Morgunblaðið - 10.07.1993, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993
13
Parkmsonsamtök-
in á Islandi 10 ára
Félagið og tilgangur þess
eftir Bryndísi
Tómasdóttur
frá Tómasarhaga
Parkinsonsamtökin er félagsskap-
ur parkinsonsjúklinga, að standenda
þeirra og annarra velunnara, sem
vilja efla samstarf og hlúa að sjúkl-
ingunum. Samtökin voru stofnuð 3.
desember 1983 í Reykjavík en í dag
starfar einnig deild á Akureyri. Nú-
verandi formaður samtakanna í
Reykjavík er Áslaug Sigurbjörnsdót-
ir, hjúkrunarfræðingur. Hún er gift
séra Magnúsi Guðmundssyni, sem
verið hefur samtökunum stoð og
stytta og verður það seint fullþakk-
að. Samtökin gefa út fréttablað og
hefur Magnús m.a. þýtt allar greinar
fréttablaðsins úr erlendum málum á
íslensku og verið umsjónarmaður
þess frá 1987. Parkinsonsamtökin
halda reglulega fundi og eru þeir í
Áskirkju, u.þ.b. fimm fundir á ári.
Þetta eru fræðslufundir, þar sem
læknar og aðrir flytja erindi um park-
insonveikina og fl. Einnig eru sýndar
fræðslumyndir. Á fundunum er ætíð
sungið og leikið á hljóðfæri. Allir
fundir hefjast á fjöldasöng og er þá
parkinsonsöngurinn sunginn. Einn
af félögum samtakanna, Magnús
Jónsson í Hafnarfirði, hefur samið
þann texta við lag norsku samtak-
anna. Margir af okkar ágætu lista-
mönnum hafa komið á fundina og
skemmt fundargestum. í júní er allt-
af farið í sumarferðalag og í lok
nóvember er haldin árshátíð. Fundir
eru á laugardögum og byija alltaf
kl. 14.00 svo allir séu vel á sig komn-
ir og þeir standa til u.þ.b. kl 15.30.
Rannsóknir
Dr. Kjartan Guðmundsson gerði
faraldsfræðilega könnun á parkin-
sonveiki fyrir um það bil 40 árum.
Nú hefur Dr. Jesús de Pedro Questa
reiknað út að í Færeyjum séu tvisvar
sinnum fleiri parkinsonsjúklingar en
t.d. í Svíþjóð. Á Grænlandi 1,8 sinn-
um fleiri en í Svíþjóð og á íslandi
1,7 sinnum fleiri.
ísland hefur sérstöðu
ísland hefur sérstöðu að því leyti
að hægt er að rannsaka parkinson-
Allan Salmón framkvæmdastjóri Himlegárden, sem er endurhæfinga-
stöð. Birgitta Nyström hjúkrunarforstjóri og Karin Mánson frá MHR
sem sá um ráðstefnuna í Sigtuna Salmón segir kostnað í Himlegárden
helming af sjúkrahúsvist.
Riddarí með hatt
eftir Braga
Ásgeirsson
Upp á ýmsum frumlegheitum tek-
ur listaspíran Hallgrímur Helgason,
sem nú er búsettur í París.
Honum mun lengi hafa verið sér-
staklega uppsigað við okkur sem
skrifum í Morgunblaðið, og má m.a.
vísa til þess, er hann af mikilli
óskammfeilni réðist á Valtý heitinn
Pálsson, sem honum fannst ekki
doka nógu lengi við á smásýningu
sem hann hélt í einu herbergi fremst
á Laufásveginum. Var helst á skrif-
um Hallgríms að ætla, að hann hafí
verið með skeiðklukku í vasanum og
tekið tímann og kom á í ljós, að
Valtýr hafði verið eitthvað innan við
mínútu að skoða sýninguna í botn
og fjalla svo um hana!
Þetta var raunar það eina, sem
Hallgrímur hafði upp á Valtý að
abbast í það sinnið, því að rýni hans
var langt frá því óvinsamleg, og
kannski hefur Valtýr litið inn um
stóra gluggann áður en hann lauk
skrifunum. Það mátti í öllu falli
greina meginhluta sýningarinnar í
gegnum téðan glugga, og við sem
skrifum reynum á einhvern hátt að
nálgast sýningar aftur ef tilefni þyk-
ir til.
En kannski markaði hin stutta
viðdvöl Valtýs á sýningunni einmitt
listrænt vægi hennar í hnotskurn,
og sagði mun meira en vinsamleg
rýni, og þannig séð var frumhlaup
Hallgríms mjög hjálparlegt til að
upplýsa listunnendur. í Ijósi ofan-
skráðs hef ég verið meira en hissa,
að hinn hugumstóri krossferðariddari
skuli hafa hlíft mér til þessa, því að
ábyggilega er af nógu að taka í skrif-
um mínum fyrir menn með slíkan
hugsunarhátt.
En nú hefur Hallgrímur reitt til
höggs, en því miður á þann veg að
greinin væri alls ekki svaraverð,
nema að því leyti að mig greip óskilj-
anleg ritblinda í pistli þeim sem hann
er að agnúast út af.
Áður en ég vík að því, vil ég leið-
rétta ýmislegt í skrifí riddarans með
skarpleitu ásjónuna. Hið fyrsta er,
að hausinn „jnyndlist" er stundum
fyrst og fremst til aðgreiningar efnis
við vinnslu þess, og er eiginlega of-
aukið í þessum vettvangsskrifum
mínum. Sjónmenntir skara nefnilega
mun víðara svið en myndlist ein-
göngu, á sama hátt og að hönnun
er sitthvað fleira en áþreifanlegir
smíðagripir.
Mætti ætla að menn með þá
menntun að baki sem riddarinn stát-
ar af geri sér grein fyrir þessu, en
hér hef ég víst verið meira en einum
of bjartsýnn. Þá gerði ég fulla grein
fyrir þvi í fyrsta skyndibitapistlinum,
um hvað ég myndi íjalla, en þetta
er ósamstæð ferðasaga á milli safna
og sýninga, þar sem hratt er farið
yfir og smálegir atburðir af vett-
vangi dagsins eru ekki útilokaðir.
Ég er einmitt í almennum orðum
að víkja á listavettvangi og bæti við
einu og öðru sem á daga mína dreif,
en síst af öllu að þylja upp óskiljan-
legar fræðilegar romsur um einstök
söfn eða listaverk, sem fara fyrir
„Parkinsonsamtökin er
félagsskapur parkin-
sonsjúklinga, aðstand-
enda þeirra og annarra
velunnara, sem vilja
efla samstarf og hlúa
að sjúklingunum. Sam-
tökin voru stofnuð 3.
desember 1983 í
Reykjavík en í dag
starfar einnig deild á
Akureyri.“
sjúklinga á öllu landinu. Á næstu
mánuðum mun heíjast langtíma far-
aldsfræðileg rannsókn á parkinson-
veiki hér á landi, í samvinnu við
EPDA sem er félagsskapur 17 Evr-
ópulanda, og þýðir skammstöfunin
European Parkinson’s Disease
Association. Reynt verður að ná til
allra parkinsonsjúklinga á íslandi og
er samvinna sem flestra nauðsynleg
til að fá sem bestar og nákvæmastar
niðurstöður. Tekin verða viðtöl við
sjúklinga, ástand þeirra metið og
fengnar ýmsar blóðprufur. Best er
að hver og einn gefi sig fram við
sinn lækni en sjálfboðaliðar geta
einnig hringt í ritara taugadeildar
Landspítalans og gefið sig fram til
þátttöku. Einnig munu parkinson-
samtökin vera til viðtals og ráðlegg-
inga fyrir alla sjúklinga sem það vilja.
„Það er löng leið frá hugsun
til handar"
Þessa snjöllu setningu sagði dr.
Páll ísólfsson eitt sinn þegar hann
gat ekki framkvæmt það sem hann
hugsaði en eins og alþjóð -veit hafa
margir af okkar ástsælustu körlum
og konum þjáðst af parkinsonveiki.
En að mörgu þarf að hyggja. Ýmsar
rannsóknir hafa leitt í ljós að park-
insonsjúklingar þurfa að gæta vel
að mataræði og samsetningu á fæðu.
Ákjósanlegt er t.d. að borða ekki
eggjahvíturíka fæðu fyrr en að kvöldi
því eggjahvítan vinnur gegn lyijun-
um Madopar og Sinemet. Virka efn-
„Þegar ég svo skrifa
um stórar sýningar sér-
staklega, geri ég það á
afmarkaðan hátt, svo
sem ég hef oft gert og
þá skoða ég sýningar
hnitmiðað, en stundum
er fjarska gaman að
skoða þær einungis sem
almennur sýningar-
gestur og segja frá
þeim þannig.“
ofan garð og neðan hjá hinum al-
menna lesanda. Ég leitast einmitt
við að vekja áhuga lesandans á flakki
á milli safna á meginlandinu, sem
mjög margir iðka og mun fleiri frá
íslandi en áður gerðist, sem ég á
vonandi einhveija sök á.
Ég er líka að skrifa fyrir dagblað
uppi á íslandi, og fyrir almenning í
þessu landi, en ekki fyrir námslána-
fólk í útlandinu, staðsett á einum
möndli heimslistarinnar. Og sem
jafnframt hefur hundruð safna í
kringum sig og glæsilegan blaðakost
um listir, þótt margur kunni lítið að
meta það og loki að sér í sínum fíla-
beinstumi.
Þegar ég svo skrifa um stórar
sýningar sérstaklega, geri ég það á
afmarkaðan hátt, svo sem ég hef oft
gert og þá skoða ég sýningar hnitm-
iðað, en stundum er fjarska gaman
að skoða þær einungis sem almennur
Dr. Jan Presthus yfirlæknir frá
Osló varð 70 ára og lætur af störf-
um formanns parkinsonsamtak-
anna eftir átta ára starf.
ið í þessum lyijum er levodopa, sem
er amínósýra. Eggjahvíta saman-
stendur af amínósýrum sem keppa
við levodopa um aðgang að blóði og
heilaberki. Tilraunir á sjúklingum
hafa staðfest þetta. Þjálfun og leik-
fimi er þýðingarmikill þáttur í lífi
parkinsonsjúklinga og í Reykjavík
er boðið upp á leikfimi hjá Styrktar-
félagi lamaðra og fatlaðra undir
handleiðslu Guðlaugar Sveinbjarnar-
dóttur og starfsfólks hennar. Einnig
geta sjúklingar sótt sund á Grensás-
deild. Að lokum má benda á að
Heyrnar- og talmeinastöðin í Færeyj-
um hjálpar parkinsonsjúklingum sem
eiga erfitt með mál og mættu Islend-
ingar taka sér það til fyrirmyndar.
Ráðstefna
parkinsonsamtakanna í
Sigtuna í Svíþjóð
Á þeim tíu árum, sem Parkinson-
samtökin á íslandi hafa starfað, hafa
þau gerst aðilar að Parkinsonsam-
tökum Norðurlanda og einnig Evr-
ópusamtökum parkinsonsjúklinga
(ÉPDA). Nýlega var haldin ráðstefna
parkinsonsamtakanna á Norðurlönd-
um og voru íslensku fulltrúarnir þær
Nína Hjaitadóttir og Bryndís Tómas-
dóttir. Öll Norðurlöndin taka þátt í
rannsóknum EPDA. Bæði félögin
halda árlega fundi og sækja tveir
fulltrúar frá hveiju landi ráðstefn-
urnar á Norðurlöndum en formaður
hvers félags á ráðstefnur EPDA.
Ráðstefnan í vor var haldin í Sigtuna
Bragi Ásgeirsson
sýningargestur og segja frá þeim
þannig.
Og einmitt þannig hef ég náð til
mun stærri lesendahóps en aðrir, er
um myndlist og aðrar sjónmenntir
fjalla, í öllu falli tel ég mér trú um
það. Og það virðist fara óskaplega
í taugarnar á vissum hópi manna,
einkum þeim alvitru forsjárhyggju-
mönnum sem ennþá vilja ólmir frelsa
heiminn, þótt bylting þeirra hafi
reynst tálsýn.
Mörgum mun vafalítið þykja sitt-
hvað varið í að frétta af þeim ágæta
vini mínum Þórði Ben Sveinssyni í
Dusseldorf, en lítið náði ég að tala
við hann í það sinni sinnið svo sem
fram kemur. Var annars með viðtal
í maganum, sem mér fannst ég
skulda honum, því að eitt lítið innlit
til hans fyrir margt löngu varð til
Tafla sem gott er að nýta sér
svo ekki verði of mikið
eggjahvítuefni í matnum á
daginn.
Matvörur Einingar Prótein
Smjör og margan'n á brauð 0,0 gr
Gos með sykri 1 flaska 0,0 gr
Sulta á brauð 0,1 gr
Epli 1 stk 0,2gr
Kaffi lagað 0,2 gr
Gulrót 1 stk 0,6 gr
Tómatur 1 stk 0,6 gr
Appelsína 1 stk 0,8 gr
Banani 1 stk 1,1 gr
Kaviarúr þorsk- á brauð 1,1 gr
hrognum Hrökkbrauð 1 sneið 1,3 gr
Pilsner 1 flaska 1,4 gr
Mysuostur á brauð 1,7 gr
Lifrarkæfa á brauð 2,0 gr
Kartöflur 1 stk 2,0 gr
Hveitibrauð 1 stk 2,2 gr
Hrísgijón 1 skammt. 2,7 gr
Salamí 2 stk 2,8 gr
Magur srpjörostur á brauð 3,0 gr
Vínarbrauð 1 stk 3,2 gr
Heilhveitibrauð 1 stk 3,5 gr
Makríll í tómat á brauð 3,8 gr
Hveitibollur 1 stk 4,1 gr
Súkkulaði 1 stk 4,5 gr
Skólabrauð 1 stk 4,8 gr
Baunir í tómat 100 gr 4,8 gr
Flestar gerðir mjólkur 1 glas 5,0 gr
Morgunkom sætt ldl 5,0 gr
Goudaostur45% á brauð 5,4 gr
Jógúrt 1 mál 6,1 gr
Egg 1 stk 6,8 gr
Snitsel, steikt 1 stk 8,2 gr
Hnetur ldl 14,6 gr
Pylsur, soðnar 1 stk 16,1 gr
Þurrkaðar baunir 100 gr 21,6 gr
Brúnar baunir 100 gr 23,2 gr
Gúllaskjöt, nauta 1 skammt. 23,2 gr
Svínakótelettur 1 stk 29,6 gr
Nautabuff 1 stk 32,7 gr
'h kjúklingur 'h 50,0 gr
sem er elsta borg Svíþjóðar eða frá
970 og var fyrsta sænska myntin
slegin þar. Sigtuna stendur við Mal-
aren og er u.þ.b. 45 mín. akstur frá
Stokkhólmi. Oll götunöfn í bænum
eru frá miðöldum og ráðhúsið, sem
byggt var um 1700, hefur verið end-
urbyggt. Þarna er einnig að flnna
timburhús frá því um árið 1800, tijá-
garða frá siðaskiptum, elstu rúna-
steina, Maríukirkju sem er elsta tíg-
ulsteinsbygging í Svíþjóð, vígð 1247,
St. Olofs kirkjurústirnar síðan um
1100 og svo mætti lengi telja. Það
er mjög skemmtilegt að halda ráð-
stefnu á svo sögufrægum stað sem
Sigtuna. Allir þátttakendur bjuggu á
sama stað, gott samband var við
alla ráðstefnugesti og skipst var á
gagnlegum skoðunum. íslensku full-
trúarnir fundu nú sem fyrr hve nor-
rænt samstarf er gagnlegt fyrir sam-
tök parkinsonsjúklinga á íslandi.
Höfundur er deildarfulltrúi
Skólasafnamiðstöðvar.
þess að hann sleppti mér ekki fyrr
en eftir 10 daga og þá var mikið
skoðað, og mikið rætt um listir og
mannlífsvettvanginn. Ég minnist ein-
göngu á þetta hér, vegna þess að
það er lágkúruleg ósvífni hjá riddar-
anum, að ætla að ég sé að lítillækka
dóttur Þórðar með því að segja áhuga
hennar á námi lítinn í augnablikinu.
Slíkt er mannlegt, og mun hreysti-
legra að skipta um námsbraut en að
pína sig í gegnum próf sjálfum sér
og þjóðfélaginu til óþurftar. Hér var
um algjörlega hlutlausan framslátt
að ræða, og ég auk þess ekki á þeim
buxunum að vera fær um að dæma
neitt, né álykta eitt né neitt.
Svo kemur að stóru sprengjunni,
sem er að ég var gripinn ritblindu,
sbr. skákblindu, en skákmenn á öll-
um aldri og í öllum gæðaflokkum,
jafnvel heimsmeistararnir eiga það
til að lenda í slíkum hremmingum.
Mér er farið sem þeim og er ekki í
rónni fýrr en ég get leiðrétt þetta í
mínum þriðja og síðasta skyndibitap-
istli. Hvernig slíkt getur komið fyrir
finnst manni éftirá fullkomlega
óskiljanlegt, og veldur jafnvel and-
vöku, og ég leitast jafnan við að
vera hér sem nákvæmastur í skrifum
mínurn.
Sjálfur átti ég nefnilega að vita
hvar Amó fljótið er, og einnig Isar-
fljót, því að á bjó í 2 */j mánuð svo til
á bökkum Arnó fyrir nákvæmlega
39 árum og í tvö bjó í borginni við
Isar-fljót.
Vera má að ég hafi ekki alltaf
verið vel fyrirkallaður við samningu
vettvangsins, en væri það ekki eilítið
mennilegi-a, að riddarinn með hattinn
svarta fjallaði einnig um þær greinar
sem ég rita er ég er vel upplagður?
Höfundur cr myndlistamaður og
skrifar gagnrýni um myndlist í
Morgunblaðið.