Morgunblaðið - 24.02.1993, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1993
33
Örn var elstur af fjórum börnum
hjónanna Magnúsínu Guðmunds-
dóttur og Agnars Sigurðssonar f.v.
flugumferðarstjóra. Systkini Adda
eru Anna, gift undirrituðum, Helgi,
giftur Hrefnu Guðmundsdóttur og
Erna gift Bjarna Ingólfssyni.
Addi nam rennismíði í Vélsmiðj-
unni Héðni sem ungur maður og tók
í framhaldi vélstjóraréttindi. Eftir
að námi lauk fór hann til sjós og
starfaði á olíuskipinu Þyrli. Árið
1963 fór Addi sem vélgæslumaður
að sækja Guðrúnu GK 37, sem var
þá nýtt og glæsilegt skip, í flota
Hafnarfjarðar og var þar um borð
sem vélstjóri í nokkur ár. Hann rak
vélsmiðju um skeið með Þorleifi Óla
Jónssyni, en gerðist svo langferða-
bílstjóri hjá Vestfjarðaleið og þar
fékk náttúrubarnið sem í honum bjó
að njóta sín í ótal ferðum í Þórs-
mörk og um hálendið, sem heiilaði
hann allar götur síðan. Árið 1981
keypti Addi sinn fyrsta vörubíl og
hóf störf á Vörubílastöð Hafnar-
fjarðar. Þar voru Adda falin trúnað-
arstörf og var hann um tíma formað-
ur félags þeirra. Árið 1991 varð
Addi fyrir slysi við störf sín sem
gerði hann óvinnufæran í eitt ár.
Var hann nýkominn til starfa aftur
þegar hann kenndi sér þess meins
sem nú hefur lagt hann að velli.
Örn og Agla gengu í hjónaband
og hófu sinn búskap í Hafnarfirði
árið 1962. Þeirra fyrsta heimili var
í Gunnarssundi 6. Þau byggðu sér
raðhús á Miðvangi 99 og fluttust í
það árið 1972. Þar hefur verið heim-
ili þeirra síðan.
Nú þegar félagi minn og mágur
er allur sest að mér söknuður og
tómleiki, því að betri félaga var vart
hægt að eignast. Hann var gæddur
svo einstökum eiginleikum, kunni
manna best að gleðjast og sá ávallt
broslegu hliðarnar á tilverunni. Hvar
sem hann kom eða vann kyntnist
hann alltaf sérstökum persónuleik-
um. Hann var sögumaður í sér-
flokki, þó ekki ýkinn, vildi hafa það
sem sannara reyndist. Heill og trúr
í öllum verkum sínum, var ávallt
boðinn og búinn að rétta hjálpar-
hönd, enda svo laghentur að það var
sama hvað að honum var rétt. Hlut-
ir sem oft var búið að dæma ónýta
af fagmönnum, t.d. klukkur og raf-
magnstæki, hvers konar viðgerðir
og smíðar, allt lék í höndum hans,
hann var sannkallaður völundur og
svo úrræðagóður að engan hef ég
þekkt slíkan. Að nenna ekki, eða
þetta er ekki hægt var ekki til í
kokkabókum Adda.
Ég hef ekki hitt marga af þessari
kynslóð sem kunnu að nýta eins og
hann, því að fátt var það fáfengilegt
að ekki væri geymt, að hann sæi
ekki notagildi í því að eiga sem vara-
stykki hvort heldur fyrir sjálfan sig
eða aðra þá þurfti hann aðeins heim
í skúr og hann átti það sem vantaði.
Ég get ekki annað en minnst
vísnavinarins Adda því að hann
kunni firnin öll af hnyttnum vísum,
Káinn og Örn Arnarson voru hans
menn og vitnaði hann oft í þeirra
kveðskap.
Elsku Agla, þú sem staðið hefur
eins og klettur við hlið Adda í veik-
indastríði hans, drengimir ykkar,
tengdadæturnar og barnabörnin
Qögur, mikill er missir ykkar, en öll
eigum við svo góðar og lærdómsrík-
ar minningar sem eru ómetanlegar
um fágætan mann.
Erfidrykkjur
Ola-sileg kiffi-
likiðborð líillegir
salir og mjög
gt>ð þjónusta.
lípplýsingar
ísuna22322
FLUGLEIDIR
iítil urutim
Alfreð Frið-
geirss on -
Minning
Fæddur 14. júní 1908
Dáinn 27. janúar 1993
Elsku afi minn. Nú ertu kominn
til ömmu og kemur aldrei hingað
aftur.
Mig langar til að þakka þér
fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig.
Þú hefðir ekki getað gert meira.
Ég sakna þín.
Guðrún Magnea.
t
Móðir okkar,
KRISTBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Tjörnum,
lést á Droplaugarstöðum 22. febrúar.
Fyrir mína hönd, systkina minna og annarra vandamanna,
Þuríður Einarsdóttir.
t
Frænka okkar,
ELÍN ODDLEIFSDÓTTIR
frá Langholtskoti,
andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, 13. febrúar sl.
Jarðsett verður frá nýju kapellunni í Fossvogi föstudaginn
26. febrúar kl. 13.30.
Systkinabörn.
t
Astkær eiginmaður minn og faðir okkar,
JÓN ÁRSÆLL
GUÐJÓNSSON
útgerðarmaður,
Austurbraut 4,
Höfn,
Hornafirði,
andaðist í Landakotsspítalanum þriðju-
daginn 23. febrúar.
Jónína Brunnan og synir.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HÁKON SVANUR MAGNÚSSON,
Stífluseli 6,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 25. febrúar
kl. 10.30.
Svanhildur Guðbjörg Sigurðardóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Faðir minn, afi og langafi,
JÚLÍUS HELGI LÁRUSSON
frá Kirkjubæjarklaustri,
Hrauntungu 20,
Kópavogi,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þann 18. febrúar
síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
25. febrúar kl. 13.30.
Unnur Júlíusdóttir,
Eiríkur Tómasson
og barnabarnabörn.
+
Maðurinn minn, faðir okkar, sonur og bróðir,
JÓN AGNAR EGGERTSSON
formaður
Verkalýðsfélags Borgarness,
verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju fimmtudaginn 25. febrúar
kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á krabbameinsfélögin.
Sætaferð verður frá Alþýðusambandi islands, Grensásvegi.
Ragnheiður Jóhannsdóttir,
Eggert Sólberg Jónsson, Magnús Elvar Jónsson,
Aðalheiður Lilja Jónsdóttir
Kristín Eggertsdóttir, Guðmundur Eggertsson,
Jóna Eggertsdóttir, Guðrún Eggertsdóttir.
+
Elskuleg eiginkona mfn, móðir, tengamóðir, amma og langamma,
ÞORBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR,
Bollakoti, Fljótshlíö,
síðast til heimilis á
dvalarheimilinu Kirkjuhvoli,
Hvolsvelli,
verður jarðsungin frá Hlíðarendakirkju, Fljótshlíð, laugardaginn
27. febrúar kl. 14.00.
Ragnar Jónsson,
Vilmunda Guðbjartsdóttir, Árni Ólafsson,
Ólafur Þorri Gunnarsson, Sigrún Þórarinsdóttir,
Ragnar Björn Egilsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir færi ég þeim, er auösýndu mér samúð og vinar-
hug við andlát og útför eiginmanns míns,
STEFÁNS SIGURÐSSONAR
héraðsdómslögmanns,
Vesturgötu 23,
Akranesi.
Erla Gísladóttir.
+
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar og tengdamóður,
LAUFEYJAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Dalbraut 20.
Þorsteinn Hörður Björnsson, Arnheiður Einarsdóttir,
Þórir Einarsson, Renate Einarsson,
Sigriður Erna Einarsdóttir.
+
Þökkum af alhug samúð og vinarhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SNJÓLAUGAR ÓLAFSDÓTTUR,
Stórholti 7,
Akureyri.
Jón S. Árnason, Jóna Snorradóttir,
Ólafur Birgir Arnason, Helga Björg Yngvadóttir,
Anna G. Arnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elsku-
legrar móður okkar, tengdamóður og ömmu,
VILBORGAR ÁRNADÓTTUR
frá Bergsstöðum.
Alúðarþakkir flytjum við starfsfólki Sjúkrahússins á Hvammstanga.
Páll V. Danielsson, Guðrún Jónsdóttir,
Ingibjörg Daníelsdóttir, Pálmi Jónsson,
Ólöf H. Pétursdóttir,
Ðaníel B. Pétursson, Sigríður Eðvaldsdóttir,
Vilborg Pétursdóttir, Guðni Steingrímsson,
Pétur B. Ólason,
Svava Guðjónsdóttir
og barnabörn.
+
Þökkum innilega öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
SIGRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Hlíð 1,
ísafirði.
Samúel Jóhann Elíasson,
Guðjón Andersen, Sigrún Þórey Ágústsdóttir,
Ragnheiður Samúelsdóttir, Sigmundur Freyr Garðarsson,
Sigurvin Samúelsson, Gunnhildur Gunnarsdóttir,
Magnús Samúelsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra, er auðsýndu okkur samúð og vinarhug
vegna fráfalls
STEFÁNS ÁSGEIRSSONAR
frá Gautsstöðum,
Tjarnarlundi 16c,
Akureyri.
ída Þórarinsdóttir,
Erla Stefánsdóttir,
Sigrún Stefánsdóttir, Sigurður Kristinsson,
Svandís Stefánsdóttir, Einar Malmquist,
Elsa Stefánsdóttir, Jóhann Friðgeirsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.