Morgunblaðið - 12.05.1993, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1993
33
Brids
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bridsfélag Suðurnesja
Lokið er tveimur umferðum af
þremur í vortvímenningnum og hafa
tvímenningjaxlarnir Gunnar Sigur-
jónsson og Högni Oddsson tekið for-
ystuna, hlotið 504 stig en meðalskor
er 432.
Næstu pör:
Gunnar Guðbjörnsson - Birgir Scheving 483
Amór Raparsson - Karl Hermannsson 482
Gísli Torfason - Logi Þormóðsson -
Jóhannes Sigurðsson 477
Ingimar Sumarliðason - Karl Karlsson 476
Sigurður Albertsson - Kolbeinn Pálsson -
Jóhann Benediktsson 468
Hæsta skor síðasta spilakvöld:
Ingimar-KarlK. 287
Gunnar-Högni 270
Eyþór Jónsson - Vignir Siprsveinss. 255
Síðasta umferðin verður spiluð nk.
mánudagskvöld, 17. maí, í Stapanum
og hefst keppnin kl. 19.45. Keppnis-
stjóri er ísleifur Gíslason.
Félag eldri borgara
Fimmtudaginn 6. maí var spilaður
tvímenningur hjá Félagi eldri borg-
ara. Mætt voru 10 pör. í 1. sæti eru
Þórarinn Árnason og Bergur Þor-
valdsson, með 135.
í 2. til 3. sæti Sigurleifur Guðjóns-
son og Eysteinn Einarsson með 128
og Gísli Guðmundsson og Eyjólfur
Halldórsson með 128. Meðalskor
108.
Sunnudaginn 9. maí voru mætt
12 pör. í 1. sæti Eggert Einarsson
og Karl Adolfsson með 194.
í 2. sæti er Sigrún Sigurðardóttir
og Jónína Bjarnadóttir með 189 og
í 3. sæti er Sigurleifur Guðjónsson
og Eyjólfur Halldórsson með 181.
Meðalskor 165.
Austurlandsmót í sveitakeppni
Um síðustu helgi fór fram í Hótel
Valaskjálf á Egilsstöðum Austur-
landsmót í sveitakeppni en þetta er
eitt fjölmargra móta sem Bridssam-
band Austurlands stendur fyrir ár
hvert. Tuttugu sveitir tóku þátt í
mótinu og varð sveit Herðis hf. hlut-
skörpust, hlaut 159 stig.
Svéit Landsbankans á Vopnafirði
varð í öðru sæti með 153 stig, Malar-
vinnslan hf. þriðja með 138 stig og
Egilsstaðaapótek í fjórða sæti með
134 stig.
í sigursveitinni spiluðu tvennir
bræður. Þeir eru Pálmi og Guttormur
Kristmannssynir annars vegar og
Siguijón og Jón Bjarki Stefánssynir
hins vegar. Auk þeirra spilaði brons-
stigameistari Austurlands, Siguijón
Stefánsson í sveitinni.
í sumar verður spilamennska fyrir
Austfirðinga á Reyðarfirði á þriðju-
dögum en vetrarstarfí félaganna er
að ljúka þessa dagana. Fjörutíu
manns eru á förum til Færeyja vik-
una 3.-10. júní nk. á vegum Bridsfé-
lags Eskiijarðar og Reyðai-fjarðar
að spila við heimamenn.
Vetrarmitchell BSÍ
Síðasta kvöldið í vetrarmitchell
verður föstudagskvöldið 14. maí og
síðan tekur við sumarbrids á föstu-
dagskvöldum. Bronsstigakeppni hef-
ur verið í vetrarmitchell í vetur og
verður sá sem hefur flest bronsstigin
samtals bronsstigameistari vetrarm-
itchell og verðlaun verða afhent síð-
asta spilakvöldið. Alls hafa 230 ein-
staklingar fengið bronsstig í vetr-
armitchell í vetur en flest, bronsstig
þegar eitt kvöld er eftir hafa fengið:
Lilja Guðnadóttir 281
Elín Jónsdóttir 281
María Ásmundsdóttir 225
Steindór Ingimundarson 225
Sveinn Sigurgeirsson 213
Jón Stefánsson 209
Páll Bergsson 200
Þórður Sigfússon 195
Guðlaugur Sveinsson 187
Andrés Ásgeirsson 172
Kripalujóga
Orka sem endisf
Byrjendanámskeið hefst 13. maí.
Kennt þriðjud. og fimmtud. frá
kl. 17.15-18.45.
Kennari Kristín Norland.
Jógastððin Heimsljós
Skeífunni 19,2. hæð, s. 679181 (kl. 17-19).
HLUTAVELTA. Þessir krakkar héldu hlutaveltu til styrktar Rauða
krossi íslands og söfnuðu 1.500 krónum. Krakkarnir heita Birna Dís Birg-
isdóttir, Erlá Dögg Halldórsdóttir, Aðalheiður Sigrún Pétursdóttir, Tinna
Arnardóttir og Hrund Jakobsdóttir.
HLUTAVELTA. Þessar stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar Rauða
krossi íslands og söfnuðu þær 6.400 krónum. Þær heita Hildur Sif Thorar-
ensen, Kolbrún Þorsteinsdóttir, Elín Svavarsdóttir, Bjarndís Hrönn Helga-
dóttir og Tanja Kristrún Gunnarsdóttir.
HLUTAVELTA. Þessar stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar Rauða
krossi íslands og söfnuðu þær 1.362 krónum. Þær heita Sonja Maggý,
Ella, Ósk og Gerður Sif.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN IMORÐMANN PÁLSSON,
Melabraut 32,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 14. maíkl. 10.30.
Jóhanna G. Ólafsdóttir,
Ása Jónsdóttir, Guðmundur Hannesson,
Óli Hilmar Jónsson, Kristín Jónsdóttir,
Kristfn Norðmann Jónsdóttir, Óttar Svavarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Í
Móðir okkar,
SIGURBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hólmgarði 58,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 14. maíkl. 13.30.
Svanhildur Guðmundsdóttir,
Árni Guðmundsson,
Sigurður Guðmundsson,
Þórarinn Guðmundsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
KNÚTS HÖIRIIS
stöðvarstjóra,
Heiðarhorni 2,
Keflavík.
Elfn Guðmannsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Góður drengur Sam
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Stjörnubíó:
Öll sund Iokuð - Nowhere to
Run
Leikstjóri Robert Harmon.
Handrit Joe Eszterhas, Leslie
Bohem og Randy Feldman.
Kvikmyndatökustjóri David
Gribble. Aðalleikendur Jean-
Claude Van Damme, Rosanna
Arquette, Kieran Culkin, Ted
Levine, Joss Ackland, Edward
Blatchford. Bandarísk. Col-
umbia Pictures 1992.
Það er verið að flytja fanga í
gijótið, þeirra á meðai bankaræn-
ingjann Sam (Van Damme), sem
hlotið hefur dóm fyrir morð sem
félagi hans framdi. En það á ekki
fyrir Sam að liggja að sitja af sér
að sinni því fangaflutningabílnum
er veitt fyrirsát og hann sleppur.
Leynist í nágrenni bóndabæjar
ekkjunnar Clydie (Arquette) og
ungum börnum hennar, Bree (Tiff-
any Taubman) og Mookie (Culk-
in). Fyrst kynnist hann Mookie sem
sér í honum föðurímynd og fyrr
en varir er Sam farinn að beijast
fyrir tilveru þessarar fátæku fjöl-
skyldu, en ekkjan stendur uppí
hárinu á spilltum lóðabröskurum
sem hyggjast leggja dalinn hennar
undir golfvelli og glæsihverfi.
Ætla sér að sölsa undir sig lands-
kika ekkjunnar með illu ef ekki
góðu. En valmennið Sam bregst
ekki Mookie og mömmu. Jafnvel
þó prísundin blasi við honum á
nýjan leik.
Kvikmyndaunnendur eru fljótir
að sjá að hugmyndin að Öll sund
lokuð er endurunnin úr vestranum
sígilda, Shane, og þolir illa sam-
jöfnuðinn. Það vakti nokkra eftir-
tekt að Joe Ezterhas (Ógnareðli)
er einn höfunda handritsins því
nafnkunnir kvikmyndagerðar-
menn hafa ekki hingað til verið
orðaðir við rýrar afurðir B-mynda
slagsmálamannsins Van Damme.
Enda komið á daginn að handritið
safnaði ryki uppí hillu er Eszterhas
varð skyndilega einn eftirsóttasti
penninn vestra og framleiðendur
vonuðu að allt sem hann snerti
breyttist í gull. Og rauði þráður
myndarinnar sleppur þótt útþvæld-
ur sé en samtölin eru oft á tíðum
ósköp pínleg og leikurinn ömurleg-
ur hjá aðalleikurunum. Það er ver-
ið að rembast við að gera Van
Damme að stjörnu en það stirnir
ekki af honum hér, svo mikið er
víst. Svipurinn minnir lengst af á
mann þjakaðan af tannpínu eða
hreinlega rotinpúrulegur. Það fer
svosem ekki mikið fyrir svipbrigð-
um á öðru vöðvabúnti, Arnold
Schwarzenegger, en hann heldur
vel á spöðunum hvað svo sem hann
'leikur og kímnigáfan hjálpar.
Arquette er ekki hótinu betri og
engin smuga að fá minnstu samúð
með þessum vanleiknu og klisjú-
kenndu persónum. Ég var ósköp
feginn að konan kom ekki með
mér því hún er haldin þeirri áráttu
að vilja vita hvað verður um per-
sónurnar eftir myndarlok, einkum
og sér í lagi ef endirinn er neikvæð-
ur. Kemur þá til minna kasta að
ljúga einhverju geðslegu, en þess-
um kauða hefði ég aldrei bjargað
úr svartholinu!
Engu að síður er Öll sund lokuð
afþreying í meðallagi því Robert
Harmon The Hitcher sannar það
hér að hann kann ýmislegt fyrir
sér sem hasarmyndaleikstjóri og
átakaatriðin eru góð, einkum fyr-
irsátin og eltingarleikurinn á mót-
orhjólinu. Þá er Levine (Lömbin
þagna afbragðsskúrkur og Culkin
spjarar sig vel sem Mookie litli. Á
ekki langt að sækja það.
+
Innilegar þakkir fyrir auósýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför
ÓLAFS LÍNDAL FINNBOGASONAR,
Suðurgötu 48,
Akranesi.
Jónína Gfsladóttir,
Emilia Lindai Ólafsdóttir, Eiríkur Sigmar Jóelsson,
Hinrik Lindal Hinriksson, Júlianna Karveisdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
LÁRU GUNNARSDÓTTUR
frá Vík í Mýrdal,
Kleppsvegi 118, Reykjavík.
Jóhannes Jónasson, Dóra Sigurðardóttir,
Gunnar Jónasson, Elín Tómasdóttir,
Hrólfur Smári Jónasson, ElseOlsen,
Guðný Jónasdóttir, Gunnar Árnason,
Lára Jóna Jónasdóttir, Karl Runóifsson,
Sigurður Jónasson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega öllum þeim sem vottuðu okkur samúð sína og
hluttekningu við andlát og útför
ÓLAFS HELGA ÓLAFSSONAR,
bifreiðastjóra,
Tangagötu 10,
ísafirði.
Guðmundur Ólafsson, Guðbjörg Valgeirsdóttir,
Halldór Þ. Ólafsson, Ingibjörg Gestsdóttir,
Magnúsina Ólafsdóttir, Agnar Hallvarðsson,
Eyjólfur Guðmundur Ólafsson,
Kristjana Kristjánsdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birt-
ingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðs-
ins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins
í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.