Morgunblaðið - 24.02.1993, Page 26

Morgunblaðið - 24.02.1993, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1993 Rætt um að flýta framkvæmdum við Borgarbraut og Dalsbraut SSSÓl held- Akstur úr hverf- um í miðbæ stytt- ist um nær 30% FRAM hafa komið hugmyndir um að flýta framkvæmdum við gerð Borgarbrautar frá Hlíðarbraut og niður eftir ánni að gatnamótum Gierárgötu og Tryggvabrautar. Gerð þessa vegar mun gerbreyta aðstöðu fólks sem býr í nyrstu hlutum bæjar- ins og tengja þá betur miðbænum. Sigurður J. Sigurðsson formaður bæjarráðs segir að vissulega sé um fjárfreka framkvæmd að ræða og hún væri ekki inni í fjárhagsáætlun fyrir þetta ár, en umræðan hefði komið upp og þætti mönnum brýnt að tengja nyrstu hverfi bæjarins betur við miðbæinn. „Það hefur verið horft til þess að ljúka upp- byggingu í þessum bæjarhluta og gera hann meira aðlaðandi fyrir íbúana með betri tengingu við aðra bæjarhluta í stað þess að rjúka til inn á ný byggingarsvæði," sagði Sigurður. Gunnar Jóhannesson verkfræð- ingur hjá Akureyrarbæ sagði að gerðar hafi verið frumathuganir á vegastæði Borgarbrautar og þá hefði verið gerð áætlun varðandi umferð, en samkvæmt henni væri reiknað með að umferð um götuna yrði á bilinu 5 til 6 þúsund bílar á sólarhring í framtíðinni. Léttari umferð Sagði Gunnar að með tilkomu Borgarbrautar myndi mjög létta á Atkvæði greidd um verkfall Á FUNDI stjórnar, fulltrúaráðs og samninganefndar Starfs- mannafélags Akureyrar.STAK, sem haldinn var á mánudag var samþykkt að efna til atkvæða- greiðslu dagana 3. til 4. mars næstkomandi um boðun verk- falls, sem hæfist þann 22. mars. Þá hvetur stjóm Starfsmannafé- lags Akureyrarbæjar félagsmenn sína til að mæta á fund með Ög- mundi Jónassyni formanni Banda- lags starfsmanna ríkis og bæja sem haldinn verður í Alþýðuhús- inu, Skipagötu 14 í dag, miðviku- dag, en hann hefst kl. 17.30. Auglýsing Landbúnaðarráðherra boðar til opins kynning- ar- og fræðslufundar um stöðu og framtíð ís- lenskrar mjólkurframleiðslu á Hótel KEA mið- vikudaginn 24. febrúar 1993 ki. 13.00-17.00. Markmið fundarins er að kynna fjölmiðlum, starfsfólki landbúnaðarins og öllu áhugafólki stöðu og framtíðarsýn íslenskra mjólkurframleið- enda, afurðastöðva og markaðsmálum búgrein- arinnar. Fundarstjóri: Sigurgeir Þorgeirsson, aðstoðar- maður landbúnaðarráðherra. 13.00 Avarp landbúnoðarróðherra Halldórs Blöndal. 13.15 Ahrif alþjóðasamninga ó íslenska mjólkurframleiðslu. Guðmundur Sigþórsson, skrifstofustjóri. 13.45 Umræður og fyrirspurnir. 14.00 Áhrif innflutnings mjólkurafurða ó islenska framleiðslu. Oskar H. Gunnarsson, formaður Samtaka afurðastöðvo i mjólkuriðnaði. 14.15 Fjölbreytni og gæði íslenskra mjólkurafurða samanborin við erlenda fromleiðslu. Jóhannes Gunnersson, formoður Neytendasamtakanna. 14.30 Umræður og fyrirspurnir. 14.50 Breytingar ð verðlagningu mjólkurafurða. Þórarinn Sveinsson, mjólkurbússtjóri Mjólkursamlags KEA. 15.05 Búvörusamningarnir og viðskipti með mjólkurkvóta. Guðmundur Lórusson, formaður Landssambands kúabænda. 15.20 Umræður og fyrirspurnir. 15.40 Kaffihlé. 16.00 Staða mjólkuriðnaðarins - horft tif framtíðar. Vilhelm Andersen, fjórmólastjóri Mjólkursamsölunnar. 16.15 Semeinlng og samstarf mjólkurbúa fró sjónarhóli minni ofurðastöðvanna. Pðll Svavarsson, mjólkurbússtjóri Mjólkursamlags S.A.H., Blönduósi. 16.30 Umræður og fyrirspurnir. 16.50 Sameiginlegt markoðsstarf íslensks landbúnaðar. Níels Arni Lund, formaður Markaðsnefndar landbúnaðorins. 17.00 Fundarslit. Halldór Blöndal, landbúnaðarróðherro. Allir velkomnir. Landbúnaðarráðuneytið. ur fimm tónleika norðan heiða Á kortínu sést vegurinn, Borgarbraut og Dalsbraut meðfram Glerá, en þessi tenging mun stytta vegalengd íbúa nyrstu hverfanna í miðbæ- inn um 20-30% miðað við þær leiðir sem nú eru i boði. umferð um annars vegar Hlíðar- braut/Þingvallastræti og hins vegar um Hlíðarhraut og Hörgárbraut. Þá nefndi hann að akstursvega- lengd íbúa á svæðinu, Giljahverfi og hluti Síðuhverfis, myndi með til- komu þessarar nýju tengingar styttast um 20-30% auk þess sem vegurinn yrði á margan hátt greið- færari en þær leiðir sem nú er um að velja. Árni Ólafsson skipulagsstjóri sagði að þessi framkvæmd myndi breyta miklu fyrir íbúa í Gilja- og Síðuhverfí og jafnvel einnig í Hlíð- arhverfi og með tilkomu hennar væri tenging íbúanna í umræddum hverfum jafnvel enn betri en búast mætti við að yrði á þeim nýju bygg- ingarsvæðum sem horft væri til á suðurbrekkunni. „Borgarbrautin mun gerbreyta aðstöðu fólks í þess- um hverfum hvað varðar sókn í miðbæinn og eins mun í kjölfarið létta mjög á umferð um Gilið,“ sagði Árni. HLJÓMSVEITIN SSSóI, sem áð- ur hét Síðan skein sól er nú á tónleikaferðalagi um Norður- land, en alls verða haldnir fimm tónleikar á svæðinu. Fyrstu tónleikarnir voru haldnir á Akureyri í gærkvöld, þá verða haldnir tónleikar á Húsavík í kvöld og á skemmtistaðnum 1929 á Akur- eyri annað kvöld, fímmtudagskvöld- ið 25. febrúar. Á föstudag, 26. febr- úar, verður hljómsveitin í Víkurröst á Dalvík og á laugardag í Miðgarði í Skagafirði. Á öllum þessum tónleikum mun SSSól spila gömul og ný sólarlög, m.a. lög sem verða á plötu sem væntanleg er með hljómsveitinni á Bretlandsmarkaði, auk laga af plötu sem fer á markað hér á landi með rísandi sól. Á tónleikunum í 1929 verður frítt inn fyrir tónleikagesti og þar verður sérstaklega mikið lagt í ljósabúnað og aðra tæknilega þætti, en með þessum tónleikum verður gefínn forsmekkurinn af því sem koma skal í sumar, þegar hljómsveitin ferðast um landið með meiri tækni- búnað í farteskinu en áður hefur þekkst hér á landi. (Fréttatilkynning) Lyftukort lækka í verði vegna lítillar aðsóknar Forstöðumaður Hiíðarfjalls segir að fólk sé blankt STJÓRNENDUR í Hlíðarfjalli hafa gripið til þess ráðs að Iækka verð á hálfsdags lyftukortum og gildir þetta tílboð í einn mánuð. Þá er lyftum nú lokað fyrr en áður á kvöldin. Þetta er gert til að reyna að auka aðsókn, en hún hefur verið fremur dræm nú í febrúarmánuði. ívar Sigmundsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli sagði að ákveðið hefði verið að bjóða hálfsdags lyftukort á 500 krónur í stað 700 króna og yrði þetta verð í gildi fram í marsmánuð. Rysjótt tíð Taldi ívar að einkum lægju þijár ástæður að baki lélegri aðsókn á skíðasvæðið upp á síðkastið. Veðr- áttan hefði verið afar rysjótt upp á síðkastið, þá hefðu síðustu vetur verið snjóléttir og margir skíðamenn ekki búnir að rífa sig í gang aftur og eins væri almennur samdráttur í þjóðfélaginu, sem hefði sitt að segja. „Ég held að almenn blankheit manna hafí mest að segja, það sýndi sig að minnsta kosti að aðsóknin var mjög góð þegar við buðum fólki að fara endurgjaldslaust í lyfturnar. Þá kom hér fjöldinn allur af fólki á skíði,“ sagði ívar. Lokað þrisvar sama daginn Veðrið í þessum febrúarmánuði hefur ekki verið skíðafólki hagstætt og sagði ívar að fyrir hefði komi að loka hefði þurft lyftum allt upp í þrisvar sinnum sama daginn vegna umhleypinganna. Janúarmánuður var heppilegri veðurfarslega fyrir skíðafólk, en samt var aðsókn ekki eins góð og menn bjuggust við, að sögn ívars. „Ég held að það sanni þá kenningu að fólk sé blankt og leyfi sér ekki af þeim sökum að stunda skíðaíþróttina. Við ætlum að reyna að bregðast við þessu með því að lækka verðið,“ sagði ívar. Þá er skíðasvæðið ekki lengur opið fram undir 21 á kvöldin, eins og var og er nú lokað öll kvöld kl. 18.45._Nægur snjór er í fjallinu og sagði ívar að ef til kæmi 20 til 30 sentímetra lag af nýjum snjó yrði færið eins og best yrði á kosið. Sóttn lamb í Hrútey Björk, Mývatnssveit. UM SÍÐUSTU helgi fannst úti- gengið lamb á eyju í Mývatni. Árni Halldórsson bóndi í Garði hafði síðastliðið sumar nokkrar kind- ur í Hrútey í Mývatni. Þegar hann flutti fé sitt í Iand síðastliðið haust vantaði hann tvö lömb. Annað lamb- ið fannst dautt, en ekkert varð vart við hitt lambið þrátt fyrir nokkra . leit. Taldi Árni líklegra að það myndi líka hafa drepist og varð því ekkert af frekari leit. Á sunnudag sást lambið frá Geit- eyjarströnd í Hrútey. Fljótt var brugðið við og lambið sótt af eiganda þess, Áma bónda í Garði. Það er talið líta mjög vel út og jafnvel séu á því hornahlaup, sem bendir til að næg jörð hafí verið í eyjunni í vetur, þó veðrið hafi oft verið rysjótt og víða mikill snjór. Morgunblaðið/Rúnar Þór Verslað með notuð barnaföt SÓLVEIG Bragadóttir opnaði nýlega verslunina Krílið við Kaupvangs- stræti, í portinu neðan við Sporthúsið. í versluninni eru seld í umboðs- sölu notuð barnaföt á börn á aldrinum 0-6 ára og einnig sagðist Sólveig taka við varningi ýmiss konar, s.s. barnavögnum og stólum ef óskað væri. „Það eru margir forvitnir og hafa komið og skoðað hjá okkur þann- ig að ég hef trú á að þetta geti vel gengið,“ sagði Sólveig. Verslunin er opin alla daga frá kl. 13 til 18. /

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.