Morgunblaðið - 10.07.1993, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993
V eitinga-
húsum lokað
VEITINGASTÖÐUNUM 1929 og
Café ’29 við Ráðhústorg á Akur-
eyri hefur verið lokað. Ekki er
afráðið hvort eða með hverjum
hætti haldið verði uppi veitinga-
rekstri þar framvegis.
Að sögn Odds Thorarensen, full-
trúa eigenda þess húsnæðis þar sem
veitingastaðirnir voru, var ekki
grundvöllur fyrir því lengur að
hlutafélag, sem stofnað hafði verið
um rekstur veitingastaðanna, héldi
starfínu áfram.
Oddur sagði ekki ljóst með hveiju
móti haldið yrði áfram veitinga-
rekstri í þessu húsnæði, en þar var
fyrr á árum kvikmyndahúsið Nýja
bíó. Hann sagði að verið væri að
kanna ýmsa möguleika og einhveij-
ar fyrirspurnir hefðu borist um að
taka húsnæðið á leigu. Það færi
hins vegar eftir því hvort eigendur
sæju sér hag í að leigja húsnæðið
til veitingarekstrar hvort úr því yrði.
LISTASUMAR
Á AKUREYRI
Laugardagur 10. ágúst:
FENRIS, samporræni leik-
hópurinn sýnir í Iþróttaskem-
munni klukkan 17.00. Frum-
sýning.
Laufey Margrét Pálsdóttir
opnar sýningu á verkum sínum
í Café Karolínu í Grófargili.
Sunnudagur 11. ágúst:
Fenris leikhópurinn í
íþróttaskemmunni klukkan
17.00, síðari sýning á Akureyri.
Djasstónleikar á veitinga-
húsinu Við Pollinn. Tómas
R. Einarsson bassaleikari leik-
ur ásamt Oskari Einarssyni
píanóleikara og Árna Katli
Friðrikssyni trommuleikara.
Tónleikamir heljast klukkan
22.00.
Mánudagur 12. ágúst: '
Tónleikar tenórsöngvarans
Olafs Árna Bjarnasonar við
undirleik Ólafs Vignis Al-
bertssonar í Safnaðarheimil-
inu klukkan 20.30. Forsala á
skrifstofu Listasumars.
Fjarstýrð flutningaskip
Morgunblaðið/Rúnar Þór
AKUREYRINGAR eiga þess nú kost að gera út flutn-
ingaskip í skamma stund í senn. Fjarskip, fjarstýrð
leiguskip sem Róbert M. Ragnarsson hefur smíðað,
eru til leigu á tjörninni við skautasvellið á Akureyri.
Skipin eru gerð úr blikki og trefjaplasti og á góðum
degi er hin álitlegasta stórskipaumferð þegar ungir
og aldnir stýra þessum farkostum frá landi. Á mynd-
inni er Róbert með eitt skipanna en ungu mennirnir
tveir bera ábyrgð á siglingu þeirra skipa sem sjá má
í fjarska.
Endurvinnsla í áratug
UM ÞESSAR mundir eru 10 ár
liðin frá stofnun Gúmmívinnsl-
unnar hf. á Akureyri. Fyrir-
tækið var upphaflega stofnað
til að endurvinna og endurnýta
hjólbarða en með árunum hef-
ur starfsemin aukist og fram-
leiðslan orðið fjölbreyttari.
Fyrirtækið hefur hlotið viður-
kenningu fyrir brautryðjenda-
starf að endurvinnslu og er
meðal aðstandenda Urvinnsl-
unnar hf., sem hefur starfsemi
á næstunni.
Gúmmívinnslan hf. var stofnuð
8. júlí 1983 að undirlagi Þórarins
Kristjánssonar, sem fékk til liðs
við sig nokkur fyrirtæki og aðila
til að koma af stað endurvinnslu
á affallsgúmmíi og hjólbarðasólun.
Fyrirtækið komst í samband við
sænskt endurvinnslufyrirtæki, var
fyrst smátt í sniðum en hefur vax-
ið hægt og bítandi þannig að nú
eru þar tólf manns í vinnu en voru
fjórir í upphafi.
hJÁSKÓLIIMM
A AKUREYRI
Háskólinn á
Akureyri
Á rannsóknastofu
Háskólans á Akureyri er
laus staða til umsóknar.
Starfið felur í sér umsjón með efnafræðistofu,
efnalager og rannsóknatækjum. Væntanlegur
starfsmaður mun einnig aðstoða við efnafræði-
kennslu og við rannsóknavinnu.
Meinatækni eða önnur sambærileg menntun
æskileg.
Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna.
Ráðið verður í stöðuna til eins árs.
Upplýsingar um starfið eru gefnar á skrifstofu
Háskólans á Akureyri í síma 96-11770.
Umsóknir skulu hafa borist Háskólanum á Akur-
eyri fyrir 1. ágúst nk.
Háskólinn á Akureyri.
Þórarinn Kristjánsson
Gúmmívinnslunni.
Bobbingar, hellur og mottur
Frá árinu 1985 hefur Gúmmí-
vinnslan hf. framleitt millibobb-
inga fyrir sjávarútveginn en síðan
hafa bæst við fleiri framleiðslu-
vörur úr affallsgúmmíi, meðal
annars básamottur og gúmmíhell-
ur, sem eru sérstaklega heppileg-
ar á barnaleikvöllum og við sund-
laugar. Síðastliðið ár hefur fyrir-
tækið unnið með nemendum
Tækniskóla íslands og Slysavam-
arfélaginu við að framleiða sér-
staklega þykkar og mjúkar
Morgunblaðið/Golli
Gúmmívinnslan tíu ára
í áratugsgömlu endurvinnslufyrirtæki sínu,
gúmmíhellur sem ætlaðar eru fyr-
ir leikvelli.
Auk þess að stunda nokkurn
innflutning, meðal annars á hjól-
börðum hefur Gúmmívinnslan haf-
ið útflutning á bobbingum til
Grænlands og nú er unnið að því
að kanna markað fyrir fram-
leiðsluvörur fyrirtækisins erlendis,
meðal annars í Noregi og á Eng-
landi.
Gúmmívinnslan hf. hlaut viður-
kenningu Norræns umhverfisárs
1990-1991 fyrir brautiyðjenda-
starf í endurvinnslu á íslandi.
Akureyri
Sumarhús til leigu ó tveimur hæð-
um. Hentugt fyrir 1-2 fjölskyldur.
Æskileg vikuleiga. Veiði í sjó.
Uppl.: Tjaldstæðið Húsabrekka,
sími 96-24921, Haraldur.
V^terkurog
hagkvæmur
auglýsingamióill!
Listasumar á Akureyri
Olafur Ami
syngur í
Safnaðar-
heimilinu
TENÓRSÖNGVARINN Ólafur
Árni Bjarnason heldur tónleika
á Listasumri á Akureyri í Safnað-
arheimilinu á mánudagskvöld
klukkan hálfniu. Á efnisskrá
hans eru íslensk og erlend söng-
lög og aríur úr kunnum óperum
og óperettum.
Ólafur Árni
Bjarnason hefur á
undanförnum
misserum hlotið
geysigóða dóma
fyrir söng sinn í
óperuhúsum í
Þýskalandi og
þess er skemmst
að minnast að tón-
listargagnrýnandi
Morgunblaðsins
fór stórum orðum um söng hans á
Listahátíð í Hafnarfirði á dögunum.
Nú kemur Ólafur Árni til Akur-
eyrar og syngur í Safnaðarheimil-
inu á mánudagskvöld við undirleik
Ólafs Vignis Albertssonar.
Sönglög og frægar aríur
Efnisskrá Ólafs Árna er fjöl-
breytt en þar er meðal annars að
fínna sönglög eftir Sigvalda Kalda-
lóns og Eyþór Stefánsson en auk
þeirra aríur úr óperum á borð við
Carmen, La Bohéme, Rigoletto og
Tosca og óperettunum Sígaunabar-
óninum og Brosandi landi.
Tónleikar Ólafs Árna hefjast í
Safnaðarheimilinu klukkan 20.30 á
mánudagskvöld.
------♦ ♦ ♦
■Tónleikar í röð Sumartónleika
á Norðurlandi verða í Akureyrar-
kirkju sunnudaginn 11. júlí klukkan
17.00. Þar verður leikið á tvo
trompetta_og orgel. Trompettleikar-
arnir eru Ásgeir H. Steingrímsson
og Eiríkur Örn Pálsson en á orgel-
ið leikur Antonia Hevesi. Á efnis-
skránni eru verk meðal annars eftir
Stravinski, Pezel, Scarlatti, Bach,
Vivaldi og Hovhannes. Ókeypis að-
gangur er að tónleikunum.
■Kontrabassaleikarinn Tómas R.
Einarsson mun leika létt og gamal-
gróin djasslög á tónleikum í veit-
ingahúsinu Við Pollinn á sunnu-
dagskvöld frá klukkan 22. Hann
fær til liðs við sig^ kunna akur-
eyrska djassleikara, Óskar Einars-
son, sem leikur á píanó, og Árna
Ketil Friðriksson, sem leikur á
trommur.
■Pedromyndir hafa tekið í notk-
un tölvubúnað sem gerir mögulegt
að skanna og prenta myndir í fullum
lit. Þá geta viðskiptavinir fengið
prentaðar af tölvudiskum sínum
ljósmyndir, teikningar, línurit og
texta í stærðunum A3 og A4 á
pappír, glærur, boli og raðspil.
Einnig geta þeir fengið myndir
skannaðar á tölvudiska.
■Á Jaðarsvelli á Akureyri gefst
fólki kostur á að fylgjast um helg-
ina með mörgum bestu golfleikur-
um landsins í Mitsubishi Open golf-
mótinu. Má búast við að spennandi
verði að fylgjast með því hvort ein-
hveijum tekst að hreppa splunku-
nýjan Colt-bíl sem hanga mun í
krana yfir 18. holu til eignar þeim
sem fyrstur fer hana í einu höggi.
■Á Dalvík verður um helgina
Héraðsmót UMSE í fijálsum
íþróttum. Um 170 þátttakendur
keppa á mótinu sem hófst síðla í
gær en stendur í dag og á morgun
og lýkur með 1.000 m boðhlaupi
karla sem hefst klukkan 15.25.
Ólafur Árni
Bjarnason