Morgunblaðið - 24.02.1993, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1993
Styrkurtil
atvinnu-
lausra
unglinga
BORGARRÁÐ hefur samþykkl
950 þús. króna styrk til nám-
skeiðahalds og ráðgjafar á veg-
um íþrótta- og tómstundaráðs í
þágu atvinnulausra unglinga á
aldrinum 16 til 20 ára.
í erindi framkvæmdastjóra
íþrótta- og tómstundaráðs til at-
vinnumálanefndar kemur fram, að
fyrirhugað er að bjóða ýmis nám-
skeið í Hinu húsinu og að ráða sér-
hæfða leiðbeinendur til starfa. Með-
al annars verður boðið upp á nám-
skeið í islensku, myndbandagerð,
leiklist, framsögn, útvarpsþátta-
gerð, tónlist, myndlist og fleira.
Ekki er gert ráð fyrir að þátttak-
endur greiði þátttökugjald.
Reykjavíkurborg vill kaupa land Olíufélagsins Skeljungs í Skerjafirði
Verði grænt svæði
á komandi árum
BORGARRÁÐ hefur samþykkt viljayfirlýsingu um að sam-
ið verði við Olíufélagið Skeljung hf., um kaup á eign-
arlandi fyrirtækisins í Skeijafirði á næsta ári. Að sögn
Markúsar Arnar Antonssonar borgarstjóra, er gert ráð
fyrir að þarna verði grænt svæði í framtíðinni.
Flutt á fimm árum
GERT er ráð fyrir að félagið flytji rekstur sinn á fimm árum og
að borginni verði þegar heimilað að reisa dælustöð fyrir
Fossvogsræsið, sem næst fjörunni í landi félagsins.
Fjallað var um samning við
Olíufélagið Skeljung hf., um
kaup á eignarlandi í Skerjafirði
á fundi borgarráðs í gær. Félagið
hefur haft þar aðsetur um
margra ára skeið en borgarstjóri
sagði, að áform væru uppi um
að flytja alla starfsemina þaðan.
Þegar hefur hluti hennar verið
fluttur í Örfirisey og er ætlunin
að flytja vörulager í Skútuvog
og gasbirgðastöðina í Straums-
vík.
„Þessi starfsemi hefur verið í
Skerjafirði frá fyrri árum en nú
hefur tekist samkomulag um að
á næsta ári verði gengið til
endanlegra samninga við Skelj-
ung um kaup borgarinnar á landi
og eignum,“ sagði Markús.
Leiknisvölliir
upphitaður
og flóðlýstur
BORGARRÁÐ __ hefur sam-
þykkt umsögn Ómars Einars-
sonar framkvæmdastjóra
íþrótta- og tómstundaráðs,
um að fyrirhugaður gervi-
grasvöllur íþróttafélagsins
Leiknis við Austurberg verði
flóðlýstur og upphitaður.
Áætlaður heildarkostnaður
við jarðvinnu, búnað, gervigras,
hönnun, flóðlýsingu og hitalögn
er 89,1 milljón króna.
Tap íslandsbanka
176 millj. í fyrra
TAP á rekstri íslandsbanka nam 176 milljónum króna á síð-
asta ári en árið áður varð 61 miiyónar króna hagnaður af
rekstrinum. Valur Valsson bankastjóri íslandsbanka sagði,
að þessi niðurstaða ylli að sjálfsögðu vonbrigðum en hana
hefði mátt sjá fyrir að verulegu leyti upp úr miðju síðasta
ári þar sem tap eftir 8 mánuði hefði numið 80 milljónum króna.
í frétt frá íslandsbanka segir, efnahagsumhverfi þjóðarinnar.
að afkoma bankans hafi markast Mikill fjöldi fyrirtækja sé rekinn
öðru fremur, af fjárhagslegum erf- með tapi, verðlag á atvinnuhúsnæði
iðleikum heimila og fyrirtækja og og tækjum hafí farið lækkandi og
Lagafrumvörp sem ríkisstjómin hyggst leggja fram á næstunni
Sala á tóbald einkavædd
og sérstakt gjald lagt á
RÍKISSTJÓRNIN leggur fram á næstunni frumvarp um að
tóbakseinkasala ríkisins verði afnumin og umboðsaðilum feng-
in sala tóbaks í hendur. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að
ríkissjóður haldi óskertum tekjum af tóbakssölunni með tób-
aksgjaldi, sem lagt verður á eftir þunga reyktóbaks en tóbaks-
gjaldið verður 5,90 kr. fyrir hvern vindling. Þá verður lagt
fram frumvarp um að Lyfjaverslun ríkisins verði hlutafélag.
Samkvæmt frumvarpinu verður þingi. Hugsanlegt er talið að um-
lögum um Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins breytt í þá veru að ákvæði
um einkarétt ÁTVR til innflutnings
og heildsöludreifingar á tóbaki verð-
ur afnumið. Steingrímur Ari Arason,
aðstoðarmaður fjármálaráðherra
kvaðst reikna með að neftóbaks-
framleiðsla og sala yrði áfram á
hendi ÁTVR.
Taki gildi l.júlí
Gert er ráð fyrir að þessi breyting
komi til framkvæmda 1. júlí nk. ef
frumvarpið hlýtur samþykki á Al-
boðsaðilar tóbaks vilji hagnýta sér
þjónustu ÁTVR meðan gengur á
birgðir. Steingrímur Ari kvaðst eiga
von á einhveijum samdrætti í rekstri
ÁTVR í kjölfar þessa, en þó væri
tóbakssalan óverulegur hluti í starf-
seminni, því birgðahald væri tiltölu-
lega auðvelt.
Hluti af hagnaði ríkisins af tób-
akssölu rann í Jöfnunarsjóð sveitar-
félaga í formi landsútsvars. Hagnað-
ur ATVR mun líklega minnka með
þessu fyrirkomulagi. Því er í frum-
varpinu gert ráð fyrir að ákveðinn
hluti tóbaksgjaldsins, 3% eða um 75
milljónir kr. á ári, renni beint til
Jöfnunarsjóðsins.
Samkeppnissjónarmið
Þá hyggst ríkisstjómin leggja
fram frumvarp um að Lyfjaverslun
ríksins verði breytt í hlutafélag og
að heimilað verði að selja hlut ríkis-
ins. Salan er ekki tímasett, að sögn
Steingríms Ara, en gert er ráð fyrir
að formbreytingin eigi sér stað 1.
júlí. Lögð er áhersla á að tekið verði
tillit til samkeppnissjónarmiða við
einkavæðingu Lyfjaverslunarinnar,
á þann veg að enginn einn aðili verði
ráðandi á lyfjamarkaðnum vegna
sölu Lyfjaverslunarinnar. Velta
Lyfjaverslunarinnar var í fyrra um
800 milljónir kr. og þar vinna 60
starfsmenn. Starfsemin er fólgin í
lyflaframleiðslu og lyfjainnflutningi
auk innflutnings á hjúkrunarvörum.
horfur í efnahags- og atvinnumál-
um séu ekki bjartar.
Valur Valsson vildi ekki upplýsa
hve mikið íslandsbanki hefði lagt á
afskriftarreikning til að mæta töp-
uðum útlánum á síðasta ári. Upp-
lýsingar um það myndu ekki liggja
fyrir fyrr en á aðalfundi bankans
sem haldinn verður í lok mars. En
framlag bankans í afskriftarreikn-
ing nam tæpum milljarði króna
fyrstu átta mánuði .síðasta árs og
var þá talið nauðsynlegt að hækka
framlagið hlutfallslega það sem eft-
ir var ársins.
Minni rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður íslandsbanka
lækkaði um tæplega 230 milljónir
króna á síðasta ári og nemur sá
samdráttur um 6% af heildarrekstr-
arkostnaði, að sögn Vals Valsson-
ar. Stefnt er að því að lækka rekstr-
arkostnað enn frekar á þessu ári.
Útlán íslandsbanka voru 42,6
milljarðar króna í fyrra sem var
3,7% aukningfrá árinu 1991. Heild-
arinnlán að meðtöldum bankabréf-
um námu tæpum 40 milljörðum
króna sem var 3% aukning, að sögn
Vals Valssonar. Aðspurður sagði
hann að bankinn hefði dregið úr
útgáfu bankabréfa á síðasta ári en
haldið sínum hlut af innlánum.
Eigið fé bankans var 5.175 millj-
ónir króna í árslok 1992 og minnk-
-aði um 216 milljónir króna frá fyrra
ári vegna hallareksturs og arð-
greiðslna til hluthafa á síðasta ári.
Eiginfjárhlutfall bankans er 10%
en lögbundið lágmark er 8%.
Aðalfundur íslandsbanka verður
haldinn 29. mars.
Ágætæfing!
íslendingar sigruðu Pólveija í
landsleik í handknattleik í gær-
kvöldi, en þurftu að hafa mun
meira fyrir sigrinum en í fyrra-
kvöld. Urslit leiksins urðu 28:24
eftir að jafnt hafði verið í hálf-
leik, 17:17. Bjarki Sigurðsson
gerði fjögur mörk fyrir ísland í
leiknum og hér er eitt þeirra í
uppsiglingu, en Sigurður Sveins-
son var markahæstur með níu
mörk.
Sjá ennfremur bls. 43.
í dag
Lestrarkeppni
Efnt verður til keppni ílestri íöll-
um grunnskólum landsins 8. til 18.
marsnk. 19
Eignarnámsbætur
Björn á Löngumýri vildi 5,4 millj.
en fær 240.000 kr. 22-23
Kosið i Stúdentaráð____________
Lánamál og nemendafyrirtæki eru
meðal baráttumálanna 18
Leiðari_________________________
Eiga skattgreiðendur að kosta
starfsstéttaþing 22
úrVERINU
UM 8JAVMÚTVM
Úr verínu
► Kanna stofnun alþjóðlegs fisk-
markaðar í Reykjavík - Flugleiðir
gætu aukið fískflutning mikið -
11 íslenzk fyrirtæki sýna í Boston
- Rússafiskur veldur óróa
Myndosögur
► Drátthagi blýanturinn - Fiðr-
ildi - Löggan ogþjófurinn -
Pennavinir - Spjókarl - Mynda-
sögur - Könnunarleiðangur -
Myndir ungra listamanna
Framsóknarflokkur fær 23,9%
fylgi, þá kemur Alþýðubandalagið
með 21,2% og þá Kvennalistinn með
13,1% fylgi í könnuninni.
Stjórnarandstæðingum fjölgar
Félagsvísindastofnun spurði
einnig um fylgi við ríkisstjómina.
Tæpur fjórðungur svarenda, eða
24,6%, sagðist henni fylgjandi en
andstæðingarnir voru 54,6%. Hlut-
föHin hafa breytzt lítillega frá síð-
ustu könnun, stjórnarandstæðing-
um í hag. Þá fengu þeir 51,5% en
stuðningsmenn stjórnarinnar
29,5%.
Sjá bls. 7: „Sjálfstæðisflokkur-
inn...“
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar
Sjálfstæðisfiokkur
fengi 33,3% fylgi
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN fengi mest fylgi, 33,3% at-
kvæða, ef gengið væri til þingkosninga nú, samkvæmt nið-
urstöðum skoðanakönnunar, sem Félagsvísindastofnun Há-
skólans gerði fyrir Morgunblaðið í síðustu viku. Flokkurinn
fékk 38,6% í kosningnum 1991. Alþýðuflokkurinn yrði hins
vegar minnsti flokkurinn og fengi 6,8%, en fékk 15,5% í þing-
kosningunum.