Morgunblaðið - 24.02.1993, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRUAR 1993
7
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla íslands á fylgi slj ómmálaflokkanna
Sjálfstæðisflokkurinn fær
33,3% - Alþýðuflokkur 6,8%
Andvígir ríkisstjórninni 54,6% - 24,6% fylgjandi
Fylgi stjórnmálaflokka eftii* landshlutum
46,4%
38,3%
STUÐNINGSMENN ríkisstjórnar Davíðs Odds-
sonar eru 24,6% þeirra, sem svöruðu í skoðana-
könnun, sem Félagsvísindastofnun Háskóla ís-
lands gerði fyrir Morgunblaðið í síðustu viku.
Andstæðingar stjórnarinnar eru hins vegar
54,6%. I síðustu könnun Félagsvísindastofnunar
í nóvember voru þessi hlutföll 29,5% og 51,5%.
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn með
33,3% fylgi þeirra, sem afstöðu tóku, og bætir
lítillega við sig frá síðustu könnun Félagsvísinda-
stofnunar í nóvember, þó ekki svo marktækt
geti talizt. Framsóknarflokkur (með 23,9%) og
Alþýðubandalag (með 21,2%) bæta örlítið við sig,
heldur ekki marktækt. Kvennalistinn stendur
nokkurn veginn í stað með 13,1%. Mesta fylgis-
sveiflan er hjá Alþýðuflokknum, sem hafði 15,5%
í kosningunum 1991, 10,9% í síðustu könnun en
fær nú 6,8% fylgi.
16,6%
7,2%
9,4%
4,7%
35,5%
21,7%.
20,5%
r
26,0%
Reykjavík
Reykjanes
Landsbyggðin
18,6%
12,0%
7,9%
B
1,6% ° 1,4%
□qQ
Könnunin náði til 1.500 manna
slembiúrtaks úr þjóðskrá. Nettósvör-
un er 72,4%, sem telst fullnægjandi
í könnun sem þessari. Gott samræmi
er milli skiptingar úrtaksins og þjóð-
arinnar allrar eftir aldri, kyni og
búsetu. Félagsvísindastofnun telur
því að úrtakið endurspegli þjóðina, á
aldrinum 18-75 ára, alivel.
Óákveðnir 5,9%
Er spurt var um fylgi flokkanna
var gengið frekar á menn, segðust
þeir óákveðnir, um það hvaða flokk
þeir myndu líklegast kjósa og loks
hvort líklegra væri að þeir kysu Sjálf-
stæðisflokkinn eða einhvern annan.
Með þessu móti minnkaði hlutfall
óákveðinna úr 32,6% eftir fyrstu
spumingu í 5,9% eftir þriðju spurn-
ingu. Tæp 9% neituðu að svara.
Sjálfstæðisflokkurinn með
35,5% í Reyly'avík
Þegar litið er á fylgi flokkanna
eftir landshlutum kemur talsverður
mismunur í ljós. Sjálfstæðisflokkur-
inn er til dæmis með 35% í Reykja-
vík, 46,4% á Reykjanesi en 21,7%
úti á landi.
Hvopt mundip þú segja að
þú væpip stuðningsmaðup
pikísstjornarinnap eða
andstæðingup?
Hlutfall þeirra sem svara Stuðnings-
Hlutlausir ____ menn-^
Andstæðingar
Minnihluti Alþýðuflokks
hlynntur stjórninni
Mikill meirihluti kjósenda stjórnar-
andstöðuflokkanna er andvígur ríkis-
stjóminni og 75% sjálfstæðismanna
hlynntri. Hins vegar eru aðeins
42,5% kjósenda Alþýðuflokks hlynnt-
ir stjórninni en 35% andvígir.
Hvað myndu menn hjósa í alþingiskosningum nú?
Samanburður við fyrri kannanir og alþingiskosningar 1991, % þeirra sem taka afstöðu _
□ KOSNINGAR 1991
Q Október 1991
Q Nóvember 1991
Q Júni 1992
Q Nóvember 1992
Q FEBRÚAR 1993
Vikmörk könnunar
Ifebrúar1993
38,6% n
±2,9% -|
s; ^
8Í L-
26,2%
18,9%
15,5%
« S «
S S ±1,8%'
00 -1
r
<$ ¥ # g
------æ » gf
OJ co
±2,4%
Valið stendur um
þrjár mismunandi
tegundir af
Merrild kaffi:
103-Millibrennt
304-Dökkbrennt
104-Mjög dökkbrennt
Merrild
'ctf
setut