Morgunblaðið - 10.07.1993, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993
2T
Þess vegna er heim-
urinn svona vondur
eftir Baldur B.
Bragíison
Torfi Ólafsson skrifaði rabbgrein
í Lesbók Morgunblaðsins 29. maí
undir fyrirsögninni „Hvers vegna
er heimurinn svona vondur?“.
í upphafi greinar sinnar lýsir
Torfi kenningu kirkjunnar um
erfðasyndina, en hún segir að jriað-
urinn hafi verið skapaður góður en
erfðasyndin hafi spillt lionum.
Síðan vekur Torfi athygli á því
hvernig grimmdin og miskunnar-
leysið blasa hvarvetna við og hvern-
ig fólk sem kallar sig kristið fremur
glæpi sem okkur hryllir við. Hann
spyr síðan hvers vegna þetta sé
svona. Torfí hallast helst að því að
kenningin um erfðasyndina sé rétt.
Maðurinn vilji vel en honum mistak-
ist að lifa samkvæmt því sem hann
veit réttast og best. Maðurinn beri
ábyrgð á velferð bræðra sinna og
systra og eigi að beijast gegn synd-
inni og illskunni og styðja hinn
veika og brotlega, og rísa alltaf upp
ef hann hrasi.
í mörgu er ég Torfa sammála
en ég tel að vonska heimsins stafí
mest af því að þorri mannkynsins
hefur hafnað síðasta sendiboða
Guðs til mannanna þótt helgirit
mannkynsins hafi mörgum sinnum
spáð komu hans og þeir spádómar
hafi nú ræst. Biblían er merkileg
bók og inniheldur ýmiss konar efni.
Þar má telja lög um rétta breytni;
spádóma um komu guðdómlegra
sendiboða í framtíðinni, dæmisögur
og sögur á táknmáli sem venjulegt
fólk getur ekki ráðið fram úr. Eg
tel að allar dæmisögur Jesú um
Guðsríkið séu spásagnir um tilkomu
bahá’ítrúarinnar. Þess er getið á
fleiri en einum stað í Biblíunni að
bækurnar hafi verið innsiglaðar
(Jesaja 29:11-12 og Daníel 12:4
og 12:9) svo ekki er furða þótt fólk
skilji ekki ýmsar táknrænar sögur
hennar. Spámenn bahá’ítrúarinnar
Báb (1819-1850) og Bahá’u’lláh
(1817-1892) hafa rofið innsiglin á
bókunum og eina leiðin til að fá
botn í ýmsar táknrænar sögur Bibl-
íunnar er að lesa rit þeirra eða rit
’AbduTBahá (1844-1921) elsta
sonar Bahá’u’lláh, sem var útnefnd-
ur skýrandi kenninganna eftir and-
lát Bahá’u’lláh.
’Abdu’l’Bahá hefur útskýrt sög-
una um Adam og Evu í Paradís.
Við þekkjum öll söguna af því
hvernig höggormurinn fékk Evu til
að eta af skilningstré góðs og ills
í aldingarðinum Eden, og hvernig
hún fékk Adam til að eta af því
líka, en það varð til þess að þau
urðu þess vör að þau voru nakin
og reyndu að fela sig fýrir Guði.
Guð ávítaði þau harkalega og rak
þau burt úr Eden og setti fjandskap
milli afkomenda Evu og afkomenda
höggormsins, og lét gæta vegarins
að lífsins tré til að þau ætu ekki
líka af því og lifðu eilíflega (2. og
3. kafli 1. Mósebókar).
Hér eru nokkrir punktar úr út-
skýringu ’Abdu’l-Bahá á þessari
sögu:
„... Skynsemin getur ekki með-
tekið svona sögu, staðfest hana eða
ímyndað sér hana; því að svona
fyrirkomulag, svona smáatriði,
svona tal og ávítur eru fjarri því
að koma frá skynsömum manni og
enn síður frá sjálfum Guðdóminum
- ... Ef bókstafleg merking þess-
arar sögu væri tileinkuð vitrum
manni mundu allir auðvitað vísa því
á bug að þetta fyrirkomulag, þessi
uppfinning gæti stafað frá skyn-
semi gæddri veru. Þess vegna verð-
um við að taka þessa sögu um
Adam og Evu og brottrekstur þeirra
úr Paradís sem dæmisögu. Hún
hefur margar merkingar .. . og hér
kemur ein:
Adam táknar himneskan anda
Adams og Eva mennska sál hans.
Skilningstré góðs og ills táknar
heim mannsins; því að andlegi
Baldur B. Bragason
„í mörgu er ég Torfa
sammála en ég tel að
vonska heimsins stafi
mest af því að þorri
mannkynsins hefur
hafnað síðasta sendi-
boða Guðs til mannanna
þótt helgirit mannkyns-
ins hafi mörgum sinn-
um spáð komu hans og
þeir spádómar hafi nú
ræst.“
heimurinn og guðdómlegi heimur-
inn eru algjörlega góðir og gjörsam-
lega ljósrænir, en í mannlega heim-
inum er til ljós og myrkur, gott og
illt sem andstæður.
Höggormurinn táknar viðloðun
mannsins við hinn mannlega heim,
sem leiddi sál og anda Adams út
úr veröld frelsisins inn í heim
ánauðarinnar og fékk hann til að
hverfa frá konungsríki einingarinn-
ar inn í hinn mannlega heim. Frá
hæðum hreinleika og algjörs góð-
leika datt hann inn í veröld góðs
og ills.
Lífsins tré táknar hæsta stig
veraldar tilverunnar; stöðu orðs
Guðs og hinnar æðstu guðsbirtingar
(þ.e. spámannsins). Þess vegna hef-
ur sú staða verið varðveitt; og við
tilkomu hinnar göfugustu og æðstu
guðsbirtingar varð hún skýr og
augljós.
. . . Þegar helgaðir blævindar
Krists og heilagt skin hinnar Mestu
sólar (þ.e. Bahá’u’lláh) dreifðust
víðs vegar, frelsuðust raunveruleik-
ar mannanna - þ.e.a.s. þeirra sem
sneru sér til orðs Guðs og hlutu
úthellingu náðargjafa þess - frá
þessari viðloðun og synd, öðluðust
eilíft líf og losnuðu úr hlekkjum
ánauðar og komust inn í heim frels-
isins . . .“
Bahá’u’llán var . fangelsaður
vegna trúar sinnar og var fangi og
útlagi í 40 ár. Hann kunngerði stöðu
sína opinberlega árið 1863 í Baghd-
ad.^
Árið 1867 tilkynnti Bahá’u’tláh
konungum og stjómendum jarðar-
innar á eindreginn og skýran hátt
hver hann væri. Hann skrifaði þeim
öllum bréf og sagði þeim að hann
væri spámaður Guðs fyrir daginn í
dag og að fyrsta skylda þeirra
væri að trúa á hann og hlýða hon-
um. Hann gaf þeim skýr fyrirmæli
um hvað þeir ættu að gera til að
koma á hinum Mesta friði. Konung-
arnir hunsuðu fyrirmælin og þess
vegna blasir þessi ófriður og óáran
við í dag. Þegar Bahá’u’lláh sá að
konungarnir höfnuðu hinum Mesta
friði bað hann þá að halda fast við
hinn Minni frið. Bahá’u’lláh gaf
mannkyninu 100 ára frest til að
snúa sér til Guðs og rennur sá frest-
ur út í kringum árið 2000, en hinn
Minni friður mun komast á fyrir
árið 2000.
Árið 1967 lét Allsheijarhús rétt-
vísinnar (9 manna yfirstjórn bahá’í-
trúarinnar í heiminum) bahá’ía um
allan heim afhenda þjóðhöfðingjum
og frammámönnum bókina „The
Proclamation of Bahá’u’lláh“ sem
innihélt safn þeirra bréfa sem Ba-
há’u’lláh skrifaði konungunum 100
árum áður. Forseti íslands, biskup-
ar, prestar og alls konar frammá-
menn fengu þessa bók að gjöf.
Árið 1986 sem SÞ útnefndu sem
Ár friðarins afhentu bahá’íar sams
konar aðilum bæklinginn „Fyrirheit
um heimsfrið“ og árið 1992 á 100
ára ártíð Bahá’u’lláh fengu sömu
aðilar bæklinginn „Bahá’u’lláh", og
afhending hans er enn í gangi, til
að þeir kynntust lífí hans og starfi.
Biblían spáir um tilkynningu
Bahá’u’lláh til konunganna í Matt-
eusarguðspjalli 22. kafla í dæmi-
sögunni um konunginn sem gjörði
brúðkaup sonar síns.
Um fólkið sem kallar sig kristið
og fremur glæpi sem okkur hryllir
við og svíkur undan skatti og Torfí
minnist á í grein sinni er líka spáð
í Biblíunni í Matt. 24:48-51.
Höfundur er tannlæknir.
Aukin starfsemi
Suðurflugs hf.
SUÐURFLUG HF. hefur undanfarin ár rekið flugskóla og takmarkað
leiguflug frá Keflvíkurflugvelli. Suðurflug hefur núna í sumar aukið
starfsemi sína á sviði leiguflugs og einka-, atvinnu-, fjölhreyfla- og
blindflugskennslu. Félagið hefur til ráðstöfunar tveggja og fjögurra
sæta kennsluflugvélar og fjögurra, sex og átta manna leiguflugvélar.
Undanfarin ár hefur Suðurflug víkurflugvöll og er nú unnið að
hf. rekið flugskóla og takmarkað
leiguflug frá Keflavíkurflugvelli.
Suðurflug hf. hefur núna í sumar
aukið starfsemi sína á sviði leigu-
flugs og einka-, atvinnu-, fjöl-
■hreyfla- og blindflugskennslu. Fé-
lagið hefur til ráðstöfunar tveggja
og fjögurra sæta kennsluflugvélar,
og fjögurra, sex og átta manna
leiguflugvélar.
Undanfarin ár hefur flutnings-
geta félagsins verið takmörkuð. Til
að vinna bót á því hefur Suðurflug
hf. bætt við flotann sinn Cessna
402B, tveggja hreyfla vél sem getur
flutt allt að átta manns. Auk þess
er á stefnuskrá Suðurflugs hf. að
flytja starfsemi félagsins í full-
komna þjónustumiðstöð við Kefla-
því. Ennfremur mun Suðurflug hf.
bjóða upp á auglýsingaflug. Aug-
lýsingaflug felst í því að draga svo-
kallaðan auglýsingaborða yfir borg
og bæ og er mjög hentugt til að
auglýsa atburði líðandi stundar.
Þess má geta að Suðurflug hf. er
eina flugfélagið í landinu sem hefur
viðurkenndan búnað sem þarf til
auglýsingaflugs.
Fjórir flugstjórar starfa nú með
félaginu og er yfirflugstjóri Þórhall-
ur Magnússon.
Þrátt fyrir smæð félagsins er það
markmið Suðurflugs hf. að þjóna
þörfum landsbyggðarinnar allrar í
beinu leiguflugi til og frá Keflavík-
urflugvelli.
JOKLASOLEY
(Ranunculus glacialis)
Blóm vikunnar
Umsjónarmaður Agústa
Björnsdóttir
272. þáttur
Jöklasóley er ein þeirra íslensku
sóleyja, sem eftirsóttust er í
garða, bæði innan lands og utan,
enda vissulega þess virði að reynt
sé við hana. Þetta er háfjallajurt,
t.d. fundin í 1.535 m hæð í Kerl-
ingu við Eyjafjörð, en hæst hefur
hún fundist í Alpaflöllum í 4.275
m hæð og er það hærra en nokk-
ur Evrópuplanta hefur komist.
Hins vegar vex hún alveg niður
að sjávarmáli á Grænlandi og
Svalbarða og það gerir hún reynd-
ar líka á stöku stað hérlendis.
Þeim sem séð hafa jöklasóleyjuna
blómstrandi í sínu fjallaríki, líður
sú sjón seint úr minni. Þykk,
skinnkennd blöð gljá á gráu gijóti
og hin stóru, í fyrstu hvítu en síð-
ar rósrauðu blóm, vekja undrun
og aðdáun. - Það er ævintýri lík-
ast. Jöklasóleyjan er oft flutt í
garða, að vísu með misjöfnum
árangri, en hún á að geta lifað
þar sæmilegu lífi árum saman,
ef vel er að henni búið. Það sem
henni er líklega nauðsynlegast er
mögur jörð, gott afrennsli og vetr-
arskýli. Ef við athugum heim-
kynni hennar, sjáum við að hún
vex helst í klettum og skriðum,
þar sem aldrei stendur vatn við.
Á veturna er hún jafnan í skjóli
fyrir berfrosti og næðingum undir
snjó, en þegar vorar og snjóa leys-
ir seytlar kalt leysingavatnið um
rætur hennar undir sólvermdu
yfirborði skriðunnar. Þetta eru að
vísu lífsskilyrði, sem okkur garð-
eigendum mun reynast erfitt að
veita henni, en hún er vís til að
slá af kröfunum ef við förum vel
að henni. Að vísu dregur oft af
henni með tímanum í görðum á
láglendi, líklega vegna þess að
sumarið er þar full langt miðað
við það sem hún á að venjast.
Jöklasóleyjan er nefnilega jurt’
sem hefur sérhæft sig í að lifa
við háflalla-aðstæður og þau
kröppu kjör sem þeim fylgja,
þ.e.a.s. stutt en þó björt sumur
og langa snjóþunga vetur. Hún
er því alltaf að flýta sér til að
geta lokið við að blómstra og
þroska fræ á þeim stutta tíma sem
hún venjulega hefur til umráða
áður en vetur gengur í garð á
háfjallaslóð. Hún hefur líka venju^i.
lega lokið þessum skyldustörfum
af á miðju sumri á láglendi og
virðist þá oft vera í vandræðum
með að bíða vetrarins, blóm-
hnapparnir sem myndast fljótlega
að blómgun lokinni og eiga að
geymast til næsta vors byija að
vaxa upp og ný blómgun hefst.
Vera má að þetta raski eitthvað
lífsmynstri hennar og geri smám
saman út af við hana í görðum
okkar.
Annars sáir jöklasóleyjan sér^
nokkuð í görðum, einkum ef húrP ‘
er í malarþöktu beði (skriðubeði).
Með góðri gát má því vel láta
hana haldast þar við með sjálfss-
áningu.
Eins og mörg fjallablóm virðast
jöklasóleyjar kunna bærilega við
sig í potti, ef vissum skilyrðum
er fullnægt. Við höfum komist að
góðu samkomulagi, ég og ,jökla“,
um það sem ég svona með sjálfum
mér hef kallað „skriðupott“, en
það er ósköp venjulegur leirpott-
ur, útbúinn með góðu afrennsli,
leir- og sandborinni mold, en efstu
2 sm í pottinum er fíngerð möl.
Potturinn er grafinn upp að rönd
í sólreit með góðu frárennsli og
er því undir gleri yfir veturinn,
sem verður að koma í staðinn
fyrir snjóþekjuna til fjalla. Á vor-
in þegar vöxtur fer að byija er
vökvað vel. „Jökla“ mín hefur
sætt sig við þessa meðferð og
blómstrar ágætlega á hveiju vori,
þroskað fræ og sáð sér eins og
hún væri heima hjá sér. Við höfum
semsagt komist að samkomulagi.
Ó.B.G.
Áframlialdaiidi rekst-
ur Mjólkurstöðvar *
NÝIR aðilar hófu nýlega rekstur
Mjólkurstöðvarinnar í Neskaup-
stað. Það er Mjólkursamlag
Norðfjarðar, nýstofnað almenn-
ingshlutafélag, sem keypti
mjólkurstöðina af kaupfélaginu
Fram sem ákvað fyrr á árinu að
hætta rekstri stöðvarinnar.
Mikill áhuga var meðal íbúa og
fyrirtækja hér innan fjallahringsins
um áframhaldandi rekstur mjólkur-
stöðvarinnar. Efnt var til hlutafjár-
söfnunar sem gekk vonum framar
og söfnuðust tæpar átta milljónir í
hlutafé. Hinir nýju eigendur ætla
að endurskipuleggja reksturinn og
eru bjartsýnir á framhaldið.
Stjórnarformaður Mjólkursam-
lags Norðfjarðar er Guðröður Há-
konarson og mjólkurbílstjóri Björn
Pálmason.
- Ágúst.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Mjólkurstöðin í Neskaupstað.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
' stóum Moggans!