Morgunblaðið - 24.02.1993, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1993
9
Opnum í dag meO mikli
úrvali af nýjum vömm
(------------'N
aéoenellon „ .
^____________) K r i n g I u n n i
Nú er rétti tíminn til a b
hefja reglulegan spamað með
áskrift að spariskírteinum
ríkissjóðs.
Notaðu símann núna,
hringdu í
62 60 40,
69 96 00
eða 99 66 99
sem er grænt númer.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, sími 91- 626040
Kringlunni, sími 91- 689797
Kalkofnsvegi 1,
sími 91- 699600
íslenski tvfstígandinn
í nýjasta hefti tímaritsins Stefnis, sem
gefið er út af Sambandi ungra sjálfstæð-
ismanna, er vitnað í bandaríska fræði-
manninn Warren Bennis og kenningar
hans um „íslenska tvístígandann", vand-
ann að velja á milli sjálfsforræðis smárík-
isins og hagkvæmni hins stóra hagkerfis.
Frá þessari umfjöllun er sagt í Stakstein-
um í dag.
Grein Bennis
I forystugrein Stefnis
segir ritstjórinn Ámi Sig-
urðsson: „Um páskaleyt-
ið árið 1990 var ég svo
lánsamur að kynnast
bandariska fræðimann-
inum Warren Bennis,
sem getið hefur sér
frægðarorð fyrir rann-
sóknir og skrif um for-
ystuhlutverkið. Hann
hefur reglulega sent mér
þær tímarita- og blaða-
feinar sem hann birtir.
desember sendi hann
mér ritgerð sem hann
skrifaði ásamt James
O’Toole og birtist sl. sum-
ar í California Manage-
ment Review. 1 ritgerð-
inni fjalla þeir um þá
sterku tilhneigingu að
sameina ríki í stærri
rikjaheildir undir sam-
eiginlegri sambands-
stjórn, líkt og nú á sér
stað í Evrópu. Þar vitna
þeir m.a. til reynslu ís-
lendinga og kalla tog-
streituna milli þjóðernis-
byggju og alþjóðlegs
samruna „The lceland
Dilemma" sem þýða
mætti sem: „íslenska tví-
stígandann". Þeir segja í
upphafi ritgerðarinnar:
„A þessum óvissutímum
halda varkárir korta-
gerðarmenn að sér hönd-
um. Landamæri færast
til í viku hverri þegar ný
ríki bijótast til sjálfstæð-
is með mismiklum fæð-
ingarþrautum þegar
heimsveldi gærdagsins
liðast í sundur. Enginn
heimshluti er þar undan-
skilinn ... Við köllum
það íslenska tvistígand-
ann. Kjarni þessa vanda
er að velja á milli kosta
þess sjálfsforræðis sem
smáriki veita og þess að
njóta hagkvæmni sem
stór hagkerfi geta boðið.
Daniel BeU orðaði þetta
svo: „Þjóðríkið er að
verða of lítið fyrir stærri
vandamál tilverunnar og
of stórt fyrir hin smærri
vandamál tilverunnar."
Dæmið ísland
„En hver er „íslenski
tvístígandinn”? Þessa
þjóð sem býr á þessari
hrjóstugu og veðurbörðu
eyju hijáir nú togstreita
tveggja máttugra en and-
stæðra afla. Annað
þeirra er hið sterka þjóð-
arstolt íslendinga sem
byggir á merkri víkinga-
arfleifð þeirra ... En
þessi áhugi á öUu sem
tengist sannanlega
þeirra eigin menningu
er aðeins ein hliðin á
verðmætamatí íslend-
inga. Jafnvel þótt íslend-
ingar vitni oft í fomsög-
uraar og samþykki lög
sem skylda íslenska ríkis-
borgara til að ve\ja böra-
um sínum nöfn úr viður-
kenndum lista nafna af
hreinum íslenskum upp-
runa, eru þeir ákafir í
að taka virkan þátt í
heimsviðskiptum, að
taka þátt í samkeppnis-
mörkuðum alþjóðavið-
skipta, tækni og fjár-
magns.
Samfélag íslendinga
er þannig skýrt dæmi um
það sem heimspekingar
hafa kallað togstreitu
hins sértæka og hins al-
menna. Spuraingar á
borð við þær hvemig eigi
að finna jafnvægi milli
hefða og hagvaxtarþrár,
hvernig eigi að vera sjálf-
um sér trúr í félagsskap
með öðrum og hveraig
eigi að syngja einsöng
en vera jafnframt í kóm-
um er kjarai „íslenska
tvístígandans“.“
y'
Þjóðernis-
hyggjao g
samruni
Áfram er vitnað í
Bennis: „Að sönnu glímir
allur heimurinn við þörf-
ina fyrir að finna ein-
hveija sátt mUU þjóðera-
ishyggju og aukins al-
þjóðlegs samruna. Og sú
þörf er likleg til að vaxa
er nær dregur nýrri öld,
ef við höfum þá stað-
reynd í huga að meira
en 5.000 þjóðir teljast til
heimsbyggðarinnar en
aðeins 166 riki — enn sem
komið er. Ríkjafjöldinn á
að öUum líkindum eftir
að margfaldast þegar
ríki liðast i sundur og
ríkjabrotin taka einnig
að liðast í sundur. Á sama
tíma reyna allir að taka
þátt í frekari alþjóðleg-
um samruna.
Sem betur fer er til
almenn lausn á „íslenska
tvístígandanum”: Sam-
bandsríki. Svo dæmi sé
tekið þá rökræða íslend-
ingar nú hvort þeim tak-
ist að leysa eigin útgáfu
þessa tvístíganda með
því að tengjast Evrópu
sterkari böndum með
aðgangi að Evrópumörk-
uðum í gegnum Evr-
ópska efnahagssvæðið."
Meðganga, fæðing og eftir fæðingu á myndbandi
MYNDBÆR HF. og Ljósmæðra-
félag íslands hafa undirritað
samning um gerð myndbandsins:
Meðganga, fæðing og eftir fæð-
ingu. Eins og nafnið gefur til
kynna skiptist myndbandið í
þijár sjálfstæðar myndir sem
hver um sig verður 15-20 mínút-
ur að lengd.
Myndbandið er fyrst og fremst
ætlað verðandi foreldrum og getur
nýst við margvíslega fræðslustarf-
semi, t.d. á vegum heilsugæslu-
stöðva. Ljósmæðrafélag íslands
veitir faglega aðstoð við gerð
myndbandsins.
Ráðgert er að myndbandið verði
tilbúið til sýningar á haustmánuð-
um.
(Úr fréttatilkynningu.)
RABBFUNDUR í VÍB-STOFUNNI
Sverrir Hermn n n.sson,
bankastjóri l.nndsbnnka Íslmuls.
Hversu æskileg er
ÞÁTTTAKA BANKANNA
f ÍSLENSKU ATVINNULÍFI?
A morgun, fimmtudaginn 25. febrúar, verðpr Sverrir
Hermannsson, bankastjóri Landsbanka íslands, í
VIB-stofunni og ræðir við gesti um þátttöku bankanna
í atvinnurekstri. Er þátttaka bankanna æskileg? Að
hvaða marki er nauðsynlegt að yfirtaka rekstur
fyrirtækja sem eru i hremmingum? Hyerjum á að selja
fyrirtæki sem bankarnir eignast? Á hvaða verði?
Fundurinn hefst kl. 17:15 og er öllum opinn.
Ármúla 13a, 1. hæð.
t
é