Morgunblaðið - 10.07.1993, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993
11
SKÁTAR Á AKRANESISTANDA í FRAMKVÆMDUM í SKORRADAL
Glæsileg upp-
bygging úti-
vistarsvæðis
Þungur baggi
Bygging skálans reyndist félag-
inu þungur baggi fjárhagslega
enda leið langur tími þar til fram-
kvæmdum við hann lauk og hægt
var að taka hann í notkun. Þar
réðu líka miklu aðstæður í þjóðfé-
laginu. Minni áhugi varð á sumar-
búðadvöl auk þess sem fjölskyldu-
ferðir til útlanda urðu algengari.
Frekari byggingaráform voru því
lögð til hliðar.
Akranesi.
í FÖGRU landi í Skorradal er Skátafélag Akraness að byggja upp
glæsilega útivistaraðstöðu. Aldarfjórðungur er nú liðinn frá því
félagið fékk úthlutað þar landi og frá þeim tíma hefur margt breyst.
í fyrstu fór meginkrafturinn í byggingu skála, en hin síðari ár
hefur áherslan verið lögð á gróðursetningu og fegrun landsins.
Nú er svo komið að staðurinn er vinsæll útivistar- og mótsstaður
og er mikið notaður fyrir fjölskyldu- og ættarmót.
Það var árið 1968 sem Skátafé- í byrjun níunda áratugarins
lag Akraness eignaðist landið og færðist að nýju fjörkippur í fram-
hugðist halda þar úti sumarbúða- kvæmdir við skálann. Ymsar fjár-
starfi. Páll Gíslason læknir, þáver-
andi félagsforingi skáta á Akra-
nesi, beitti sér öðrum fremur við
útvegun landsins. Strax að ári
liðnu var hafist handa við bygg-
ingu fyrsta skálans af þremur fyr-
irhuguðum og var hann gerður
fokheldur fyrir árslok 1969.
, Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
í fylkingarbrjósti
ÞEIR félagarnir Jón Leifsson (t.v.) og Sigurður Guðjónsson hafa
staðið í fylkingarbrjósti í framkvæmdunum í Skorradal.
Um miðjan áttunda áratuginn
var landið sem er rúmlega 20 hekt-
arar girt og komst það þá undir
verndarvæng Skógræktarstöðvar
ríkisins í Hvammi. Frá þeim tíma
hafa skátarnir notið leiðsagnar
Ágústar Árnasonar skógarvarðar
við plöntuval og gróðursetningu.
Með girðingu var komið í veg fyr-
ir ágang búfjár og hefur svæðið
síðan tekið stakkaskiptum. Þarna
getur að líta fallegt birki og blóm-
lega viðirunna auk fjölmargra ann-
arra tegunda. Beinvaxinn tijágróð-
urinn ber með sér að þarna sé
mjög skjólsælt svæði.
í heimsókn
FJÖLMARGIR hópar hafa dvalið hjá skátunum í Skorradal, þar á meðal þessi hressi hópur vistfólks
í Sólheimum.
aflanir voru í gangi á vegum skát-
anna og tekjur runnu óskiptar til
uppbyggingarstarfsins. Skálinn
var fullbyggður á skömmum tíma,
tveim áratugum eftir að bygging
hans hófst. Þeir Jón Leifsson og
Sigurður Guðjónsson hafa öðrum
fremur verið í fylkingarbijósti
þeirra sem þarna hafa lagt hönd
á plóginn. Margra ára starf þeirra
og dugnaður hefur skilað ómældri
vinnu sem og framlag fjölmargra
annarra sjálfboðaliða sem þar hafa
komið við sögu.
Árangursrík fjáröflun
Þeir félagar voru heimsóttir í
Skátafell í Skorradal á dögunum.
„Það er allt hægt ef viljinn er fyr-
ir hendi,“ sögðu þeir félagar og
bættu við: „Það hafa margir sýnt
okkur velvild á liðnum árum. Þessi
uppbygging er bæjarbúum á Akra-
nesi að þakka. Allar okkar fjáraf-
lanir hafa fengið góðar undirtektir
og velvild fólks í okkar garð á sér
lítil takmörk," sagði Jón Leifsson.
Þeir félagar segja að fyrir tveim-
ur árum hafi verið ráðist í að gera
deiliskipulag af svæðinu sem nú
væri unnið skipulega eftir. Þetta
skipuiag er miðað við framkvæmd-
ir fram til aldamóta og tekur til
gerðar opinna svæða, gangstíga
og svo gróðursetningar. Nú þegar
hefur mikið áunnist við gerð gang-
stíga og gróðursetningar. Þá er
verið að leggja síðustu hönd á um
8000 m2 svæði undir tjaldstæði og
leiksvæði og einnig hefur verið
gerð mikil varðeldalaut rétt niður
við vatnið. Talið er að lautin taki
allt að 800 manns þéttskipuð.
Öll þessi aðstaða sem hér hefur
verið lýst hefur breytt miklu fyrir
starfsemi Skátafélags Akraness.
Þarna getur hið hefðbundna skáta-
starf blómstrað. Þá hefur félagið
einnig tekjur vegna útleigu aðstöð-
unnar og segja þeir félagar að
mikil ásókn hafi verið í að nýta
aðstöðuna fyrir fjölskyldu- og ætt-
armót. og er einhver starfsemi
þarna nær flestar helgar ársins.
Þá hafa skólar og félagasamtök
einnig notað sér aðstöðuna. Þeir
segjast sjá fyrir sér mun fjölbreytt-
ari starfsemi í náinni framtíð. Þeir
hafa m.a. hugsað sér að skipu-
leggja stuttar ferðir fyrir unglinga
i Skorradalinn, þar sem áhersla
yrði lögð á leiki, útivist og náttúru-
skoðun. Þau áform eru þó ekki
komin á framkvæmdastig enn.
Hefur gefið mikið
„Við erum mjög ánægðir með
hvernig til hefur tekist," segir Jón
og bætir við að þetta sé eins og
hvert annað áhugamál. „Þetta gef-
ur okkur mikið á móti. Það má
heldur ekki gleyma því að fjöl-
skyldur okkar eru líka með okkur
af sama áhuganum og fjölmargir
aðrir hafa lagt fram dijúgt framlag
til vinnu eða annars stuðnings.
Allt sem þarna hefur verið gert
er vitnisburður um hvað hægt er
að gera með samtakamætti og
dugnaði einstaklinga og félaga-
samtaka."
- J.G.
Framkvæmdastjórn SUJ
Hvatt til kosningar
varaformanns í júlí
Framkvæmdasljórn Sambands
ungra jafnaðarmanna hefur sam-
þykkt ályktun þar sem hún fer
fram á það við Jón Balvin Hanni-
balsson, formann Alþýðuflokks-
ins, að hann boði til flokksstjóm-
arfundar fyrir lok júlímánaðar til
að flokksstjórn geti kosið nýjan
varaformann flokksins.
í frétt frá SUJ segir að öðrum
kosti muni framkvæmdastjórnin
knýja á um að flokksstjórnarfundur
verði haldinn með því að safna til-
skildum fjölda undirskrifta meðal
Niðjamót
Hermanns og
Elínar á Mói
AFKOMENDUR hjónanna Her-
manns Jónssonar og Elínar Lárus-
dóttur frá Yzta-Mói í Fljótum á
Skagafirði, munu koma saman
helgina 23.-25. júlí að Laugarhóli
í Bjarnarfirði á Ströndum.
Hermann og Elín eignuðust 9
börn; af þeim eru 8 á lífi og teljast
afkomendur vera hátt í 200 manns.
Nánari upplýsingar um fyrirkomu-
lag mótsins gefa: Gunnhildur Sæ-
mundsdottir, Hermann Björnsson og
Ólafur Lárusson.
flokksstjórnarmanna.
Jafnframt er mælst til að flokks-
stjórnarfundir verði framvegis boð-
aðir skriflega með viku fyrirvara.
VERJUR
FYRIR EIGIIR ÞINAR!
Leigjum mjög vandaðar
yfirbreiðslur (4x6 m) til lengri
eöa skemmri tíma.
Allar nánari upplýsingar og
pantanir í síma 625030.
TJALDALEIGA
KOLAPORTSINS
Electrolux Goods Protection
Sendar hafa verið út ávísanir til eigenda skyldusparnaðarreikninga í innlánsdeild
Byggingarsjóðs ríkisins, sem eiga 30 þús. króna innistæðu eða lægri, í samræmi við
ákvæði nýsettra laga um niðurfellingu á skyldusparnaði ungmenna.
Nokkuð er um að ávísanir hafi ekki komist til skila, þar sem heimilisföng eru röng eða
hlutaðeigandi sparandi búsettur erlendis samkvæmt upplýsingum í þjóðskrá.
Skyldusparendur eða umboðsmenn þeirra, sem telja sig eiga innistæðu er nemur 30
þús. kr. eða lægri fjárhæð og ekki hafa fengið ávísanir sendar, eru hér með hvattir til
að hafa samband við veðdeild Landsbanka íslands, Suðurlandsbraut 24, Reykjavík,
í síma 60 60 55.
cSn húsnæðisstofnun ríkisins
SUÐURLANDSBRAUT 24 - 108 REYKJAVÍK - SÍMI69 69 00 (kl. 8 -16) - BRÉFASÍMI68 94 22