Morgunblaðið - 09.03.1993, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSHPn/AIVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1993
Stjórnun
Framleiðsluhermar
Öflug verkfæri fyrir skipulagningu og áætlanagerð
eftir Kristján Björn
Garðarsson
Mikil aukning hefur átt sér stað
hin síðari ár erlendis í notkun hermi-
tækni við undirbúning ýmiskonar
framleiðslu og þjónustu. Víða hefur
hörð samkeppni orðið til þess að
þrýsta á enn frekari notkun sjálf-
virkni til að bæta framleiðni, auka
gæði og minnka kostnað.
‘ Sá galli er þó á gjöf Njarðar að
sjálfvirk kerfi eru oft mjög flókin og
erfitt getur reynst að greina þau ef
ekki eru tiltæk öflug verkfæri til
þeirra hluta. En það er einmitt hér
sem hermitækni fær notið sín,
þ.e.a.s. við könnun á hegðan flókinna
kerfa að gefnum ákveðnum forsend-
um.
Það sem hefur leitt til útbreiðslu
hermilíkana er m.a. veruleg lækkun
kostnaðar vegna tölvubúnaðar og
miklar framfarir í forritunarmálum
sem hafa orðið til að stytta þann tíma
sem tekur að þróa slík líkön. Þá má
geta þess að möguleikar á mynd-
rænni framsetningu á hermiathug-
unum geta stóraukið skilning þeirra
sem ekki hafa mikla þekkingu á
þessu sviði.
Notagildi
Hermilíkön af verksmiðjum auð-
velda m.a. leit að flöskuhálsum í
framleiðslurásum svo þeim megi
kippa í liðinn áður en ráðist er í Qár-
festingar og framkvæmdir. Líkön
geta einnig veitt svör við mörgum
spumingum sem oft gerast áleitnar
við stjómendur í framleiðslu, svo
sem:
— Hvað gerist af framleiðslutími
vöru lengist/styttist?
— Hver eru áhrif viðbótar í véla-
kosti/mannafla?
— Hver em áhrif bilana á afköst
í framleiðslu?
— Hvað eiga millilagerar að vera
stórir?
Við skipulagningu á þjónustu svo
sem verslunum og bönkum getur lík-
an t.d. veitt svar við eftirfarandi
spurningu:
— Hvað á að hafa marga af-
greiðslukassa svo að biðraðir verði
ekki óhóflega langar?
Ráðgjöf
Atliuganir með líkönum
Oft er árangursríkt að skoða raun-
vemlegt kerfi af tiltekinni stærðargr-
áðu til að átta sig á einhverju í hegð-
an þess. Samt sem áður er venjulega
nauðsynlegt að notast við líkan við
athugun á hegðan kerfisins, því til-
raunir með hið raunvemlega kerfi
mundu valda tmflunum, vera kostn-
aðarsamar eða einfaldlega ómögu-
legar, t.d. vegna þess að alls ekki
væri búið að byggja viðkomandi
kerfí.
Sem dæmi má taka framleiðslufyr-
irtæki sem fyrirhugar að byggja
mikla stækkun við eina af verksmiðj-
um sínum en vissa er ekki fyrir hendi
um hvort hugsanlegur ávinningur í
framleiðni muni réttlæta kostnaðinn
sem hlýst af framkvæmdinni. Hent-
ugt hermilíkan gæti varpað nokkm
ljósi á þessa spumingar með því að
gera kleift að athuga gang fram-
leiðslunnar miðað við núverandi
ástand og einnig miðað við fyrirhug-
aða stækkun.
Ef þau sambönd sem viðkomandi
kerfi samanstendur af em einföld
er hugsanlegt að nota stærðfræðileg-
ar aðferðir til að fá fram nákvæmar
upplýsingar. En því miður em flest
framleiðslukerfi of flókin til að raun-
hæft megi teljast að greina þau
stærðfræðilega. Oftast er því væn-
legri kostur að beita hermitækni við
greininguna og fá þannig fram rök-
studda vísbendingu um væntanlega
hegðan kerfisins, byggða á líkindum.
Töflureiknar og hermilíkön
Á níunda áratugnum hefur vöxtur
og viðgangur allskonar tölvulíkana
aukist mjög í heiminum. Augljósasta
dæmið er trúlega hvérnig menn tóku
að nýta sér töflureikna við gerð íjár-
hagsáætlana, en þama er einmitt um
tölvulíkön að ræða. Fáir láta sér
detta í hug að taka meiri háttar eða
bara miðlungs stórar fjármálalegar
ákvarðanir án þess að byggja tölvu-
líkan með þar til gerðum töflureikni.
Þetta var bylting á sínum tíma í fjár-
málaheiminum en núna er þetta að-
eins sjálfsagður hluti af menning-
unni.
Hægar hefur gengið að taka í
notkun slík tölvulíkön í heimi fram-
leiðslunnar (í sama mæli og fjármál-
unum), en fyrir því eru þó gildar
ástæður. í fyrsta lagi eru þau kerfi
sem lýsa þarf miklu flóknari. Fram-
leiðslukerfí eru samsett úr mörgum
þáttum og getur samspil þeirra verið
afar flókið. Að lýsa þessum oft fló-
knu samböndum í tölvulíkani krefst
ákveðinna yfírburða í hugbúnaði.
Ennfremur má geta þess að eftir því
sem þessir hlutir verða margbrotnari
þá er eðlilegt að ætla að lengri tíma
taki að tileinka sér þessa tækni.
Hugbúnaður
Meðal útbreiddra forritunarmála
fyrir hermilíkön í Bandaríkjunum eru
SIMAN, GPSS/PC, SLAM-II og
SIMSCRIPT II.5 svo einhver séu
nefnd sem fáanleg eru í útgáfum
fyrir einkatölvur. Rétt er að taka
fram að mikill fjöldi hugbúnaðar-
„pakka“ fyrir hermilíkön er á mark-
aðnum, og eru þeir mjög misdýrir í
innkaupum.
Flest meiri háttar hermiforrit eru
nú orðið einnig seld með möguleikum
á myndraénni framsetningu (animati-
on graphics). Þetta þýðir að það sem
er að gerast í forritinu birtist á skján-
um sem mynd líkt og þekkt er frá
ýmsum svokölluðum tölvuleikjum
sem í raun eru ekki annað en hermi-
forrit. Þetta er einkum gagnlegt við
villuleit og til að prófa hvort öll rök
fái staðist í forritinu. Sérstaklega er
þetta þó gagnlegt til að koma niður-
Nýr áfangi í verkefn-
inu Frumkvæði/framkvæmd
Ámi Sæberg
RAÐGJOF — Prentsmiðjan Oddi er meðal þeirra fyrirtækja
sem tekið hafa þátt í verkefninu Frumkvæði/framkvæmd. Á myndinni
eru f.v. þeir Þórður Valdimarsson og Karl Friðriksson sem sæti eiga
í stjórn verkefnisins ásamt Knúti Signarssyni, skrifstofustjóra Odda.
IÐNLÁNASJÓÐUR OG Iðn-
tæknistofnun hafa ákveðið að
hefjast handa með nýjan áfanga
í ráðgjafarverkefninu Frum-
kvæði/framkvæmd. Frá því það
hófst á fyrri hluta ársins 1991
hafa verið unnin 45 ráðgjafar-
verkefni í 27 fyrirtækjum. Ráð-
gert er að 15-17 fyrirtækjum
verði boðin þátttaka í hinum
nýja áfanga.
Megintilgangur verkefnisins er
að veita fyrirtækjum ráðgjöf við
stefnumótun, fjárhagslega endur-
skipulagningu og fjármálastjórnun,
vöruþróun og markaðsaðgerðir,
framleiðsluskipulagningu og gæða-
stjórnun. Gert er ráð fyrir að fyrir-
tækin sjálf meti þörf sína fyrir ráð-
gjöf innan marka þeirra sviða sem
í boði eru. Verkefnisstjóri vinnur
með fyrirtækjunum við að skil-
greina verkefnin. Síðan velur fyrir-
tækið ráðgjafa í samráði við verk-
efnisstjóra. Fyrirtækið og ráðgjaf-
inn leysa verkefnið í sameiningu
en verkefnisstjóri gegnir eftirlits-
hlutverki og er bakhjarl fyrirtækis-
ins meðan verkefnið stendur yfír.
Hvert þátttökufyrirtæki greiðir
helming ráðgjafakostnaðarins og
v^rkefnið Frumkvæði/framkvæmd
hinn helminginn. Þjónusta verk-
efnisstjórans er hins vegar veitt án
endurgjalds. Ekki er um að ræða
sérstakan umsóknarfrest en tekið
verður við umsóknum þar til fjár-
magni í verkefninu hefur að fullu
verið ráðstafað. Hingað til hafa
flest fyrirtæki óskað eftir ráðgjöf á
sviði stefnumótunar og gæðastjórn-
unar.
Þá hefur verið ákveðið að gefa
út upplýsingamöppu um starfandi
rekstrarráðgjafa hér á landi. Verður
þar að finna upplýsingar um ráð-
gjafa sem hafa sérhæft sig á þeim
sviðum sem verkefnið Frum-
kvæði/framkvæmd nær yfir.
Stjóm verkefnisins skipa þeir
Þórður Valdimarsson og Jónas
Jónatansson, fulltrúar frá Iðnlána-
sjóði og Ingvar Kristinsson frá Iðn-
tæknistofnun. Verkefnisstjóri er
Karl Friðrikssson.
Einkavæðing
stöðum hermiprófunar til skila til
fólks sem ekki hefur mikla þekkingu
á forritum eða tölfræði. Það er mun
árennilegra að nálgast skilning hjá
slíku fólki með því að sýna því mynd-
ræna framsetningu á því sem gerist
fremur en að leggja fram mikið
magn af tölfræðilegum niðurstöðum.
Sjá mynd.
Hin myndræna framsetning kem-
ur þó engan veginn í staðinn fyrir
tölfræðilegu niðurstöðurnar, heldur
er einskonar aukamöguleiki.
Ennfremur er rétt að geta þess
að við gerð hermilíkana þarf ekki
að einskorða neitt við einhveija eina
„þægilega" tölfræðilega dreifíngu,
heldur eru yfírleitt allar mikilvægar
dreifíngar byggðar inn í hugbúnað-
inn og mjög auðvelt að kalla þær
fram.
Framtíðarsýn
En hver verður framtíðin í þessum
efnum?
Til að átta sig á þvf er sennilega
fróðlegt að líta um öxl og kanna
hvemig hlutimir gengu fyrir sig með
töflureikninn á sínum tíma. Þegar
töflureiknir var fyrst kynntur seint
á áttunda áratugnum átti hann ekki
marga áhangendur í fyrstunni. Sagt
er að hvorki aðdáendur né sá sem
þróaði hinn fyrsta töflureikni sem
var markaðsettur hafí órað fyrir þeim
straumhvörfum sem verkfærið átti
eftir að valda. Fljótlega vom töflu-
reiknar notaðir af flestum sem feng-
ust við langtíma-áætlanagerð. Það
leið ekki að löngu þar til fjármála-
menn vom farnir að nýta sér þessa
tækni sem gerði kleift að kanna
„hvað-ef?“ daglega í stað mánaðar-
lega áður.
Hugsanlegt er að þróunin í hermi-
tækni fyrir framleiðslukerfí verði á
svipuðum nótum. Erlendis era aðdá-
endur þessarar tækni nú þegar orðn-
ir margir og þeim fjölgar sífellt. Til
dæmis er það orðinn viðurkenndur
framgangsmáti að athuga hönnun
framleiðslukerfa með því að byggja
hermilíkan áður en teknar em
ákvarðanir um fjárfestingar. Rétt er
að taka fram, að enda þótt þetta séu
vissulega orðin viðurkennd vinnu-
brögð fer því fjarri að þetta sé alltat
gert. Þetta mun þó vafalítið aukast
eftir því sem hugbúnaður verður
auðveldari viðfangs án þess að það
sé á kostnað getunnar og ekki síður
eftir því sem fólk lærir meira um
notagildi hermitækni.
Sennilegt er að notkun hermilík-
ana fyrir framleiðslukerfi muni ekki
vera bundin við réttlætingu á flár-
festingu í framtíðinni heldur nýtist
þessi tækni einnig fyrir daglegan
rekstur. Hugsanlega munu fram-
leiðslustjórar og jafnvel verkstjórar
geta athugað hver áhrif endurskoð-
aðrar framleiðniáætlunar munu
verða, hvaða áhrif stöðvun tiltekinna
véla mun hafa, eða eitthvað annað
sem stilla þarf af í daglegum rekstri.
Sá tími mun koma að kleift verður
að kanna „hvað-ef?“ stöðugt í fram-
leiðslunni, rétt eins og gert er varð-
andi fjármál með töflureiknum.
Niðurlag
Tölvulíkön eins og hér hefur verið
rætt um eiga eftir að breyta hug-
myndum manna um áætlanagerð og
skipulagningu. Tölvulíkön verða jafn
ómissandi og hver önnur tækni eða
aðferð við framleiðslustjórn. Þeir sem
em vantrúaðir ættu að taka til at-
hugunar hvernig töflureiknirinn „sló
í gegn“ í fjármálaheiminum. Hermi-
tækni minnkar kostnað, sparar fjár-
muni fyrirtækisins og umfram allt
er hún skynsamleg.
Höfundur er verkfræðingur og
iðnráðgjafi hjá Iðnþróunarfélagi
Norðurlands vestra á Blönduósi.
FRAMLEIÐSLUHERMAR — Myndræn framsetning
hermiathugunar.
Starfsmenn Húsnæðis-
stofnunar hafa keypt
hönnunardeildina
NOKKRIR starfsmenn hönnunardeildar Húsnæðisstofnunar keyptu í
byijun febrúar starfsemi deildarinnar og hafa stofnað um hana hlutafé-
lagið Hús og ráðgjöf. Að sögn Sigurðar E. Guðmundssonar, forstjóra
Húsnæðisstofnunar var hönnunardeildin rekin með um 5-10 milljóna
halla sl. tvö ár en árin þar á undan var hún með hagnað. Hins vegar
hafði deildin töluverð innanhúsverkefni. Sigurður segir að rekstrar-
kostnaður stofnunarinnar lækki talsvert við sölu deildarinnar en á
móti komi svipuð lækkun á rekstartekjum.
Alls unnu 8 starfsmenn í hönnun-
ardeild Húsnæðisstofnunar sem var
formlega lögð niður þann 1. febrúar
sl. „Það var samdóma álit einkavæð-
ingamefndarinnar, ráðuneytisins og
okkar að besta leiðin til að tryggja
það að þau verðmæti sem hér væru
fyrir hendi væri í því fólgin að starfs-
fólkin tæki við þessari starfsemi og
greiddi fyrir hana það sem samkomu-
lag yrði um,“ sagði Sigurður. „Það
er skemmst frá því að segja að þessi
niðurstaða fékkst. Fólkið kom sér
saman um að stofna félag sem það
hefur nefnt Hús og ráðgjöf hf. Þetta
fyrirtæki tekur við þeim verkefnum
sem hönnunardeildin var með á sín-
um snæmm. Teiknistofan er ennþá
hér í húsinu en innan fárra vikna
mun hún verða flutt annað.“ Starfs-
fólk deildarinnar var með ýmis verk-
efni í miðjum klíðum og kemur til
með að halda áfram vinnu við þau á
nýju stofunni.
„Ég held að hönnunardeildin hafí
unnið sitt starf með prýði en ég er
þeirrar skoðunar að hennar tími hafi
verið að baki Það á frekar að styðja
við bakið á þeim verkfræðingum og
arkitektum sem eru starfandi víðs-
vegar í landinu þannig að þeir nái
þar fótfestu," sagði Sigurður E.
Guðmundsson.