Morgunblaðið - 09.03.1993, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1993
Verðlaun í samkeppninni eru ferð fyrir heilan bekk ásamt kennurum
til Færeyja.
Verðlaun afhent í skóla-
samkeppni um Færeyjar
NORRÆNA húsið í Reykjavík og Norðurlandahúsið í Færeyjum
efndu fyrir nokkru til sérstakrar kynningar í skólum á íslandi. Öll
ellefu ára börn í skólum landsins fengu sendan sérprentaðan bækl-
ing um Færeyjar, og einnig var ráðist í samkeppni um nemenda-
vinnu með Færeyjar. Gefið var frjálst í hvaða mynd skólar skiluðu
sýnishornum af vinnu nemenda, en beðið um að formið hentaði sýn-
ingu sem sett hefur verið upp í Norræna húsinu í tengslum við dag-
skrá Færeyskra daga í marsmánuði. Fyrstu verðlaun hlaut 6.A í
Myllubakkaskóla í Keflavík.
Margir skólar fengu lánað efni
og nutu ráðgjafar í tengslum við
nemendavinnu þessa, en alls sendu
14 bekkjardeildir frá 11 skólum,
alls staðar af landinu, inn gögn.
Barst dómnefndinni, sem skipuð var
Jan Klovstad, forstöðumanni Norð-
urlandahússins í Færeyjum, Kirstin
Didriksen, lektor í dönsku við Há-
skóla íslands, og Sigurlinu Svein-
bjamardóttur, skólamálafulltrúa
Norræna hússins, myndverk, vegg-
spjöld, bæklingar, ritgerðir, ljóð,
frásagnir, hljómbönd og myndbönd.
í fréttatilkynningu frá nefndinni
segir að ákaflega erfítt hafí verið
að velja einn vinningshafa, og því
hafí verið ákveðið að allir bekkir
sem tóku þátt í samkeppninni fái
senda viðurkenningu í formi gjafar.
Verk vinningshafa eru sýnd í
bókasafni Norræna hússins, en önn-
ur verk verða sett upp um miðjan
mars og þá verður skólum boðið
sérstaklega ac" koma í heimsókn í
húsið. Einnig er vonast til að hluti
af sýningunni geti orðið farandsýn-
ing og farið um landið, og sumt
jafnvel gagnast sem kennsluefni um
Færeyjar í skólum.
6.A í Myllubakkaskóla var afhent
verðlaun sín, sem var m.a. ferð fyr-
ir allan bekkinn ásamt tveimur
kennarum til Færeyja í boði Flug-
leiða og Norðurlandahússins í Fær-
eyjum, laugardaginn 6. mars síðast-
liðinn, þegar dagskrá færeyskra
menningarhátíðar var sett í Nor-
ræna húsinu.
VORIÐ
KALLAR
______Leiklist_______
Hávar Sigurjónsson
Fúría, Leikhópur Kvennaskól-
ans í Reykjavík, sýnir: Vorið
kallar eftir Frank Wedekind.
Leikstjóri Viðar Eggertsson.
Leikmynd og búningar leikhóp-
urinn. Lýsing Kári Gíslason.
Sýnt í Gamla Verslunarskólan-
um við Grundarstíg.
Leikritið Vorið kallar er eitt af
helstu tímamótaverkum í sögu þý-
skrar leikritunar. Það er skrifað
árið 1891 en fékkst þó ekki fært
á svið óstytt og óbjagað fyrr en
töluvert eftir lok seinni heimsstyij-
aldar. Það þótti siðspillandi, dóna-
legt, byltingarkennt. Nasistarnir
froðufelldu ef minnst var á það.
Allt bendir þetta til þess að um
gott leikrit sé að ræða.
Verkið var þó frumsýnt í Berlín
árið 1906, þar sem Max Reinhardt
leikstýrði og Wedekind lék hlutverk
grímuklædda mannsins. Þrátt fyrir
að verkið hefði mátt þola harkalega
ritskoðun var uppfærsla Reinhardts
leikin nær 700 sinnum næstu 20
árin með fjöldamörgum breyting-
um á leikendahópnum að sjálf-
sögðu.
Vorið kallar er verk ungs manns
um ungt fólk. Ungt fólk sem er
að vakna til lífsins og finnur kyn-
hvötina gera vart við sig, en einnig
- og það skiptir ekki síður máli -
er það að vakna til vitundar um
umhverfíð, byija að skynja sjálft
sig í samfélagi við annað fólk. Þessi
hlið á „Vorinu“ er hinn ljúfsári,
angurværi tónn sem dýpkar stöð-
ugt er líður á verkið og verður í
lokin að harmþrungnum slætti.
Vakning unga fólksins er svo kæfð
og kramin í moldinni af fullorðna
fólkinu - skólakerfínu og fjölskyld-
unni fyrst og fremst - þar sem
járnaga er beitt til að beygja ungl-
ingana til hlýðni við hina einu réttu
hugsun og stefnu, þ.e. að verða að
fullorðinni manneskju sem sker sig
ekki úr hópnum. Innsti kjami þessa
verks fjallar um ótta þjóðfélagsins
við tilfinningalegt frelsi einstakl-
ingsins, ótta sem brýst út í grimmd-
arlegri bælingu á tilfinningum
unglinganna og um leið sýnir We-
dekind okkur afleiðingarnar; full-
orðna fólkið sem er nánast tilfínn-
ingalega lamað.
Þrátt fyrir að íslenskt þjóðfélag
ársins 1993 sé um margt ólíkt
Þýskalandi keisaratimans fyrir 100
árum, er þó margt í þessu leikriti
sem snertir enn samviskuna og
vekur upp spumingar um hvort við
séum orðin svo miklu þroskaðri í
mannlegum samskiptum þrátt fyrir
öll rafmagnstækin. Ekki síst verður
áleitin ádeila Wedekinds á refsi-
löngun þjóðfélagsins yfír óhörðnuð-
um unglingum. Þetta er sígilt leik-
rit sem á fullt erindi við okkur öll
í dag.
Leikhópurinn Fúría flytur þetta
verk af dugnaði, þó segja verði að
á köflum sé unnið meira af vilja
en mætti. Sérstaklega var skýrleika
í framsögn ábótavant og skar sig
þar enginn frá öðrum nema þær
Þórhildur Ýr Valsdóttir í hlutverki
Wendlu og Brynja Þorgeirsdóttir í
hlutverki Elsu og skólastýmnnar.
Þá gerði Víðir Oli Guðmundsson
vel í hlutverki Moritz en framsögn-
in vann stundum óþarflega á móti
honum.
Ýmislegt í þessu leikriti er einn-
ig þess eðlis að ef skortir á skilning
leikendanna verður úr hálfgerður
óskapnaður. Með því opnast líka
dymar að asökunum um siðleysi
verksins. Ýmsar breytingar og
styttingar sem leikstjórinn hefur
gert til að sníða verkið að þörfum
leikhópsins em heldur ekki til þess
fallnar að gera áhorfendum léttara
fyrir með skilning á upprunalegu
samhengi. Má þó segja að í sumum
tilfellum bijóti nauðsyn lög og í
heildina er það ánægjuefni að leik-
hópurinn hafi valið að taka þetta
áleitna verk til sýninga.
♦ ♦ ♦------
Norræna húsið
Færeyskir dag-
ar 6.-14. mars
Þriðjudagur 9. mars:
Kl. 12.30. Kvikmyndin „1700
meter frá framtíðina“ eftir Ullu
Boje Rasmussen.
Kl. 17.00. Fyrirlesturinn „For-
oysk myndalist" eftir Bárð Jákups-
son.
Kl. 20.30. Tónleikar með Emst
Sondum Dalsgarð flautuleikara og
Johannes Andreassen píanóleikara.
Verk eftir Beethoven, Debussy, Kr.
Blak, S. Rasmussen, P. Taffanel,
Ib Norholm og Fr. Kuhlau.
Barokktónlist í
r
FLUGLEIÐIR
4»
Aðalfundur Flugleiða hf.
Aðalfundur Flugleiða hf. verður haldinn
fimmtudaginn 18. mars 1993 í Höfða,
Hótel Loftleiðum, og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10 gr. samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar
í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins, munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, 7 dögum fyrir aðal-
fund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á aðalskrif-
stofu félagsins, Reykjavíkurflugvelli, hlutabréfadeild á 2. hæð, frá og
með 11. mars kl. 14.00.
Dagana 12. til 17. mars verða gögn afgreidd frá kl. 09.00 til 17.00 á
fundardag til kl. 12.00.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja fundargagna sinna fyrir
kl. 12.00 á fundardegi.
Stjórn Flugleiða hf.
Hallgrímskirkju
í KVÖLD, þriðjudaginn 9. mars,
verða haldnir tónleikar í Hall-
grímskirkju kl. 20.30 þar sem
leiknir verða fjórir virtúósa-kon-
sertar fyrir blokkflautu og
strengjasveit eftir Telemann og
Vivaldi. Flytjendur eru CamiIIa
Söderberg blokkflautuleikari
ásamt Bach-sveitinni í Skálholti.
Á seinustu árum hefur verið að
mótast sérhæfð hljómsveit í flutn-
ing barokk-tónlistar í Skálholti.
Keppt er að því að búa hana upp-
runalegum hljóðfærum og hefur
Þjóðhátíðarsjóður síðastliðin fjögur
ár veitt styrk til hljóðfærakaupa. Á
tónleikunum í kvöld verður leikið á
fíðlu, lágfíðlu, knéfíðlu (selló) og
bassafíðlu í eigu sumartónleikanna
en einnig á sembal, sem er í eigu
sóknarprestsins í Skálholti. Camilla
Söderberg leikur á hljóðfæri sem
smíðuð eru af blokkflautusmiðnum
Adrian Brown. Sænski fíðluleikar-
inn Ann Wallström er er konsert-
meistari Bach-sveitarinnar, en aðrir
í sveitinni eru Lilja Hjaltadóttir,
Svava Bernharðsdóttir, Ólöf Sess-
elja Óskarsdóttir, Páll Hannesson,
Helga Ingólfsdóttir og Snorri Öm
Snorrason.
------♦ ♦ ♦------
Herranótt
sýnir Drekann
LEIKFÉLAG Menntaskólans í
Reylqavík, Herranótt, setur upp
leikritið Drekann eftir Jewgeni
Schwartz. Leikstjóri er Hallmars
Sigurðsson og leikmynda- og
búningahönnuður er María Vals-
dóttir.
Leikritið er pólitísk háðsádeila
og var skrifað 1942. Frumsýning
var 1. mars og sýningar standa til
14. mars. Sýniningar verða í Tjam-
arbæ (gegnt Ráðhúsinu) og hefjast
kl. 20.
(Fréttatilkynning)
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2 - simi 17800
Bútasaumur
Kennari: Bára Guðmundsdóttir.
16. mars til 20. apríl. Þriðjudaga kl. 19.30-22.30.
Skráning fer fram á skrifstofu skólans mánudaga
-fimmtudaga kl. 14-16 í síma 17800.
i j ■ — i . *« • —r * i —. • ■_ i _