Morgunblaðið - 24.02.1993, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1993
17
Atvinnumálin
efst á baugi á
Búnaðarþingi
BÚNAÐARÞING verður sett
næstkomandi mánudag, 1. mars.
Jón Helgason formaður stjórnar
Búnaðarfélags íslands setur þing-
ið klukkan 10. Þá mun Halldór
Blöndal landbúnaðarráðherra og
Haukur Halldórsson formaður
Stéttarsambands bænda ávarpa
þingfulltrúa.
Jón Helgason sagðist í samtali við
Morgunblaðið búast við að atvinnu-
málin yrðu efst á baugi á þessu
Búnaðarþingi. Hann sagði að frá því
síðasti búvörusamningur var gerður
hafi orðið gjörbreyting í atvinnumál-
um í landinu. Það sagði hann að
snerti bændur bæði beint og óbeint.
Þeir yrðu fyrir miklum tekjumissi
vegna niðurskurðar framleiðsluheim-
ilda og gætu að takmörkuðu leyti
bætt sér það upp með annarri vinnu.
Þá takmarkaði atvinnuástandið einn-
ig möguleika bænda til að hætta
búskap til þess að stunda aðra vinnu
frá bæjum sínum eða leita fyrir sér
annars staðar með því að flytja.
Búnaðarþing starfar venjulega í
tíu daga.
SAS Lukkupotturinn
er fullur af ævintýrum!
minnihlutahópa í landinu, nægir þar
að nefna aðstoð við flóttafólk, aðstoð
við útigangsmenn og aðstoð við al-
næmissmitaða. í Húsinu, neyðarat-
hvarfi fyrir unglinga, er ungu fólki
í vanda boðin hjálp og síðast en
ekki síst hefur Rauði kross íslands
nýlega opnað athvarf fyrir geðsjúka,
sem ekki þurfa sjúkrahúsvist, við
Hverfisgötu í Reykjavík. Athvarfið
hefur hlotið nafnið Vin. Þá hafa fé-
lagar í Ungmennahreyfingu RKÍ
komið á fót svokallaðri Vinalínu, þar
sem fólki stendur til boða að ræða
vandamál sín í síma við sérþjálfaða
sjálfboðaliða, ungmennin hafa einn-
ig aðstoðað ungt fólk í vanda í mið-
borg Reykjavíkur um helgar, þau
sinna börnum í Kvennaathvarfinu
o.fl.
Virðum hvert annað - mannleg
reisn er réttur allra.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Rauðu kross íslands.
Virðum hvert annað
Mannleg reisn
eftir Hannes
Hauksson
Mannkynið er fimm milljarðar.
Arlega fjölgar því um hundrað millj-
ónir. Alltof stór hluti mannkyns býr
við kjör sem ekki eru mannsæm-
andi. Fimmtungur kann hvorki að
lesa né skrifa og tæpur þriðjungur
barna býr við næringarskort. Dag
hvern farast milli 40 og 50 þúsund
úr hungri. Þijátíu milljónir barna eru
heimilislausar og njóta ekki kærleika
foreldra eða ástvina. Göturnar, þar
sem ofbeldi og glæpir eru daglegt
brauð, eru náttstaður þeirra.
Við getum lengi bætt við þessa
ljótu en sönnu mynd. Fimmtungur
jarðarbúa býr við vatnsskort. Dag-
lega eru unnin umhverflsspjöll sem
ógna heilsu komandi kynslóða. Ár-
lega hrekjast milljónir á flótta vegna
stríðs, hungurs og náttúruhamfara.
Fjöldi fólks býr við kúgun, er látinn
dúsa í fangelsum án dóms og þarf
að sæta pyndingum, sem skilja eftir
varanleg sár á sál og líkama og leiða
stundum til dauða.
Af þessari upptalningu er ljóst að
í heiminum vantar mikið á að fólk
sýni hvert öðru næga virðingu. Þetta
virðingarleysi ríkir ekki aðeins í svo-
kölluðum þróunarlöndum. í ríkari
löndum heims, jafnvel hér í okkar
litla samfélagi, stækkar sá hópur
sem býr við kjör sem vart geta tal-
ist mannsæmandi. Atvinnuleysi
eykst með fylgifiskum eins og eitur-
lyfja- og áfengisneyslu, almennri
svartsýni, öryggisleysi og óvissri
framtíð ungs fólks. Æ fleiri, ungir
og gamlir, gefast upp í miskunnar-
lausri lífsbaráttu neyslusamfélags-
ins.
Gjáin milli ríkra þjóða og fátækra
dýpkar og dýpkar. Samtímis breikk-
ar líka bilið milli ríkra og fátækra
í iðnríkjum Vesturlanda - hópar
fólks virðast sitja eftir bjargarlausir.
Rauðakrosshreyfingin um allan heim
vill beijast gegn þessu hrópandi
óréttlæti. Hún vill virkja sjálfboðal-
iða innan sinna vébanda til að rétta
þurfandi fólki hjálparhönd og með
því stuðla að því að fleiri geti lifað
með reisn og hefur þess vegna valið
sér kjörorðin „Virðum hvert annað“
á yfirstandandi ári.
Öskudagur er hefðbundinn fjár-
öflunardagur RKÍ. Á hverju ári síðan
1925 hafa börn og unglingar um
land allt langt hönd á plóginn. Fénu
sem safnast er varið til margvíslegs
mannúðarstarfs á svæði viðkomandi
deilda, en einstaka deildir kjósa að
leggja fé í hjálparstarf í þriðja heim-
inum. í þetta sinn má segja að verið
sé að bijóta blað því hingað til hafa
verið seld merki á öskudaginn en
núna var ákveðið að selja penna með
er réttur allra
áletruninni „Virðum hvert annað“.
Eg vil hvetja fólk til að taka sölu-
börnum vel og styðja þannig við
bakið á hjálparstarfí Rauða krossins.
Neyð fólks er af ólíkum toga.
Þess vegna hafa landsfélög Rauða
krossins, sem starfa í 170 löndum,
tileinkað sér mismunandi starfsað-
ferðir. Þær aðferðir mótast fyrst og
fremst af þörfinni í' viðkomandi
landi. Rauði kross íslands kemur
víða við í mannúðarstarfi heima og
erlendis. Á vegum deilda RKÍ er
rekinn fullkominn sjúkrabílafloti,
deildir sinna öldrunarmálum, þær
styðja heilbrigðiskerfið í landinu með
því að gefa tæki og tól og hafa for-
SAS býður upp á ótrúlega lág far-
gjöld til borga um alla Evrópu
á verði sem er um 40%
lægra en á venjulegum
fargjöldum.
Börn og unglingar frá
2ja til 18 ára aldurs fá þar
að auki 50% afslátt.
Til að spila í SAS Lukkupottinum þarf
að kaupa farmiðann 7-14 dögum fyrir
brottför og dvelja a.m.k.
aðfararnótt sunnudags í því
landi sem ferðast er til.
Hámarksdvöl er einn mánuður.
Þegar ferðast er til borga utan
Norðurlandanna er hægt að stoppa í
Kaupmannahöfn á báðum leiðum.
SAS LUKKUFARGJÖLD
Verö miðað við einstakling: 30.160 34.520 41.550 46.720 52.930 58.110 61.210
Kaupmannah. Helsinki Berlín Amsterdam* Brussel* Aþena Bilbao*
Stokkhólmur Turku Hamborg* Dusseldorf Budapest Kiev Oporto*
Osló Tampere Hannover Frankfurt* Munchen* Mílanó Palma*
Bergen Vaasa Stuttgart París* Lissabon Valencia*
Stavanger Kristiansand Váxjö Vásterás Gautaborg Malmö Kalmar Jönköping Norrköping Örebro Leipzig Ríga Vín* Vilníus Zúrich* Barcelona Genf* Prag Madrid Malaga Róm Feneyjar Alicante* Istanbúl Nice Tallinn
„Dag hvern farast milli
40 og 50 þúsund úr
hungri. Þrjátíu milljón-
ir barna eru heimilis-
lausar og njóta ekki
kærleika foreldra eða
ástvina. Göturnar, þar
sem ofbeldi og glæpir
eru daglegt brauð, eru
náttstaður þeirra.“
1250 kr. ísl. flugvallarskattur er ekki innifalinn í uppgefnu verði.
SAS flýgur frá íslandi til Kaupmannahafnar mánudaga, miðvikudaga og laugardaga.
Flug til íslands er á sunnudags-, þriöjudags- og föstudagskvöldum.
*Til eru ódýrari gjöld en þá má ekki stoppa í Kaupmannahöfn og bamaafsláttur er fyrir
börn yngri en 12 ára.
Kynntu þér SAS Lukkupottinn á söluskrifstofu SAS eða á
ferðaskrifstofunni þinni og fljúgðu á vit ævintýranna í Evrópu!
SAS á íslandi - valfrelsi í fiugi!
Laugavegi 172 Síml 62 22 11
ystu í skyndihjálparkennslu, svo að-
eins fátt sé talið.
Undanfarin ár hefur RKÍ í ríkari
mæli reynt að koma til móts við
Hannes Hauksson