Morgunblaðið - 10.07.1993, Síða 14

Morgunblaðið - 10.07.1993, Síða 14
1- 14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JULI 1993 Aldarminning Krislján Krisijánsson skipstjóri Kristján Kristjánsson fæddist á Ósi við Bolungarvík hinn 10. júlí 1893. Foreldrar hans voru þau Kristján Jónsson útvegsbóndi og síðar verkstjóri við verslun Péturs Oddssonar í Bolungarvík og kona hans Friðrikka Kristensa Lúðvíks- dóttir skipstjóra frá ísafirði. For- eldrar Kristjáns hófu búskap að Miðdal við Bolungarvík. Eignuðust þau sex börn. Þau voru auk Krist- jáns, Lúðvík Emil, Nikolína María, skipsþerna, Guðjón Alexíus, sjó- maður, Kristján Jón, sjómaður og Guðný. Þegar Kristján var tæplega 9 ára gamall andaðist móðir hans og fluttist þá faðir hans til Bolungar- víkur. Kristjáni og systkinum hans, sem voru þá á aldrinum eins árs til sjö ára, var komið í fóstur. Lúð- vík Emil drukknaði 15 ára gamall, er skektu hvolfdi úndan landi ná- lægt Skarði og Guðný lést aðeins 9 ára gömul. Lenti Kristján í vist víða og var jafnan hjá vandalausum. Var hann sjaldan lengur en ár á hverjum stað og fór því lítið fyrir formlegri skólagöngu hins unga drengs. Hann hóf ungur að stunda sjóinn eða um fermingaraldur, en það var þá ein mesta framavon fyrir dugmikla unga menn. Byijaði hann fyrst að róa á árabátum, en síðan á mótorbátum og loks eina vertíð á skútum. Var slíkt góður sjómennskuskóli fyrir unga menn, enda margir afburða sjómenn og aflamenn þess tíma aldir upp í ver- stöðvunum við ísafjarðardjúp. Sam- ferðamenn hans lýstu honum sem afburða verkmanni, þrekmenni að burðum, háum og glæsilegum á velli. Þótti hann kappsfullur og með betri dráttarmönnum. fyrr. Þegar verið var að fyrir Aust- urlandi lagði skipið upp á Eskifirði, þar sem Arnþór Jensen stjómaði afgreiðslu skipsins af miklum dugn- aði og útsjónarsemi. Þegar veiðar voru stundaðar á Selvogsbanka eða fyrir vestan þótti hins vegar of langt að sigla með afiann austur um. Reyndin varð því sú að oftast var landað úr skipinu í Reykjavík. Þótt togarinn væri gerður út frá Eski- firði, var nær að segja að Grimsby væri heimahöfn skipsins. Þangað kom það miklu oftar, en þar var aflanum landað meðan skipið fiskaði í ís. Útgerð Andrafélagsins varð því ekki til þeirrar atvinnu- aukningar á Eskifírði, sem til stóð í fyrstu. Rekstur Andrafélagsins gekk ágætlega árin 1929 og ’30, en árið 1931 tók verulega að halla undan fæti hjá félaginu. Síhækkandi verk- unarkostnaður og lækkandi fisk- verð lenti illa á félaginu og taka þurfti rekstrarlán, sem urðu félag- inu þung. Þá voru sölur ytra mis- jafnar. Ekki bætti úr skák kostnað- arsöm mánaðarlöng viðgerð, er ket- illinn sprakk um hávertíðina. Séra Magnús taldi að árið 1932 yrði fé- laginu ekki síður erfitt og lagði því til að Andri yrði leigður eða seldur. Þar kom að séra Magnús tilkynnti skipstjóranum að útgerðarfélagið treysti sér ekki til þess að gera skipið út. Haustið 1918 settist Kristján í Stýrimannaskólann í Reykjavík, er honum hafði tekist að safna fyrir skólavist og uppihaldi. Að loknu prófí 1920 var hann háseti og stýri- maður á togurum, lengst af með aflamanninum Gísla Oddssyni á b/v Leifí heppna. Árið 1927 tók Krist- ján við skipstjórn á b/v Gulltoppi, sem gerður var út af togarafélaginu Sleipni hf. Gulltoppur var byggður í Lehe í Þýskalandi árið 1921 og var 315 lestir að stærð. Til hans réðist þá sern stýrimaður hinn þjóðkunni afla- og athafnamaður Vilhjálmur Ámason. Hélst með þeim einlæg og trygg vinátta síðan. Skipið lá í Reykjavíkurhöfn og í fá hús að venda um skipsrúm. Menn sáu fram á atvinnuleysi og kreppu. Séra Magnús mun hafa átt þá hugmynd að áhöfnin tæki Andra á leigu. Hélt áhöfnin fund í Verka- mannaskýlinu, þar sem samþykkt var að stofna til útgerðarfélags áhafnarinnar. Auk Kristjáns og Þórðar Hjörleifssonar, 1. stýri- manns, tóku yfir 20 menn þátt í félagsstofnuninni. Þeirra á meðal Sigurður Pálmason bátsmaður, Hilmar Jónsson netamaður, Hafliði Jónsson netamaður, Þorleifur Jóns- son, Jörgen Jónsson, Jóhann Magn- ússon ofl. Sveinn Sæmundsson, rit- höfundur, rekur þennan athyglis- verða þátt áhafnarinnar í rekstri togarans Andra í bók sinni „Upp með Símon kjaft“. Um miðjan þriðja áratuginn steðjuðu miklir erfiðleikar að versl- unarfyrirtækjum, einkum þeim, sem voru í blönduðum rekstri. Verð- fall varð á íslenskum afurðum er- lendis og samdráttur í afla. Versl- un, útgerð og fískverkun barðist í bökkum. Þróun þessi hafði komið sérstaklega illa niður á eskfirskum fyrirtækjum og flest þeirra liðið undir lok. Forsvarsmenn byggða- lagsins gripu til aðgerða og komu á fót nýju fyrirtæki, sem skapa átti íbúunum atvinnu að nýju. Páll Magnússon lögmaður og oddviti hafði forystu um málið, ásamt föður sínum séra Magnúsi Blöndal Jóns- syni. Saga þessi er rakin ítarlega í Sjómannadagsblaði Neskaupstaðar 1991 af Smára Geirssyni. Séra Magnús hafði að loknum prestskap snúið ser að viðskiptum m.a. með eignaraðild og rekstri tog- arafélagsins Sleipnis hf. stundum nefnt Blöndalsútgerðin. Hafði séra Magnús forgöngu um að hið nýja fyrirtæki, Andrafélagið á Eskifirði, keypti Gulltopp og hlaut það nafnið Andri. Kristján var ráðinn skip- stjóri á Andra, en hann tók jafn- framt þátt í stofnun Andrafélagsins með hiutafjárframlagi. Áhöfnin var víðs vegar að af landinu og auk Austfirðinga voru með Kristjáni margir Bolvíkingar. Svo og togara- menn úr Reykjavík. Þeir höfðu flestir verið lengi -með honum og fylgt honum árum saman. Má þar nefna bræður hans tvo, Jón og Guðjón, sem alltaf fylgdu honum til sjós. Sumarið 1939 stundar Kristján síldveiðar, m.a. í félagi við Jóhann Magnússon og fleiri, á Sæfara, litl- um línubát. En um haustið kaupa þeir b/v Sindra ásamt aðilum á Akranesi. Gekk sú útgerð brösug- lega og mun Kristján hafa hætt í hálfgerðu fússi. Sjálfsagt hefur nýtl fyrir þeini endalokum, að hans beið tilboð um skipstjóm á togurum Kveldúlfs hf. og voru þeir Jóhann Magnússon stýrimaður saman á togurunum Agli Skallagrímssyni, Arinbirni Hersi og Snorra Goða, þar til Snorri var seldur Oddi Helgasyni 1944 og hlaut þá nafnið Viðey. Þegar nýsköpunartogararnir komu til landsins varð Kristján skip- stjóri á Akurey og átti hlut að stofn- un hlutafélags um það skip ásamt Oddi Helgasyni, kaupsýslumanni, og Jóhanni Magnússyni. Ákurey var 700 lestir að stærð, smíðuð í Bret- landi árið 1947 og kom skipið til Reykjavíkur í ágúst sama ár. I Bret- landi sá Jóhann um eftirlit með smíði skipsins. Þar tókust kynni með honum og færeyska togara- skipstjóranum Hans Pauli Johann- essen, sem varð til þess að Akurey og togarinn Johannes Patursson, undir stjórn Hans Pauli, urðu í sam- floti við tilraunaveiðar á áður óreyndum togaraslóðum við Græn- land haustið 1947. Frá þessu grein- ir Hans Pauli nánar í endurminning- um sínum. Reksturinn á Akurey gekk vel og voru menn tilbúnir að reyna ýmsar fleiri nýjungar, t.a.m veiðar í Hvítahafí. Kristján varð að fara í land 1953, en þá tók heilsa hans að bila. Við Akurey tók Gunn- ar Magnússon, skipstjóri, sem síðar átti eftir að stjórna stærstu flutn- ingaskipum í flota íslendinga og gerir enn. Síðustu æviár sín rak Kristján eggjabú á Seltjarnarnesi í félagi við vin sinn Steindór Árna- son, skipstjóra, og tók að sér afleys- ingartúra á togurum Bæjarútgerðar Reykjavíkur. Oddur Helgason, útgerðarfélagi Kristjáns, lýsir honum svo: „Krist- ján var afburða skipstjóri og má hiklaust telja hann í hópi mestu aflamanna íslenska togaraflotans. Öll árin, sem við unnum saman brást honum ekki ein einasta veiði- ferð. Hann var óragur við að reyna ný mið og nýjar leiðir og má til sönnunar nefna, að fyrstu veiðiferð sína á b/v Akurey fór hann í til- raunaskyni til Grænlands, fýrstur íslenskra togara. Þó stundum hvessti í brúnni þegar vel fiskaði, þá var Kristján slíkur öðlingur og raungóður, að margir af skipverjum hans voru með honum samfleytt í 15-20 ár og sumir enn lengur eða alla hans skipstjóratíð, svo sem Hilmar Jónsson, formaður Sjó- mannafélags Reykjavíkur og Jörg- en Jónsson. Um borð í skipum Krist- jáns var skipshöfnin ávallt sem samstillt úrvalslið. Þar ríkti reglu- semi, bróðurhugur og snyrti- mennska svo af bar.“ Hinn 22. sept- ember 1927 kvæntist Kristján konu sinni Guðrúnu dóttur Hafliða Jóns- sonar frá Álfsstöðum í Skeiðahreppi og Vilborgar Guðnadóttur frá Framnesi í Ásahreppi. Bjuggu þau lengst af á Sólvallagötu 13 hér í borg. Eignuðust þau eina dóttur, Vilborgu Guðrúnu, ritara á skrif- stofu forseta íslands. Áður eignað- ist Kristján son, Rafn, stýrimann og síðar starfsmann Sindrastáls í Reykjavík. Á heimilinu hjá tengdasyni sín- um, dóttur og dótturdóttur bjó Vil- borg Guðnadóttir í 19 ár. Einnig fluttust að Sólvallagötu 13, Kristín, mágkona Kristjáns, og fimm ungir synir, en maður hennar Magnús Jóhannsson skipstjóri fórst með togaranum Jóni forseta árið 1928. Voru drengirnir og Kristján miklir mátar. Tveir þeirra, skipstjórarnir Gunnar og Jóhann, voru frá ungl- ingsaldri með honum til sjós. Kristján Kristjánsson var oftar en ekki sjálfur virkur þátttakandi í útgerð þeirra skipa sem hann stjórnaði. Enn fremur var hann einn af stofnendum Hampiðjunnar hf. og Hvals hf. Hugur hans var því allur við sjóinn og uppbyggingu þess atvinnuvegar, sem honum er tengdur. Kristján lést í Reykjavík 16. júní 1958, tæplega 65 ára að aldri. í baksíðufrétt Morgunblaðsins 19. júní 1958 er Kristjáns minnst og þess þá getið að öll hans skip- stjórnarár hafí skip hans jafnan verið í tölu hinna aflamestu í flotan- um. Kristján hafi verið mikill skip- stjóri og aflamaður að sama skapi. Kristján Jóhannsson. Framsókn án framsóknar eftir GuðlaugÞór Þórðarson Þótt Kristjáni hefði jafnan geng- ið vel að fiska, fór nú svo að veiðam- ar gengu heldur illa. Bilanir á tækj- um voru tíðar og orsökuðu tafir. Þó var mannskapurinn á Andra samrýmdur og menn gengu glaðir til verka. Þegar skipið gat ekki verið að veiðum vegna veðurs, sátu menn í borðsal eða káetu og sungu, enda margir þeirra ágætir söng- menn. Matsveinn á Andra var Gest- ur Benediktsson, en aðstoðarmat- sveinn var Guðmundur Angantýs- son öðru nafni Lási kokkur. Þegar skipið hafði í næst síðustu ferð sinni á leigutímanum landað afla í Cuxhaven og fengið betra verð en oft áður, kom í ljós að ket- ill skipsins var bilaður. Viðgerð fór fram í Þýskalandi, en á Ytrihöfn- inni í Reykjavík kom í ljós að við- gerðin, sem framkvæmd hafði verið með ærnum tilkostnaði hafði gefíð sig. Andri komst með naumindum upp að bryggju í Reykjavík og þar endaði útgerð áhafnarinnar. Þrátt fyrir þessi skakkaföll voru hásetar með hálft annað kaup eftir úthalds- tímabilið og því ekki ólíklegt að útgerðarfélag áhafnarinnar hefði haldið áfram störfum ef allt hefði gengi vel. Eskfirðingar seldu skipið Júlíusi Guðmundssyni og var Andri gerður út frá Hafnarfírði og er Kristján áfram með skipið til ársins 1938, en þá er það selt til Patreks- fjarðar. Síðustu tvö ár hafa verið okkur íslendingum þung í skauti. Á und- anförnum árum hafa fískveiðiheim- ildir verið skornar niður og nýverið kom ríkisstjórnin saman til að taka erfíða ákvörðun um enn frekari niðurskurð á næsta ári. Minnkandi fiskafli hefur þýtt verulegan sam- drátt í útflutningstekjum og ríkis- stjórnin hefur boðað ýmsar aðgerð- ir til að mæta honum. Þótt illa ári er gott til þess að vita að ríkisstjómin virðist leggja kapp á að forðast að falla í sömu gryfju og fyrrverandi ríkisstjórn undir forsæti Steingríms Her- mannssonar. Sú ríkisstjórn ýtti vandamálunum á undan sér með erlendum lántökum og sólundaði fjármagni í fjölmarga fyrirgreiðslu- sjóði til styrktar atvinnulífínu. Af- leiðingin varð önnur en til var ætl- ast, einungis var um að ræða at- kvæðasjóði spilltra stjórnmála- manna á vinstri vængnum sem komu atvinnulífinu lítt til hjálpar. Það er athyglisvert að bera saman þá ríkisstjórn er nú situr og síðustu vinstri stjórn. Aðferðir síðustu stjórnar fólust í því að fela vandann og dæla lánsfé inn í atvinnulífið. Aðgerðir ríkisstjórnar Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks miða hins vegar fyrst og fremst að því að viðhalda stöðugleika í efnahagslíf- inu og taka áföllunum með raun- sæi. magn sem að öðrum kosti gæti nýst til atvinnuuppbyggingar. Marka þarf skýra stefnu sem miðar að því að straumlínulaga ríkisrekst- urinn og færa hann í nútímalegra horf. Þegar hefur nokkuð áunnist í þessum efnum en betur má ef duga skal. Guðlaugur Þór Þórðarson „Sé um samdrátt að ræða hjá almenningi í landinu verður hið sama að eiga við um umsýslu sljórnmála- manna hjá ríki og sveit- arfélögum. Aðeins þannig getur ríkt traust milli þjóðarinnar og þeirra sem kosnir hafa verið til að stjórna land- Mikilvægasta verkefnið ínu. Efling atvinnulífs er mikilvæg- asta verkefni okkar á komandi árum. Og þar verðum við að hafa í huga fyrri reynslu okkar. Það hefur sjaldan gefið góða raun að ríkisvaldið hafi með höndum beina íhlutun í rekstur atvinnufyrirtækja. Sóun í loðdýrarækt og fiskeldi á liðnum árum er skýrt dæmi um hvað getur gerst þegar stjórnrnála- menn misskilja hlutverk sitt. Öflugt og fjölbreytt atvinnujíf verður ekki byggt upp á vegum ríkisvaldsins heldur aðeins fyrir frumkvæði og dugnað einstaklinga og fyrirtækja. Hlutverk ríkisins á fyrst og fremst að vera að skapa fyrirtækjum rekstrargrundvöll með almennum aðgerðum og leikreglum. Fjárlaga- halli og sóun í rekstri stofnana og fyrirtækja á vegum ríkisins verður til bess að ríkið dreeur til sín fiár- Lækka þarf skatta og gefa einkaframtakinu svigrúm til að vinna þjóðina upp úr öldudalnum. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hefur tekist á við þetta verkefni bæði með lækkun tekjuskatts á fyrirtæki og afnámi aðstöðugjalds, sem hafði verið talsverður baggi á mörgum fyrirtækjum. En þessu þarf að fylgja eftir með enn frekari skatta- lækkunum. Ungir sjálfstæðismenn vinna nú að málefnastarfí þar sem skerpt verður enn frekar á hugmyndum sjálfstæðismanna. Niðurstaða þessarar hugmyndavinnu verður lögð fram á þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna í ágúst. Stjórn SUS hefur samþykkt að hafa tvennt að leiðarljósi við mótun þess- ara tillagna en það er að ná beri fjárlagahallanum niður og draga saman í ríkisrekstri með einkavæð- ingu, nútímavæðingu o.fl. Rúmlega tvö hundruð ungir sjálfstæðismenn taka nú þátt í þessu málefnastarfi SUS. Sú kynslóð sem er að ljúka námi og á leið út á vinnumarkaðinn gerir sér grein fyrir þeim skaða sem framsóknarlausnirnar hafa valdið íslensku efnahagslífi. Nýleg skoð- anakönnun sýnir að það er hjá þessari kynslóð sem stefna ein- staklingsfrelsis og raunsæis, stefna Sjálfstæðisflokksins, á mest fylgi. Sú kynslóð sem erfa á landið vill ekki taka við óþarfa eyðsluskuldum og ofvöxnu ríkisbákni framsókn- aráranna. Báknið burt Ungt fólk í dag gerir sér grein fyrir því að við byggjum ekki upp heilbrigt og öflugt efnahagslíf á íslandi nema að taka á því sem aflao-a hefur fariö oo- það sem fvrst.. 1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.