Morgunblaðið - 07.03.1993, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 07.03.1993, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993 Vemdarenglar stað að ræða þar sem ríkir góður og skemmtilegur samstarfsandi með starfsfólki. Líklega hafa hjúkrunarfræðingar hvergi eins mikla möguleika á að láta að sér kveða í starfi og á geðdeildum og sennilega er hvergi eins mikið jafn- ræði með læknum og hjúkrunar- fræðingum og þar. Það virðist vera útbreidd skoðun meðal hjúkrunar- nema nú að það sé nauðsynleg reynsla að fara á svokallaða al- menna deild eða handlæknisdeild, það er beinlínis í tísku núna. Við sem störfum á geðdeildum erum hins vegar þeirrar skoðunar að geðhjúkrun sé heppilegri undir- staða. Auk mikillar fræðslu sem starfsfólki stendur til boða þroskar það, með samskiptum við sjúkl- inga, fyrr en ella með sér það inn- sæi sem er svo nauðsynlegt í mannlegum samskiptum, hvort sem er í starfi eða einkalífi. Það skerpir líka skilning fólks á eigin sálarlífi að kynnast og starfa með geðveiku fólki. Af því má ýmislegt læra. Mér fínnst margt geðveikt fólk sýna mikinn dugnað í baráttu sinni við sjúkdóm sinn. Ég dáist að því fólki, í mínum huga er það hetjur.“ Þegar ég kem aftur niður á hina gamalkunnu kaffistofu situr þar Helga Júlíusdóttir sjúkraliði. Ég tek hana tali og spyr hve lengi hún hafi unnið þama. „Ég kom hingað nýútskrifaður sjúkraliði fyrir 18 ámm og er nú að hætta störfum um næstu helgi.“ Varstu hrædd þegar þú byijaðir? spyr ég. „Nei, en á seinni árum hafa komið upp tilvik þar sem ég hef haft ástæðu til að vera það, þótt ekkert hafi gerst. Það breyttist hér margt eft- ir að farið var að taka við fólki inn á bráðavakt og læsa deildinni. í kjölfar þeirra breytinga komu karl- menn til starfa á deildinni. Mér hefur gengið vel að skipta við sjúklingana. Við sjúkraliðar hjálp- um m.a. þeim sjúklingum að þrífa sig og matast sem ekki geta það sjálfir og sinnum annarri aðhlynn- ingu. Þolinmæði og hlýja hafa reynst mér best í samskiptum við sjúklingana. Sama fólkið kemur hér oft aftur og aftur, maður þekk- ir það orðið og veit hvað passar fyrir hvern og einn. Hér hefur lengi starfað sama fólkið og við höfum haft frábæra deildarstjóra. Það hefur einnig nýst okkur vel í starfi sú beina fræðsla sem við höfum fengið og einnig að hlusta á þegar sjúklingar segja sögu sína og lækn- ir og hjúkrunarfræðingar meta horfur þeirra og meðhöndlun. Persónulega hafa fullorðnar konur verið þeir sjúklingar sem mest hafa höfðað til mín. Ég hef haft gaman af að hjálpa þeim. Þær sýna manni meira traust en unga fólkið, nema það af því sem er í móðurleit, ef svo má segja. Maður venst öllu hér en ég hef aldrei tek- ið neitt af því sem gerist hér með mér heim í huganum. Ég er búin að sinna hér mörgum sjúklingum og hitti þá stundum niðri í bæ. Ég heilsa þeim þó aldrei af fyrra bragði, þeir heilsa mér ef þeir vilja. Það eru ekki allir sem vilja láta minna sig á þeir hafí verið á geð- deild. Mér finnst geðsjúklingar vera hreint eins og annað fólk sem maður kynnist í lífinu. Þeir eru bara tímabundið veikir og það er kraftaverki líkast að sjá svo mörg- um batna bæði fljótt og vel. Eg hef haft mikla gleði af starfmu hér og mér finnst það hafa gert mig að betri manneskju. Ég hef sjaldan verið lúin öll þessi ár og alltaf hlakkað til að koma í vinnuna. Það hefur aldrei flökrað að mér að skipta um vinnustað." Deildarstjórarnir tveir, Soffía Snorradóttir og Guðbjörg Gunn- Guðný Anna Arnþórsdóttir Þcað er hlutverk þeirra sem meóhðndla geósjúkling aó fá hann til að horfa inn á við og takast á við sitt eigið sálarlíf _______ ♦ arsdóttir eru líka á þeirri skoðun að starfíð á geðdeildinni færi þeim margvíslega ánægju, þótt oft sé það erfitt. „Ég hef unnið hér í ell- efu ár og líkar það vel, starfs- andinn er góður hér, segir Guð- ríður. „Ég ætlaði bara að vera hér í tvö ár en nú eru þau orðin hátt í íjögur," segir Soffía. Þeim stöll- um ber saman um að á geðdeild- inni sé mikið um að vera. „Hug- myndir sem við komum með hafa hlotið góðar undirtektir hjá yfir- mönnum," segja þær. „Hópvinna er áberandi og við höfum einnig verið að þreifa okkur áfram með að láta sjúklinga dvelja utan spítal- ans. Draumur okkar er að geta fyrir alvöru farið út til slíkra sjúkl- inga og sinnt þeim í sínu um- hverfi. Þetta myndi spara talsverða peninga og gæti stuðlað að félags- legri aðlögun fólks sem ella væri stofnanamatur eins og sagt er. Einnig finnst okkur mjög spenn- andi að starfa í svokölluðum teym- ishóp. Þá starfa saman læknir, hjúkrunarfræðingur, sálfræðingur, félagsráðgjafi, sjúkraliði og starfs- maður. Milli þessa fólks er yfirleitt góð samvinna. Sjúklingar dvelja hér yfirleitt í 4 til 6 vikur og kynnast oft vel. Sumir halda sambandi eftir að út í lífið er komið á nýjan leik. Við reynum að stuðla að því að fólk aðlagist samfélaginu með þvl að fara á kaffihús, í leikhús og bíó og í göngur og sundlaugar, svo eitt- hvað sé nefnt. Starfsmenn fara með sjúklingum í slíkar ferðir. Fyrir kemur að rómantíkin blómstri hér á milli sjúklinga. Fólk hefur kynnst hér, orðið ástfangið og jafnvel gengið í hjónaband. Slíkt er þó undantekning. Flestir sem leggjast hér inn eiga við^alvarlega geðsjúkdóma að stríða. Áður var algengt að alkohólistar væru lagð- ir inn á geðdeild. Nú eru þeir sem eru háðir vímuefnum fremur lagðir inn hjá SÁÁ eða déild 33A sem er deild á Landspítalanum fyrir alkohólista. Þar eigum við hér allt- af víst eitt pláss. Fólk sem er veikt á sálinni er ekki eins ofbeldissinnað og margir halda. Þetta er yfirleitt gott fólk og þótt það virðist vera ógnandi er það oft lítið í sér. Við hræð- umst ekki þessa sjúklinga og förum óhikað einar inn til þeirra til þess að sprauta þá. Þeir sem lagðir eru hér inn eiga stundum erfitt með að slíta sig lausa frá okkur, það er svo mikill heimilisbragur á deild- inni. Það er eins og að slíta nafla- strenginn að fara héðan. Við lokum ekki á fólk og fáum oft heimsókn- ir og hringingar frá fyrrverandi sjúklingum, það er okkur sannar- lega gleðiefni þegar þeir segja okkur góð tíðindi.“ í kaffístofunni glóir enn hið rauða auga kaffikönnunnar. En nú eru fleiri orðnir rauðeygir, ég er orðin þreytt eftir viðburðaríkan dag. „Eru þið ekki þreyttar?" spyr ég Soffíu og Guðbjörgu. „Þetta venst fljótt. Maður þarf stundum að vera lengur hér en þetta, þegar erfitt er að manna vaktir. Þá er gott að hafa kaffið,“ svara þær og ljúka úr bollum sínum. Við göngum-fram á ganginn. Þar sitja sjúklingarnir. í hópi þeirra er eldri kona sem ég þekki Iauslega og hef þegar kastað kveðju á. Nú kemur hún til mín með útréttá hönd og segir: „Vertu blessuð og ég þakka þér fyrir að heilsa mér á þessum stað.“ Ég yfirgef hana og geðdeild- ina með spurn í huga. Hvers vegna er þessi launung og skömm ennþá I kringum geðveiki. Tímar hinnar opnu umræðu virðast varla hafa náð inn á þetta svið. Mér finnst sem ég hverfi úr einum heimi yfir í annan þegar dymar lokast að baki mér og milli þeirra heima er mikið djúp staðfest. Það djúp er starfsfólk geðdeildarinnar að reyna að byggja brú yfir, sem hinn sjúki geti fetað sig eftir út í lífið á ný. Við íslendingar höfum brúað öll þau vatnsföll á landinu sem áður héldu mönnum í meiri eða minni einangrun. Nú þurfum við að sam- einast um reisa annarskonar brýr sem losa fólk úr þeirri einangrun sem geðveiki hefur fram að þessu verið. KAUPMANNAHAFNARBRÉF Ofbeldi og uppeldi UM SÍÐUSTU helgi var ungur maður sparkaður niður í úthverfl Kaupmanna- hafnar. Hann var fluttur meðvitundar- laus á spítala. Daginn eftir ákvað fjöl- skyldan að slökkt yrði á öndunarvélinni sem hélt í honum lífi. Heilinn starfaði ekki. Lát unga mannsins hefur orsakað mikla umræðu um vaxandi ofbeldi og aðbúnað og ungs fólks, líkt og gerðist í Bretlandi eftir barnsmorð fyrir skömmu. Spurningin er hvað sé að ger- ast í þjóðfélaginu og af hveiju. Ungi maðurinn kom að tveimur mönnum í deilum við þann þriðja og ætlaði að tala á milli þeirra. Tvímenningamir tóku það óstinnt upp, hentu honum niður og spörk- uðu í hann með fyrrgreinum afleiðingum. 1 fyrstu var álitið að hann hefði verið spark- aður niður með karatesparki, en svo virðist þó ekki vera. Fyrirfram var ekkert sem benti til að slíkt gæti gerst. Ungi pilturinn var verslun- arskólanemi og enginn vandræðamaður. Diskótekið, þar sem árásin átti sér stað, hefur aldrei dregið að sér athygli lögregl- unnar, sem segir staðinn rólegan. Drápið er bara enn eitt dæmið um tilviljanakennt ofbeldi, sem beinist ekki að neinum sérstök- um, heldur stafar af fantaskap og tilfinn- ingaleysi þess eða þeirra, sem verknaðinn fremja. Ofbeldi af þessu tagi hlýtur yfir- leitt mikla athygli fjölmiðla og gæti því gefið þá hugmynd að það væri algengt. Svo er þó ekki. Ofbeldi af hendi ókunnugra ,er miklb-sjaldgæfera en ofbeldi f fjölskyld- •. .. uro.eSajnilfi kunnugra. í sunigm fjölskyld- 1 úm eða kunningjahópum liggja löðrungarn- t ir í loftinu. Orsakir og afleiðingar Rannsóknir hér hafa sýnt að böm, ung- lingar og ungt fólk er almennt löghlýðið og jafnvel löghlýðnara en eldra fólk. Það breytir þó ekki því að meðal ungs fólks em hópar, sem hika ekki við að bíta saman tönnum og sýna ótrúlegan fantaskap af fullkomnu tilfinningaleysi. Um daginn réðst 14 ára stúlka með hníf að jafnöldru sinni vegna afbrýðisemi út af strák. í ákveðnum hverfum er ofbeldi meðal unglinga til vand- ræða í skólum. Það er þetta sem vekur ugg. Ýmislegt er tínt til sem hugsanlegar orsakir, svo sem bardagaíþróttir og ofbeld- ismyndir. Austurlenskar bardagaíþróttir eins og karate, taekwondo og skyldar íþróttir njóta vinsælda hér eins og víðar. Forsvarsmenn íþróttaklúbbanna segja þær ekki auka ofbeldi, heldur gefí þær fólki og ekki síst unglingum, tækifæri til að fá út- rás fyrir reiði og innilokaðar tilfinningar óg stunda heilbrigt tómstundagaman. Þær dýrki ekki ofbeldi, heldur kenni fólki að hreyfa sig og aga. En eins og alls staðar er misjafn sauður í mörgu fé og innan um eru alltaf einhveijir sem ekki taka þjálfun eða skilja ekki á milli leiks og alvöru. Einn þjálfarinn hafði reyndar á orði að ef ofbeld- ishvötin byggi með fólki, þá stöðvaði það ekki ofbeldi að kenna því ekki bardaga- íþróttir. Það gripi þá bara brotna flösku í staðinn. Umræðan hefur líka beinst að ofbeldis- myndum eins og oft áður «g hér hefur verið talað um að setja á meira eftirlit með myndböndum. Stjórnmálamenn eru ekki sammála um hvemig eftirlitið .eigi að vera, hvað eigi að banna og' hvernig' og hvort eigi að- refsa fyrir brót En það er ehfitt að gera eitthvað þe’gaf kvikmyndir og myndbönd eru annars* vegar. Um árabil hefur verið talað um slæm áhríf þessara miðla, en hvernig í ósköpunum á að sanna bein áhrif? í einstökum tilvikum hefur of- beldi verði beitt á líkan hátt og í einstökum kvikmyndum, en hvemig á að taka á slíku? Boð og bönn em hæpin til árangurs og erfið í framkvæmd. Eina raunhæfa en um leið seinfarin leið er að beina áhuga unga fólksins frá ofbeldi inn á uppbyggilegri brautir og þá þýðir ekki að mæna á skól- ann eða ríkið sem bjargvætt. Meginþorri þeirra sem horfír á ofbeldismyndir er að öllum líkindum ekki móttækilegur fyrir þær, þannig að þeir fara út og píni og plagi fólk eins og gert er í myndunum. Annað mál er vanhirtir unglingar, sem hafa farið á mis við allt sem við á í uppvextinum. Þar er að öllum líkindum gróðrarstía ofbeld- isins og á þessi börn geta ofbeldismyndir haft áhrif til hins verra. Ef hugur þeirra er ekki mótaður af ást og aga foreldra, getur hann mótast af brengluðum gildum myndanna. Myndirnar eru þá ekki orsök oftieldisins, heldur eru eins og olía á eld- inn, sem logar af öðrum orsökum. Börn gera ekki það sem foreldrarnir segja heldur það sem þeir gera Kennarar og aðrir sem hafa með börn að gera hafa margir á orði að þeim finnist böm núorðið oft fljót að grípa til ofbeldis eins og ekkert sé eðlilegra. Fljótlegra sé að gera út um málin með hnefaafli en mætti orðsins. Eitthvað er þessi hegðun misjöfn eftir hverfum. Munur milli hverfa hér er hrikalegur. Hér eins og víðar hafa verið byggð hverfi, þar sem fleiri þúsundir af þeim verst stæðu búa saman. Ekki beint fátækrahyecfí, því í . velferðarríkinu hafe allir nokkum veginn til hnífs og skeiðar, heldur hverfi þar' sem umhverfið er ljótt og vanhirt, íbúarnir flestir atvinnulausir eða utan vinnumarkaðarins og andleg fá- tækt heijar. Ekki svo að skilja að andleg fátækt sé bundin við hverfi, hún getur alls staðar stungið upp kollinum. Foreldrar hafa tilhneigingu til að einblína um of á skólann. Hann mótar börnin vissu- lega, en elur þau tæplega upp. Og þeir hugsa kannski sem svo að þeir segi bömun- um eitt og annað, en börn em næm og skilja hnífskarpt milli þess sem foreldrarn- ir segja og gera. Þau gera ekki það sem þeir segja, heldur hegða sér eftir því sem foreldrarnir gera. Með öðrum orðum þá eru foreldrarnir fyrirmynd barnanna. Það þýðir ekki að segja eitt og gera annað. Og með- an foreldrar neita að líta í eigin barm og hugleiða hvort orð þeirra og gerðir fari saman, þá er varla von á góðu. Þeir sem hafa með mál vandræðaungl- inga að gera, allt frá kennurum til lög- reglu, segja að vandinn sé oft að ná til foreldranna. í skólunum mæta þeir ekki í viðtöl og sinna ekki beiðni kennaranna að koma, ef eitthvað fer úrskeiðis með börnin. Sömu sögu er að segja hjá félagsmálastofn- unum og lögreglunni. Böm og unglingar sem komast I kast við þessa aðila mæta iðulega ein. Enginn fylgir þeim að heiman eða vill kannast við að bera ábyrgð á þeim. Nú er rætt um að gana harðar eftir að foreldrarnir standi við hlið barna sinna, horfíst í augu við vandann og axli ábyrgð- ina sem fylgir því að vera uppalandi. Þetta gæti hugsanlega knúið foreldrana til um- hugsunar um sjálfa sig og fjölskylduna og fengið þá til að horfast í augu við raunvem- leikanr^ Böm þurfa ekki aðeins uppeldi heldur þarf að rækta þau. Foreldrar sem eru sjálf- ir ófærir um að lifa lífínu í sátt við sjálfa sig og aðra, lifa í lífslygi og blekkingu, geta vart veitt börnum sínum ástúð og aga, stutt þau og leitt, ræktað þau eins og þarf. Einu sinni voru þessir foreldrar börn, sem knnnski fengu heldur ekki gott vegamesi. Hin illa vél malar áfram, en slæm reynsla getur líka verið uppspretta vislcu og lærdóme. Það er svo auðvelt að skamma börnin og úthöða’þelm, en ,þaö læra bömin, sem fyrir þeim er haft. „Ræktaðu garðinn þinn“ sagði franskur heimspekingur forðum, „og börnin þín svo í honum“, mætti bæta við. Sigrún Davíðsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.