Morgunblaðið - 07.03.1993, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ
w'nwmŒmmm*
UR 7. MARZ 1993
ATVI Nl N (IA UGL YSíNGAR
Hjúkrunarfræðingur
óskast
Frá 1. maí nk. er laus staða hjúkrunarfræð-
ings í Skjólgarði.
Á heimilinu eru 31 hjúkrunarsjúklingur og
12 á ellideild auk lítillar fæðingardeildar.
Allar nánari upplýsingar veita Amalía Þor-
grímsdóttir, hjúkrunarforstjóri, og Ásmundur
Gíslason, forstöðumaður, símar 97-81021
og 81118.
Skjólgarður,
Höfn Hornafirði.
IANDSPITALINN
Reyklaus vinnustaður
ENDURHÆFINGADEILD
LANDSPÍTALANS
Staða yfirsjúkraþjálfara við endurhæfingar-
deild Landspítalans er laus til umsóknar.
Um er að ræða umsjón með þjálfun sjúklinga
með taugasjúkdóma.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Sigurjóns-
dóttir, framkvæmdastjóri sjúkraþjálfunar,
í síma 601430.
BARNASPITALI HRINGSINS
Staða læknaritara við Barnaspítala Hringsins
er laus til umsóknar nú þegar.
Um er að ræða 50% starf, ýmist frá kl.
16.00-20.00 eða 8.00-12.00 til frambúðar.
Frekari upplýsingar gefur Ásdís Sveinsdóttir,
skrifstofustjóri, í síma 601051.
RÍKISSPÍTALAR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sór fyrir markvissri
meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstétta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og með,
og leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum
ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.
Rekstrarstjórnun
Óskum að ráða rekstrarstjóra (forstöðumað-
ur afurðasviðs) til starfa hjá Kf. Þingeyinga
Húsavík.
Starfssvið:
★ Stjórnun á daglegum rekstri sláturhúss,
kjötiðnaðarstöðvar og tengdrar starf-
semi.
★ Félagsleg samskipti m.a. við bændur og
aðra félagsmenn.
★ Samskipti og samningagerð við viðskipta-
vini.
★ Gerð áætlana um rekstur, framleiðslu,
innkaup, sölu- og markaðsaðgerðir.
★ Framleiðslu- og gæðastjórnun.
★ Vöruþróun.
Við leitum að hæfum stjórnanda með mennt-
un í verkfræði, tæknifræði eða aðra haldgóða
menntun á sviði framleiðslu og stjórnunar.
Reynsla í stjórnun matvælaframleiðslu æski-
leg. Starfið krefst hæfni í stjórnun og mann-
legum samskiptum.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar:
„Rekstrarstjórnun 41“ fyrir 13. mars nk.
Hagva neurhf
Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Róöningarþjónusta Rekstrarráögjöf Skoðanakannanir
Verkfræðingur
Byggingaverkfræðingur, með víðtæka starfs-
reynslu og menntun, óskar eftir framtíðar-
starfi. Get tekið að mér verkefni á ýmsum
sviðum byggingaverkfræðinnar.
Upplýsingar í síma 676561.
Trimform
Óskum eftir samstarfi við eiganda Trim form
tækis. Við bjóðum upp á 1. flokks aðstöðu
á glæsilegri sólbaðstofu.
Upplýsingar í síma 653085 og eftir kl. 21 í
síma 650573.
Sól og sæla,
sólbaðsstofa - nuddstofa,
Fjarðargötu 11, Hafnarfirði,
Sölumenn
Við getum bætt við okkur nokkrum sölu-
mönnum til þess að bjóða íslensku alfræði-
orðabókina og fleiri góð ritverk.
Allar nánari upplýsingar gefur Guðfinna
Þorvaldsdóttir, sölustjóri, í síma 684866
frá kl. 10-12, næstu daga.
<*>U _
ORN OG ORLYGUR
Síðumúla 11, 108 Reykjavík.
GOTTFOLK
VANTAR GOTT FÓLK
Óskum eftir reyndum grafískum hönnuðum með
góða þekkingu á tölvuvinnslu, sem geta unnið
sjálfstætt, stjómað hugmyndavinnu og fylgt eftir
úrlausnum verkefna.
Gott fólk býður uppá skemmtilegt starfsumhverfi
fyrir skapandi fólk.
Verkefnin eru spennandi, fjölbreytt og krefjandi
á sviði grafískrar hönnunar og auglýsingagerðar
fyrir helstu fyrirtæki landsins.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Gott fólk hafi samband við Ástþór Jóhannsson
eða sendi okkur línu um reynslu og fyrri störf.
GOTT F □ L K
AUGLYSINGASTOFA
Lágmúla 6 • 108 Reykjavík • Sími 68 54 66 • Fax 68 56 72
Ritari eftir hádegi
Óskum eftir að ráða ritara til almennra skrif-
stofustarfa hjá þjónustufyrirtæki.
Leitum að starfsmanni með kunnáttu í ensku
og einu Norðurlandamáli, góða almenna
tölvukunnáttu og getur verið án þess að reykja
á vinnustað. Vinnutími frá kl. 13.00-17.00.
Vinsamlegast sækið um á eyðublöðum, sem
liggja frammi á skrifstofu okkar á
Laugavegi 178.
I
abendi
RÁOGJÖP 0G RÁÐNINGAR
I
LAUGAVEGI I78 • 105 REVKJAVIK • SIMI 6Í9099 • FAX 689096
Ferðamálafulltrúi
Laust er til umsóknar nýtt starf ferðamálafull-
trúa á Fljótsdalshéraði.
Um er að ræða fullt starf í 6 mánuði. Viðkom-
andi þarf að hafa áhuga á ferðaþjónustu,
geta unnið sjálfstætt og þarf að geta hafið
störf sem fyrst. Meðmæli eru æskileg.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma
97-12000 (Erlendur).
Umsóknarfrestur er til 20. mars og umsókn-
ir sendist á bæjarskrifstofu Egilsstaðabæjar
merktar: „Ferðamálafulltrúi“, Lyngási 12,
700 Egilsstaðir.
lðntœknistofnun vinnur að tœkniþróun og aukinni fram-
leiðni í islensku atvinnulífi. Á stofnuninni eru stundaðar
hagnýtar rannsóknir, þróun, ráðgjöf gceðaeftirlit, þjón■
usta, frceðsla og stöðlun. Áhersla er lögð á hceft starfsfólk
til að tryggja gceði þeirrar þjónustu sem veitt er.
Tveir sérfræðingar
á Akureyri
Iðntæknistofnun vill ráða tvo sérfræðinga til
starfa á Akureyri. Störfin felast í rannsókna-
og ráðgjafastarfsemi jafnframt kennslu við
rekstrar- og sjávarútvegsdeildir Háskólans á
Akureyri.
Umsækjendur þurfa að vera verkfræðingar
eða hafa sambærilega menntun. Leitað er
eftir sérfræðingum á sviði framleiðslutækni
eða matvælatækni. Æskilegt er að þeir hafi
reynslu úr atvinnulífinu eða af rannsóknum.
Starfsmönnunum er ætlað að byggja upp
tengsl við fyrirtæki í útgerð, fiskvinnslu og
alrhennum iðnaði. Þeir verða starfsmenn
Iðntæknistofnunar en hafa starfsaðstöðu við
Háskólann á Akureyri. Val á starfsmönnum
fer fram í samstarfi við Háskólann.
Hvatt er til að jafnt konur sem karlar sæki
um stöðurnar. Öllum umsóknunum verður
svarað.
Umsóknir ásamt staðfestingu um nám og
fyrri störf sendist til Iðntæknistofnunar fyrir
10. apríl nk., merktar: „Akureyri“.
Iðntæknistof nun 11
IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS
Keldnaholt, 112 Reykjavik
Sími (91) 68 7000
iL
ST. JÓSEFSSPlTALI
LANDAKOTI
Með þjónustu og framfarir í fyrirrúmi
Hjúkrunarfræðingar
Vegna breytinga á starfsemi spítalans vantar
hjúkrunarfræðinga á eftirfarandi deildir: Dag-
deild, göngudeild, gjörgæslu-, barna- og
lyflækningadeild. Vinnutími við allra hæfi s.s.
morgunvaktir virka daga.
Allar vaktir virka daga.
„Hver vill ekki eiga frí um helgar og hátíðir?"
Einnig vantar hjúkrunarfræðinga á hjúkrunar-
deild fyrir aldraða í Hafnarbúðum.
Bamaheimilispláss fyrir flesta aldurshópa.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu hjúkr-
unarforstjóra í síma 604311 eða 604300.
Leikskólinn Öldukot
óskar eftir fóstru
Öldukot er tveggja deilda leikskóli þar sem
starfa fjórar fóstrur.
Þeir, sem hafa áhuga, vinsamlega komið eða
hringið í síma 604365. Reyklaus vinnustaður.
Leikskólinn Öldukot,
Öldugötu 19, Reykjavík.