Morgunblaðið - 10.07.1993, Side 19

Morgunblaðið - 10.07.1993, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JULI 1993 19 Hákall, brennivín og oblátur í Olafsvík UM ÞESSA helgi stendur yfir mikil Olafsvíkurvaka. Að því til- efni gaukaði Pétur Pétursson þulur nokkrum skemmtilegum punktum að Morgunblaðinu frá heimsókn Páls Gaimards til Olafs- víkur hinn 21. júlí 1835, sem skemmtilegt er að rifja upp. Frá Ólafsvík. Pétur segir svo frá: „Franski læknirinn og landkönnuðurinn Páll Gaimard, sem ferðaðist um ísland árin 1835 og 1836 hafði viðdvöl í Ólafsvík í júlímánuði 1835. Þaðan ritaði hann bréf til franska flotamálaráðuneytisins og greindi frá för sinni og við- skiptum sínum við Hans Arboe Clausen (langafi Clausens- bræðra), kaupmann. Eins og fram kemur í bréfi Gaimards keypti hann hákarl, sem hann stafsetur hákall og hugðist flytja í heilu lagi til Frakklands. Gaimard segir frá áformum sínum og áfanga- stöðum á leiðinni um landið. Fréttir frá Ólafsvík Fleiri urðu til þess að skrásetja fregnir af ferðum Frakkanna um ísland þetta sumar. Skrifarinn á Stapa, Páll Pálsson, traustur sam- verkamaður og trúnaðarvinur Bjarna amtmanns Thorsteinsson- ar, skráir í dagbók sína. Hann er gagnorður, en segir þó það sem segja þarf. Einar Bjarnason skagfirskur annálaritari og arf- taki Espólíns, hefir spurnir af ferðum frönsku leiðangursmann- anna. Hann hefir greinilega haft gott fréttasamband við Olafsvík og Hellissand. í 246. kafla bókar hans, sem ber yfirskriftina „Frá Frankismönnum", segir: Ætlaði að flytja út heilan hákarl „Það hafði borið til nýlundu hið fyrra sumar, að Frankismenn komu hér við land syðra. Riðu nokkrir af þeim vestur um land og allt undir Snæfellsjökul og voru í Ólafsvík um Jónsmessu. Var yfirmanni þeirra, er Páll hét, gefin þar skafá stór; lét hann þvo hana sem bezt og láta svo í heilu líki í lagartunnu og hella á brenni- víni og tilbyrgja svo tunnuna. Úr Ólafsvík reið hann á Hjallasand og keypti nýaflaðan hákarl í stærra lagi af Jónasi bónda í Hallsbæ og gaf fyrir 45 ríkisdali vöruverðs (mundi hver dalur 3ðji partur speciu). Lét Clausen kaup- maður í Ólafsvík smíða stakk utan um hákarlinn, en svo varð hann þungur, þá búið var að láta hákarl- inn í hann, að honum varð ei kom- ið upp í hið útlenda skip, og ónýtt- ist sú ætlan að flytja hákarl þann í einu líki til Frakklands og sýna þar fyrir ærna peninga. Heimsóttu Frankismenn þessir Steingrím biskup, og veitti hann þeim vel. Komu nú sumar þetta, 1836, menn hinir sömu aftur og höfðu gjafír með að fara frá konungi sínum, er hann sendi Steingrími biskupi, var eitt reiðtygi mjög vönduð.“ í hákarlalegu „Árni biskup í Görðum hefir spurnir af áformi Gaimards um „að fara í hákallalegu úr Reykja- vík“ eins og hann segir i bréfi sínu dagsettu 29. ágúst, rituðu til Bjarna Thorsteinssonar amt- manns á Stapa. Ef marka má orð bréfritara hefir Gaimard viljað sjá með eigin augum hvernig tekist var á við sprettharðan ógnvald undirdjúpa, en ekki sætt sig við hákarl þann, er hann keypti hjá Clausen kaupmanni í Ólafsvík. Árni biskup segir Gaímard ætla sér að senda heim í spíritus einn hákarlinn, eins og hann sendi hund, er hann keypti í Reykjavík. Læt ég ósagt. Hefði svo verið, mundi ég eins og Júdas forðum hafa sagt, að minnsta kosti hugs- að: Hvar til þessi sóun?. Það kemur fram síðar i bréfi Clausens kaupmanns til Bjarna Thorsteinssonar, að Páll Gaimard hefír hugað til vina sinna á Snæ- fellsnesi og andlegri velferð þeirra. Clausen ritar amtmannin- um um oblátur, sem Gaimard hafi sent sem vinargjöf til Ólsara og Sandara og ætlar væntanlega með því að bæta þeim bragð í munni og leiða þá til rétttrúnað- ar. Clausen kaupmaður spaugar með oblátusendinguna sem berst til Snæfellinga. Telur hann þær hljóti að vera óskaðlegar þar sem þær hafi borist fyrir milligöngu heilbrigðisyfirvalda. í ferðabókum leiðangursmann- anna Gaimards, Roberts og Marmiers er lýst gróðurfari, bú- skaparháttum og menningu þjóð- arinnar. Þeir skrá gaumgæfilega plötur allar sem verða á vegi þeirra, geta matjurta, tijáplantna og nefna ýmis nöfn.“ Eru þeir að fá 'ann S vartár höfðingi VÆNN Svartárhöfðingi, Jóhann Ingi Jóhanns- son með 12 punda fisk. Iflá honum er Jörund- ur Markússon, leigutaki árinnar. greiðfærar lengst af í sumar. Álftá er nú komin með á þriðja tug laxa og síðustu daga hafa ver- ið að skríða inn smágöngur. 5.-6. júlí veiddust t.d. 4 laxar, þar af þrír 12 punda, og 6.-7. júlí veidd- ust 5 grálúsugir laxar, allir á morg- unvaktinni og allir í sama veiði- staðnum.Eins og víðar fer þó laxinn hægt fram ána og nokkrir góðir veiðistaðir ofarlega, sem eru vanir að gefa strax í upphafi, voru enn fisklausir nú undir lok vikunnar. Síðustu fregnir frá Stóru Laxá hermdu að 6 laxar væru komnir af efsta svæðinu og aðrir 6 laxar af tveimur neðstu svæðunum. Ekki hafði frést af afla af miðsvæðinu, en það fylgdi sögunni, að Laxá hefði verið nánast óveiðandi vegna vatnshæðar og gruggs. Flestir þeirra fáu laxa sem enn hafa veiðst á þessu svæði voru stórir, allt að 17 pund. Talandi um stóra laxa, þá veiddist sá stærsti það sem af er sumri nýverið í Langholti. Var það 22,5 punda hængur. Nokkuð líflegt hefur verið í Lang- holtinu, en eins og fyrri daginn í Árnessýslunni er lífsins gæðum misskipt. Sum svæði eru dauf með- an önnur eru nokkuð líf- leg. Síðustu fréttir úr Gljú- furá í Borgarfirði eru ekk- ert allt öf upplífgandi, að- eins 15 laxar á land. Þetta eru þó nokkurra daga gamlar tölur og því gæti hafa bæst við. Eitthvað af laxi er þó komið í ána, menn hafa séð hann víða, en tökuskapi hefur ekki verið fyrir að fara. Rífandi silungsveiði Það er ekkert stórt um að vera í Tungufljóti þessa daganna, aðalveiðitíminn er allur eftir. Hins vegar hefur frést af mikilli og góðri silungsveiði þar í lok mai og byijun júní. Þá veiddu menn á þriðja tug fiska á stuttum tíma, var það bæði bleikja og sjó- birtingur á niðurleið. Voru þar fiskar allt að 9 pund- um og lítið eða ekkert af smælki. Nú styttist í að veiðitímmn sé hálfnaður í þeim am sem fyrst voru opnaðar, Laxá á Ásum, Norðurá og Þverá í Borgarfirði. Norðurá og Þverá hafa skilað nokkuð góðri veiði, en aðstæður hafa þó ver- ið erfiðar, vatnshæð og hitastig óstöðug í kjölfarið á köldu vori. Laxá á Ásum hefur gefið skot af og til, en á langt í land að standa undir þeim væntingum sem til hennar eru gerðar. 123 í holli verið um teljarann í laxastiganum í Blöndu, auk þess sem menn geta Nú hafa veiðst tæpir 700 laxar í Norðurá og er hún veiðihæsta áin það sem af er. Hópur sem veiddi í ánni frá þriðjudegi til föstudags fékk samtals 123 laka sem er mesta veiði sem fengist hefur í þriggja daga holli og þó var hópurinn aðeins með 9 stangir af 12 leyfilegum. Veiðimaður sem ásamt fleirum var við veiðar í Laxá á Ásum fyrr í vik- unni sagði lítið hafa sést af Iaxi í ánni. Þeir náðu þó 11 löxum á báðar stang- irnar á einum degi, einum 12 punda, nokkrum 7 til 9 punda og svo nokkrum 4 til 5 punda. „Þeir sem voru næstu daga á undan hafa greinilega lent í smásk- vettu. Einn hópur náði 40 löxum á báðar stangirnar á tveimur dögum og þeir sem á eftir komu voru með 20 á báðar stangirnar á einum degi. Við vorum á eftir þeim og það virtist ekki vera mikið eftir og ekkert sjáanlega bæst við. Við fórum um alla ána og þekkjum hana vel,“ sagði umræddur veiðikappi. Hann sagði að á milli 190 og 200 laxar væru komnir úr ánni. aldrei vitað hvað gengur sjálfar Ennisflúðirnar. Þær hafa verið Hér og þar Bærilega hefur gengið í Svartá og hollin hafa verið að fá nokkra laxa. Allur besti tíminn er eftir í ánni og talsverð fiskför hefur Nú ber vel í veiði! Tilboð! Þegar þú kaupir nýja Cardinal Maxxar hjólið færð þú Abu Garcia veiðivörur að eigin vali fyrir 1.000 kr. í kaupbæti. •§ ’ 5 Maxxar hjólin eru hönnuð af Achin Storz, þau I eru með tveim kúlulegum og teflonhúðuðum diskabremsum. Nú er tækifærið að eignast þetta frábæra hjól á góðu verði. Söluaöilar: Sportval-Kringlan Kringlunni 8-12 ■ Útilíf Glæsibæ Versturröst Laugavegi 178 ■ Musik & sport Hafnarfiröi ■ Veiðibúð Lalla Hafnarfriöi ■ Akrasport Akranesi ■ Axel Sveinbjörnsson Akranesi ■ Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi • Verslunin Kassinn Ólafsvík ■ Verslunin Vísir Blönduósi ■ Kaupfélag Skagfjrðinga Sauðárkróki ■ Siglósport Siglufiröi • Verslunin Valberg Ótafsfirði Sportvík Dalvík ■ KEA Akureyri ■ Kaupfélag Þingeyinga Húsavík Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstööum ■ Verslunin Skógar Egilsstööum Tröllanaust Neskaupstað ■ Verslun Elísar Guðnasonar Eskifiröi Viöarsbúð Fáskrúösfirði ■ Kaupfélagið Djúpavogi ■ Kaupfélag Árnesinga Kirkjubæjarklaustri ■ Sportbær Selfossi Rás Þorlákshöfn ■ Stapafell Keflavík HAFNARSTRÆTl 5 REYKJAVÍK • S ÍMAR 91-16760 & 91-14800 IT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.