Morgunblaðið - 19.12.1992, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992
*
Haförninn fastur í ísnum. Útsýnið úr brúnni þegar
fór að rofa.
Skipstjórinn í 18 gráðu frosti í brúnni í hafísmar-
tröðinni miðri.
Landhelgismálaráðunautur
írlands
Meðan á þessu stóð athugaði
Sigurður sinn gang. Ætlaði hann
að eyða lífi sínu á þennan hátt,
fjarri eiginkonu og sex bömum?
Hann ákvað að koma sér burt úr
þessum kulda og ís vildi hann ekki
sjá framar nema kannski í glasi!
Hann afréð að kaupa björgunar-
og varðskipið Sæbjörgina, selja
allar eigur sínar hér á landi og
sigla um heimshöfin. Sú ferð stóð
í tvö og hálft ár.
Fjölskyldan sigldi héðan að
hausti og kom að landi á írlandi
með viðkomu í Liverpool. Aþessum
tíma óð sardína upp að Irlands-
ströndum í miklu magni og allra
þjóða kvikindi veiddu hana uppi í
landsteinum. írar voru mjög van-
búnir hvað varðskip snerti. Sigurð-
ur ræddi þessi mál óspart við menn
á bryggjunni í Cobbage sem er
hafnarbærinn í Cork og fannst
heldur lítið leggjast fyrir lra miðað
við íslendinga sem þó byggju við
miklu verri veður og aðstæður.
Sögurnar af Sigurði bámst mann
fram af manni alla leið til sjávarút-
vegsráðherra írlands í Dublin sem
kallaði hann á sinn fund. „Það var
tekið afskaplega vel á móti mér
og eftir fund okkar vildi hann vita
hvort ég væri tilkippilegur að setj-
ast að á írlandi og verða ráðunaut-
ur hjá þeim í þessum málum og
bauð mér hús í Cork og hvaðeina.
Trúlega hefur hann svona í leiðinni
viljað leigja af mér bátinn og
kannski fyrst og fremst verið á
höttunum eftir honum því hann
hafði fallbyssustæði og það var
ekkert annað að gera en að skrúfa
byssuna á. En ég gat ekki hugsað
mér að fara að taka þátt í neinu
slíku og afsakaði mig á alla lund
og bar helst við sólarleysinu á ír-
landi, ég væri eiginlega á leiðinni
í sólina með íjölskylduna svo þetta
væri því miður ekki mögulegt.“
Heilaþvottur á
skemmtiferðaskipi
Sigurður sigldi sína leið með
fjölskylduna á Sæbjörginni, sem
nú hét Bonnie, og nokkru síðar
komu þau til Safi í Marokkó: „í
höfninni í Safi lá glæsilegt hvítmál-
að farþegaskip sem við höfðum
tekið eftir af og til á siglingu á
Miðjarðarhafmu. Ég hafði ályktað
sem svo að þetta væri skemmti-
ferðaskip en fannst ég kannast
eitthvað við lagið á því. En ég gat
ekki áttað mig á hvar ég hefði séð
það áður. Nú var ég búinn að láta
gera við Bonnie og vildi því endi-
lega verða mér úti um málningu
og mála hana almennilega. Mér
fannst nærtækast að fara í heim-
sókn í hvíta skipið, sem hét Apollo,
og fá hjá þeim örlitla málningu því
þar virtist alltaf einhver vera að
dytta að og gera fínt.
Ég fór um níuleytið um morgun-
inn, hitti yfirstýrimanninn og
spurði hvort ég gæti fengið máln-
ingu. Hann spjallaði við mig, for-
vitnaðist um ferðir mínar og lauk
fundi okkar með því að rétt fyrir
hádegi var búið að ráða mig sem
skipstjóra á þessu skipi. Fyrri skip-
stjóri hafði hætt daginn áður, að
ég held, og þeir höfðu verið að
leita að manni símleiðis vítt um
Evrópu en engan fundið og bráð-
vantaði mann í starfíð.“ Þetta
reyndist ekki vera neitt venjulegt
skemmtiferðaskip heldur var um
borð eins konar skóli bandarísks
félagsskapar þar sem menn fóru
vikulega í heilaþvott til að losa sig
við óæskilegar hugsanir. Sigurður
var skipstjóri um borð í Apollo í
þijá mánuði en þá var kona hans,
Edda Konráðsdóttir, búin að fá sig
fullsadda af þessu liði svo þau
héldu sína leið — á nýmálaðri
Sæbjörginni.
Skipbrotsmenn
Á flakki sínu um heimshöfín
kynntust þau m.a. Robertson-fjöl-
skyldunni sem einnig var á flandri
um veröldina. Sigurði fannst skúta
þeirra, Lucette, heldur illa útbúin
svo hann gaf þeim björgunarbát
af Sæbjörginni. „Þau skildu við
okkur á Miami, mánuði síðar,
sigldu til Jamaica, í gegnum Pa-
namaskurðinn til Galapagoseyja.
En vestur af eyjunum hittu þau á
háhyrningavöðu. Tveir eða þrír
hvalir syntu af fullum krafti á
Lucette sem fékk á sig gat og
sökk á innan við mínútu. Og þá
kom íslenski gúmmíbáturinn þeim
til bjargar. Hann blés sig upp um
leið og hann kom í sjóinn og þau
komust öll, sex að tölu, um borð
en báturinn rúmaði tíu.
Það sem bjargaði þeim fyrst og
fremst var að þessi bátur skyldi
vera íslenskur. Þá var búið að leiða
í lög á íslandi að allar vistir skyldu
vera í björgunarbátum: Vatn, hita-
pokar, matvæli, rakettur og björg-
unarblys. Og án þessa útbúnaðar
hefðu þau aldrei komist af. Ég
hafði á sínum tíma þröngvað hon-
um inn á þau því þau vildu hann
alls ekki, fannst hann bæði ljótur
og plássfrekur. En á þessum bát
og litlum þriggja manna plastbát
sem bjargaðist af Lucette voru þau
á reki í 38 daga.“ Dugal Robertson
skrifaði bók um þessa reynslu sína
sem kom út á íslensku fyrir nokkr-
um árum og nefndist Hrakningar
í söltum sjó. í tilefni af útkomu
bókarinnar í Bandaríkjunum kom
hann fram í fjölda sjónvarpsþátta
og bauð Sigurði sem heiðursgesti
í öll viðtöl því hann leit svo á að
hann hefði bjargað lífí fjölskyld-
unnar.
Óvæntur fundur í
Panamaskurdinum
Sigurður kom að landi með fjöl-
skyldu sína í Bandaríkjunum. Þar
hefur hann búið í tuttugu ár, verið
skipstjóri á risaflutningaskipum
sem flutt hafa gjafakorn Banda-
ríkjamanna, átt skip í rannsóknar-
iðnaði og stundað ýmiss konar við-
skipti. Hann var sex ár skipstjóri
á risaflutningaskipinu Liberty
Wave. Árið 1988 átti hann að flytja
fullfermi af komi til Egyptalands
og þurfti að fara gegnum Panama-
skurðinn. Það er mikið nákvæmn-
isverk að hlaða slík skip þegar
ekki má muna tommu á því hvem-
ig það liggur, m.a. þarf að taka
olíueyðsluna með í reikninginn.
Þegar hann athugaði djúpristuna
úti fyrir Panama reyndist skipið
rista fjórum tommum of djúpt.
Hvemig átti hann að komast með
yfírlestað skip í gegnum Panama-
skurðinn? „Mistök af þessu tagi
geta kostað mann starfið svo ég
var orðinn nokkuð áhyggjufullur
þegar ég beið eftir yfírhafnsögu-
manninum sem átti að lóðsa okkur
í gegnum skurðinn. Ég gekk um
gólf og ásakaði sjálfan mig fyrir
asnaskapinn. Hér þurfti kraftaverk
til að komast klakklaust í gegn.
SJÁ NÆSTU SÍÐU
HyAÐA
SILD
FINNST
ÞÉR
BEST?
Síld er herramannsmatur. Hún er auk þess holl, næringarrík og
frískandi. Þú getur valið úr 10 ólíkum tegundum frá íslenskum
matvælum, öllum ljúfengum.
Skrifaðu heitið á eftirlætis síldinni þinni frá íslenskum matvælum og
sendu okkur seðilinn útfylltan í pósti. Við drögum út 10 nöfn
og hver vinningshafi fær vöruúttekt frá okkur* að verðmæti 5.000
krónur. Skilafrestur er til 15. janúar 1993.
Mér fínnst
Nafn--------
best.
Heimilisfang
Sími —.------
ICEFOOD
ISLENSK
MAWÆU
HVALEYRARBRAUT 4 - 6
220 HAFNARFJÖRÐUR
*Við framleiðum einnig reykta síld, kryddlax, ferskan, reyktan og grafinn
lax, graflaxsósu, laxasalat, beikon -, kína-, og vorrúllur.
LÁTIÐ FRÖNSKU LAMPANA FRÁ LE DAUPHIN
LÝSA UPP JÓLIN - MIKIÐ ÚRVAL-
le Qauphin
FRANCE
HEKLA
LAUGAVEG1174 - SÍMAR 695500 695550