Morgunblaðið - 19.12.1992, Page 71

Morgunblaðið - 19.12.1992, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992 71 Um helgina Körfuknattleikur Hið svokallaða Nike-Iiðs í körfubolta, sem skipað er erlendum leikmönnum sem leika hér á landi, mætir Keflvík- ingum í dag kl. 14 og úrvalsiiði KKl að Hlíðarenda kl. 20 á sunnudaginn. ■Kvennalið ÍBK mun reyna að kom- ast til Sauðárkróks til að leika þar gegn Tindastðli i bikarkeppninni. Leikurinn átti upphaflega að vera sl. sunnudag en hefur verið margfre- stað vegna veðurs, síðast í gærkvöldi. Frjálsíþróttir Hið árlega Miðbæjarhlaup KR verður í dag og hefst kl. 14 við Miðbæjar- markaðinn í Aðalstræti. Hlaupið verður upp Suðurgötu og síðan um Hringbraut, Sóleyjargötu, Príkirkju- veg, Lækjargötu og endað á Austur- velli. Vegalengdin er um 2 km og er búist við að flestir okkar fremstu langhlaupara verði meðal þátttak- enda. Fimleikar Jólasýning fimleikadeildar Ármanns verður f Laugardalshöllinni á morg- un, sunnudag, og hefst kl. 14. Að- gangseyrir kr. 400 fyrir fullorðna en enginn fyrir böm. David Þorlákur ■ ALÞINGI samþykkti í gær frumvarp um veitingu ríkisborgara- réttar til handa 46 manns. Þar á meðal er David Grissom, leikmað- ur með úrvalsdeildarliði UBK í körfuknattleik. ■ ÞORLÁKUR Árnason, sem hefur verið markakóngur Leifturs undanfarin þijú ár, leikur ekki með liðinu næsta knattspymutímabil. Grindvíkingar hafa rætt við hann að undanfömu og er sennilegt að samningar takist. ■ STEAUA Búkarest ætlar að leggja um 250 millj. ÍSK í endur- bætur á knattspymuvelli sínum. Félagið seldi níu leikmenn árið 1990 fyrir meira en helmingi hærri upp- hæð. M ROMARIO var mjög ósáttur við að vera ekki í byijunarliði Bras- ilíu, sem lék gegn Þýskalandi í vikunni og óttast talsmenn PSV Eindhoven að það komi niður á leik hans gegn Vitesse í hollensku deildinni í dag. ■ ALBERTO Tomba á 26 ára afmæli í dag og segist ætla að halda upp á daginn með sigri í svigi á heimsbikarmótinu, sem fer fram í Slóveníu. ■ PAUL Accola frá Sviss er sannfærður um að vera ekki í efstu sætum. „90% árangurs í alpagrein- um byggist á skýrri hugsun en 10% er háð því hvemig maður skíðar og höfuðið á mér er ekki í lagi þessa dagana," sagði kappinn. HANDKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNI HSI Morgunblaðið/Rúnar Þór Samherjarnir til margra ára í landsliðinu, Alfreð Gíslason til vinstri og Páll Ólafsson í harðri baráttu í gærkvöldi. Alfreðlét sigl licifa það og KA sigraði Hauka íframlengdum leik ALFREÐ Gíslason var deyfður fyrir bikarleik KA og Hauka á Akureyri í gærkvöldi, sat á bekknum ífyrstu sókn, en sá að við svo búið mátti ekki standa, gerði fjögur fyrstu mörk KA og beitti sér sem hann gat inná vellinum þar til yfir lauk. KA vann 27:26 eftir framlengdan leik og sagði Alfreð að sigurinn hefði getað lent hvoru megin sem var. Ekki fór á milli mála að hann lék meiddur en um ökklann sagði hann: „Ég erfínn, finn ekk- erttil, enda vel deyfður og nú vil ég helst fá Víking norður í undanúrslitum." Tómas Hermannsson skrifar Sóknarleikur liðanna var frekar bágborinn í fyrri hálfleik og hafði þar mikið að segja að Haukar tóku Oskar Elvar Óskarsson úr um- ferð, en KA-menn beittu sama bragði og fylgdu Petr Baumruk eftir. Markvarslan var engin hjá KA, en góð hjá Magnúsi Haukamarkverði í hálfleiknum. Jafnræði var með liðunum fram i miðjan seinni hálfleik, en þá náðu KA-menn þriggja marka forystu. Haukar gáfust ekki upp, söxuðu á forskotið og þegar íjórar mínútur voru eftir var staðan jöfn, 22:22. Skömmu áður hafði Erlingur Krist- jánsson tekið vítakast og skotið beint í andlit Leifs Dagfinnssonar. Haukamenn heimtuðu rautt spjald, en dómararnir dæmdu ekki neitt. Síðustu mínútumar var tauga- spennan allsráðandi og ekkert gekk. Hauar voru með boltann, þegar ein mínúta og 15 sekúndur voru til leiksloka og héldu honum, en þegar 17 sekúndur vom eftir, voru dæmd skref á Halldór Ingólfs- son, Alfreð brunaði upp og skaut í varnarvegginn, boltinn barst til Gunnars Gíslasonar, sem fiskaði víti, en Magnús varði frá Pétri Bjarnasyni eftir að leiktíminn var úti. Áður höfðu Erlingur og Óskar Elvar tekið víti en ekki skorað. KA lék mjög yfirvegað í fram- lengingunni og náði þriggja marka forystu, en Haukar gerðu tvö síð- ustu mörkin. í framlengingunni gerðist það að KA fékk vítakast, en liðið hafði ekki skorað úr þrem- ur síðustu vítum. Kallað var á Leó Öm Þorleifsson, sem hafði setið á bekknum allan timann, og honum brást ekki bogalistin. Alfreð Gíslason, Jóhann G. Jó- hannsson og Erlingur Kristjánsson voru bestir hjá KA, en Magnús Ámason, Páll Ólafsson, Petr Baumruk og Siguijón Sigurðsson hjá Haukum. ÚRSLIT KA - Haukar 27:26 (22:22) íþróttahús KA á Akureyri, átta liða úrslit karla í bikarkeppni HSI, föstudaginn 18. desember 1992. Gangur leiksins: 1:1, 3:3, 4:7, 8:9, 10:10, 12:12, 14:14, 19:16, 21:19, 22:20, 22:22, 24:22, 24:23, 27:24, 27:26. Mörk KA: Alfreð Gislason 9, Jóhann G. Jóhannsson 7, Erlingur Kristjánsson 6/4, Óskar Elvar Öskarsson 1, Þorvaldur Þor- valdsson 1, Pétur Bjarnason 1, Gunnar Gíslason 1, Leó Öm Þorleifsson 1. Varin skot: Iztok Race 7 (þar af 2 til mótheija), Bjöm Bjömsson 2/1 (eitt skot til mótheija). VJtan vallar: 6 minútur. Mörk Hauka: Petr Baumruk 8/5, Páll Ólafsson 8/3, Siguijón Sigurðsson 6, Óskar Sigurðsson 3, Halldór Ingólfsson 1. Varin skot: Magnús Ámason 9/2 (þijú til mótheija), Leifur Dagfínnsson 3/2. Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Láms Lárusson og Jóhannes Felixson vom slakir. Áhorfendur: Fékkst ekki uppgefið. Knattspyrna Frakkland PSG-Marseille...................0:1 -Alen Boksic 22. England 1. deild Cambridge - Bristol Rovers......0:1 Belgía Anderlecht - Charleroi..........2:0 NBA-deildin Leikið í fyrrinótt: Orlando - Sacramento.......112: 91 Washington - Chicago....... 99:107 Houston - San Antonio.......121:109 Milwaukee - New Jersey......101:102 Íshokkí NHL-deildin Leikir á miðvikudagskvöld: Hartford - Washington...........6:3 Quebec - Montreal...............5:1 Edmonton - Vancouver............4:2 Tampa Bay - San Jose............5:4 ■ eftir framlengingu Leikir á fimmtudagskvöld: NY Islanders - Ottawa...........9:3 Pittsburgh - Philadelphia.......5:4 Montreal - Quebec Nordiques.....8:3 Chicago - Winnipeg..............5:1 NY Rangers - St Louis...........4:3 GETRAUNASPÁ MORGUNBLAÐSINS 51- (7= vika vJ7“ —— Átta fyrstu leikirnir á =?yw= 1 X 2 seðlinum eru úr ensku úrvalsdeildinni og fimm síðustu úr 1. deild. Giskað erá 144 raða opin seðil, sem kostar Arsenal - Middlesbro 1 Blackbum - Sheffield Utd. 1 Chelsea - Manchester Utd. 1 X 2 Coventry City - Liverpool X 1.440 krónur. Tveir Everton - Southampton 1 leikir eru þrítryggðir, Machester City - Aston Vilia 1 X 2 fjórir tvítryggðir og sjö þar af leiðandi fastir - með einu merki. Ríkissjónvarpið verður með beina útsendingu Oldham - Tottenham 1 2 Sheffield Wed. - Q.P.R. 1 X Birmingham - Watford 1 2 Bristol City - Peterboro 1 í dag frá viðureign Luton Town - Sunderland 1 Sheffield Wednesday Southend - Bamsley X 2 og Q.P.R, á Tranmere - Wolves 1 Hillsborough. HANDKNATTLEIKUR Hópferð á heimsmeist- arakeppnina í Svíþjóð Samvinnuverðir-Landsýn og A- klúbburinn, stuðningsmanna- klúbbur landsliðsins í handknatt- leik, hafa gert með sér samning um hópferð á heimsmeistarakeppn- ina í handknattleik sem fram fer í Svíþjóð í mars. Farið verður til Gautaborgar 8. mars og gist þar á góðu hóteli rétt við íþróttahöllina en þar leika ís- lendingar opnunarleikinn við Svía, heimsmeistarana og gestagjafana, daginn eftir. Þann 21. mars verður flogið heim frá Stokkhólmi. Ferðin kostar 73.900 í tveggja manna herbergi með morgunverði og er allur akstur erlendis og íslensk fararstjórn innifalið. Við þetta má bæta flugvallaskatti og aðgöngum- iða á alla leiki íslands, eða rúmum 17.000 krónum. Fararstjóri verður Willum Þór Þórsson. FOLK ■ LIVERPOOL hefur verið boðið til Malasíu í næsta mánuði til að leika við landslið þjóðarinnar, en enska liðið tekur sennilega ekki boðinu, þó því fylgi um 10 millj. ÍSK. Ástæðan er sú að ísraels- mönnum er ekki hleypt inní landið og með Liverpool leikur Ronny Rosenthal frá Israel. ■ TAKI Liverpool ekki boðinu verður Arsenal boðið í staðinn. ■ BOBBY Gould, stjóri Co- ventry, hefur skrifað John Major, forsætisráðherra Bretlands, þar sem hann kvartar yfir framkomu lögregluyfirvalda, sem sögðu hon- um að halda sig heima í stað þess að mæta á heimavöll WBA og lýsa leik gegn Wycombe Wanderes í bikarkeppninni s.l. þriðjudag. ■ GOULD er fyrrum stjóri hjá WBA og voru stuðningsmenn liðs- ins óánægðir með hann, en lögregl- an óttaðist að til átaka kæmi ef hann léti sjá sig. ■ GOULD sagði að freklega hefði verið brotið á rétti sínum og lögregl- an viðurkenndi eftir á að of langt hefði verið gengið. ■ GEORGE Graham, stjóri Ars- enal, er allt annað en ánægður með stjömumar í liðinu og er tilbúinn að láta þær víkja fyrir yngri og óreyndari mönnum. ■ RAY Parlour og Mark Flatts verða í liðinu, sem mætir Middles- borough í dag og Graham segir að þetta sé aðeins fyrsta skrefið. „Ég hef aldrei verið hræddur við að setja unga stráka í liðið og geri það sem ég tel best fyrir félagið." ■ GRAHAM sagðist hafa tekið við stjörnum á sínum tima, sem hefðu ekki lagt sig fram og hann léti slíkt ekki endurtaka sig. „Þá gerði ég breytingar og ég er tilbú- inn að gera þær aftur.“ ■ KEITH GiUespie, sem er 17 ára, fær sennilega fyrsta leik sinn með Manchester United, þegar lið- ið sækir Chelsea heim. Hann tekur þá stöðu Ryans Giggs, sem er meiddur, en að öðm leyti verður liðið eins og í 1:0 sigrinum gegn Norwich í síðustu viku. ■ PATRIK Andersson frá Mahnö í Svíþjóð gekk að tilboði Blackburn, sem greiddi um 75 millj. ÍSK fyrir Sviann. Vonast er til að hann fái atvinnuleyfi í næsta mánuði. ■ NORSKI vamarmaðurinn Henning Berg er einnig undri smásjánni hjá Kenny Dalglish sem og Robbie Earle, miðjumaður hjá Wimbledon, sem er metinn á um 150 millj. ÍSK. ■ DALGLISH))a.rt ekki að spyija hvað mennirnir kosta — Jack Wal- ker, eigandi Blakburn, er talinn áttundi ríkasti maður Bretlands. ■ KEVIV Keegan samþykkti í gær að greiða um 70 millj. ÍSK fyrir hollenska landsliðsmiðheij- ann Eric Viscaal hjá belgíska fé- laginu Ghent. ■ FÉLÖGIN í ensku úrvalsdeild- inni hafa ákveðið að gera auglýs- ingasamninga við nokkur fyrirtæki. í vikunni var gengið frá samningi við heilsudrykkj aframleiðanda að verðmæti um 300 millj. ÍSK til þriggja ára og fær hvert félag um 17,5 millj. ÍSK 1. janúar. ■ GIANLUCA Vialli, miðheiji Juventus, tekur stöðu Robertos Baggios, sem er meiddur, í ítalska landsliðinu, sem mætir Möltu í undankeppni HM í dag. ■ VLALLI er ætlað að leiða liðið til sigurs eftir tvö jafntefli, gegn Skotlandi og Sviss. „Hann á að vera í fremstu víglínu, en ekki koma aftur,“ sagði Sacchi, landsliðsþjálf- ari. ■ STEFAN Sultana, miðheiji Möltu, verður hins vegar fjarri góðu gamni og missir af leiknum, þar sem hann gengur í hjónaband á sama tíma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.