Morgunblaðið - 09.03.1993, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 09.03.1993, Blaðsíða 33
r ____________________________________MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1993________________________3$- Minnst eitthundrað og fímmtíu ára tilskipunar Kristjáns VIII. um endurreisn Alþingis Ráðgjafaþingið varð vettvangnr sóknar til þjóðfrelsis og framfara ÁTTUNDA dag marsmánaðar 1843 undirritaði Kristján konungur VIII. „tilskipun um stiptun sérlegrar ráðgefandi samkomu fyrir Island, er á að nefnast Alþíng.“ 150 árum síðar 8. mars 1992 minntist Aþingi íslendinga þessa atburð- ar. í gær kom út í samvinnu Aþingis og Sögufélags ritverk dr. Aðalgeirs Kristjánssonar fyrrum skjalavarðar, Endur- reisn Alþingis og Þjóðfundurinn. Morgunblaðið/Sverrir Forsetar Alþingis og Sögufélagsins SALOME Þorkelsdóttir og Heimir Þorleifsson með bókina Endur- reisn AJþingis og Þjóðfundurinn. í upphafi 123. fundar Alþingis í gær minntist Salome Þorkelsdóttir forseti Aþingis þess að 150 ár voru liðin frá undirritun Kristjáns konungs VIII. um „stiptun sérlegrar ráðgef- andi samkomu". Þingforseti sagði að tilskipun konungs hefði verið gjöf frá konungi sem á margan hátt hefði verið hliðhollur fslendingum. Hún greindi frá þvf að í tilskipun konungs hefðu verið ákvæði um skipun þings- ins. Á þinginu skyldu eiga sæti 20 kjördæmakjömir þingmenn og sex þingmenn tilnefndir úr hópi embætt- ismanna landsins. Þá voru rækileg ákvæði um kosningar til Alþingis, kosningarétt og kjörgengi. Núverandi forseti Alþingis sagði að hvort tveggja hefði vissulega verið mjög takmarkað miðað við nútíma hug- myndir; talið væri að 5% landsmanna hefðu notið þessa réttar. Einnig hefði tilskipun konungs ákveðið að: „Fyrst um sinn á Alþíng að haldast í Reykja- vík“. Ræðumaður gat ekki undan því vikist að minnast þess að störf Al- þingis hins foma, lögréttu og yfirrétt- ar hefðu verið lögð niður árið 1800. Þá hefði svo verið komið að Alþingi var aðallega dómstóll, þinglýsinga- staður og reikningsskilastaður sýslu- mönnum og öðrum gjaldheimtumönn- um ríkisfjárhirlslunnar. En í huga þjóðarinnar var Alþingi annað og meira. Þess vegna liðu ekki mörg ár þar til krafan um endurreisn Alþing- is kom fram. Árið 1837 var lögð fram tillaga um innlent þing og ári síðar var tekin ákvörðun um að stofna til samkomu tfu æðstu embættismanna þjóðarinnar, embættismannanefndar- innar svonefndu sem kom tvívegis saman 1839 og 1841. Nútímaþing Embættismannanefndin samdi til- lögur um innlent þing og urðu þær grundvöllur konungstilskipunarinnar 8. mars 1843. Þar var farin að mörgu leyti önnur leið en ýmsir forvígismenn íslendinga vildu; eins og Fjölnismenn, einkum Tómas Sæmundsson. Jón Sigurðsson sem lengi var forseti Al- þingis átti hins vegar samleið með embættismannanefndinni að því er varðaði þingstaðinn og þá megin- stefnu að Alþingi yrði nútímaþing, sniðið að þörfum og aðstæðum síns tfma. Hins vegar vildi Jón Sigurðsson veita Alþingi meiri völd. Salome Þor- kelsdóttir núverandi forseti Alþingis sagði að nú efuðst fáir um að stefna Jóns Sigurðssonar í Alþingismálinu hefði verið rétt og orðið þjóðinni til farsældar. Það dróst í rúm tvö ár að hið end- urreista Alþingi kæmi saman til fyrsta fundar en það varð 1. júlí 1845. Þótt völd og störf Alþingsins hefðu vissulega verið takmörkuð hefðu áhrif þingsins strax verið mikil á þjóð- ina. Það varð vettvangur foiystu- manna hennar í sókn til þjóðfrelsis og framfara. Jafnan gagnrýnt Salome Þorkelsdóttir þingforseti sagði að störf Alþings sættu jafnan gagnrýni. Haraldur Guðmundsson forseti sameinaðs Alþingis hefði vikið að þessu fyrir nákvæmlega 50 árum, 8. mars 1943, þegar aldarafmælis tilskipunarinnar hefði verið minnst. Haraldur taldi gagnrýnina vera af tvennum toga. Annars vegar frá þeim sem í raun og veru óskuðu eftir að vegur og sómi Alþingis væri sem mestur. Þeim hefði Haraldur svarað með tilvitnun til Jóns Sigurðssonar: „Varla er sú list, að menn hafi jafn- lengi þreytt með óvissum árangri og landstjómarlistina." Undir þetta gætu þingmenn tekið. Alþingi og störf þess yrðu aldrei hafin yfír gagn- rýni sem á rökum væri reist. En Haraldur Guðmundsson einnig vikið að þeim sem: „Hallmælá Alþingi og spá því illspám." Haraldur hefði sagt: „Gagnrýni þessara manna er ekki flutt til þess að koma fram umbótum á starfsháttum eða stefnu þingsins, heldur fyrst og fremst eða eingöngu í því skyni að svipta Alþingi trausti og tiltrú fólksins. Þeim er ljós sá sannleikur, að ef Alþingi nýtur ekki trausts þjóðarinnar, er það veikt og lítils megnugt." Salome Þorkelsdóttir þingforseti virtist þessi orð eiga jafn- vel við nú árið 1993 og þegar þau voru sögð á sama stað árið 1943. Við lok sinnar ræðu bað forseti Alþingis þingmenn um að minnast þessara tímamóta og starfa þeirra sem áttu hlut að endurreisn Alþingis með því að rísa úr sætum. Aðgengilegt grundvallarrit Að loknum 123. þingfundi, laust eftir kl. 16., komu þingmenn saman í efrideildarsal Alþingishúsins en þar er nú setustofa þingmanna. Þar sagði forseti Alþingis að fyrrverandi for- setar sameinaðs Alþingis, Þorvaldur Garðar Kristjánsson og Guðrún Helgadóttir, ásamt deildarforsetum hefðu stefnt að því að minnast þess- ara tímamóta árið 1993. Hefði dr. Aðalgeir Krisijánsson fyrrverandi skjalavörður við Þjóðskjalasafn ís- lands verið fenginn til að rita um sögu endurreisnar Alþingis. Sam- vinna við Sögufélagið hefði tekist um útgáfu verksins og nú væri þeim áfanga náð. Hún þakkaði Sögufélag- inu gott samstarf og Aðalgeiri Krist- jánssyni vildi hún þakka þetta ágæta verk. Heimir Þorleifsson forseti Sögu- félagsins þakkaði fyrir hönd síns fé- lags Alþingi fyrir það traust sem það hefði sýnt félaginu með því að fela þvf útgáfu á afmælisritinu Endur- reisn Alþingis og Þjóðfundurinn. Heimir sagði að þegar Sögufélaginu hefði borist handrit dr. Aðalgeirs í hendur hefði strax verið ljóst að hér væri um grundvallarrit um sögu ís- lands á fyrri hluta 19. aldar að ræða. Höfundur hefði í þessu verki nýtt mikla þekkingu sína á skjalagögnum og öðrum heimildum um sögu íslands á tfmabilinu 1815-51 og unnið úr þeim traust fræðirit sem einnig væri ipjög aðgengilegt til lesturs. í bókinni væri Qallað um aðdragandann að endurreisn Alþingis m.a. áhrifum júlí- byltingarinnar 1830 í ríki Danakon- ungs, endurreisn Alþingis. Áhrifum febrúarbyltingar 1848 og Þjóðfundin- um 1851. Það kom fram að margt hefur breyst frá því að Kristján VIH. gaf út tilskipun um að láta „sína kæru og trúu undirsáta á því landi íslandi njóta góðs af ráðgefandi samkomu". Rúmum tveimur árum síðar gátu 20 fulltrúar íslensku þjóðarinnar og 6 þingmenn tilnefndir af konungi lagt á ráðin um málefni lands og lýðs. En þeir áttu að sitja á rökstólum einn mánuð í senn, annað hvert ár. Forseti Sögufélagsins afhenti for- seta Alþingis fyrsta eintakið af af- mælisritinu og ámaði Alþingi allra heilla á þessum afmælisdegi. Forseti Alþingis tók við bókinni og bað húá*^ viðstadda þingmenn um að vitja fleiri eintaka af bókinni sem yrðu afhent í hliðarsal. ÞINGFORSETI bað þingmenn um að minnast þessara tímamóta og starfa þeirra sem áttu hlut að endur- reisn Alþingis með því að rísa úr sætum. Tímabært endurmat á iðn- og verkmenntun Svavar Gestsson fyrrum menntamálaráðherra hrósar Vinnuveitendasambandinu ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA fjögurra framsóknar- manna um endurmat iðn- og verkmenntunar varð tilefni til nokkurra umræðna á 123. fundi Alþingis í gær. Flutn- ingsmenn vilja að menntamálaráðherra kveði saman starfs- hóp er hafi það verkefni að endurmeta iðn- og verkmennt- un í landinu. Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra bendir á að 18 manna starfshópur um mótun menntastefnu hafi fjallað um þetta mál. Menntamálaráðherra væntir þess að tillögur nefndarinnar muni liggja fyrir á næsta Alþingi. Svavar Gestsson fyrrum menntamálaráðherra hvetur til samvinnu og samninga við atvinnulífið. Hann sagði sína reynslu að í Vinnuveitendasambandi íslands, VSÍ, væru jákvæð viðhorf til óhjákvæmilegra breytinga á verkmenntakerfinu. Þingsályktunartillaga fjórmenn- inganna er svohljóðandi: „Alþingi ályktar að ein af forsendum þess að innlendur iðnaður standist aukna samkeppni háþróaðra iðnríkja sé að nauðsynlegar úrbætur verði gerðar á iðn- og verkmenntun í landinu. Forsenda aukinnar framlegðar í ís- lensku atvinnlífi muni í næstu fram- tíð byggjast á frekari sérhæfingu og vaxandi verkmenntun. Margvísleg rök hnígi að því að iðn- og verk- menntun verði nú skilgreind að nýju með tilliti til fjölbreytilegra nýjunga í verklegu og bóklegu námi, bættra tengsla skóla og atvinnulífs og auk- innar fræðslu til almenns rekstrar. Því samþykkir Alþingi að kveðja saman starfshóp er hafi það verkefni að endurmeta iðn- og verkmenntun í landinu og gera tillögur að breyttu og bættu skipulagi. Starfshópurinn ljúki störfum eigi síðar en í mars 1994.“ Fyrsti flutningsmaður þessar- ar tillögu er Stefán Guðmundsson (F-Nv) en meðflutningsmenn eru Finnur Ingólfsson (F-Rv), Valgerður Sverrisdóttir (F-Ne) og Guðni Ág- ústsson (F-Sl). Fjöldi þingmanna tók til máls um tillöguna og fögnuðu allir undantekn- ingalaust umræðu um iðnfræðslu og verkmenntun á íslandi. En það kom einnig fram í ræðum þeirra að þeir hefðu áður heyrt fögur orð um nauð- syn þess að bæta og breyta í þessum málum. Ólafur G. Einarsson mennta- málaráðherra vitnaði til áfanga- skýrslu svonefndrar 18 manna nefndar en þar kemur skýrt fram að verulegra umbóta er þörf. Menntamálaráðherra sagði að þessi þáttur fræðslumálanna hefði fengið verulega umfjöllun í starfi nefndar- innar og yrði svo áfram. Hann vænti þess að nefndin myndi skila mótuðum tillögum fyrir næsta Alþingi. Verðug rannsóknarefni Svavar Gestsson fyrrum mennta- málaráðherra taldi að helst þyrfti að skipa starfshóp til að kanna hvers vegna svo lítið hefði orðið úr úrbótum og framkvæmdum þrátt fyrir öll þau fögru orð sem fallið hefðu um nauð- syn iðn- og verkmenntunar, tengsl atvinnulífs og skóla o.s.frv. Niður- staðan væri samt sú að þátttaka ungra karla og kvenna f verknámi væri æ minni. Svavar vildi tilgreina nokkrar ástæður. Menn hefðu verið fastir í gömlum formum og tregir til að taka upp nýjungar. Einnig hefði orðið fækkun í hefðbundnum iðn- greinum. Einnig væri sterk hefð og virðing fyrir bóknámi í þessu landi. Þetta væri í sjálfu sér ekki neikvætt svo fremi sem þessi hefð hamlaði ekki þróun á öðrum sviðum. En Svav- ar taldi samt eina aðalástæðuna vera hreinan og beinan peningaskort. Það væri svo að bóknámið kostaði minna. Stúdentamir væru ódýrari en iðnað- armennimir. Svavar sagði orðið ljóst að rikið ætti ekki og myndi aldrei geta séð skólum þessa lands fyrir þeim tólum og tækjum sem þyrfti til iðn- og verknáms. Það þyrfti að taka upp þá skólastefnu að semja við atvinnu- lffið um aðgang að þessum tækjum. Svavar sagði einnig að meistarakerf- ið eða „sveinsprófakerfið" væri orðið fjötur um fót í þessum efnum. ASÍ Fyrrum menntamálaráðherra sagði að Alþýðusamband íslands, sem hefði haft með að gera ákveðna hlið þessara mála í iðnfræðsluráði, hefði að sínu mati „ekki komist að eðlilegri þróunarvinnu, af því að menn hafa verið svo blýfastir, reyrð- ir í þetta gamla og staðnaða og sein- virka sveinsprófakerfi". Það virtist ekki vera hægt að taka upp nýjar iðngreinar, s.s. í plastiðnaði o.fl. Svavar sá þó margt jákvætt vera að gerast. Alþýðusambandsþing hefði fjallað um þessi mál. Svavar varð þó að játa að hann hefði ekki verið hrifínn af öllu sem þar hefði komið fram, „en það var þó talað um málið“. Svavar sagði að atvinnu- lífsbrautir sem stofnaðar hefðu verið við nokkra framhaldsskóla hefðu sumstaðar gengið sæmilega. VSÍ En það sem vantaði væru samn- ingar við atvinnulífið, sérstaklega Vinnuveitendasamband íslands, VSÍ. Svavar Gestsson fyrrum mennta- málaráðherra sagði: „Ég vil segja það af minni reynslu, að í Vinnuveit- endasambandinu eru jákvæð og opin viðhorf gagnvart óhjákvæmilegura breytingum á verkmenntakerfinu.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.