöfn: Norðurraf, Langholti 3.
Neskaupstaöur: Rafalda hf„ Hafnarbraut 24.
Reyðarfjöröur: Rafnet, Búðareyri 31.
Egilsstaöir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1.
Breiödalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13.
Höfn í Hornafiröi: Krístall, Hafnarbraut 43.
Vestmannaeyjar: Tréverk hf„ Flötum 18.
Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
Selfoss: Árvirkinn hf„ Eyrarvegi 29.
Garður: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2.
Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.
C co
gS
OxO
“<Q
1,8
3 o
3 2:
oS
-r
Q Q'
3 *r
Q.S
=?o
Q^
3
Q.