Morgunblaðið - 10.07.1993, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JULI 1993
15
Skipulagsmál á Seltjamarnesi
eftir Petreu
Jónsdóttur
í tilefni af umræðum í fjölmiðlum
að undanfömu um skipulagsmál á
Seltjarnarnesi verður ekki hjá því
komist að leiðrétta nokkurn mis-
skilning sem þar hefur gætt. Það
er stefna meirihluta bæjarstjórnar
að standa að skynsamlegri nýtingu
landsvæða þannig að íbúar bæjarfé-
lagsins hafi rúmt og gott svæði til
útivistar.
Aðalskipulag Seltjarnarness var
síðast endurskoðað og samþykkt
af bæjarstjóm 6. mars 1981 og
staðfest af ráðherra 5. nóvember
sama ár. Af þeim fulltrúum sem
þá sátu í bæjarstjórn eru tveir í
núverandi bæjarstjóm.
Samkvæmt skipulagslögum skal
aðalskipulag endurskoðað á fimm
ára fresti og lá því fyrir nýrri bæjar-
stjórn á Seltjarnarnesi eftir sveitar-
stjórnakosningarnar 1990 að end-
urskoða aðalskipulagið á kjörtíma-
bilinu.
Aðalskipulag er mikið vandaverk
og þá sérstaklega þegar viðkvæm
svæði eiga í hlut. Af þeim 7 bæjar-
fulltrúum sem eru í bæjarstjórn í
dag komu fjórir inn í hana eftir
síðustu kosningar og var talið eðli-
legt að menn tækju sér góðan tíma
að skoða núverandi aðalskipulag
og koma síðan með nýjar hugmynd-
ir að væntanlegu skipulagi, því vel
skal til vanda sem lengi á að standa.
Meintar skipulagshugmyndir
Svo var það á vordögum 1992
að umræða fór af stað um skipu-
lagsmál og meintar skipulagshug-
myndir bæjarfulltrúa meirihlutans.
Þar sem ekki hafði verið fjallað um
þessi mál opinberlega og viðkom-
andi bæjarfulltrúar ekki tjáð sig var
erfitt að skilja allt þetta fjaðrafok.
Af umræðunni mátti skilja að meiri-
hluti bæjarstjórnar Seltjarnamess
ætlaði að skipuleggja íbúðabyggð
allt í kringum Nesstofu og Bakka-
tjörn með tilheyrandi akbrautum
og göngustígum.
A gildandi aðalskipulagi er gert
ráð fyrir íbúðabyggð á þessum við-
kvæmu svæðum og hringvegi um
Seltjarnarnes vestanvert. Fullyrða
má að í dag dytti engum lifandi
manni í hug að fara eftir þessu
skipulagi. En, þetta erþó það skipu-
lag sem staðfest hefur verið af fyrr-
verandi bæjarstjórnum og félags-
málaráðherra. Það er því nauðsyn-
legt að breyta því ef fyrirhugað er
að nýta svæðið fyrir annað en
íbúðabyggð. Við gerð aðalskipulags
_er ákveðið hver landnotkunin skuli
vera, hvað fer undir íbúðabyggð,
útivistarsvæði og göngustíga og svo
hvaða svæði á að vernda og friða.
Skipulagsnefnd Seltjarnarness
fékk arkitekt til að hanna og koma
með tillögur að ýmsum útfærslum
á nýtingu svæðisins. Að fengnum
þessum tillögum var það svo verk
skipulagsnefndar og bæjarstjórnar
að vinna úr þeim og koma með þá
tillögu er talin var best.
Bakkatjörn - Nesstofa
- friðun
Sá misskilningur virðist ríkja
meðal fólks að skipuleggja eigi
íbúðabyggð í kringum Bakkatjörn
og Nesstofu. Ibúðabyggingar við
Nesstofu og Bakkatjörn eru ekki
inn í myndinni í nýju skipulagi. (í
gildandi aðalskipulagi er þar gert
ráð fyrir íbúðabyggð og ruglar það
e.t.v. fólk eitthvað í ríminu.)
Það svæði sem væntanlega verð-
ur skipulagt með einhverri íbúða-
byggð er að norðanverðu í Norður-
túni þar sem ytri mörk yrðu frá
iðnaðarsvæði við Bygggranda í
vestri í boga að væntanlegu bíla-
stæði norðan við lyfjasafnið. Þessi
byggð myndi ekki skyggja á Nes-
stofu og ekki skerða sjónlínu frá
henni í suður, vestur og norður.
Ekki er hægt að segja nákvæm-
lega til um fjölda húsa á þessu svæði
þar sem í aðalskipulagi er aðeins
kveðið á um landnotkun og deili-
skipulag er gert á eftir samþykkt
aðalskipulagsins og er þá jafnvel
farið út í samkeppni.
Á fundi skipulagsnefndar Sel-
tjarnarness 22. júní sl. var sam-
þykkt að efna til samkeppni um
deiliskipulag útvistar- og friðunar-
svæðanna vestan Nesstofu. Enn-
fremur var samþykkt að láta kanna
hringamyndanir í Nestúni, t.t.v. eru
þar minjar í jörðu sem rannsaka
þarf en þessir hringir eru allir utan
hugsanlegra byggingarsvæða.
Seltjarnarnes er u.þ.b. 160 hekt-
Petrea Jónsdóttir
„Það er stefna meiri-
hluta bæjarstjórnar að
standa að skynsamlegri
nýtingu landsvæða
þannig að íbúar bæjar-
félagsins hafi rúmt og
gott svæði til útivistar.“
arar að stærð og áætlað er að græn
svæði verði 65 til 70 hektarar eða
um 40% landsvæðis. í ljósi þessa
vil ég fullvissa Seltirninga og aðra
áhugaaðila um að við aðalskipulag
Seltjarnarness verður tekið fullt til-
lit til umhverfismála og umhverfis-
verndar.
Höfundur er bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins á
Seltjarnarnesi.
Ákall frá Sarajevo
Liðsbón til íslenskra listamanna
Nú þegar atvinnufyrirtáeki og
launafólk þurfa að taka á sig aukn-
ar byrðar verður ríkisvaldið að sýna
fordæmi og draga saman í fjár-
útlátum til opinberrá stofnana og
fyrirtækja. Það- er ótækt að safna
skuldum og sóa opinberu fé í póli-
tíska sjóði og fyrirgreiðslu. Sé um
samdrátt að ræða hjá almenningi
í landinu verður hið sama að eiga
við um umsýslu stjórnmálamanna
hjá ríki og sveitarfélögum. Aðeins
þannig getur ríkt traust milli þjóð-
arinnar og þeirra sem kosnir hafa
verið til að stjórna landinu. Sá nið-
urskurður verður að vera raunveru-
legur en jafnframt varanlegur. Það
má ekki gerast einu sinni enn þeg-
ar ráðherrar setjast niður og semja
sparnaðartillögur að þeirra eigin
ímyndunarafl nái ekki inn fyrir
ráðuneyti þeirra. Forsenda fyrir því
að hægt sé að létta byrðum af al-
menningi og fyrirtækjum er að ná
niður fjárlagahallanum. Það er síð-
an forsenda vaxtalækkunar. Við
erum komin að hættumörkum í
þenslu ríkisútgjalda. Því verður
ekki slegið lengur á frest að taka
á vandanum.
Mér þykir lítil frétt að ríkis-
stjórn, sem þarf að takast á við
jafn erfitt efnahagsástand, afli sér
ekki mikilla skammtírnavinsælda.
En spyijum að leikslokum ef tekist
er á við vandann af raunsæi og
með ábyrgð að leiðarljósi.
Höfundur er formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna.
- hótelið þitt
eftir Hrafn Jökulsson
Á degi hveijum berast okkur frétt-
ir af helför Sarajevo, höfuðborg lýð-
veldisins Bosníu-Herzegóvinu.
Fréttaþulir þylja nýjustu tölur um
mannfall og sýna okkur myndir af
deyjandi fólki. Og oftast hlustum við
án þess að heyra og horfum án þess
að sjá.
Sarajevo hefur verið í herkví síðan
6. apríl 1992. Enginn kemst úr borg-
inni án þess að fara um víglínu
Serba: 380.000 íbúar eru í reynd í
gíslingu glæpamanna sem láta rigna
eldi og sprengjum. Þúsundum íbúa
hefur verið slátrað á 15 mánuðum.
Lystigörðum og íþróttavöllum hefur
verið breytt í kirkjugarða.
Fréttaskýrendur fjölyrða einatt
um afreksverk varnarsveita
Sarajevo, og víst er um að margur
hernaðarsérfræðingurinn svokallað-
ur kann engar skýringar á því af
hverju borgin var ekki sigruð fyrir
iöngu.
En mestu hetjudáðir íbúa Sarajevo
eru ekki unnar í fremstu víglínu. Þær
eru unnar af fólki sem ekki hefur
látið martröðina buga sig, en lifir í
trássi við tryllinginn þó það eigi ekk-
„Listamenn í Sarajevo
hafa nú sent íslenskum
kollegum sínum liðsbón.
Þeir biðja um verk á sýn-
ingu sem væntanlega
verður opnuð í Sarajevo
í ágúst. Einkunnarorð
sýningarinnar eru latn-
eski málshátturinn
„Gens una sumus“: Við
erum ein fjölskylda.“
ert eftir nema fjarstæðukennda og
fráleita von um frið.
Meðan vonin lifir mun fólkið í
Sarajevo ekki gefast upp. Sprengj-
urnar megna ekki að drepa vonina
og hungurvofan getur ekki murkað
úr henni líftóruna.
Sinnuleysið, efinn og vanmáttur-
inn eru grimmustu óvinir fólksins í
Sarajevo. Spumingarnar sem engin
svör fást við. Hvers vegna lætur
Evrópa það viðgangast að siðmenn-
ingunni sé haldið í herkví? Það er
nefnilega evrópsk siðmenning sem
er teymd inn í pyntingarklefana,
evrópsk siðmenning sem verið er að
sprengja í tætlur. Evrópskri sið-
menningu er nauðgað og Evrópa
gerir ekkert.
Listamenn í Sarajevo hafa nú sent
íslenskum kollegum sínum liðsbón.
Þeir biðja um verk á sýningu sem
væntanlega verður opnuð í Sarajevo
í ágúst. Einkunnarorð sýningarinnar
eru latneski málshátturinn „Gens
una sumus“: Við erum ein fjölskylda.
Um er að ræða það sem á ensku
kallast „mail-art“, póstlist, og var
talsvert vinsælt tjáningarform til
skamms tíma. Vestur-evrópskir
listamenn notuðu þannig póstlistina
til þess að halda uppi samskiptum
við listamenn í fyrrum einræðisríkj-
um Austur-Evrópu.
Stærð listaverka markast af þeim
skilyrðum sem póstþjónustan setur
en að öðru leyti hafa listamenn fijáls-
ar hendur. Þeir geta sent teikningar,
grafík, ljósmyndir, klippimyndir eða
málverk. Öll listaverk sem berast
verða notuð á sýningunni.
Með þessu móti geta íslenskir
listamenn sýnt samstöðu í verki með
þeim listamönnum sem búa við
Hrafii Jökulsson
ömurlegri og hættulegri aðstæður
en orð fá lýst. íslenskir listamenn
geta lagt örlítil lóð á vogarskálar
vonarinnar fyrir fólkið í Sarajevo.
En tíminn er mjög naumur. Verk-
in þurfa að berast til Þýskalands á
næstu dögum, og þaðan er þeim
komið áleiðis til Sarajevo.
Höfundur er rithöfundur og .
blaðamaður. Þeir listamenn sem
vilja senda verk á sýninguna eru
beðnir að hofa samband við
greinarhöfund í símum 613215
eða 625566.
Muniö að sumarið líður fliótt
o
sumar-
afslætti
......... i ii imii iii ii iíhiiwiii yiiim wíimiriiíTn~nrTnMii—i imni
Þessa helgi: SkriðmispiU og
fiöldi kvista í pottum með
i/Vmiiiiii hiích iiiLj iiini i—wiln—iiniiiBi iii'ii»iimiiiiiirnn
Alla daga: Tré, runnar, verkfæri,
kraftmold og kurl.
VSKÓGRÆKTARFÉLAG REYKJAVIKUR
Fossvogsbletti 1, fyrir neðan Borgarspítalann, sími 641770. Beinn simi söludeildar 641777
srofTJAf 1»«