Morgunblaðið - 09.03.1993, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1993
+
Eiginkona min og móðir okkar,
GUÐRÍÐUR SIGMUNDSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn 7. mars.
Ríkarður Ingibergsson
og synir.
+
Eiginmaður minn, JÓN KR. JÓHANNSSON
frá Þórshöfn,
er látinn.
Jarðarförin auglýst siðar.
Marfa Jóhannsdóttir.
Sveinfríður Guðrún
Sveinsdóttir - Minning
Fædd 30. apríl 1929
Dáin 16. febrúar 1993
Góður félagi úr samtökum okkar
hefur kvatt. Einörð var hún, hrein-
skiptin og heil í hverju sem hún tók
sér fyrir hendur. Slíkir eru ekki of
margir. Við minnumst baráttukon-
unnar með ljóði Snorra Hjartarson-
ar, Land þjóð og tunga.
Land þjóð og tunga, þrenning sönn og ein,
þér var ég gefinn barn á móðurkné;
ég lék hjá þér við læk og blóm og stein,
þú leiddir mig í orðs þíns háu vé.
Á dimmum vegi dýrð þín um mig skein,
í dögun þeirri er líkn og stormahlé
og sókn og vaka: eining hörð og hrein,
þú heimtar trúnað, spyr hver efnd mín sé.
Þú átt mig, ég er aðeins til í þér.
Örlagastundin nálgast grimm og köld;
hiki ég þá og bregðist bý ég mér
bann þitt og útlegð fram á hinsta kvöld.
ísland, í lyftum heitum höndum ver
ég heiður þinn og líf gegn trylltri öld.
Eftirlifandi eiginmanni og Qöl-
skyldu þeirra vottum við innilega
samúð.
F.h. Menningar- og friðarsam-
taka íslenskra kvenna,
Margrét Guðmundsdóttir.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐJÓN HAFSTEINN JÓNATANSSON,
Hamraborg 32,
Kópavogi,
lést þann 8. mars sl.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
+
Móðursystir okkar,
VIGDI'S JÓNASDÓTTIR,
lést 24. febrúar.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Lilja Magnúsdóttir,
Svana Magnúsdóttir,
Sigrún Magnúsdóttir.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ELÍN JÓNSDÓTTIR
frá Ólafshúsum,
Eyjahrauni 5,
Vestmannaeyjum,
lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 6. mars.
Erla Þorvarðardóttir,
Hilmir Þorvarðarson,
Sigriður Þórðardóttir,
Þorvarður Þórðarson,
tengdabörn og barnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og mágkona,
NANNA SNÆDAL,
Álfaskeiði 44,
Hafnarfirði,
andaðist í Landspítalanum 7. mars.
Jakob Bjarnar Grétarsson, Steinunn Ólafsdóttir,
Atli Geir Grétarsson, Nanna Elísa Jakobsdóttir,
Stefán Snær Grétarsson, Guðlaug Elisa Kristinsdóttir.
Mikael Calatayud
- Minningarorð
Fæddur 16. september 1928
Dáinn 7. febrúar 1993
Við Mikael Calatayud hittumst
fyrst árið 1973 á Spáni, þar sem
ég átti þá heima. Hann hafði komið
í sumarfrí til Paiporta tvö árin þar
á undan ásamt Helgu, eiginkonu
sinni, og börnunum og dvaldist fjöl-
skyldan í nýrri íbúð, sem þau hjón-
in voru búin að festa kaup á.
ERFIDRYKKJUR
Verð frá kr. 850-
ríáú^
PERLAN sími 620200
HAFNARSTRÆTI 4 SIMI 12717
Skreytíngar
unnar af
fagmönnum
OPIÐ KL. 9- 19
Erfidrykkjur
Glæsileg kalli-
lilaðborð fallegir
salir og ííijög
gtkl þjónusta.
Ipplysingar
Þessi ár sem þau dvöldust í fríum
sínum á Spáni voru mér ný upplif-
un, sérstaklega vinátta okkar
Sigga, fóstursonar Mikaels, því að
samskiptin þurftu að fara fram með
hjálp Mikaels vegna tungumálaörð-
ugleika.
Mér leið alltaf vel í návist Mika-
els og þótti gott að leita ráða hjá
honum. Hann hafði kærleika og
heiðarleika ávallt að leiðarljósi.
Mikael hugðist reyna fýrir sér á
Spáni sem fyrrum bankastarfsmað-
ur, en vegna aldurs og atvinnuleys-
is í greininni þurfti hann frá að
hverfa, svo að ferðinni var heitið
til Bergen, þar sem hann hafði
unnið í mörg ár við ýmis störf.
Löngun mín til að kynnast nýjum
heimi varð til þess að ég fékk að
koma með í ferðina til Bergen að-
eins 16 ára að aldri. Ferðin endaði
á íslandi, þar sem ég bjó í nokkur
ár í skjóli þessarar yndislegu fjöl-
skyldu.
I dag kveð ég Mikael vin minn:
En minning þín
er mjúk og hlý
og mun oss standa nærri.
Með hveiju vori hún vex á ný
og verður ávallt kærri.
(Mapús Ásgeirsson)
Helga mín, við hjónin sendum
þér, börnum þínum og öðrum ást-
vinum innilegar samúðarkveðjur.
Anton Fernández.
Guðjón Jónsson
Stokkseyri - Minning
Fallinn er frá ágætur vinur minn,
Guðjón Jónsson í Starkaðarhúsum
á Stokkseyri. Þessi trausti og reglu-
sami maður hefur háð erfiða bar-
áttu við illvígan sjúkdóm sem á
endanum lagði hann að velli.
Ég kynntist Guðjóni árið 1985
er ég hóf að klippa á Stokkseyri,
en brátt varð hann einn af mínum
tryggustu viðskiptavinum og félög-
um. Eins og nærri má geta var oft
glatt á hjalla og þjóðmálaumræður
fjörugar á rakarastofunni þar sem
hittust allir helstu höfðingjarnir á
Stokkseyri. Margir þeirra hafa nú
kvatt þennan heim, eins og Þórður
í Sunnutúni, Halli Júlla, bræðurnir
Óskar og Frímann, Gísli Gíslason,
Óskar í Sjónarhól og Jón í Söndu.
En svona er lífsins gangur.
Guðjón aðstoðaði mig við smíðar
og uppsetningu þegar ég flutti
rakarastofuna á Vegamót og ekki
var viðlit að fá hann til að taka
krónu fyrir það. Ég er þakklátur
trygglyndi hans við mig og það er
mér gott veganesti inn í framtíðina
að hafa kynnst slíkum manni.
Snyrtimennska og hirðusemi
voru hans aðalsmerki og það vissi
ég að honum leið vel eftir að ég
snyrti hann á sjúkrahúsinu nú fyrir
nokkum dögum.
Sunnudagsbíltúramir hans Guð-
jóns og Björgvins verða ekki fleiri
á Laugarvatn að sinni og ég fæ
ekki að heyra hans skemmtilegu
tilsvör og orðatiltæki í bráð. Þetta
geymir safn minninganna.
Ég vil að endingu þakka forsjón-
inni fyrir að hafa fengið að kynn-
ast Guðjóni og votta ástvinum hans
mína dýpstu samúð.
Kjartan Björnsson.
FLUGLEIÐIR
HÓTEL LÓFTLEIlia
108 Reykjavfk. Sfmi 31099
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUÐJÓN VALGEIRSSON,
andaðist í Landspítalanum 7. mars.
Jarðarförin verður ákveðin síðar.
Hallveig Halldórsdóttir,
Valgeir Guðjónsson, Ásta Kristrún Ragnarsdóttir,
Guðrún Arna Guðjónsdóttir, Pétur Bjarnason,
Sigriður Anna Guðjónsdóttir, Ragnar Marteinsson
og barnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA GUÐRÚN BJARNADÓTTIR,
Ökrum við Nesveg,
verður jarðsungin í dag, þriðjudaginn 9. mars, kl. 15.00 í Seltjarn-
arneskirkju.
Bjarni V. Guðmundsson, María B. Sveinsdóttir,
Gunnlaugur Guðmundsson, Hildur Hlöðversdóttir,
Jón E. Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.