Morgunblaðið - 10.07.1993, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993
ERLENT fiskiskip, ms. Zaandam, landaði 120 tonn-
um af ísuðum þorski úr Barentshafi á Þórshöfn í
gær. Aflann kaupa fjögor frystihús á Norð-Austur-
landi, frá Húsavík til Vopnafjarðar. Áhöfn skipsins_
er færeysk en það er skráð í Dóminíkanska lýðveld-
inu. Umboðsaðili útgerðarinnar er Tritan hf. Reykja-
vík. Veiðar þessar eru samkvæmt hinu svonefnda
Svalbarðasamkomulagi frá 1926 sem fjallar um nýt-
ingu fiskistofna á þessu hafsvæði. Að sögn Jóhanns
A. Jónssonar, framkvæmdastjóra Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar hf., er fiskurinn vænn og vegur á bilinu
tvö til fjögur kíló. Hann sagði að þessi löndun kæmi
sér vel og gerði það að verkum að sennilega yrði
hægt að vinna fullan vinnudag í frystihúsunum í
stað þess að hanga á horriminni. Jóhann sagði að
það væri í umræðunni hvort framhald yrði á þessum
löndunum en þær kæmu sér mjög vel núna vegna
minnkandi kvóta á íslandsmiðum.
Forræðismál Sophiu Hansen 1 Tyrklandi
Fundur með lögfræð-
ingnm og Halim A1
HALIM Al, fyrrum eiginmaður Sophiu Hansen, mætti ekki með dætur
þeirra til fundar við hana í Istanbúl í gær eins og umgengnisréttur
hennar gerir ráð fyrir. Við leit reyndist hann vera í fyrirtæki sínu og
átti þar fund með lögfræðingi Sophiu. Annar fundur lögfræðinga beggja
aðila og Halims er boðaður í dag.
Gunnar Guðmundsson, lögfræð-
ingur Sophiu, sagði að þegar ljóst
hefði verið að Halim kæmi ekki til
fundar við Sophiu hefði verið haldið
til heimilis hans í lögreglufylgd. Þeg-
ar þangað kom hefði verið knúið
dyra án árangurs og húsvörðurinn í
húsinu hefði haldið því fram að Ha-
lim væri ekki í Istanbúl og hefði
dvalið í borginni Sivas þtjár síðastl-
iðnar vikur. Við nánari eftirgrennsl-
an hefði hins vegar komið í ljós að
hann hefði verið í íbúðinni að kvöldi
föstudags.
Hótanir
Næst var haldið til fyrirtækis
Halims og hittu fylgdarmenn Sophiu
hann fyrir þar. Halim lýsti því þá
yfir að dætur hans væru utan Istanb-
úl og hann myndi ekki færa þær
móður þeirra. Hann ítrekaði hins
vegar fyrra boð sitt um að Sophia
mætti dveljast með dætrum sínum á
heimili sínu. Sjálfur yrði hann í íbúð-
inni á meðan og jafnvel núverandi
eiginkona hans. Halim kvað koma
til greina að Sophia fengi að fara
út úr húsi með dætur sínar en aðeins
í fylgd hans og ef einhver ætlaði að
nálgast þær yrði hann tilbúinn til að
skjóta viðkomandi „í fæturna*1 sagði
Gunnar að Halim hefði bætt við.
Gunnar sagði að boðinu hefði ver-
ið hafnað og að ekki yrði öðru tekið
en samræmdist dæmdum umgengn-
isrétti. Hann kvaðst standa í þeirri
trú að lögfræðingar Halims væru að
reyna að telja honum trú um að hlíta
umgengnisréttinum. Fundur verður
með þátttöku lögfræðinga beggja
aðila og Halims A1 í dag. Strax eftir
helgi verður lögð fram kæra vegna
brots Halims í gær.
Aðspurður kvaðst Gunnar þeúrar
skoðunar að þrýstingur íslenskra
stjórnvalda hefði komið að gagni
varðandi löggæslu í gær. Hann lét
þess ennfremur getið að fundað hefði
verið með Kazim Munir Hamamci-
oglu, ræðismanni íslendinga í Istanb-
úl, varðandi öryggismál í gær.
Verðbreytingar
v. gengislækkunarinnar
5000 Verðið Verðið hækkar
var kr. er nú kr. um
Merrild
kaffi 103 249,- 265,- 6,4%
Viðskiptaráðherra skipar nefnd sérfræðinga til að fjalla um vaxtamál
Opnai’i fjármagnsmarkað-
ur ef til vill nauðsynleffur
Kaffipakki hækk-
ar um 16 krónur
ENN eitt dæmi um hækkun vöru
vegna gengisfellingarinnar er
Merrildkaffi í 500 g pakkningum.
Hann kostaði áður 249 krónur en
kostar nú 265 kr. og er það 6,4%
hækkun.
VIÐSKIPTARÁÐHERRA hefur skipað nefnd sérfræðinga til að
kanna vaxtamyndun áíánsfjármarkaði. Nefndin mun strax taka
til starfa. Viðskiptaráðherra, Sighvatur Björgvinsson, sagði að
nefndin ætti m.a. að skoða hvernig á því stæði að þegar verð-
bólgan var nánast engin fóru vextir ekki lækkandi líkt og gera
mætti ráð fyrir. „Ég vil sjá hvað hægt er að gera til að lagfæra
skipulag á fjármagnsmarkaði okkar.“
♦ ♦ ♦
ísafiörður
8 kærðir fyr-
ir hraðakstur
ÁTTA ökumenn voru kærðir
fyrir hraðakstur á Isafirði í
gær og óku fimm þeirra á
meira en 100 km hraða.
Að sögn lögreglunnar á ísafírði
voru flestir teknir á Hnífsdalsvegi
þar sem hámarkshraði er 70 km
á klst.
í nefndinni sitja Finnur Svein-
björnsson ráðuneytisstjóri í við-
skiptaráðuneyti, formaður, Sigurð-
ur B. Stefánsson hagfræðingur hjá
VÍB, Eiríkur Guðnason aðstoðar-
bankastjóri Seðlabankans, Ragnar
Önundarson framkvæmdastjóri hjá
íslandsbanka, Magnús Pétursson
ráðuneytisstjóri í fjármálaráðu-
neytinu og Hrafn Magnússon
framkvæmdastjóri Sambands al-
mennra lífeyrissjóða.
Opnari fjármagnsmarkaður
Viðskiptaráðherra sagði að
nefndin hefði verið skipuð til að
skoða íslenska fjármagnsmarkað-
inn og svara þeim spurningum
hvort og hvaða breytingar þurfi á
honum að gera. „Ef til vill þarf
að opna fjármagnsmarkaðinn
meira til að tryggja að þegar verð-
lagsþróunin er okkur hagstæð þá
verði raunvextir ekki hærri hér en
í helstu viðskiptalöndum okkar, sem
hafa svipaðar aðstæður og við.“
í dag
Ganga
Stefán Jasonarson, 78 ára, ætlar
að ganga hringinn í kringum land-
ið í sumar 5
Sjöveldin
Leiðtogar sjöveldanna hafa heitið
að efla hagvöxt 20
jR|grgnttbln&it>
tj... tr&essuzrsxxi'ti.---------------
Kenýa
Efnt til brúðkaups í Kenýa 26
Leiöarí
Leitað eftir svörum 22
Lesbók
► Ur Þjóðminjasafninu - 270
myndavélar á Skútustöðum-
Byggt yfír þjóðþing í Þýzkalandi
og Hollandi-Skáldið Theodore
Roethke- Á Sprengisandsleið.
Menning/Listir
► Gaman í skúlptúrnum - Jón
Nordal tónskáld - Böm og bækur
- Alþýðuvald og helgir menn -
Endurskoðun formsins tímabær
- Tvífari sannleikans.
Hætt kominn í vimmslysi í Mosfellssveit
Hærri vextir vegna útlánatapa
Viðskiptaráðherra sagði að ljóst
væri að í kjölfar gengisbreytingar-
innar myndu einhveijar verðhækk-
anir fylgja. „Gengisbreytingin
verður frekar til þess að ýta vaxta-
þróun upp á við og ég sé því ekki
miklar líkur á því að vextir á allra
næstu vikum lækki. Hins vegar
breytist það umhverfí þegar dregur
úr stundaráhrifum gengisbreyt-
ingarinnar.“
Fram hefur komið að Seðlabanki
íslands hefur beint viðskiptum sín-
um þannig að þau stuðli frekar að
vaxtalækkun og sagði Sighvatur
það af hinu góða. „Ástæðan fyrir
miklum vaxtamun hjá bankakerf-
inu er náttúrulega sú að bankamir
hafa verið að tapa miklu fé á útlán-
um. Segja má að þeir reyni að
rétta við sinn hag með því að þeir
sem að geti greitt greiða nokkuð
hærri vexti en fyllsta ástæða er
til.“
. ~ x Morgunblaðið/Ingvar
Aðstæður kannaðar
HÉR MÁ sjá opið á tankinum sem vinnuslysið varð í og sést lögregla
kanna aðstæður á slysstað.
Missti meðvitund
inni í bensíntanki
ÁTJÁN ára gamall piltur var hætt kominn er hann missti meðvitund
við vinnu sína í bensíntanki í Mosfellssveit. Tankurinn stendur á Tungu-
bökkum og er á vegum Flugklúbbs Mosfellssveitar. Lögreglan var
kölluð til og pilturinn fluttur á slysadeiid.
Samkvæmt upplýsingum frá lög- þær því að pilturinn missti meðvit-
reglu var pilturinn að vinna við að
hreinsa upp affall neðst í tankinum
en affall þetta tekur við vatni sem
getur komist í tankinn. Töluvert var
af bensíngufum í tankinum og ollu
und. Félagi piltsins varð var við slys-
ið og gat kallað til aðstoð þannig að
hægt var að koma piltinum strax út
í frískt loft. Vinnueftirlit ríksins hef-
ur málið nú til meðferðar.