Morgunblaðið - 09.03.1993, Page 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
56. tbl. 81.árg.
ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Clinton
hafnar
tillögn
Ghalis
Washington, Sar^jevo, Brussel. Reuter.
BILL Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, hafnaði í gær til-
lögu frá Boutros Boutros-
Ghali, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, þess
efnis að aðildarríki samtak-
anna sendu hermenn gegn
serbneskum hersveitum í
Bosníu ef Serbar semdu ekki
um frið.
Boutros-Ghali sagði á sunnudag
að hann vildi að reynt yrði að semja
við Serba um að þeir flyttu hersveit-
ir sínar á brott af svæðum sem þeir
hafa náð á sitt vald í Bosníu. Ef það
tækist ekki væri óhjákvæmilegt að
beita hervaldi. George Stephanopou-
los, talsmaður Bandaríkjaforseta,
sagði aðspurður um þetta að af hálfu
Bandaríkjastjórnar kæmi ekki til
greina að senda hermenn til Bosníu
nema til að framfylgja friðarsam-
komulagi allra fylkinganna í stríðinu.
„Fómar eigin mönnum fyrir
eldd neitt“
Sefir Halilovic, yfirmaður hers
múslima í Bosníu, sagði að „þúsund-
ir kvenna, bama og aldraðra, særðra
og örmagna manna“ væru í lífshættu
eftir eftir tíu daga árásir serbneska
hersins í austurhluta landsins. Hann
fyrirskipaði hersveitum sínum að
hefja gagnsókn gegn Serbum en yfir-
maður serbneska hersins, Ratko
Mladic, sagði útilokað að sóknin
bæri árangur. „Halilovic er að fóma
eigin mönnum fyrir ekki neitt.“
Talsmaður friðargæslusveita
Sameinuðu þjóðanna í Sarejevo sagði
að þrátt fyrir bardagana hefðu Serb-
ar samþykkt að heimila flutninga á
nauðstöddum múslimum frá tveimur
umsetnum bæjum, Konjevic Polje og
Srebrenica, síðar í vikunni.
Reuter
Fátækt mótmælt á kvennadeginum
UM 1.000 rússneskir kommúnistar efndu til mótmæla í miðborg Moskvu í gær í tilefni af Alþjóðlega
kvennadeginum og kröfðust þess að ríkisstjórnin og Borís Jeltsín forseti segðu af sér. Tugir kvenna, flest-
ar aldraðar, héldu á tómum pottum og börðu í þá með skeiðum til að mótmæla fátækt í landinu sem þær
sögðu að umbótastefna stjómarinnar hefði skapað. Á myndinni er ein þeirra með pott á höfðinu.
Áfall fyr-
ir Major
London. Reuter.
JOHN Major forsætisráð-
herra Breta varð fyrir áfalli
í gær er neðri málstofa
þingsins samþykkti breyting-
artillögu Verkamanna-
flokksins við frumvarpið um
Maastricht-samkomulagið.
Breytingartillagan sem slík
skiptir litlu máli nema hvað
talið er að hún geti tafið
lokaafgreiðslu um nokkrar
vikur.
Breytingartillagan var samþykkt
með 314 atkvæðum gegn 292. Er
þetta í fyrsta sinn frá árinu 1986
sem stjórnarandstaðan vinnur slík-
an sigur í atkvæðagreiðslu á þingi.
Fyrirfram var litið svo á að at-
kvæðagreiðslan myndi leiða í ljós
hver væri styrkur andstæðinga
Maastricht-samkomulagsins í
Ihaldsflokknum. Major reyndi ákaft
að tala um fyrir þeim en gerði jafn-
framt lýðum ljóst að hann myndi
ekki segja af sér þótt breytingartil-
lagan yrði samþykkt. Stjómmála-
skýrendur segja að niðurstaðan í
gær sé til þess fallin að grafa und-
an Major.
Spánveijar tengja gildis-
töku EES við Maastricht
Formaður utanríkismálanefndar Alþingis lýsir yfir furðu sinni
Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
SPÁNVERJAR telja sig ekki geta staðfest samninginn um
Evrópska efnahagssvæðið (EES) fyrr en að loknum þing-
kosningum í október í haust og hafa lýst yfir því að samn-
ingurinn tengist Maastricht-samkomulagi Evrópubanda-
lagsins. í yfírlýsingu Spánverja sem dreift var á frétta-
mannafundi í Brussel í gær er bent á að það fyrirheit að
staðfesta EES-samninginn fyrir 1. júlí sé pólitískt. Það sé
hins vegar ekki raunhæft.
Gaza-svæðið opnað á nýjan leik
Atök landnema og
Palestínumanna
Ere/. við Gaza-svæðið. Reuter.
PALESTÍNUMAÐUR var skotinn til bana á Gaza-svæðinu
í gær. Grunur leikur að morðingjarnir hafi verið að hefna
þess að gyðingur sem býr á Gaza var rekinn á hol í gær-
morgun.
í gær var Palestínumönnum sem
búa á Gaza-svæðinu heimilað að
fara yfir til ísraels í fyrsta sinn i
sex daga. Kom til nokkurra óeirða
við Erez-eftirlitsstöðina við mörk
Gaza-svæðisins. Einn Palestínu-
maður var skotinn. Sjónarvottar
sögðu að landnemar sem voru við-
staddir útför gyðingsins Uris Magi-
dish hefðu verið þar að verki. Magi-
dish var stunginn til bana í gær-
morgun og er hann fjórði gyðingur-
inn sem Palestínumenn á Gaza-
svæðinu drepa á einni viku. Heim-
ildarmenn innan Israelshers sögðu
að banamenn Magidish hefðu verið
starfsmenn hans. Palestínumenn
segja að Fatah-haukarnir svoköll-
uðu, sem tengjast meginhreyfing-
unni innan Frelsissamtaka Palest-
ínu, hafí lýst ábyrgð á hendur sér.
Landnemar á Gaza kröfðust þess
í gær að svæðinu yrði lokað í eina
til tvær vikur á meðan gengið yrði
milli bols og höfuðs á Palestínu-
mönnum sem réðust á gyðinga.
Reuter
Á leið frá Gaza
PALESTÍNUMÖNNUM á Gaza-
svæðinu var í gær heimilað á ný
að fara yfir til Israels. Svæðinu
hafði verið lokað í tæpa viku
eftir að Palestínumaður þaðan
myrti tvo Israela í Tel Aviv.
Viðbótarbókun við EES-samn-
inginn var samþykkt á fundi utan-
ríkisráðherra EB í Brussel í gær
og ráðherrarnir ítrekuðu að sögn
Niels Helvegs Petersens, utanríkis-
ráðherra Danmerkur, þann ásetning
aðildarríkjanna að fullgilda samn-
inginn fyrir 1. júlí. Petersen kvaðst
aðspurður ekki kannast við fyrr-
greinda afstöðu Spánveija til gildis-
töku samningsins.
Utanríkisráðherra Spánar, Javier
Solana, kvaðst á fréttamannafundi
eftir ráðherrafundinn telja að ekki
gæfíst svigrúm til að leggja EES-
samninginn fyrir það þing sem nú
situr á Spáni, þess vegna hlyti stað-
festingin að bíða þar til að loknum
kosningum sem verða í október í
haust.
Solana sagði að tilboð aðildar-
ríkja Fríverslunarbandalags Evrópu
(EFTA) um innflutningsívilnanir á
landbúnaðarafurðum m.a. frá Spáni
væri allsendis ófullnægjandi. Sþán-
veijar legðu áherslu á að fram-
kvæmdastjóm Evrópubandalagsins
tryggði betri kjör að þessu leyti
a.m.k. gagnvart þeim aðildarríkjum
EFTA sem sótt hafa um aðild að
EB. í yfírlýsingu Spánveija kemur
fram að samningurinn 'um EES
verði ekki afgreiddur nema í tengsl-
um við samning EB frá Maastricht
þar sem samningarnir séu í óijúfan-
legu samhengi í framtíðaruppbygg-
ingu evrópskrar samvinnu.
Þeir fundarmanna sem tjáðu sig
um stöðu EES eftir fundinn gerðu
lítið úr afstöðu Spánverja og sögðu
að dagsetningin 1. júlí væri í fullu
gildi. Jacques Poos, utanríkisráð-
herra Lúxemborgar, sagði að lögð
yrði áhersla á það þar að samn-
ingurinn gæti tekið gildi 1. júlí og
kvaðst telja að önnur aðildarríki EB
væru sama sinnis.
Óvenjulegt að kynnast svona
framkomu
„Það kemur mér mjög á óvart
að Spánveijar skuli enn halda í
fyrirvara sína,“ sagði Bjöm Bjarna-
son, formaður utanríkismálanefnd-
ar Alþingis, í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Það er undarlegt að
utanríkisráðherra Spánar skuli
standa að ákvörðun með öðrum ráð-
herrum EB sem miðar að því að
samningurinn taki gildi 1. júlí en
koma svo út af þeim fundi og segja
að það markmið sé óraunhæft. Það
stendur í viðbótarbókuninni að hún
eigi að taka gildi 1. júlí 1993 og
með því eru menn að binda sig póli-
tískt en auðvitað hafa allir þann
fyrirvara að þeir ráða ekki yfir
gangi mála á sínum þingum. Það
er jafnvel enn furðulegra að tengja
þetta við Maastricht-samkomulagið.
Slíkt hefur aldrei verið orðað í við-
ræðum EFTA-ríkjanna við EB. Um
framkomu Spánveija er það að
segja að það er mjög óvenjulegt að
kynnast því í fjölþjóðlegu samstarfi
að menn skuli á fundum komast að
einni niðurstöðu en lýsa því svo yfir
að þeim loknum að sú niðurstaða
sé marklaus."