Morgunblaðið - 19.12.1992, Page 39
sggi aaaMaaau .01 huoaqhaouaj uiuAjaMuuHOM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992
Séreignasjóðir standa
undir skuldbindingum
ATHUGASEMD hefur borist frá
Jónasi Bjarnasyni, stjórnarfor-
manni Lífeyrissjóðs Verkfræð-
ingafélags íslands:
„í baksíðufrétt í Morgunblaðinu
17. desember sl. um skýrslu Banka-
eftirlitsins um lífeyrissjóði segir: „Af
skýrslunni má lesa að stærsti sjóður-
inn, Lífeyrissjóður verzlunarmanna,
er sá eini, þar sem jákvæður mis-
munur er á höfuðstól og heildar-
skuldbindingum að frádregnum
framtíðariðgjöldum, en hjá ...“ (let-
urbreyting mín). Ofansagt má skilja
þannig, að einungis einn lífeyrissjóð-
ur geti staðið við sínar skuldbinding-
ar. Þarna er um að ræða misskiln-
ing, eins og reyndar má sjá við ná-
kvæman lestur skýrslunnar sjálfrar.
í fýrsta lagi geta allir séreigna-
sjóðir eðli málsins samkvæmt ávallt
Skyrgámur
Skyrgámur kemur í heimsókn
í Þjóðminjasafnið í dag, laugar-
dag, kl. 11.15. Skyrgámur er
jólasveinninn sem borðar mikið
af skyri.
staðið við sínar skuldbindingar, en
„á þeim hvíla ekki aðrar skuldbind-
ingar en fram koma í efnahagsreikn-
ingi þeirra" (skýrslan bls. 83).
í öðru lagi getur Lífeyrissjóður
Verkfræðingafélags íslands (LVFÍ)
staðið við sínar skuldbindingar. A
bls. 89 í skýrslunni má sjá, að áfall-
in skuldbinding LVFÍ í árslok 1991
var 2.244 milljónir króna, en höfuð-
stóll í lok úttektarárs 2.290 m.kr.
og því jákvæður jöfnuður sem nemur
46 m.kr.
í skýrslunni segir á bls. 93 í at-
hugasemd um LVFÍ, að „Við mat á
eignum og skuidum sjóðsins er ekki
tekið tillit til framtíðar iðgjalda eða
skuldbindinga vegna þeirra, þar sem
ákvæði reglugerðarinnar um rétt-
indaöflun valda því að þessir þættir
verða jafnháir". Því eru heildar-
skuldbindingar að frádregnum fram-
tíðariðgjöldum sama fjárhæð og
áfallin skuldbinding eða 2.244 m.kr.,
sem er eins og áður sagði 46 m.kr.
lægri fjárhæð en höfuðstóllinn (þetta
hefði reyndar gjarnan mátt standa
skýrum stöfum á bls. 89 í skýrsl-
unni).
Því má bæta hér við, að tekin
voru upp verðtryggð llífeyrisréttindi
hjá LVFÍ í ársbyijun 1991. Verð-
tryggð réttindi voru þá ákvörðuð
þannig, að jöfnuður væri milli eigna
og skuldbindinga.
Tryggingafræðileg úttekt var
næst gerð m.v. árslok 1991 og hafði
þá orðið tryggingafræðilegur hagn-
aður á árinu sem nam 46 m.kr.,
þ.e.a.s. eignir sjóðsins höfðu á árinu
aukist 46 m.kr. hraðar en skuldbind-
ingarnar.
Á aðalfundi sjóðsins í maí sl. var
samþykkt skv. tillögu trygginga-
fræðings sjóðsins, að ráðstafa þess-
um 46 m.kr. þannig, að 30 m.kr.
yrði varð til að hækka lífeyrisrétt-
indi sjóðfélaganna (auka skuldbind-
ingarnar), en 16 m.kr. yrðu lagðar
í varasjóð til að mæta hugsanlegum
áföllum síðar.“
Kynntar nýjungar í
ársriti Sjálfsbjargar
ÚT ER komið ársrit Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra. f frétta-
tilkynningu Sjálfsbjargar segir: Meðal efnis I blaðinu eru viðtöl
við fatlaða einstaklinga, kynntar nýjungar á sviði hjálpartækja,
greint frá sjónvarpsmynd um fatlaða og ástina er heitir „Ástinn
hlífir engum“.
Jafnframt er greint frá ráð-
stefnu er Sjálfsbjörg efndi til um
ferlimál og hugmyndasamkeppni
meðal bama um sama málefni.
Ráðstefnan og hugmyndasam-
keppnin voru haldin undir yfir-
skriftinni „Þjóðfélag án þrö-
skulda".
Sjálfsbjörg, landssamband fatl-
aðra, vill einnig vekja athygli á
að dregið verður í jólahappdrætti
samtakanna 23. desember nk.
Sjálfsbjörg vill hvetja þá er hafa
fengið heimsenda miða að greiða
þá og styðja þannig í verki starf
samtakanna í þágu fatlaðra. Þeir
sem ekki hafa fengið heimsenda
miða en vilja styðja samtökin geta
nálgast þá á skrifstofu Sjálfs-
bjargar í Hátúni 12.
Skrifstofur
Framkvæmdasjóbs
íslands eru fluttar að
Hverfisgötu 6, 2.hæ&,
sími (91) 62 40 70, fax (91) 62 60 68
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Minningar 2 - gullplata
HLJÓMPLATAN Minningar 2, sem gefin var út
fyrir jólin og kostuð af Eimskipafélagi íslands, en
ágóði af sölu rennur til Rauða kross Islands, hefur
náð 5.000 eintaka sölu og af því tilefni vom fulltrú-
um RKÍ og tónlistarfólkinu, sem að plötunni
standa, afhent eintök af plötunni í gulli, gullplötur
í húsi Ríkisútvarpsins í gær. Þetta er ekki fyrsta
sinni, sem leiðir Eimskips og Rauða krossins liggja
saman því að RKÍ var stofnaður fyrir réttum 68
áram í Kaupþingssalnum í húsi Eimskipafélagsins
og fyrsti formaður RKÍ var Sveinn Björnsson þá-
verandi stjórnarformaður Eimskips og síðar fyrsti
forseti íslenzka lýðveldisins. Meðfylgjandi mynd
er tekin af afhendingu gullplatnanna í gær.
Austurlenzkt j ólahlaðbor ð
VEITINGAHÚSIÐ Asía býður nú í desember upp á austurlenzk
jólahlaðborð. Á hlaðborðinu eru 18 réttir frá ýmsum Asíulönd-
um, heitir og kaldir. Verðið er 1.490 krónur á mann, en fordrykk-
ur er innifalinn í því.
Meðal rétta á hlaðborðinu má nesíu, ýmsar kjöttegundir í mis-
nefna súpur frá Tælandi og Indó- munandi sósum, grænmeti, núðlur
og hrísgijón af ýmsu tagi, vorrúll-
ur frá Víetnam, kjúklinga, peking-
önd, fisk, rækjuflögur og japanskt
hrámeti.
Hópafsláttur er veittur vinnu-
stöðum og klúbbum svo dæmi séu
nefnd.
Hagnýtar jólagjafir frá Bosch
HJÓLSÖG
GKS 54, 1020W
f9.900 Kr.
HLEÐSLU-
SKRÚFJÁRN
PSR2.4V
2.950 Kr.
RAFHLOÐU-
BORVÉL 9.6 V
GBM 9.6 VES
Aukarafhlaða fylgir!
21.900 Kr.
STINGSÖG
GST60PBE, 550W
19.900 Kr.
Gunnar Asgeirsson hf
Borgartún 24 • 105 Reykjavík
Sími: 91-626080
Umboðsmenn um land allt!