Morgunblaðið - 24.02.1993, Síða 35

Morgunblaðið - 24.02.1993, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRUAR 1993 35 FYRIRSÆTU STÖRF Þroskaðir karl- menn á óskalista HUÐFLUR Ekki komið nóg Þroskaðir karlmenn eru vinsælar fyrirsætur um þessar mundir, en þeir eru jafnframt ekki á hveiju strái, að sögn Lindu Pétursdóttur. sem opnaði Módelskrifstofuna Wild fyrir nokkru ásamt kærasta sínum Les Robertson. í mars hyggjast þau standa fyrir fyrirsætunámskeiði ásamt nýstár- legu ljósmyndanámskeiði og fá til liðs við sig bæði innlenda og er- lenda aðila. Meðal þeirra eru Heiðar Jónsson snyrtir, Max Bradley tísku- ljósmyndari, Sigríður Stefánsdóttir starfandi fyrirsæta í Tókíó og Par- ís, Tim Frisby stílisti, Sissa ljós- myndari, förðunarfólk frá Yves St. Laur'ent og Kelly MeDonald, sem kemur frá Bandaríkjunum og upp- lýsir fólk um líkamann og fæði. „Við reiknum með að einhveijir þeirra sem taka þátt í námskeiðinu geti komist á skrá hjá okkur og við komið þeim á framfæri innanlands Bretinn Mark Baudains lét fyrst húðflúra sig þegar hann var 18 ára. Nú er hann 26 ára og hefur ekki enn fengið sig fullsaddan. sem erlendis," sagði Linda og bætti við að aldur fólks skipti ekki máli. „Hjá okkur eru konur upp í fertugt á skrá og unglingar niður í 13 ára.“ Aðspurð um hvaða kröfur Linda gerði til fyrirsætanna sagðist hún ekki vilja gefa út neina staðlaða ímynd. „Mér finnst skipta meira máli hvemig fyrirsæturnar koma út á m}mdun og hvernig þær sam- svara sér.“ Linda segist frékar vilja hafa fátt fólk og gott á skrá til þess að geta frekar útvegað þeim vinnu, en mikið hefur verið að gera hjá fyrir- sætunum undanfamar vikur. Þá segist hún reikna með að tvær til þijár fyrirsætur verði sendar utan í sumar til starfa. „Flestir krakk- anna em í skóla á veturna og geta ekki unnið erlendis nema í sumarfrí- inu, en ég held þeir hafi góða mögu- leika.“ Linda Pétursdóttir og sambýlismaður hennar, Les Robertson, opn- uðu módelskrifstofuna Wild fyrir nokkru og ætla nú að standa fyr- ir tveimur námskeiðum. Engin rós er án þyrna og engin list án sársauka, eða það getur Mark Baudain 26 ára Breti að minnsta kosti staðfest. í apríl síðast- liðnum hélt hann til Portsmouth, þar sem húðflúrarinn Darren Stares vann að „listaverki“ í andliti hans í heila viku. Allt upp undir sjö klukkustund- ir á dag þjáðist Mark, því það er ekki sársaukalaust að láta húðflúra sig. Hann segist hafa þurft að raka af sér augnabrúnirnar, en sársaukinn hafi verið einna mestur þegar nefið var húðflúrað. Þrátt fyrir að Mark hafi eytt ríf- lega 300.000 krónum í húðflúr frá því hann var 18 ára hefur hann ekki fengið nóg. Hann segist eiga eftir að láta húðflúra það sem eftir er af höfðinu, fótunum, tánum og víðar. Unnusta Marks og móðir 2ja ‘ára sonar hans er hreint ekki hrifin af uppátækinu, en fær litlu ráðið. Hún segir að þau vekji óneitanlega at- hygli þegar þau gangi um götumar. ROL -hárrúllur eru í tísku ! Hártískan í dag gerir ráö fyrir notkun hárrútla. Clairol tók viö af gömlu Carmen- verksmiöjunni og endurhannaöi rúllurnar þannig aö þær virka mun betur. Clairol Classic Setter CS-20 er hár- rúllusett meö 20 rúllum í hitaraboxi. Verð aðeins 3.440,- kr. eða Clairol Curl Control R-20 er hárrúllusett með 20 rúllum með betra gripi í hitaraboxi. Verð aðeins 4.310,- kr. eða I.C^TC,- stgr. Creibslukjör viö allra hæfi: 1 CDCSEiæ Umbobsmenn um allt land! SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800 Aðalfundur NEMA Aðalfundur NEMA, Nemendasambands Menntaskólans á Akureyri, verður haldinn miðvikudaginn 3. mars kl. 17.00 í Búmannsklukkunni.Torfunni. Allir MA stúdentar eru hvattir til að mæta. Stjórnin. EINELTI Fimmtudaginn 25. febrúar verður fyrirlestur á vegum Foreldrasamtakanna. Guðjón Ólafsson, sérkennari, fjallar um einelti með- al barna og unglinga. Fyrirlesturinn verður í Hinu húsinu (áður Þórskaffi), Brautarholti 20, 3. hæð, og hefst kl. 20.30. Allir velkomnir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.