Morgunblaðið - 10.07.1993, Side 5

Morgunblaðið - 10.07.1993, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JULI 1993 5 Styrkur úr Atvinnu- leysistryggingasj óði 47 ráðnir tímabundið í Garðabæ GARÐABÆR hefur fengið tæpar 14 milljónir í styrk úr Atvinnuleys- istryggingasjóði og er gert ráð fyrir að 47 einstaklingar verði ráðnir til vinnu við ýmis verkefni i tvo til þijá mánuði. 140 manns eru á atvinnuleysisskrá í Garðabæ og eru það aðeins fleiri en á sama tíma í fyrra og mun fleiri en árið 1991, að sögn Ingimundar Sigurpálssonar bæjarstjóra. Hugmyndir að nýjum atvinnutæki- færum hafa verið kynntar í bæjar- ráði og var þeim vísað til bæjarstjórn- ar. Þar er gert ráð fyrir átta stöðum í tíu vikur við hreingemingar á stofn- unum og í skólum og 33 stöðum í tíu til tólf vikur við ýmis umhverfis- verkefni, t.d. þrif á svæði við Alfta- nesveg og í Engidal. Þá er gert ráð fyrir sex stöðum í tólf vikur við gerð útivistarstíga undir stjórn verktaka. -----» ♦' 4--- ' Mölur hf. átti lægsta tilboð MÖLUR hf., Vopnafirði, átti lægsta tilboð í lagningu 7,6 km vegarkafla á Norðurlandsvegi á Mývatnsöræfum en Vegagerð rík- isins opnaði tilboð í verkið fyrir skömmu. Tilboð Malar hljóðaði uppá 52.662.500 krónur sem er 62% af kostnaðaráætlun. 14 verktakar buðu í verkið. Næst- lægsta tilboð átti Hagvirki-Klettur i Hafnarfirði, 59.335.000, en tilboð Árnarfells hf. var lítið eitt hærra. Kostnaðaráætlun hljóðaði uppá 85.373.040 krónur. Stefán Jasonarson í Vorsabæ á mörgu ólokið á ári aldraðra 78 ára og ætlar að ganga hringinn í kringum landið STEFÁN Jasonarson, 78 ára fyrrverandi bóndi frá Vorsabæ, leggur næstkomandi miðvikudag upp í göngu hringinn í kring- um landið. Hann hefur undirbúið sig vel fyrir gönguna undanfarna mánuði og ætlar með göngunni að minna á að hreyfing sé það, sem skipti máli en hann segir að það sé allt of algengt meðal jafnaldra hans að þeir hreyfi sig lítið. Búið er að skipuleggja gönguna vel og verður tekið á móti Stef- áni í kaupstöðum og bæjum umhverfis landið og er búist við að margir muni ganga með honum spölkorn á hverjum stað. Gangan mun taka um mánuð. Gullbrúðkaup En hvernig dettur Stefáni í hug að leggja í þessa löngu göngu kominn hátt á áttræðisald- ur. „Þetta er búið að vera brjótast í mér þó- nokkuð lengi,“ segir Stefán, „og þetta ár, sem nú er rúmlega hálfnað, er í mínum huga mjög merkilegt. I fyrsta lagi voru 50 ár liðin þann 29. maí frá því að við Guðfinna [Guðmunds- dóttir] gengum í hjónaband. í tilefni af gullbrúðkaupsárinu okkar þá lagðist árið svo vel í mig að á nýársdag lab- baði ég Vorsabæjarhringinn svokallaðan, sem er 10 km. Það var guðdómlega gott veður og þar fann ég að ég átti margt ógert sem aldrað- ur maður á ári aldraðra," sagði Stefán. Eftir þessa göngu segir Stefán að hann hafi æft göngu og skokk svo að segja daglega. Stefán leggur upp í gönguna frá Selfossi 14. júlí. Hann ætlar að ganga að jafnaði 20 km á dag og hvíla sig tvo daga í viku. Hann mun koma til Reykjavíkur hinn 19. ágúst næstkomandi þar sem lok göngunnar mun sameinast Gym i Norden, sem er samnorræn hátíð, sem á munu mæta um 300 norrænir borgarar 60 ára og eldri til að hreyfa sig. Þegar til Reykjavíkur er komið verður Stefán búinn að leggja að baki 500 km. Þeir sem skipuleggja gönguna eru Ungmennafélag ís- lands, Iþróttir fyrir alla en þar er Stefán einn stofnenda, Fimíeikasamband íslands og Ell- iársnefnd Öldrunarráðs íslands. „Eg vil bara sýna það og sanna að hreyfing og aftur hreyfing og hollur matur og einbeitt- ur vilji er það, sem gefur lífinu gildi. Og ég hef alltaf hlakkað til morgundagsins," segir Stefán Jasonarson. Fósturmóðirin lét hann hlaupa Ýmsir aðilar hafa styrkt Stefánsgönguna svokölluðu og mun bíll frá Globus fylgja Stef- áni á göngunni, Esso mun leggja til eldsneyti og Sjóvá-Almennar tryggingar. ‘Eins hafa 66 gráður norður, Mjólkurdagsnefnd og Adidas- umboðið styrkt Stefán. En hvenær hófst gönguferill Stefáns. „Móð- ir mín dó þegar ég var þriggja ára og mér var sagt að ég hefði verið síorgandi út af móðurmissinum og lái mér hver sem vill. Svo er forsjóninni fyrir að þakka að faðir minn fékk myndarlega konu, Kristínu Helgadóttur sem bústýru, og í fyllingu tímans gengu þau í heilagt hjónaband. Ég á þessari konu það að þakka að ég komst úr kreppunni. Þegar stráksi fór að lífgast við og gleyma raunum sínum eftir móðurmissinn þá tók fósturmóðir mín mig oft með sér þegar hún fór í orlofs- túra að heimsækja systur sínar en hún var Morgunblaðið/Bjarni A tveimur jafnfijótum ÞAÐ eru ekki margir jafnaldrar Stefáns Jasonarsonar, sem mynau láta sér detta í hug að ganga hringinn í kringum landið. Stefán mun samt leggja upp í göngu frá Selfossi næstkomandi miðvikudag og enda mánuði seinna í Reykjavíkur eftir að hafa lagt að baki 500 km. dugmanneskja með afbrigðum og skrefaði dálítið dijúgt og því varð ég alltaf að hlaupa." Að liðka sinn skrokk og labba Stefán hefur alla tíð verið mikill félagsmála- maður og íþróttamaður. „Minn tilgangur með þessu er fyrst og fremst að koma sem flestum eldri og yngri út á göngubrautirnar og ég endurtek það enn og aftur að það er hreyfing og aftur hreyfmg, sem gefur lífinu gildi og að sitja í bíl alla sína vinnutíð er alveg hroða- legt ef menn geta ekki gefið sér tíma í að liðka sinn skrokk og labba.“ 30 millj. aukafjárveiting til framkvæmda Fjárhagur Garðabæj- ar betri en áætlað var BÆJARRÁÐ Garðabæjar hefur samþykkt 30 milljón króna aukafjár- veitingu til framkvæmda á árinu 1993 þar sem staða bæjarsjóðs er mun betri en gert var ráð fyrir við gerð fjárhagsáætlunar. Að sögn Ingimundar Sigurpáls- sonar sýndi ársreikningur ársins 1992 mun betri útkomu en spáin sem unnið var með við gerð fjár- hagsáætlunar. „Þegar ársreikning- ur lá fyrir í júní kom í ljós að stað- an var mun betri en reiknað var með um áramót," sagði hann. „Þess vegna treysta menn sér núna í auknar framkvæmdir sem nemur 30 milljónum." Meðal framkvæmda sem ráðist verður í er lagning gangstétta við Lyngás og Marargrund, fram- kvæmdir við nýjan leikskóla í Lundahverfi, þar sem rekinn er einnar deildar skóli og var gert ráð fyrir að hefja viðbyggingu við hann á næsta ári en nú verður þeim fram- kvæmdum flýtt. Gert er ráð fyrir að í viðbyggingunni verði 40 börn í hálfsdagsvistun en fyrir eru 34 börn. Þá er gert ráð fyrir fram- kvæmdum við nýbyggingu við bæj- arskrifstofur, fullnaðarfrágang við Flatarskóla, framkvæmdir við æf- ingavöll við Arnarnesvog og körfu- boltavelli auk framfærslustyrkja og framlaga til atvinnuátaks. Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson Hrókendurá Mývatni Sérkennilegt andapar heldur til á Mývatni þessa dagana, en það eru svokallaðar hrókendur sem uppr- unnar eru í Ameríku. Hingað eru endurnar væntanlega komnar frá Bretlandseyjum, en þar hefur stofn villtra fugla vaxið upp frá leysingjum sem sloppið hafa úr andagörðum. Vitað er til þess að hrókendur hafi orpið hér á landi að minnsta kosti einu sinni, en það var við Mývatn sumarið 1990. Auk parsins sem nú er á Mývatni held- ur steggur til á Bessastaðatjörn á Álftanesi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.