Morgunblaðið - 07.03.1993, Síða 28

Morgunblaðið - 07.03.1993, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993 „Erfiðast tannst mér að mega ekki gera við hvert myndefnr segir Per Hejne sigurvegari í Ijósmyndamaraiioni sem Stúdentaráð, Morgunblaðið og Hans Petersen stóðu fyrir í fyrri hluta febrúar. Tæplega hundrað stúdentar við Háskóla íslands tóku bátt í maraboninu. eppendur höfðu hálfan sólarhring til að taka tólf myndir af tólf viðfangs- efnum. Þeir höfðu aðeins eitt tæki- færi til að ná hverri mynd þar sem filman sem þeim var aflient var að- eins tólf mynda. Keppt var í tólf flokkum; Get ég þetta, Kona, Mann- líf, Hraði, Andstæður, Nám, Ég, Stress, Tól, Með allt á hreinu, Morg- unblaðið og Þrándur í Götu. Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir bestu heildarlausnina.og bestu mynd- ina. Hlaut Per Henje þau bæði, fyrir mynd sína „Get ég þetta“ sem tekin er af stökkbretti í Sundhöll Reykja- víkur, og jafnbestu myndröðina. „Hugmyndin fæddist fljótlega, þetta var fyrsta myndin sem ég tók. Ég var hins vegar ekki viss um árangur- inn, því það var erfitt að stilla vegna þess að stökkbrettið hristist tölu- vert,“ segir Per. Honum gekk hins vegar ekki eins vel með öll verkefnin, segir „Mannlíf' og „Stress" hafa vafíst fyrir sér. „Það var ekki erfítt að fá hugmyndir, vandinn var að upphugsa eitthvað frumlegt. Mér gekk ekkert sérlega vel framan af, þegar tíminn var hálfnaður hafði ég aðeins tekið þijár myndir en svo fór ég í gang og kláraði fílmuna fyrir tilskilinn tíma.“ í verðlaun hlaut Per tvær Canon- myndavélar en hann átti eina fyrir. Segist hann enn ekki hafa gert upp við sig hvað hann geri við verðlauna- gripina. Per er 21 árs nemi á öðru ári í viðskiptafræði. Ljósmyndun hefur verið hans aðaláhugamál um margra ára skeið og síðustu ár hefur góður matur bæst á listann. Hefði Per mátt óska sér verkefnis í keppninni hefði það því án efa snúist um mat! Dómnefhdina skipuðu Karl Pétur Jónsson frá Stúdentaráði, Júlíus Sig- uijónsson og Kristinn Ingvarsson fyr- ir Morgunblaðið og Gunnar Finn- bjömsson frá Hans Petersen. Eina verðlaunamyndina vantar, „Konu“ en hún er eftir Huldu Gestsdóttur, fé- lagsvísindadeild. BESIJ MVHDIU: CET É6 ÞEITJ Per Hejne, viðskiptadeild. r' 1 i ■ il l ;;; Verðlaunamyndir úr Ijósmyndamaraþoni Stúdentaróös, Morgunblaðsins og Hans Petersen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.