Morgunblaðið - 19.12.1992, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 19.12.1992, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992 59 Minning Jóhann Pálsson Fæddur 29. ágúst 1904 Dáinn 11. desember 1992 Þegar ég kom í Skálavík í sumar var orðið kafloðið í kringum Meiri- Bakka svo ég ákvað að fara til Jóa og fá lánað hjá honum orf og ljá. Það var auðfengið og orfið bar þess merki að hafa verið lengi í höndum fagmanns. Nú var hins vegar kom- ið að því að afhenda það manni sem kunni ekkert og vissi ekkert um leyndardóma þess að slá með orfi og ljá. Jói reyndi að gefa mér ná- kvæmar leiðbeiningar um eiginleika verkfærisins og hvernig nauðsyn- legt væri að beita því. Það var greinilegt að honum stóð ekki alveg á sama um orfið og það brá fyrir óttaglampa í augunum þegar hann horfði á mig taka nokkrar prufu- sveiflur á grasfletinum við Traðar- stíg. Vopnaður orfi, ljá og brýni fór ég í Skálavík og réðst til atlögu við kafgresið. Það fór eins og mig grun- aði, það sem lítur út fyrir að vera sáraeinfalt getur verið bæði flókið og erfitt þegar handtökin eru ekki rétt. Ég hamaðist í nokkra stund án mikils árangurs og það var engu líkara en orfinu þætti sér stórlega misboðið. Ljárinn beit ekki vel og grasflöturinn var eins og illa reytt hæna. Ég sagði Jóa frá raunum mínum og hann taldi ráð að leggja ljáinn á. Það væri hægt að gera niður í íshúsi, þar væri bæði smergill og hverfisteinn. Það sem meira var, Jói bauðst til að leggja ljáinn á sjálf- ur. Það var enginn bilbugur á hon- um, 88 ára manninum, sem hafði engu gleymt. Snemma daginn eftir sótti ég Jóa og við fórum sem leið lá niður í íshúsið þar sem hann starfaði til margra ára og þekkti hvern krók og kima. Spennan leyndi sér ekki hjá gamla manninum og það var greinilegt að honum þótti hreint ævintýri að koma á gamla vinnustaðinn. Hann var á heima- velli. Allir tóku innilega vel á móti honum og gáfu sér tíma til að heilsa upp á hann. Við fórum inn á verk- stæði til þeirra bræðra Braga og Gísla. Ég vafði utan af ljánum og rétti hann Jóa. Hann varð allt í einu sorgmæddur á svipinn, þegar hann handlék ljáinn. Það var greinilegt að hann var ekki ánægður með meðferðina sem ljárinn hafði þurft að þola. Ljárinn var allur beyglaður og skældur. Þeir bræður töldu að bæta mætti úr þessu. Hins vegar vildu þeir alls ekki að Jói færi sjálf- ur með ljáinn á smergilinn enda stórhættulegt verkfæri ungum og hraustum mönnum. Gísli brá ljánum á undir dyggri leiðsögn Jóa sem virtist hafa fengið þrótt ungs manns þegar bjarma sló á andlit hans í neistafluginu frá ljánum. Næst var komið að því að leggja ljáinn á hverfístein. Jóhann kom sér fyrir og steininn byrjaði að snúast. Hann lagði ljáinn fagmannlega á og vissi nákvæmlega hvað hann var að gera. En því miður var sjónin ekki eins og hún hafði verið og hand- leggimir voru ekki eins hlýðnir og áður. Hann sætti sig fullkomlega við það að Gísli lyki verkinu. Hann hafði sjálfur orð á því að þetta yrði í síðasta sinn sem hann legði á og skammt yrði þess að bíða að maður- inn með ljáinn kæmi í heimsókn til sím Ég segi frá þessu vegna þess að mér er þetta mjög minnisstætt frá því í sumar og líka hve þessi heim- sókn var Jóa mikilvæg. Hann gerði sér grein fyrir því að hann gat ekki lengur stundað þau verk sem hann hafði verið snillingur í að leysa. Samt var hann ekki sorgmæddur, heldur glaður yfir því að fá tæki- færi til að koma á gamla vinnustað- inn og ekki síst að aka aðeins um plássið til að sjá helstu breytingar sem orðið höfðu síðustu mánuði. Ég segi líka frá þessu vegna þess að mér fannst Jói alltaf vera gluggi að fortíðinni, gömlu dögun- um sem eru svo ótrúlega nærri okkur. Það var mjög gefandi að hlusta á hann þegar hann lét hug- ann reika aftur í tímann. Hann mundi allt eins og það hefði gerst í gær. Maður var alltaf jafn undr- andi á því að það eru í raun ekki nema örfá ár frá því að íslenskir sjómenn börðust við máttarvöldin í opnum bátum úti á ballarhafi og bændur börðust áfram við afar frumlegar aðstæður til að fæða sig og sína. Hann fæddist á Höfða í Grunnavík 1904 þar sem foreldrar hans bjuggu. Hann var efnilegur bóndi og stundaði sjóróðra af miklu kappi um tíma. Hann tók við Höfða 1945, sama ár og hann kvæntist Sigríði Pálsdóttur, ömmu minni. Þau eignuðust fjóra syni; tvíburana Páll og Gunnar, Steinar og Guð- mund. Gunnar dó þegar hann var þriggja ára, og Páll í fyrra. 1957 flutti fjölskyldan til Bolungarvíkur. Jói starfaði lengst af sem sjálflærð- ur iðnaðarmaður og þótti laghentur múrari. Hann starafaði lengi í ís- húsinu, og hætti þar fyrir fáeinum árum. Það má segja að honum hafí varla fallið verk úr hendi frá því að hann byijaði að hlaupa um heimatúnið á Höfða því þó að hann væri hættur í íshúsinu hélt hann áfram að vinna. Því miður átti ég of fáar stundir með Jóhanni. Ég kveð hann með minningu um mann sem var heiðar- legur, hlýr, hreinskilinn, duglegur, hress og skemmtilegur. Amar Páll. Jóhann föðurbróðir minn lést í Sjúkrahúsi ísafjarðar 10. desember sl. Hann fæddist í Bæjum á Snæ- fjallaströnd 29. ágúst 1904. Foreldrar hans voru hjónin Páll H. Halldórsson, bóndi þar, og Stein- unn Jóhannsdóttir. Páll var sonur Halldórs Hermannssonar, bónda á Nauteyri, og konu hans, Maríu Rebekku Kristjánsdóttur frá Reykj- arfirði við Djúp. Foreldrar Stein- unnar voru hjónin Jóhann Jónsson, bóndi á Svanshóli í Bjarnarfírði, Str., og Guðrún Stefánsdóttir frá Hrófbergi í Steingrímsfirði. Jóhann ólst upp með foreldrum sínum og systkinum í Bæjum til sex ára aldurs og síðan á Höfða í Grunnavíkurhreppi, Norður-ísa- fjarðarsýslu, en þangað fluttu for- eldrar hans með börn sín 1910 og bjuggu þar til æviloka. Systkini Jóhanns eru: Guðmund- ur, bóndi á Oddsflöt í Grunnavík, síðar á ísafirði, kvæntur Elísu G. Einarsdóttur frá Dynjanda, þau eru bæði látin; Halldór, bóndi á Höfða, síðar á Isafirði, hann er látinn; Sól- veig Steinunn, húsfreyja á Sútara- búðum, síðar í Bæjum og í Hnífs- dal, nú á Hlíf á ísafirði, gift Frið- bimi Helgasyni, hann er látinn; Rebekka, húsfreyja á Dynjanda, síðar í Bæjum, gift Jóhannesi Ein- arssyni frá Dynjanda, þau eru bæði látin; næstur var Jóhann; Kristín, lést í frumbernsku; María Kristín, húsfreyja í Reykjavík, nú á DAS í Hafnarfírði, gift Maríusi Jónssyni frá Eskifírði; Guðrún, húsfreyja á Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. ,/IIV SKOR Skóbúðin Keflavík hf., Hafnargötu 35, sími 92-11230. Höfða, síðar í Reykjavík; Helga, húsfreyja á Eskifirði, gift Leifí Helgasyni, hann er látinn. Eftir lát Páls á Höfða 4. júní 1937 bjuggu systkinin Halldór, Guðrún og Jóhann með móður sinni þar til hún lést 8. október 1942 og til ársins 1944 að Jóhann tók við jörðinni. Hann var síðasti ábúand- inn á Höfða, en Grunnavíkurhrepp- ur fór í eyði 1962. Jóhann kvæntist 7. júlí 1944 Sig- ríði Pálsdóttur frá Minni-Bakka í Skálavík í Hólshreppi, fædd 21. maí 1910, dáin 14. janúar 1982. Þeim varð fímm barna auðið, þau eru: Gunnar Hólm, fæddur 11. nóv- ember 1944, hann lést af slysförum á Höfða 21. mars 1947; Páll Hólm, fæddur 11. nóvember 1944, dáinn 5. desember 1991, kvæntur Rögnu Finnbogadóttur frá Látrum í Aðal- vík, þau bjuggu í Reykjavík; næst var stúlka, fædd og dáin 13. júní 1946; Steinar Arnar, fæddur 19. nóvember 1947, kvæntur Ingi- björgu Björgvinsdóttur, þau eiga eina dóttur og búa í Reykjavík; yngstur er Guðmundur, fæddur 15. nóvember 1953, hann bjó með föður sínum í Bolungarvík. Jóhann fór ungur til sjós, fór á vertíðir haust og vor, áður en hann tók við búi á Höfða. Hann reri lengi með Guðmundi bróður sínum og fleirum frá Bolungarvík, Hnífsdal og Grunnavík. Hann var hagsýnn bóndi og lag- tækur til allra verka, afbragðs sjó- maður og sigldi oft góðan byr á Höfðaskekktunni. Þau hjónin, Sigríður og Jóhann, fluttu frá Höfða eins og fyrr segir 1957 til Bolungarvíkur. þar stund- aði Jóhann alla algenga vinnu en lengst af hjá Einari Guðfínnssyni í frystihúsinu, þar vann hann jöfnum höndum í físki og við ýmar viðgerð- ir og lagfæringar. Hann var trúr og dyggur starfsmaður. Hann vann fram á síðasta ár. Hann var hraustur á líkama og sál, sérlega glaður í sinni og tók öllu sem að höndum bar með æðru- leysi. Jóhann var vinmargur og tal- aði oft um vinkonur sínar í Vík- inni, sem réttu honum hjálparhönd eftir að hann missti konuna. Þökk sé þeim öllum. Það var blómlegt félagslíf í Grunnavíkurhreppi þegar Jóhann var ungur maður. Hann var einn af stofnendum UMF Glaðs um 1930, virkur félagi og einn af hvata- mönnum að byggingu félagshúss í Flæðareyri. Það var mikið átak að byggja hús á þeim árum. Jóhann og þau Höfðasystkini áttu mörg handtökin í þeirri byggingu, sem fleiri. Nú er þetta hús samkornu- staður brottfluttra Grunnvíkinga og niðja þeirra og er veglegur minnis- varði þess stórhuga fólks, sem kom því upp á krepputíma. Höfðahúsið stendur ennþá þótt orðið sé um 90 ára gamalt. Það gladdi Jóhann mjög, þegar hafist var handa sl. sumar að lagfæra húsið. Hann hafði hugsað sér að skreppa norður með vorinu, en hann fór í aðra ferð. Ég á frænda mínum Jóa á Höfða gott að gjalda og öllum Höfðasystk- inum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Steinunn M. Guðmundsdóttir. JÓLAÚTSALA Nei, nei, þetta er örugglega ekkert grín Við hjá TÓNVERl vitum nefnilega að sumir eru svo skyns- amir að bíða eftir janúarútsölunum sem eru alltaf hjá hin- um. Við vitum líka hvað það er hundfúlt að þurfa kannski að endurnýja sjónvarpið og myndbandstækið fyrir jólin og missa af útsöluafslættinum. Nú, eða kaupa rándýr hljómflutningstæki, sem hr apa svo í verði strax eftir jólin. Og eftir situr þú með sárt ennið og tugþúsundum fátækari - en ekki lengur. TÓNVER býður betra verð NÚNA! Dæmi um janúarverð fyrir jólin: 20“ litsjónvarpstæki með fjarstýringu + myndbands- tæki með fjarstýringu. Rétt verð kr. 62.000,- Jólaútsöluverð kr. 49.900,- stgr. Þú sparar kr. 12.100,- ekki í janúar, NÚNA! 21 “ litsjónvarpstæki með flötum skjá og fjarstýringu + myndbandstæki með fjarstýringu. Rétt verð kr. 74.222,- Jólaútsöluverð kr. 59.900,- stgr. Þú sparar kr. 14.322,- ekki í janúar, NÚNA! Hljómtækjastæða á ómótstæðilegu verði: Geislaspilari, plötuspilari, tvö- falt kassettutæki, útvarp, hátalarar. Jóla jóla verð aðeins kr. 31.900,- stgr. ekki í janúar, NÚNA! Eða útvarpstæki handa ömmu frá kr. 1.400,-, vasadiskó handa litlu systur frá kr. 1.500,-, útvarpsvekjari handa stóra bróður frá kr. 1.500,- (fullkomin jólagjöf fyrir þá morgun- lötu), ferðatæki í sumarbústaðinn frá kr. 2.900,-. Það marg borgar sig að líta inn. Jólaútgjöldin gætu orðið lægri en þig grunar. TÓNVER, Garðastræti 2, sími 627799 - Ábyrgð • Munalán • Þýzk gæðamerki betra verð NÚNA, bílageymsla beint á móti. • Sendum hvert á land sem er.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.