Morgunblaðið - 19.12.1992, Page 72

Morgunblaðið - 19.12.1992, Page 72
^ MICROSOFT. einar ). WINDOWSl skúlasonhf MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6, 101 KEYKJAVÍK SÍMI 091100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Landsmenn hafa ekki komist á skíði í um tvær vikur vegna ótíðar og norðanáhlaupsins Skíðasvæði nú lokuð í 12 daga SKÍÐASVÆÐIN í Bláfjöll- um og Skálafelli voru enn lokuð í gær vegna veðurs og höfðu þá verið það í 12 daga. Nægur snjór og næg- ur kuldi er á skíðasvæðun- um, en allt of mikill vindur og skafrenningur, að sögn Þorsteins Hjaltasonar, fólk- vangsvarðar. Að sögn Þorsteins er óvenjulegt að svona lengi sé lokað í einu í . desember, en venjulega væri þó ekki mikil ásókn í skíðalöndin á þessum tíma. „Ég á þó von á að það yrði töluverð aðsókn ef opnað- ist um helgina, því nú eru skólar flestir að verða búnir.“ Þorsteinn sagði það sárgrætilegt að ekki skuli vera hægt að nýta það góða skíðafæri sem þrátt fyrir allt væri í skíðalöndum höfuðborg- arsvæðisins. Sjá ennfremur bls. 4. í erfiðleikum á Hellisheiðinni Morgunblaðið/RAX Vegfarendur hafa átt í miklum erfiðleikum með að komast milli staða í veðurofsanum undanfarið og Veðurstofan spáir suðvestan hvassviðri í nótt svo eitthvert framhald ætlar verða á ótíðinni. að DAGAR TIL JÓLA Gísli Örn Lárusson yfirtekur eignarhluta Skandia í tryggingafyrirtækinu Skandia hættir trygg- ingastarfsemi á Islandi Gert ráð fyrir 100 milljóna kr. tapi á fyrirtækinu SKANDIA Svíþjóð seldi í gær Gísla Erni Lárussyni eignarhlut sinn í tryggingafyrirtækinu Skandia Island. Gísli Om er forstjóri fyrir- tækisins og átti fyrir rúman þriðjung hlutafjár á móti sænska fyrir- tækinu. Skandia hefur þar með hætt þátttöku í tryggingastarfsemi hér á landi en á áfram Fjárfestingarfélagið Skandia. Tryggingafyrir- tækið verður rekið áfram en undir öðru nafni. Öðrum íslenskum tryggingafyrirtækjum var í gær boðin þátttaka í endurfjármögnun Scandia ísland en þau gengu ekki til samninga. Gísli Örn Lárusson staðfestir að gert sé ráð fyrir 100 milljóna króna tapi af rekstri fyrirtækisins á árinu. Það sé hins vegar í samræmi við áætlanir. Rekstrarhalli fyrstu ár fyrirtækisins sé fómarkostnaður vegna kostnaðar sem félli til við upphaf fimm ára markaðssóknar íshúsfélag ísfirðinga vill ganga inn í kaupin á Gylli Stefnt að því að breyta íshúsfélaginu í almenningshlutafélag ÁSGEIR Guðbjartsson, skipstjóri Guðbjargarinnar á ísafirði og stór hlut- hafi Hrannar hf., sem á 62% í íshúsfélagi ísfirðinga, segir Ishúsfélagið vilja ganga inn I kaupsamning Hjálms hf. á Flateyri og Birtings hf. í Nes- kaupstað, um sölu á Gylli frá Flateyri til Neskaupstaðar. Þorleifur Páls- son, framkvæmdastjóri Hrannar hf., sem jafnframt er stjórnarformaður íshúsfélags ísfirðinga, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkveldi að unnið hefði verið að því að undanförnu að undirbúa breytingu á íshúsfé- lagi ísfirðinga í þá veru að breyta félaginu í almenningshlutafélag. Morgunblaðið náði símasambandi við Ás- geir í gærkveldi þar sem hann stýrði Guð- björginni á Halamiðum í afar tregu fiskeríi, að hans sögn. „Við erum að kanna það hvort við getum ekki gengið inn í þennan kaup- samning Hjálms við Austfirðingana, í sam- vinnu við heimamenn á Flateyri. Þannig fengi íshúsfélagið hráefni, áhöfnin héldi vinnu sinni og kvótýGyllis héldist í kjördæminu,“ sagði Ásgeir. Ásgeir sagði að ekki væri enn hægt að segja til um það hvort þessar þreifíngar þeirra hjá íshúsfélaginu gengju upp, en hann kvaðst telja að ef niðurstaðan yrði sú að íshús- félagið keypti Gylli, yrði það til mikilla hags- bóta fyrir fyrirtækið og fólkið sem hjá því starfar. Þorlejfur Pálsson stjómarformaður íshúss- félags ísfirðinga sagði m.a.: „Það er verið að vinna að opnun á íshúsfélagi ísfírðinga hf. fyrst og fremst til þess að hafa bolmagn til þess að kaupa skip. Þannig væri hægt að auka hráefnisöflun Ishússfélagsins og þar með sjálfstæði fyrirtækisins. Ef það getur orðið til þess að ekki verði seld burt skip og kvóti af svæðinu, þá er það bara af hinu góða.“ Þorleifur sagði jafnframt að enn lægi ekki ljóst fyrir hvort íshúsfélagið gæti gengið inn í þann samning sem Hjálmur og Birtingur hafa gert með sér. „Tíminn mun leiða það í ljós,“ sagði Þorleifur. Sjá ennfremur Af innlendum vettvangi: „Sægreifi vill sejja, en banki hlýtur að ráða“ í miðopnu. fyrirtækisins á íslenska trygginga- markaðnum. Erlendur Lárusson, forstöðumað- ur Tryggingaeftirlits, sagði að stofnuninni hefði engin tilkynning borist um gjörbreytta afkomu eða stöðu Skandia frá síðasta árssreikn- ingi, svo sem lögskylt sé ef um slíkt er að ræða. Málið verði kannað en séu fréttir sem Ríkisútvarpið greindi frá í gærkvöldi, um að eigin- fjárstaða fyrirtækisins sé orðin nei- kvæð skv. 10 mánaða uppgjöri, réttar verði þess krafíst að úr verði bætt en ella sé t.d. unnt að banna sölu nýrra trygginga eða stöðva rekstur að ákvörðun trygginga- málaráðherra. Rætt við tryggingafélög Áður en gengið var frá yfirtöku Gísla Amar á Scandia ísland síð- degis í gær var rætt við önnur ís- lensk fyrirtæki. Forsvarsmenn Sjó- vár-Almennra og VÍS staðfestu í gær að forsvarsmenn Skandia hefðu boðið þeim þátttöku í end- urfjármögnun fyrirtækisins. Sjóvá hefði hafnað en Axel Gíslason, for- stjóri VÍS, sagði ekkert hafa komið fram sem gert hefði þátttöku í fyrir- tækinu áhugaverða fyrir VÍS. í yfírlýsingu sem Gísli Öm og Leif Victorin, forstjóri Skandia Norden, undirrituðu í gær kemur fram að í tengslum við kaupsamn- inginn hafí Skandia Svíþjóð veitt Gísla Erni fjárhagslegan stuðning en öllu sambandi félaganna sé nú lokið. Ekki náðist í Leif Victorin eða aðra þá talsmenn Skandia Norden sem staddir vom hérlendis í gær- kvöldi. Sjá fréttir á bls. 32.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.