Morgunblaðið - 07.03.1993, Qupperneq 23
að fómarlambið hafí verið valið
af handahófi.
Miklir áverkar voru á líki hins
myrta sem stunginn hafði verið
margsinnis á hol.
Þeir sem komu blaðamönnum
Bergens Tidende í samband við
„greifann“ segjast hafa heyrt Gris-
hnack lýsa morðinu nákvæmlega
og eru þeir sannfærðir um að upp-
lýsingar hans séu réttar. Að því
er þeir segja var morðið fómarat-
höfn sem framin var af einum
manni en hópur djöfladýrkenda
heyrði ekki um ódæðið fyrr en að
því afstöðnu.
Ofsóknir „greifans" í Svíþjóð
Sá orðrómur kom upp síðla árs
1992 í hópi Black Metal-áhang-
enda í Svíþjóð að greifinn frá Berg-
en stæði á bak við fjölda kirkju-
bmna í Noregi. Margir óttuðust
drenginn en fáir höfðu þó jafn ríka
ástæðu til þess og sænsk fjölskylda
sem búsett er í um 30 kílómetra
fjarlægð frá Stokkhólmi.
Tildrögin vom þau að einn fjöl-
skyldumeðlimurinn var í hljómsveit
sem kölluð var Therion og spilaði
Death Metal-tónlist (sem er mild-
ara form tónlistar en Black Met-
al). Pjölluðu textar þeirra gjaman
um náttúmvemd sem fór fyrir
bijóstið á „greifanum". Hann
ásamt Black Metal-hljómsveitinni
Mayhem frá Ósló gagnrýndu text-
ana harkalega opinberlega og
hvöttu Therion til að bæta ráð sitt.
Krafðist „greifinn" þess að þeir
gerðu dauða og hörmungar að yrk-
isefni ef þeir ætluðu að vera virkir
í Death Metal-tónlistinni. Ekki
breytti hljómsveitin um vinnubrögð
og tóku þá morðhótanir að berast
inn á heimilið. Enginn í fjölskyld-
unni skynjaði alvörana að baki
skrifunum fyrr en 26. júlí 1992,
er sterk reykjarlykt barst frá úti-
dymm timburhússins. Hafði verið
lagður eldur að húsinu, en fjöl-
skyldan náði að slökkva hann. Á
hurðinni hékk hljómplata, útgefm
af Burzum (hljómsveit „greifans").
Húsmóðirin hafði samband við
lögregluna sem tók hótanimar ekki
alvarlega. Eftir stutta rannsókn
málsins komst lögreglan að þeirri
niðurstöðu að þetta væri bara að-
ferð til að vekja athygli á þessari
tegund tónlistar sem samin væri
af bijáluðum Norðmanni. Það var
ekki fyrr en útvarpsstöð í Stokk-
hólmi tók að fjalla um málið að
ítarlegri rannsókn var fram-
kvæmd.
Leiddi rannsóknin til þess að 19
ára gömul sænsk stúlka var yfír-
heyrð og játaði hún á sig íkveikjut-
ilraunina. Sagðist hún hafa verið
þess fullviss að fólk væri innan
dyra. Gerði hún þetta að yfírlögðu
ráði kærasta síns, Greifans frá
Bergen. í yfírheyrslum segist hún
eiga sér það markmið að „útbreiða
illsku og djöfulskap, enda tilbiðji
i hún djöfulinn".
Staða málsins í dag
t „Greifínn" situr nú í gæsluvarð-
haldi á meðan rannsókn málsins
fer fram. Við yfirheyrslur hefur
I hann lýst því yfír að sér fínnist allt
í lagi þó að menn kveiki í kirkju-
byggingum en hann neitar að hafa
verið þátttakandi í slíku. Hann
stendur þó á sinni meiningu um
að hann vilji útbreiða illsku og djöf-
ulskap í samfélaginu. Þó svo að
ekki sé neinum áþreifanlegum
sönnunum fyrir að fara sem tengja
„greifann“ beint við verknaðina
þykir rannsóknaraðilum þekking
hans á staðháttum og vitneskja
um framkvæmd bmnanna benda
til þess að hann sé hinn seki eða
þá að hann þekki hinn seka. Að
sögn veijanda drengsins heldur
Grishnack því fram að lýsingar þær
I sem hann hafi látið Bergens Tidene
í té um kirkjubrunana séu hreint
hugarfóstur sitt. Það sem styrkir
i trú rannsóknarmanna á sekt
„greifans“ er sú staðreynd að
löngu áður en hann var handtekinn
hafði lögreglunni borist fjöldi nafn-
lausra ábendinga um að hann
væri brennuvargurinn.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993
------------------------f----------,---í-—---------------
Dregið í samnorræna Víkingalottóinu 17. marz
Fyrsti vinningur gæti orðið
Ósló. Frá Ólafi Þ. Stephcnscn, blaðamanni Morgunblaðsins.
FORSVARSMENN lottófyrirtækjanna á Norðurlöndum kynntu
nýja, samnorræna „Víkingalottóið“ á blaðamannafundi í Osló á
miðvikudag. Um 23 milljónir manna á Norðurlöndunum fimm
munu eiga þess kost að spila í Víkingalottóinu og reiknað er með
að fyrsti vinningur verði að meðaltali 30 milljónir króna. Fyrsti
dráttur í Víkingalottóinu verður miðvikudaginn 17. marz en sala
lottómiða hefst 11. marz.
Víkingalottóinu svipar til hefð-
bundins lottós. Úr 48 tölum eru
dregnar sex aðaltölur og þijár bón-
ustölur á hveiju miðvikudagskvöldi.
Lottókerfí allra Norðurlandanna
verða tengd saman og verða sölu-
kassar á íslandi því tengdir, við
kerfí þúsunda sölukassa um öll
Norðurlönd. Lottó 5/38 verður
áfram við lýði og dregið í því á laug-
ardagskvöldum eins og verið hefur.
Drætti sjónvarpað beint
Norska lottóið sér um að draga
í Víkingalottóinu, og verður
drættinum sjónvarpað frá Hamar í
Noregi beint til hinna Norðurland-
anna um gervihnött. Stöð 2 og Rík-
issjónvarpið munu sjónvarpa drætt-
inum á sama tíma.
Fyrir hönd íslenzkrar getspár
vom á blaðamannafundinum þeir
Vilhjálmur B. Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóri, Sigurbjöm Gunnars-
son, fulltrúi Ungmennafélags ís-
lands í stjórn fyrirtækisins, og Þór-
ir Þorvarðarson, fulltrúi Öryrkja-
bandalagsins.
Stór eining
Vilhjálmur sagði á fundinum að
á íslandi, þar sem íbúafjöldi væri
aðeins 260.000, væri útilokað að
lottóvinningar gætu orðið stórir,
23
80 millj.
miðað við vinninga sem tíðkuðust
hjá milljónaþjóðum. „Aukið fijáls-
ræði í viðskiptaháttum ásamt auk-
inni tækni gerir það að verkum að
stórir vinningar verða enn stærri
hjá stærri þjóðum og ljóst er að
ágóðinn fer til þess aðila sem selur
miðana," sagði Vilhjálmur. „Af
þessu leiðir að fámennar þjóðir
þurfa að taka þessa sömu tækni í
sína þjónustu og sameinast um
rekstur eins og Víkingalottó og
reyna með því að byggja upp stóra
einingu og veijast þannig þessari
samkeppni, sem ekki verður umflú-
in.“
Axis húsgögn hf. Smiðjuvegi 9, Brúnás Innréttingar Ármúla 17a, Casa Borgartúni 29,
epal hf. Faxafeni 7, Exó Suðurlandsbraut 54, Folda hf. hjá epal Faxafeni 7, GKS Bíró hf. Smiðjuvegi 2,
Ingvar og synir hf. Grensásvegi 3, Júnik Mörkin I, Lúmex hjá júnik Mörkin I, Penninn Hallarmúla 2, Sess hf. Faxafeni 9
Opið hús
u m h e I g i n a