Morgunblaðið - 24.02.1993, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1993
21
Verðlækkun á fiski á mörkuðum í Evrópu
Viðbrög’ð í samræmi
við starfsreglur EB
Lágmarksverð hefði takmörkuð áhrif á íslenskar afurðir
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins (EB) tekur að öllum líkind-
um ákvörðun um lágmarksverð á innfluttar sjávarafurðir um næstu
helgi. Sljórnin er undir miklum þrýstingi frá aðildarþjóðunum, aðal-
lega Frökkum, um að grípa nú þegar til aðgerða til að draga úr inn-
flutningi á sjávarafurðum til EB. Franskir sjómenn og starfsbræður
þeirra, m.a. í Danmörku og á Bretlandi, telja að ódýr innflutningur
frá íslandi, Noregi og Rússlandi sé að rústa lífsafkomu þeirra.
Ljóst er að lágmarksverð á inn- ákvörðunin er hins vegar á færi
fluttum sjávarafurðum mun hafa
takmörkuð áhrif á íslenskar afurðir
sem þegar eru að mestu háðar lág-
marksverði innan EB í samræmi við
ákvæði bókunar sex við fríverslunar-
samning íslands og bandalagsins.
Samkvæmt henni skuldbinda íslend-
ingar sig til að selja ekki afurðir sem
njóta tollfríðinda eða afsláttar undir
viðmiðunarverði EB. Sama gildir um
alla innflutningskvóta til bandalags-
ins sem heimilaðir eru með tollaaf-
slætti og þessi regla mun og gilda
um ívilnanir samkvæmt bókun níu
við Evrópska efnahagssvæðið
(EES). Viðmiðunarverð á sjávaraf-
urðum innan EB er ákveðið á grund-
velli markaðsverðs og gildir sem
viðmiðun gagnvart innflutningi til
bandalagsins.
Fylgst með verðþróun
Ef verð á innflutningi fer niður
fyrir viðmiðunarverð og útlit er fyrir
röskun á mörkuðum af þeim orsök-
um ber framkvæmdastjórninni að
gera ráðstafanir til að breyta viðmið-
unarverðinu í lágmarksverð. Til þess
þarf hún að hafa samráð við sér-
fræðinga frá aðildarríkjunum en
framkvæmdastjórnarinnar einnar.
Undanfarnar tvær vikur hafa emb-
ættismenn EB fylgst grannt með
verðþróun á fiskmörkuðum í banda-
laginu vegna vísbendinga um lækk-
un á mikilvægum tegundum.
Tilþrif franskra sjómanna á fisk-
mörkuðunm og bryggjusporðum síð-
ustu daga hafa þess vegna haft tak-
mörkuð áhrif á þær aðgerðir sem
verið er að taka afstöðu til í Brussel
þessa dagana. Þar í borg líta marg-
ir svo á að yfirvofandi kosningar í
Frakklandi eigi mun ríkari þátt í
ástandinu en meint undirboð ís-
lenskra, norskra og rússneskra sjó-
manna. Vandi fransks sjávarútvegs
sé fyrst og fremst pólitískur og verði
ekki leystur með innflutningsbanni.
Þá benda menn á hátt gengi franska
frankans og að síversnandi efnahag-
ur fólks hafi dregið mjög úr fisk-
neyslu en fískverð hefur verið mjög
hátt í Evrópu undanfarin ár.
EB íhugar að koma á álkvótum
Rússar hóta að selja
álið til hernaðarnota
Brussel. Reuter.
VÉGNA þrýstings frá álframleiðendum í EB, einkum í Frakklandi,
hefur framkvæmdastjórn EB til athugunar að selja kvóta á álinnflutn-
ing. Pavel Smírnov í sendinefnd Rússa hjá EB, varar bandalagið við.
„Ef innflutningurinn verður tak-
markaður munu margir telja
ástæðulaust að standa við aðra
samninga, sem við höfum gert. Inn-
an hersins munu menn segja sem
svo: „Ef við getum ekki selt álið til
friðsamlegra nota, skulum við bara
snúa okkur annað.“ Við getum rétt
ímyndað okkur hvað þá gæti gerst,“
sagði Smírnov. Hann fullyrðir auk
þess að mikið af álinu komi frá öðr-
um fyrrverandi Sovétlýðveldum, þ.e.
Úkraínu, Hvíta-Rússlandi og
Eystrasaltslöndunum.
FÉLAC ÍSLENSKRA STÓRKAUPMANNA
' mrm
1928*1993
3.
4.
Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráóherra.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Félags íslenskra stórkaupmanna
verður haldinn miðvikudaginn 24. febrúar
1993 á Hótel Holiday Inn kl. 14:00.
Dagskrá skv. félagslögum:
1. Fundarsetning.
2. Kjör fundarstjóra og úrskurður
um lögmæti fundar.
Ræða formanns,
Birgis R. Jónssonar.
Ræða: Jón Baldvin Hanni-
balsson, utanríkisráðherra.
Kaffihlé.
Skýrsla stjórnar.
Ársreikningur 1992.
Fjárhagsáætlun FÍS 1993.
Yfírlit um starfsemi sjóða.
ÍSLENSK VERSLUN
- skýrsla varaformanns.
Kjör formanns.
Kjör þriggja stjórnarmanna.
Kjör tveggja endurskoðenda og tveggja til vara.
11. ÍSLENSK VERSLUN - Kjör íjögurra stjórnar-
manna og fjögurra varamanna.
Lagabreytingar.
Kosið í fastanefndir.
Ályktanir.
Önnur mál.
Fundarslit.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á skrifstofu
félagsins í síma 678910.
6.
7.
8.
9.
10.
12.
13.
14.
15.
16.
Birgir R. Jónsson,
formaður FÍS.
AÐILDARFELAGAR
Munið
28. febrúar!
HAGSTÆÐUSTU
SUMARLEYFISFARGJÖLD
. SEM í BOÐI ERU.
Þann 28. febrúar munu hagstæðustu sumarleyfisfargjöld sem í boði eru hækka.
Samt sem áður halda þau áfram að vera þau hagstæðustu til 3. maí en þá lýkur
sölunni í þau 5000 sæti sem upphaflega stóðu aðildarfélögum okkartil boða.
Miðar gilda frá einni viku, upp í einn mánuð á tímabilinu maí til september.
Allar nánari upplýsingar fást hjá viðkomandi stéttarfélögum og á söluskrifstofum
Samvinnuferða - Landsýnar.
Félagar í eftirtöldum aðildarfélögum njóta þessara einstöku kjara:
Alþýðusambandi íslands, BHMR, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja,
Farmanna- og fiskimannasambandi íslands, Hjúkrunarfélagi íslands,
Kennarasambandi íslands, Sambandi íslenskra bankamanna og
Verslunarmannafélagi Reykjavíkur.
Aðildarfélagar, verslið við ferðaskrifstofu ykkar!
Dæmi um staðgreiðsluverð fyrir fullorðinn:
KAUPMANNAHOFN
17.900 kr. til 28. febrúar.
21.800 kr. frá 1. mars til 3. maí.
Einnig frábært verð til eftirtalinna borga:
• AMSTERDAM
• BALTIMORE
• GAUTABORG
• GLASGOW
• KAUPMANNAHÖFN
• LONDON
• LUXEMBORG
• OSLO
• PARIS
• STOKKHÓLMUR
• VÍNARBORG
Opið ú laugordog!
Skrifstofan Austurstræti 12, verður opin á laugardaginn frá kl. 10 til 15.
UÍ£ySu£. & vc&i ■jflýÚA'joipl
Smniniiulei’úirLmulsi/ii
ReykjavíK: Austurstræt) 12 • S. 91 - 691010 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Slmbrél 91 - 2 77 96 / 69
Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Slmbréf 91 - 62 24 60 Akureyrl: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27 200 •
Keflavik: Hafnargötu 35 • S. 92 -13 400 • Slmbréf 92 - 1 34 90
10 95 • Telex 2241
Símbréf 96 -1 10 35