Morgunblaðið - 07.03.1993, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993
KVIKMYNPIR/Sambíóin hófu í gær sýningu á kvikmyndinni Lorenzo’s Oil sem
byggir á sannsögulegum atburðum og Qallar um örvæntingarfulla leit foreldra að
lækningu fyrir fímm ára gamlan son þeirra sem haldinn er banvænum sjúkdómi.
Leitað að lyfi í
kappi við tímann
SAMBÍÓIN frumsýndu í gær í Bíóhöllinni kvik-
myndina Lorenzo’s Oil, eða Olía Lorenzos, en í
henni er á dramatískan hátt greint frá raunveru-
legum atburðum sem gerðust fyrir nokkrum
árum. Um er að ræða baráttusögu hjónanna
Augusto og Michaela Odone, en þau eru foreldr-
ar Lorenzos sem árið 1984 greindist með ALD,
ákaflega sjaldgæft afbrigði taugasjúkdóms sem
þá var ólæknandi og leiddi ætíð til dauða sjúkl-
ingsins. Myndin fjallar um örvæntingarfulla leit
foreldranna að Iækningu fyrir einkason sinn og
baráttu þeirra við læknaveldið í Bandaríkjunum.
Reynist leit þeirra bæði löng og ströng, en hins
vegar mjög árangursrík þegar upp er staðið.
Með hlutverk hjónanna fara þau Nick Nolte og
Susan Sarandon, sem hefur verið tilnefnd til
Óskarsverðlauna fyrir leik sinn I myndinni, en
Peter Ustinov fer með hlutverk læknis sem er
þeim innan handar í leitinni að lækningu. Leik-
stjóri myndarinnar er Astralíumaðurinn George
Miller, og skrifaði hann handritið ásamt Nick
Enright, en þeir hafa verið tilnefndir til Óskars-
verðlauna fyrir besta frumsamda handritið.
Myndin var frumsýnd í Bandaríkjunum í janúar
og hefur hún hvarvetna þar sem hún hefur ver-
ið sýnd hlotið mjög lofsamlega dóma, og t.d.
fékk hún fjórar stjörnur í tímaritinu Empire.
Sem fyrr segir var myndin frumsýnd í Bíóhöll-
inni í gær, og rann allur ágóði af sýningunni til
söfnunar fyrir börn með krabbamein.
Það var í apríl 1984 sem lækn-
ir tilkynnti Ódone-hjónunum að
hinn fimm ára gamli sonur þeirra
væri haldinn ólæknandi sjúkdómi.
Þrátt fyrir þekkingarskort þeirra
á sviði vísinda og læknisfræði
neita þau að trúa þessu og byija
að afla sér allrar þeirrar þekking-
ar sem þau geta komist yfír varð-
andi hinn dularfulla sjúkdóm.
ALD, eða adrenoleukodystrop-
hy, er arfgengur sjúkdómur og
berst hann frá móður til sonar
með litningagalla er hefur í för
með sér uppsöfnun líkamsfitu sem
eyðileggur mýelíntaugaslíður.
Heyrnarleysi, blinda, andleg
hrörnun og lömun segja til um
stig sjúkdómsins, en hann hefur
yfírleitt dauða í för með sér innan
tveggja ára frá því hann gerir
vart við sig. Þetta er sú lýsing á
sjúkdómnum sem foreldrum Lor-
enzos er gefín þegar hann veik-
ist, en þetta eru batahorfur sem
þau geta alls ekki sætt sig við.
Þau fínkemba því allar uppslátt-
arbækur á sviði læknisfræði sem
þau koma höndum yfír, en árang-
urinn af því er sáralítill og ákveða
þau því að hjálpa syni sínum sjálf.
Fjallar kvikmyndin um leit þeirra
að lækningu og -er hún á köflum
eins og hálfgerð leynilögreglu-
saga, en þau hafa meðal annars
upp á nokkrum læknum sem sér-
hæft hafa sig í þessum sjúkdómi
og vinna að rannsóknum á honum.
Þeir reynast hins vegar fram að
þessu ekki hafa haft neitt sam-
band sín á milli til að skiptast á
skoðunum, og grípa Odone-hjónin
því til eigin ráða og efna til fyrstu
heimsráðstefnu þessara sérfræð-
inga.
Hundruðum lífa bjargað
Augusto Odone, sem Nick
Nolte leikur, er hagfræðingur sem
fæddur er á Ítalíu en starfar í
Bandaríkjunum hjá Alþjóðabank-
anum, en Michaela kona hans
(Susan Sarandon) er
bandarískur mál-
vísindamaður af írsku
bergi brotinn. Þegar
sonur þeirra greinist
með hinn tiltölulega
óþekkta og ólæknandi
sjúkdóm var hann þegar
farinn að missa bæði
mál og heyrn, en síðar
lamaðist hann að öllu
leyti. Þá höfðu
Odone-hjónin hins vegar
hafið hina einstæðu leit
þeirra að lækningu. Það
sem þau á endanum
uppgötvuðu var olía sem
eyðir hinni eyði-
leggjandi fitu í líkama
sjúklinganna, og með
henni tókst þeim að
bjarga lífi sonar síns og
hundruðum annarra drengja sem
fengið hafa sjúkdóminn. Olían
sem um ræðir er blanda af
olíusýru, sem einkum er notuð í
Stanslaus leit að þekkingu
f ÁKAFRI leit sinni að þekkingu á sjúkdómi þeim
sem sonur Odone-hjónanna er haldinn leita þau með-
al annars ráða hjá sérfræðingnum Dr. Gus Nikolais,
en hann er leikinn af Peter Ustinov í kvikmyndinni.
Sigur að
leikslokum
NICK Nolte og Sus-
an Sarandon leika
hjónin Augusto og
Michaela Odone
sem börðust við
tíma og læknaveldi
til að bjarga lífi
sonar þeirra sem
leikinn er af Zack
O’Malley Green-
burg í kvikmynd-
inni Olía Lorenzos.
sápur og snyrtivörur, og olíu sem
unnin er úr repjufræjum, og hófst
framleiðsla á henni árið 1988.
Odone-hjónin afsöluðu sér hins
vegar öllum rétti til að hagnast
fjárhagslega á þessari uppgötvun
sinni, og það eina sem þau fóru
fram á var að olían yrði kölluð
eftir syni þeirra, og heitir hún
þess vegna Olía Lorenzos.
Vanir menn og árangurinn eftir því
ÞEGAR George Miller leikstjóri Olíu Lorenzo las árið 1990 frásögn
í tímariti um hjón sem fundið hefðu „töfralyf" við ALD, sjaldgæfum
og banvænum taugasjúkdómi, fannst honum sem lækni að þetta
væri stórfengleg saga, en hann hafði hins vegar ekki trú á að þann-
ig gengju hlutirnir fyrir sig í raunveruleikanum. Þessi frásögn
náði samt tökum á Miller, sem hafði lagt stund á lækningar um
skeið við St. Vincent’s-sjúkrahúsið í Sydney í Ástralíu áður en hann
sneri sér alfarið að því að leikstýra myndum fyrir sjónvarp og
hvíta tjaldið, og hann fylltist löngun til þess að gera kvikmynd um
þetta óvenjulega „venjulega fólk“, sem hafði stöðvað framgang sjúk-
dómsins í syni sínum og unnið kraftaverk fyrir unga drengi haldna
ALD. Þegar hann fór þess á leit við Odone-hjónin féllust þau á að
hann leikstýrði kvikmyndinni, og þá ekki síst vegna þekkingar hans
á læknisfræði.
George Miller sem er 47 ára
gamall er kannski þekktastur fyrir
að hafa gert myndirnar um Mad
Max, sem á sínum tíma gerðu leik-
arann Mel Gibson frægan; Hann
rekur kvikmyndagerð í Ástralíu
sem talin er vera ein sú traustasta
þar í landi hvað varðar gerð fram-
haldsmynda fyrir sjónvarp og gerð
kvikmynda. Reyndar hefur hann
sjálfur ekki leikstýrt mynd fyrir
hvíta tjaldið síðan hann leikstýrði
Nornunum frá Eastwick, sem Jack
Nicholson lék aðalhlutverkið í
ásamt þeim Susan Sarandon, Mich-
elle Pfeiffer og Cher. Gerð þeirrar
myndar reyndist honum að eigin
sögn nokkuð erfið bæði vegna
truflunar af hálfu Warner Brot-
hers, sem sá um dreifingu myndar-
innar, og einnig vegna mótmæla
sem rigndi yfír hann frá nomahóp-
um hvaðanæva að úr Bandaríkjun-
um eftir að sýningar á myndinni
hófust. Það reyndust hins vegar
ekki vera nein Ijón á veginum við
gerð myndarinnar um Odone-hjón-
in, og gekk vel að fjármagna gerð
hennar þrátt fyrir dapurlegt eðli
sögunnar sem um er ijallað í mynd-
inni.
Stórleikarar í
aðalhlutverkum
Bæði Nick Nolte og Susan Sar-
andon hafa fengið geysilega góða
dóma fyrir túlkun sína á Odone-
hjónunum, og hefur hún reyndar
verið tilnefnd til Óskarsverðlauna
fyrir leik sinn í myndinni, en bæði
hafa þau fengið slíkar tiinefningar
áður.
Nick Nolte fæddist í Omaha í
Nebraska og var hann í ruðningsl-
iðum nokkurra háskóla áður en
áhugi hans á leiklist kviknaði árið
1961. Hann tók þá að læra leiklist
og lék síðan með leikfélögum víðs
vegar um Bandaríkin og á íjórtán
árum fór hann með hlutverk í rúm-
lega 150 leikritum. Leið hans lá
þó að lokum til Hollywood, þar sem
hann lék um skeið í litlu leikhúsi,
en ekki leið á löngu þar til hann
Snilldarleikur
Þau Nick Nolte og Susan Saran-
don hafa hlotið mikið lof fyrir
leik sinn í Olíu Lorenzo, og
hefur hún verið tilnefnd til
Óskarsverðlauna sem besta
leikkona í aðalhlutverki.
Alltíöllu
var „uppgötvaður" og boðið hlut-
verk í sjónvarpsseríunni Rich Man,
Poor Man. Leikur hans í henni
vakti feiknalega góð viðbrögð
áhorfenda og fékk hann að vörmu
spori sitt fyrsta hlutverk í kvik-
mynd, en það var í myndinni Djúp-
ið, þar sem hann fór með aðalh!ut:
verk ásamt Jacqueline Bisset. í
kjölfarið fylgdu síðan allmargar
kvikmyndir sem héldu nafni hans
GEORGE Miller er leik-
stjóri, framleiðandi og ann-
ar höfunda handritsins að
OIíu Lorenzo.
á lofti, en langvinsælust þeirra
varð 48HRS, sem hann lék í á
móti Eddie Murphy. Þegar hann lék
í Olíu Lorenzo hafði hann leikið í
tveimur kvikmyndum sem nutu
mikilla vinsælda, en það eru mynd-
irnar Víghöfði, þar sem hann lék
á móti Robert DeNiro, og The
Prince of Tide, sem hann var til-
nefndur til Óskarsveðlauna fyrir
sem besti leikari í aðalhlutverki og
færði honum einnig Gullna hnött-
inn, sem Félag erlendra blaða-
manna í Hollywood veitir árlega.
Susan Sarandon hefur tvívegis
á ferli sínum verið tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna fyrir leik sinn, en það
var í myndunum Atlantic City og
Thelmu og Louise. Hún fæddist í
borginni Metuchen í New Jersey,
og þegar hún var við háskólanám
giftist hún leiklistarnema. Hún fór
eitt sinn ásamt honum í prufu hjá
umboðsmanni leikara, og skráði
hann hana einnig. Aðeins fimm
dögum síðar hafði hún fengið
fyrsta hlutverk sitt í kvikmynd, en
það var í Joe, sem John Avildsen
leikstýrði. Þar með var ferill henn-
ar hafinn, og lék hún í fjölda kvik-
mynda á komandi árum, en einnig
lék hún á sviði um nokkurt skeið.
Hún hóf síðan kvikmyndaleik að
nýju þegar hún lék í Nornunum frá
Eastwick, og í kjölfar hennar lék
hún m.a. á móti Kevin Kostner í
Bill Durham, Don Johnson í Sweet
Heart’s Dance og Kevin Kline í The
January Man. I White Palace lék
hún miðaldra gengilbeinu sem
verður ástfangin af ekkli sem er
14 árum yngri en hún, og fyrir það
hlutverk varð hún að bæta á sig
10 kílóum, en þau losaði hún sig
snarlega við þegar hún lék í Thelmu
og Louise, sem hvarvetna hlaut
mikið lof.