Morgunblaðið - 24.02.1993, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 24.02.1993, Qupperneq 44
0r0ijiwMijM§> Gæfan fylgi þér í umferðinni SJOVAODMMENNAR MOKGUNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 KEYKJAVÍK SlMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1556 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRUAR 1993 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Davíð Sch. Thorsteinsson Vatnssala vestanhafs brugðist DAVÍÐ Scheving Thorsteins- son, stjórnarformaður íslensks bergvatns hf. og varaformaður stjórnar Great Icelandic Water Corporation, segir að sala á ís- lensku vatni í Bandaríkjunum hafi brugðist og nú sé verið að vinna að endurskipulagningu dreifingarfyrirtækisins. Ef það gangi eftir muni nýir aðilar koma inn í fyrirtækið. Að sögn Davíðs lítur út fyrir að Vestur-íslendingurinn Gunnar H. rw—Helgason, einn eigenda Great Iee- iandic Waters, sem hefur verið framkvæmdastjóri þess, muni láta af störfum í kjölfar endurskipu- lagningarinnar. Kunnáttuna vantaði Great Icelandic Water Corp. er samstarfsaðili íslensks bergvatns hf. en fyrirtækin reka sameigin- lega innflutningsfyrirtækið Ice- landia Water Corporation sem stofnað var á síðasta ári. 'Great *'—ícelandic Water hefur hins vegar annast dreifinguna og hefur hún mistekist að sögn Davíðs, einkum vegna kunnáttuleysis. Islenskt bergvatn flutti út alls fjórar milljónir lítra á síðasta ári. Þar af var tæplega ein milljón lítra seld til Bandaríkjanna. Davíð sagði að salan hefði geng- ið vel á öðrum mörkuðum, einkum í Bretlandi, en mjög lítið hefði selst í Bandaríkjunum. Sala hlutabréfa í Great Icelandic Waters hefði gengið vel á síðasta ári en hins vegar hefði kunnáttuna til að selja vöruna vantað. „Til þess að selja þurfa menn að fara út og hitta viðskiptavininn að minnsta kosti Túnu sinni í viku. Ef þeir ekki gera það er eins gott að hætta þessu,“ sagði Davíð. Hann sagði miklar vonir bundn- ar við endurskipulagninguna og að áformað væri að auka útflutn- ing í átta milljónir lítra að henni lokinni. Vilja fækka starfsmönn- um um 900 ATVINNUREKENDUR í at- vinnukönnun sem Þjóðhags- stofnun gerði í síðasta mánuði sögðust vilja fækka starfsmönn- um um 900 á landinu öllu. Hef- ur dregið nokkuð úr fækkunar- þörf fyrirtækja frá síðustu könnun sem gerð var í septem- ber á síðasta ári en þá sögðust atvinnurekendur vilja fækka um 1.200 manns. í frétt frá Þjóðhagsstofnun kemur fram að atvinnurekendur vildu fækka starfsmönnum í öllum atvinnugreinum nema í rekstri sjúkrahúsa. Mest í iðnaði eða um 2,7%, í byggingastarfsemi um tæp 2% og í verslun og veitingastarf- semi um 1,7%. Bættar atvinnuhorfur skólafólks Atvinnurekendur voru einnig beðnir að meta þörf fyrir afleys- ingafólk næsta sumar og töldu þeir hana meiri en í fyrra. Um 7.900 störf verða laus á höfuð- borgarsvæðinu, en 4.900 á lands- byggðinni. Betur ætti því að horfa um vinnu skólafólks á þessu ári. Sjá blaðsíðu 18: Vilja fækka ... Ábataskíptakerfi á leikskólum borgarinnar Rýmum fjölgar sem nemur 4 leikskólum SAMNINGUR hefur verið gerður milli Reykjavíkurborgar og fóstra á leikskólum borgarinnar um framhald á ábataskiptakerfi á leikskólum. Samningurinn hefur í för með sér fjölgun um 200 rými á leikskólum borgarinnar og 48 rými á skóladagheimilum. Hefur rýmum á leikskólum verið fjölgað um samtals 400 með þessu kerfi eða sem nemur fjórum leikskólum. Að sögn Markúsar Amar Ant- onssonar borgarstjóra, er hér um viðbót að ræða við þau 150 rými sem samið var um í júní í fyrra. „Með ábótaskiptakerfinu hefur rýmum verið fjölgað um 400 í heild,“ sagði borgarstjóri. „Með þessu kerfi sparast því stofnkostn- aður við fjögur heimili með þessu kerfi en hvert heimili tekur um 100 börn. Þetta hefur skipt okkur miklu máli og ánægjulegt að tek- ist hefur samkomulag við Fóstru- félag íslands sem hefur haft for- , Morgunblaðið/RAX Frost áfram næstu daga í GÆR snöggfrysti í Reykjavík eftir rigningu og slydduél um morgun- inn og þurftu margir bíleigendur nánast að mylja klakabrynjuna utan af bílum sínum. Veðurstofan spáir áframhaldandi frosti fram á laugardag um allt land og að það nái 9 til 11 stigum á morgun. É1 verða víða um land og útlit fyrir að enn þurfi að skafa af bílrúðum. Atkvæðagreiðsla um verkfall hafin hjá Kennarasambandi Islands Fimm af stærstu félögum BSEB með atkvæðagreiðslu FIMM af stærstu aðildarfélögum Banda- lags starfsmanna ríkis og bæja hafa sam- þykkt að láta fara fram atkvæðagreiðslu um verkfall sem hefjast á 22. mars næst- komandi. Þá hófst atkvæðagreiðsla um verkfall hjá Kennarasambandi íslands í gær og verður fram haldið á morgun. Á -fundum Samninganefndar ríkisins með Kennarasambandinu annars vegar og BSRB hins vegar í gær var ákveðið að haft yrði samband í dag hvað varðaði skipulag á framhaldi á viðræðum. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Starfsmannafélag Akureyrar og Fóstrufélag íslands samþykktu í gær að láta fara fram atkvæðagreiðslu um verkfall, en áður höfðu Morgunblaðið/Kristinn Atkvæði í umslag KENNARAR í KÍ hófu að greiða atkvæði um verkfall í gær. Félag íslenskra símamanna á mánudag og Starfsmannafélag ríkisstofnana fyrir helgi ákveðið atkvæðagreiðslu. Til að verkfallsboðun sé samþykkt þarf helmingur atkvæðisbærra félagsmanna að taka þátt í atkvæðagreiðsl- unni og meirihluti þeirra að samþykkja hana. Ef hún er samþykkt ber að tilkynna verkfalls- boðun með 15 daga fyrirvara. Svanhildur Kaaber, formaður Kennarasam- bands íslands, segir að á fundinum í gær hafi verið tekinn upp þráðurinn þar sem frá hafi verið horfið, en ekkert nýtt hafi komið fram. Indriði H. Þorláksson, varaformaður Samninganefndar ríkisins, sagði að á fund- inum hefðu orðið mjög gagnlegar viðræður, þó það væri ljóst að mikil vinna væri eftir. Sjá bls. 23: Atkvæðagreiðsla ákveðin ... göngu um samnmgana í samvinnu við borgina." Samkomulagið nær til allra starfsmanna heimilanna, sagði Markús Örn Antonsson borgarstjóri. Ihuga upp- boðsmark- að með heil- frystanfísk STJÓRNENDUR Tollvöru- geymslunnar eru nú að kanna möguleika á því að starfrækja geymslu fyrir heilfrystan fisk á frísvæði við Reykjavíkurhöfn. Hugmyndin byggist á því að kaupa heilfrystan fisk af erlend- um fiskiskipum, geyma hann á frísvæði og bjóða síðan til sölu á uppboðsmarkaði. Gylfí Sigfússon, fjármála- og markaðsstjóri hjá Tollvörugeymsl- unni, segir að með því að kaupa mikið magn í einu, ætti að vera hægt að fá fiskinn á hagstæðara verði, en þegar einstaka fiskvinnslu- fyrirtæki eru að kaupa lítið magn í einu. Sé nægilegt magn til, verði hægt að bjóða upp eitthvað af fryst- um fiski á hveijum degi meðan birgð- ir endist. Gylfi segir að hráefnisskortur hafi háð íslenzku frystihúsunum nokkuð lengi og hafi það kostað fiskvinnsl- una mikla fjármuni. Þrátt fyrir að engin aðflutningsgjöld séu á físki, þurfi að greiða virðisaukaskatt strax við innflutning. Því sé mikilvægt að geyma fískinn á frísvæði. Möguleiki opnist einnig fyrir smærri vinnsluað- ila að kaupa lítið magn af físki í einu. Þá sé einnig mögulegt að selja físk til annarra landa, svo sem Færeyja, Grænlands og Kanada og þá skipti einnig miklu að fískurinn sé geymdur á frísvæði. _ Sjá nánar Úr verinu bls. Bl: Kanna stofnun alþjóðlegs... Undirmönn- um sagt upp á Herjólfi ÖLLUM undirmönnum sem starfað hafa um borð í feij- unni Heijólfi var sagt upp í gær með samningsbundnum uppsagnarfresti sem er allt frá einum mánuði. Þetta var ákveðið á fundi sljórnar Her- jólfs í gær. Um er að ræða fimm háseta og sjö þernur og eiga þau öll félagsaðild að sjómannafélag- inu Jötni í Vestmannaeyjum, en það hefur hafnað aðild að heildarkjarasamningi þeirra starfshópa sem starfa um borð. Verkfall stýrimanna um borð hefur staðið frá 3. febrúar eða í þijár vikur. i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.