Morgunblaðið - 10.07.1993, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 10.07.1993, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993 Aðalfundur fulltrúaráðs Málræktarsjóðs Fjárskortur, en fjár- frek verkefni bíða AÐALFUNDUR fulltrúaráðs Málræktarsjóðs var haldinn á Hótel Sögu 29. júní sl. og sátu hann 25 manns, 23 fulltrúar, sljórnarformað- ur og framkvæmdastjóri. í skýrslu stjórnarformanns kom m.a. fram að söfnun stofnframlaga lauk um sl. áramót. Þá höfðu 218 gerst stofnendur auk íslenskrar málnefndar, þar af 58 samtök, fyr- irtæki og stofnanir sem hafa rétt til að tilnefna mann í fulltrúaráð. Stofnframlög á árinu 1992 námu um 6,2 milljónum króna, og eru nú í sjóði um 13,5- milljónir kr. Fráfarandi stjóm Málræktar- sjóðs var öll endurkosin fram til áramóta, en þá á samkvæmt skipu- lagsskrá að kjósa stjóm til fjögurra ára í fyrsta sinn þannig að saman fari skipunartími þeimar stjómar og íslenskrar málnefndar sem er aðalstofnandi sjóðsins. Stjóm Málræktarsjóðs skipa: Baldur Jónsson prófessor, formað- ur; Gunnlaugur Ingólfsson orðabók- arritstjóri; Heimir Pálsson cand.mag.; Kristján Ámason pró- fessor og Sigrún Helgadóttir töl- fræðingur. Varamenn eru: Bergur Jónsson verkfræðingur og Ólöf Kr. Pétursdóttir þýðandi. Mörg íjárfrek verkefni bíða þess að Málræktarsjóður geti farið að gefa eitthvað af sér. Til þess að hraða vexti sjóðsins hefur þeirri hugmynd verið hreyft við forsætis- og menntamálaráðherra að ríkið leggi í sjóðinn helming þess höfuð- stóls sem að er stefnt, 50 milljónir króna, í tilefni af 50 ára afmæli lýðveldisins á næsta ári og hvatt verði til almennrar söfnunar sem miði að því að sjóðurinn nái 100 milljóna markinu 17. júní 1994. Aðalfundur Málræktarsjóðs ályktaði einróma á þessa leið: Ákall um framlög í Málræktarsjóð Fulltrúaráð Málræktarsjóðs vill minna á þann vanda sem íslensk tunga stendur frammi fyrir á tímum aukinna erlendra samskipta. Vart líður sá dagur, að þeir sem sinna málrækt séu ekki minntir á þörf þess að efla tunguna og styrkja, þannig að hún megi nýtast þjóðinni í starfí og leik. Meginmarkmið Málræktarsjóðs verður að beita sér fyrir og styðja hvers konar starf- semi til eflingar íslenskri tungu og varðveislu hennar. Sjóðnum er með- al annars ætlað að styrkja útgáfu nýyrðasafna og orðabóka og kennsluefnis í íslensku. Slík verk- efni eru óþrjótandi og mjög fjár- frek. Fulltrúaráð Málræktarsjóðs vill heita á stjómvöld og almenning að styrkja sjóðinn myndarlega, þannig að í honum verði 100 millj- ónir króna á 50 ára afmæli lýðveld- isins 1994. FASTEIGN ER FRAMTID áfo OSk (T FASTEIGNA Tf MIÐLUN SVERRIR KRISTJAMSS0N L00CILTUR FASTEICMASALI SUDURLANDSBRAUT 12, 108 REYKJAVÍK, FAX 687072 SÍMI 68 77 68 Sýningarsalur Fasteignamiðlunar er opinn laugardaga frá kl. 11-16 og sunnudaga frá kl. 13-16 Skrifstofan er lokuð um helgar í sumar. Fjöldi eigna á skrá - Sjón er sögu ríkari. 011 Kfl 01 07fl L^RUS Þ' VALDIMARSS0N framkvæmdastjori Cm I I vilb I 0 / v KRISTINN SIGURJ0NSS0N, HRL. loggiltur fasteignasali Ný eign á söluskrá: Glæsileg íbúð - mikið útsýni 3ja herb. íbúð á 2. hæð við Súluhóla. Parket. Endaíb. Sameign öll eins og ný. 40 ára húsnlán. Verð 3,3 millj. Sérhæðir - Hvassaleiti - Rauðagerði Glæsilegar 6 herb. efri hæðir á þessum vinsælu stöðum. Góður bíl- skúr fylgir hvorri hæð. Eignaskipti til umræðu. Teikningar á skrifstof- unni. Frábært útsýni. Safamýri - endaíbúð - bílskúr Sólrík og vel með farin 4ra herb. íb. á 1. hæð. Tvennar svalir. Geymsla í kj. Mikið endurnýjuð sameign. í gamla góða Vesturbænum Parhús við Ránargötu með 6 herb. íb. á tveimur hæðum. Nýtt eldhús. Nýtt bað o.fl. I’ kj. sér eins herb. íb. Glæsilegur blóma- og trjágarður. í lyftuhúsi við Þangbakka Á 7. hæð 2ja herb. íb. 62 fm. Rúmgóðar svalir á suðurhlið. Húsið nýsprunguþétt og málað. 40 ára húsnlán. kr. 2,5 millj. Endaíbúð við Stóragerði Góð 4ra herb. íb. á 1. hæð. Tvennar svalir. Geymsla í kj. Mikið end- urnýjuð sameign. Einkasala. Lyftuhús - bílskúr - frábært útsýni 4ra herb. stór og góð íb. 110,1 fm á 6. hæð við Álftahóla. Sólsvalir. Góður bílsk. 29,3 fm. Gott verð ef samið er fljótlega. Hveragerði - Reykjavík - eignask. mögul. Til sölu gott einbhús um 120 fm. 4 svherb. Bílsk. með geymslu um 30 fm. Ræktuð lóð. Skipti möguleg. á lítilli íb. í borginni eða nágrenni. Daglega leitar til okkar fjöldi fjársterkra kaupenda. Margskonar eignask. mögul. Sérstakl. ósk- ast eignir í vesturborginni, miðborginni og á Nesinu. • • • Opið ídag kl. 10-16. Teikningar á skrifstofunni. Almenna fasteignasalan sf. var stofnuð 12. júlí 1944. AIMENNA FAST EIGNASftl AN LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370 I aliilr Metsölublad á hverjum degi! Frá vinstri: Dr. Þorsteinn I. Sigfússon, prófessor, Helgi Þór Ingason, Þröstur Guðmundsson og Jón Viðar Sigurðsson. DOKTORSEFNI í STÓRIÐJU VIÐ Raunvísindastofnun háskólans eru þrír ungir menn að fullnema sig í efnisfræðum tengdum stóriðju. Helgi Þór Ingason vinnur að doktorsverkefni á sviði kísiljárns í samvinnu við háskólann í Þrándheimi, Þröstur Guð- mundsson vinnur að doktorsverkefni á sviði áls í samvinnu við háskólann í Nottingham og Jón Viðar Sigurðsson er að ljúka fjórða árs verkefni á sviði eldfastra efna. Fyrirtækin ís- lenska járnblendifélagið, Elkem, Alusuisse- ÍSAL og LSM ásamt Norræna iðnaðarsjóðnum styrkja þessi verkefni. Oll fela þau í sér rann- sóknir og þróun á nýjum aðferðum eða efnum á sviði stóriðju málma. Umsjónarmaður Gísli Jónsson 700. þáttur Umsjónarmaður hefur stund- um áður minnst á fyrirbærið samruna í málfræði. Það kalla útlendingar contaminatio(n). í stuttu máli felst þetta í því að orðum eða orðtökum, einkum þeim sem hafa eitthvað sameig- inlegt, er slengt saman. Verður stundum úr þessu spélegt tal. En öllu má venjast, og nú hefur venjan helgað sumar gerðir samruna, þær sem einhvern tíma hafa verið hlægilegar. Ætti þá að vera tímabært að sýna dæmi. Grandalaus og and- varalaus hefur sést í einni bendu: „grandvaralaus“, og snauður og auðugur hefur komið fyrir í myndinni „snauð- ugur“. Að þessúm dæmum er hlegið, og þau hafa engri festu náð, hvað þá hefð eða viðurkenn- ingu. Þá skal hyggja að orðtökum. Að leggja sig í framkróka um eitthvað er nú viðurkennt tal. Það merkir að leggja sig allan fram, en þama hefur í blandast fyrir löngu orðtakið að leggja ífram(áfram)króka, en það hefur mjög svipaða merkingu. Sjá um þetta allt rit Halldórs Halldórssonar, ekki síst doktors- ritgerð hans um myndhverf ís- lensk orðtök. Margir leika sér að því að blanda saman orðtök- um til þess að verða fyndnir. Þó mun það hafa hrokkið út úr manni nokkrum sem ekki ætlaði sér að vera fyndinn, að „kerling- in hefði vaðið fyrir neðan nefið“. Augljóst er hvað þarna hefur mnnið saman. Samruni er ekki til fyrir- myndar, en hann getur verið misleiðinlegur. Nú er oft ruglað saman orðtökunum að reka smiðshöggið á eitthvað og binda endahnútinn á e-ð. Við þurfum ekki annað en hugsa út í líkingamálið til þess að forðast þann samruna, t.d. að tala um „að reka endahnútinn“ á e-ð. Við rekum ekki hnút, við bind- um hann. Ef við viljum fá góða gesti, segjum við stundum: Blessaður líttu inn eða blessaður komdu við. Þessu er hins vegar þrásinn- is ruglað saman, og úr verður: Blessaður „líttu við“. Umsjónar- maður mælir gegn þessum sam- runa og telur rétt að halda merk- ingunni að líta um öxl í orðun- um að líta við. Þá vendir umsjónarmaður kvæði i kross og tekur að skrifa um orðasambandið að eiga von á einhveiju eða eiga einhvers von. Er þá fyrst að hyggja að lykilorðinu von sem í gamla daga var ván, sbr. sögnina að vænta. í Orðabók Menningar- sjóðs segir að von hafi tvenns konar merkingu: 1) „e-ð (hug- stætt) sem maður þráir, óskar, væntir að verði ... og 2) það sem hægt er að vænta, búast við, horfur, líkindi." Þessi tvískipta merking orðs- ins von er ævagömul. í orðabók Fritzners yfir fornmálið segir um ván að það merki í fyrsta lagi „Udsigt til at faa eller finde noget“, þ.e. horfur á því að fá eða finna eitthvað. Eru tekin af þessu mörg dæmi úr fornum bókmenntum. Samkvæmt þessu getum við „átt von“ á því sem við viljum ekki, sbr. illur á sér ills von og margur á ekki von á góðu. Umsjónarmaður færir þetta hér í letur í svars og þakkar skyni fyrir gott og kurteislegt bréf frá Elísabetu Árnadóttur Finsen í Kópavogi. ★ Mjög er sá galli mönnum skæður að mega til með að halda ræður. Sumir hafa óbeit á kversins klausum. Köld er þorranótt fatalausum. Ilit er að kljást við konur reiðar. Klæðlítill maður hraðast skeiðar. Ef enginn heyrir, er gagnslaust að góla. Gumpar lýjast við harða stóla. (Jón Helgason, 1899-1986: Ur Sannmælakvæði.) ★ „In helga mær, María, móðir Drottins vors, var ins besta kyns, komin frá Abraham og úr kyni Davíðs konungs. Inir nánustu frændur hennar vóru réttlátir og höfðu mikið kraftalán af Guði, en lítið auralán af heimi. En þegar er María kunni góðs greinir og ills, þá lagði hún þeg- ar ást við Guð, svo að hún var ávallt í Guðs þjónustu, annað tveggja á bænum eða hún hugði að spámannabókum eða var í nekkveru góðu verki. Fyrst kvenna hét hún því heiti Guði að halda hreinlífi, og nam hún eigi það af annarra dæmum né kenningum, heldur glíkti hún það eftiy Guðs englum.“ (íslensk hómilíubók; úr predikun frá 12. öld.) ★ Áslákur austan kvað: Svo var það hann Geiri-í-glasi, hann gerðist æ prúðari í fasi því meir sem hann drakk - en Maria frá Stakk dó edrú úr argaþrasi. P.s. Ósköp var að heyra fréttaþul á Stöð 2 kveðja með orðunum: „Eigið þið góðan svefn!“ Þetta er ekki aðeins herfileg íslenska, heldur líka vit- laus enska.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.