Morgunblaðið - 07.03.1993, Síða 30

Morgunblaðið - 07.03.1993, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993 Lækníngamáttur Bláa lónsíns stað- festur með rannsókn Grindavík. BLÁALÓNSNEFNDIN kynnti á miðvikudag niðurstöður á rannsókn sem var framkvæmd í Bláa lóninu síðastliðið sumar á lækningarmætti lónsins á húðsjúkdóminn psorias- is. Bláalónsnefndin stóð að kynningarfundinum ásamt Heilsufélaginu um Bláa lónið. Hópur sjúklinga frá Þýskalandi dvaldi við lónið um þriggja vikna skeið í ágúst og september. Dr. Jón Hjaltalín Olafsson húðsjúk- dómasérfræðingur stýrði rann- sókninni og kynnti niðurstöðurnar. í máli Jóns kom frafn að sjúkl- ingamir voru skoðaðir áður en böðun hófst og síðan vikulega þangað til meðferð lauk. Útbrot voru skráð eftir reglum sem eru viðurkenndar eru þegar psoriasis á í hlut. Tíminn sem var valinn var talinn heppilegur þar sem utanaðkom- andi áhrif væru minnst að hausti til svo sem sólarljós sem hefur heppileg áhrif á sjúkdóminn. Jón sagði að niðurstöður rannsóknar bendi til þess að regluleg böðun hafí áhrif á sjúkdóminn. Mest áhrif Morgnnblaðið/Frímann Ólafsson Dr. Jón Hjaltalín Ólafsson stjórnaði rannsóknum á lækningamætti Bláa lónsins. nýjum bílum bjóðum við allt að 200.000 kr. verðlækkun á notuðum bílum,-'uppítökubílum' 'A Greiðslukjör eru allt til þriggja ára og jafnvel engin útborgun Veitum ábyrgð á mörgum Nissan og Subaru bíIum Komið og sjáið allt úrvalið OPIÐ LAUGARDAG ORUGG BÍLASALA W A GÓÐUM STAÐ ! FRA 10 - 17 rýmin g ahs ala hefur böðunin á afhreistrun út- brota sem gengur hratt fyrir sig og hvarf hreistrið sem fylgir psor- iasis að mestu á einni viku en aðrir þættir eins og þykkt útbrota ganga hægar til baka og heildaryf- irborð útbrota minnkaði lítilshátt- ar. Vantrú á lyfjum Jón sagði að niðurstöðumar bendi til að böðun í lóninu ein sér nægi ekki til meðhöndlunar á psoriasis-sjúklingum og bendir á að nota megi böðun í lóninu með ljósameðferð því ljós nái ekki niður í dýpri lög húðarinnar nema hreistrið sé fjarlægt. „Svokölluð B-geislameðferðir eru algengasta aðferðin við psoriasis í dag en einnig er notaður áburður og sýrar. Sjúklingar í dag hafa margir hveijir vantrú á lyfjum og lyijameðferð. Hér í Bláa lóninu er því hægt að segja að meðferðin sé „náttúrlegri" en slík meðferð," sagði Jón. Fyrirhugað er að gera framhaldsrannsókn á þessu ári á tveimur hópum sjúklinga þar sem annar hópurinn stundar böð í Bláa lóninu ásamt ljósaböðum en hinn eingöngu með ljósaböðum og þeir bornir saman. Ingimar Sigurðsson formaður Bláalónsnefndarinnar sagði að rannsóknin hefði notið dyggs stuðnings Hitaveitu Suðurnesja og íslenska heilsufélagsins ásamt fleiri samtökum og kostnaðurinn við hana næmi milli 13 og 14 milljónum króna. Hann sagði að til þess að framtíðarskipulag gerði ráð fyrir að lónið yrði á nýjum stað og til þess að hljóta viðurkenningu á lækningamætti þess yrðu allar rannsóknir að byggja á vísindalegum niðurstöðum. Lifríki lónsins einstakt Að lokum kynnti Jakob Krist- jánsson verkefni sem unnið var af Iðntæknistofnun íslands á líf- ríki Bláa lónsins. í niðurstöðum rannsókna kemur í ljós að í lóninu er einstakt náttúralegt lífríki sem einkennist af fáum tegundum ör- vera. Blágrænir þörangar era al- gengastir en engir sveppir, dýr eða plöntur fundust í lóninu og það sem er jafnvel athyglisverðast er að utanaðkomandi mengunarbakt- eríur þrífast ekki í lóninu og það hreinsar sig sjálft. Það virðist sem svo að nákvæmlega eins fyrirbæri og Bláa lónið fínnist ekki í veröld- inni. FÓ ( i ( í ( í € í í ( ( ( ( ( í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.