Morgunblaðið - 10.07.1993, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993
Þingmeiri-
hluti með
Gonzalez
RÚMUR meirihluti spænskra
þingmanna lýsti yfir trausti á
Felipe Gonzalez, leiðtoga Sósíal-
istaflokksins á Spáni, í at-
kvæðagreiðslu á þingi í gær og
hann verður því forsætisráð-
herra landsins fjórða kjörtíma-
bilið í röð. Auk þingmanna Sós-
íalistaflokksins greiddu helstu
þingmenn flokka Baska og Ka-
talóna atkvæði með Gonzalez.
181 þingmaður studdi Gonzalez,
165 þingmenn voru á móti og
einn sat hjá. Gonzalez sagði á
þinginu að forgangsverkefni sitt
yrði að ná víðtækri samstöðu
um aðgerðir til að skapa fleiri
atvinnutækifæri og binda enda
á efnahagssamdráttinn.
Deilur um
Hong Kong
enn óleystar
DOUGLAS Hurd, utanríkisráð-
herra Bretlands, hélt frá Kína
í gær án þess að ná samkomu-
lagi við þarlend stjórnvöld um
lýðræðislegar umbætur í Hong
Kong, og sagði hann að samn-
ingaviðræðumar myndu halda
áfram fram í september. Deil-
umar spruttu upp í október þeg-
ar Chris Patten, landsstjóri
Hong Kong, lagði fram tillögur
um að íbúar nýlendunnar fengju
að kjósa meirihluta þingmanna
árið 1995. Stjómvöld í Kína
sögðu að þetta bryti í bága við
fyrri samninga landanna um
afhendingu Hong Kong til Kín-
veija árið 1997.
10 svertingjar
drepnir í Suð-
ur-Afríku
MENN vopnaðir byssum drápu
í gær 10 svertingja í Natal-hér-
aði í Suður-Afríku, daginn eftir
að Afríska þjóðarráðið og helsti
keppinautur þess, Inkata-flokk-
urinn samþykktu að reyna að
stöðva ofbeldið sem geisað hefur
undanfarið í landinu. Talsmaður
Afríska þjóðarráðsins sagði að
mennimir hefðu skotið á fólk
sem var að bíða eftir strætis-
vagni á leið til vinnu. Tveir
mannanna hafa þegar verið
handteknir. Nú hafa að minnsta
kosti 150 fallið í óeirðum í Suð-
ur-Afríku síðan 2. júlí, en þá
var ákveðin dagsetning fyrir
fyrstu kosningamar opnar öll-
um kynþáttum.
Yfirmenn
ganga í störf
undirmanna
YFIRMAÐUR kjamorkuherafla
fyrrum Sovétríkjanna sagði í
gær að herdeildin væri orðinn
það fáliðuð að hann þyrfti að
gegna störfum undirmanna
sinna. Igor Sergeyev, herforingi,
sagði í viðtali við dagblað hersins
að aðeins tækist að manna um
50-60% af stöðum. Einnig sagði
hann að flestar eldflaugamar
væra orðnar úreltar.
Bráðabirgða-
stjóm I Nígeríu
Herstjórnin í Nígeríu hóf í gær
viðræður til að koma á laggirn-
ar bráðabirgðastjóm til þess að
binda endi á þriggja vikna
stjórnarkreppu sem ríkt hefur í
landinu. Kreppan skall á í kjöl-
far þess að úrslit í forsetakosn-
ingum sem haldnar voru í síð-
asta mánuði voru gerð ógild.
Ibrahim Babangida, forseti
landsins, ógilti úrslitin á þeim
forsendum að um kosningas-
vindl hefði verið að ræða.
MARGRA daga úrhellisrigning í Miðvesturríkjum Bandaríkjanna hefur
valdið miklum flóðum á svæðinu þar sem Mississippi-fljótið hefur flætt
yfír bakka sína. Fylkin Missouri, Iowa og Illinois hafa farið verst í flóðun-
um og hafa flóðvamargarðar víða gefíð sig. Hafa sjálfboðaliðar, þjóðvarðl-
iðið og jafnvel fangar barist gegn flóðunum á þeirri tæplega 500 km leið
fljótsins í gegnum svæðið. Eru þetta mestu vatnavextir í Mississippi-fljót-
inu síðan árið 1965 og nemur tjón milljörðum króna. Á myndinni sést
þar sem vatnið flæðir yfir aðalgötuna í Crafton, Missouri.
Lokayfirlýsing fundar leiðtoga sjöveldanna í Tókýó
Heita að efla hagvöxt
Tókýó. Reuter.
LEIÐTOGAR sjö helstu iðnríkja heims, G-7, hétu þvi í lokayfírlýs-
ingu fundar síns í Japan, er lauk aðfaranótt föstudags, að beita
sér fyrir auknum hagvexti og beijast gegn atvinnuleysi. Samþykkt
var hugmynd BiIIs Glintons Bandaríkjaforseta um að haldinn verði
sérstakur leiðtogafundur síðar á árinu um atvinnuleysi í heiminum.
Evrópuríkin lofa að stuðla að vaxtalækkun, Bandarikin að draga
úr fjárlagahalla og Japanar að efla neyslu og hagvöxt innanlands.
Öll ríkin hvetja til þess að lokið
'verði við Uruguay-lotu GATT-samn-
ingsins um aukið frelsi í heimsvið-
skiptum á árinu.
Samþykkt var að auka aðstoð við
þriðjaheimsríki en ekki ríkti ein-
drægni um leiðir. Japanar og Frakk-
ar hyggjast í sameiningu láta kanna
hvernig hægt sé að vernda fátækar
þjóðir, er aðallega flytja út hráefni,
fyrir kollsteypum verðlags á alþjóða-
mörkuðum. Bretar og Frakkar vilja
að iðnríkin felli niður að verulegu
leyti skuldir fátækra þriðjaheims-
ríkja en aðrar G 7-þjóðir taka ekki
undir það sjónarmið.
Frakkar hafa verið stórtækastir í
efnahagsaðstoð við fátækar þjóðir.
Gagnrýnendur þeirra hafa þó bent
á að mestur hluti aðstoðarinnar komi
aftur til föðurhúsanna þar sem féð
sé einkum notað til að kaupa fransk-
ar iðnaðarvörur.
Deilt um leiðir
Reuter
Við fótskör Búdda
HILLARY Clinton, forsetafrú í Bandaríkjunum, sést hér á tali við
búddamunk í Japan. Hún hefur verið sökuð um það á heimaslóðum
að vilja breyta ímynd bandarískra forsetafrúa með mikilli þátttöku
sinni í stefnumörkun og störfum forsetans en vísar slíkum ásökunum
á bug. Samkvæmt skoðanakönnunum í Japan nýtur Hillary Clinton
þar aðdáunar jafnt kvenna sem karla og meirihluti fólks er á því að
karlremba sé ríkjandi i stjórnmálaheimi Iandsins.
Francois Mitterrand Frakklands-
forseti var ómyrkur í máli um starfs-
bræður sína í gær. „Sumar þjóðir
eru ekki reiðubúnar að hvika í neinu
frá öfgafullum markaðs-trúarbrögð-
um sínum,“ sagði forsetinn. Sér-
fræðingar í málefnum þróunarríkja
og nýfrjálsra þjóða austurhluta Evr-
ópu eru almennt á einu máli um að
áhrifaríkasta hjálpin sem iðnríkin
gætu veitt fátæku þjóðunum væri
að opna markaði sína fyrir fram-
leiðslu þeirra, ekki síst landbúnaðar-
vörum. Frakkar eru í fararbroddi
þeirra sem vilja takmarka slíkan
aðgang að mörkuðum Evrópubanda-
lagsins og krefjast þess að fá áfram
að vernda franskan landbúnað fyrir
samkeppni.
Borís Jeltsín Rússlandsforseti,
sem ræddi við leiðtogana að loknum
G 7-fundinum, lýsti ánægju með að
Rússar fengju 200 milljarða króna
aðstoð til að hraða einkavæðingu. Á
hinn sagði hann það mikil vonbrigði
að tilmæli Rússa um betri aðgang
að mörkuðum ríkra þjóða hefðu ekki
náð fram að ganga.
Stuðlaö verður að auknum
hagvexti í heiminum og
dregið úr atvinnuleysi
AÐGERÐIR
Japanar reyna að auka innanlands-
neyslu og minnka gífurlegan hagnað
af utanrikisviðskiptum
Evrópumenn lækka vexti
Bandaríkjamenn halda áfram að
lækka fjárlagahailann
Samið um gagnkvæmar
tollalækkanir
Mikilvægar aðgerðir í
mm umhverfismálum
munu hafa forgang
Rússland fær rúmlega
200 milljarða kr. aðstoð
Starf SÞ verði eflt
REUTER