Morgunblaðið - 07.03.1993, Síða 52

Morgunblaðið - 07.03.1993, Síða 52
varða i Ijf Landsbanki Sk íslands ÆMJS Banki allra landsi Banki allra landsmanna FORGANGSPÓSTUR UPPLÝSINGASÍMI 63 71 90 MORGUNBLAÐIÐ, ABALSTRÆTJ 0, 101 REYKJA V<K SÍMl 091100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1005 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. ÚT AF SNÆFELLSNESI Þingflokkur sjálfstæðismamia samþykkir ekki lyfjafmmvarp í óbreyttri mynd Ottast að með nýjnm lögnm minnki þjónusta í dreifbýli Apótekarar telja sig eiga eins milljarðs kröfu á ríkið verði frumvarpið að lögum LJÓST er að þingflokkur Sjálf- stæðisflokksins fellst ekki á frum- varp að nýjum lyfjalögnm í núver- andi mynd þess. Landsbyggðar- þingmenn óttast að með nýju fyr- irkomulagi í lyfjasölu minnki þjónusta við fólk í hinum dreifðu byggðum og sumir þingmenn ef- ast um að breytingin hafi þann sparnað í för með sér, sem stefnt er að. í frumvarpinu er meðal annars gert ráð fyrir að öllum lyfjafræðing- um verði veitt leyfi til að opna apó- tek, fullnægi þeir almennum skilyrð- um. Tillögurnar eru m.a. byggðar á áliti nefndar heilbrigðisráðherra frá því í apríl í fyrra. Nefndin benti á nokkrar leiðir, en grundvöllur frum- varpsins er sú stefna ríkisstjómar- innar að auka fijálsræði í atvinnu- starfsemi og draga úr opinberum kostnaði vegna lyfjadreifingar. Alþýðuflokksmenn hafa gefið grænt ljós á frumvarpið og Sjálf- stæðismenn eru að fjalla um það þessa dagana, en ljóst er að þeir fallast ekki á það óbreytt. Geir H. Haarde, formaður þingflokksins, sagði að hann teldi ekki langt að bíða afgreiðslu þingflokksins á frum- „^pirpinu. Sturla Böðvarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Vesturlandi, sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði miklar efasemdir um frumvarpið og kvaðst vera hræddur um að ef sjúkrahúsum og heilsu- gæslustöðvum yrði leyft að opna apótek myndu apótekin víða eiga effitt uppdráttar. Ráðuneytismenn segja að bæði séu fjárhagsleg og skipulagsleg rök fyrir breytingunum, ríkið þurfi að spara og ekki sé í takt við tíðarand- ann að afhenda ákveðnum mönnum þau sérréttindi, sem lyfsöluleyfi veita. Apótekarar með eins milljarðs bótakröfu á ríkið? Apótekarar beijast gegn frum- varpinu af hörku. Þeir telja breyting- amar ekki hafa spamað hafa í för með sér, heldur muni tvö- eða þre- földun apótekanna auka dreifingar- kostnaðinn og hækka verð lyfjanna. Þeir segjast ætla að fara fram á bætur, verði frumvarpið að lögum, og segja þær geta numið allt að ein- um milljarði króna. Það byggja þeir á því, að í leyfisbréfum þeirra séu kvaðir um kaup á húsnæði, áhöldum og birgðum fráfarandi lyfsala og þeir hafi staðið undir þessari kaup- skyldu í trausti þess að losna við eignirnar við starfslok. Heilbrigðis- ráðuneytið hafnar því að apótekarar geti átt bótarétt á hendur ríkinu og vísar þar í lögfræðiálit. Sjá bls. 10-12: „Togast á um apótekin". Ríkislögmaður Gagnrýni á úrskurð ríkisskatta- nefndar LÖGMENN málsaðila í kvótamál- inu sem fjármálaráðherra ákvað að vísa til dómstóla á síðasta ári hafa lagt inn greinargerðir í Héraðsdóm Reykjavíkur. I grein- argerð Gunnlaugs Claessens rikislögmanns kemur fram hörð gagnrýni á úrskurð ríkisskatta- nefndar í þessu máli en nefndin komst að þeirri niðurstöðu að það bryti í bága við lög að eign- færa keyptan langtímakvóta í bókhaldi fyrirtækja eins og ríkis- skattstjóri vill að þau geri. Máls- höfðun fjármálaráðherra er til þess ætluð að fá úrskurð dóm- stóla um hvemig meðhöndla eigi kvótakaup skattalega. í umfjöllun ríkislögmanns um úrskurð ríkisskattanefndar, nú yfír- skattanefndar, segir m.a. að hann sé byggður á óskiljanlegri rök- semdafærslu og röngum lagasjón- armiðum. LÍÚ hefur tekið við rekstri máls- ins fyrir hönd útgerðaraðilans en Helgi V. Jónsson hrl. og endurskoð- andi er lögmaður þeirra í málinu. í greinargerð hans kemur m.a. fram að ef telja beri keyptan langtíma- kvóta til eignarskattsstofns and- stætt úthlutuðum kvóta, það er ef eignarskattsfijáls úthlutaður kvóti verður að skattskyldri eign við sölu hans, sé slíkt brot á jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar. Sjá bls. 6: „Ríkisskattanefnd gagnrýnd“. -------------- Handteknir með fíkniefni LÖGREGLAN gerði upptæk fíkni- efni í húsi í Reykjavík aðfaranótt laugardagsins og voru §órir menn handteknir og færðir til yfir- heyrslu vegna notkunar og með- ferðar fíkniefnanna. Að því loknu voru þrír settir í fangageymslur vegna málsins en rannsókn stend- ur nú yfír. Birgir ísleifur Gunnarsson, formaður þróunarnefndar HÍ Rætt um að taka upp þriggja ára grunnnám í Háskólanum BIRGIR ísleifur Gunnarsson, seðlabanka- stjóri og formaður þróunarnefndar Háskóla ísland, sagði í framsöguerindi á málþingi um stefnu og framtíð III í gær að Háskólinn þyrfti að huga nyög vel að endurskipulagn- ingu námsins og rætt hefði verið um að í flestum deildum verði tekið upp þriggja ára grunnnám á svipaðan hátt og er í Bandaríkj- unum. Síðan verði gefinn kostur á framhalds- námi í um tvö ár til meistaraprófa og að lokum komi svo þriggja ára doktorsnám fyr- ir þá sem vijja og geta. Birgir sagði að menn hlytu einnig að hugleiða hvort taka eigi inn í Iláskólann fleiri námsgreinar eins og t.d. húsagerðarlist, veðurfræði og dýrafræði. í máli Birgis koma fram að þróunamefnd Háskólans væri nú í óða önn að vinna að sínum verkefnum en hefði ekki tekið efnislega afstöðu til margra álitaefna. Utanaðkomandi mat í setningarávarpi Ólafs G. Einarssonar menntamálaráðherra sagðist hann vilja stefna að auknu sjálfstæði háskóia og að hann virti akademískt frelsi í hvívetna. „Hins vegar er nauðsynlegt að utanaðkomandi mat komi til í ríkara mæli en nú er, ekki síst í ljósi þess að Háskóli íslands hefur ekki haft stuðning af eðlilegri samkeppni þar sem hann er ennþá eini háskólinn sem veitir fjölbreytilega akadem- íska menntun," sagði ráðherra. Birgir ísleifur sagði ekki ólíklegt að aðrir skólar myndu í vaxandi mæli bjóða upp á tiltölu- lega stuttar námsbrautir sem veiti nám til und- irbúnings ákveðinna starfa í þjóðfélaginu en HÍ muni hins vegar bjóða upp á lengra fræði- legra nám og stunda rannsóknir. Því vakni sú spurning hvort Háskólinn ætti hreinlega að koma af sér styttri atvinnutengdum námsbraut- um til annarra skóla. Einnig þyrfti að huga vandlega að samþættingu náms úr fleiri deild- um og nefndi Birgir t.d. viðskiptanám fyrir verkfræðinga og raunvísindamenn og tækni- nám fyrir viðskiptafræðinga, hagfræðinga og lögfræðinga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.