Morgunblaðið - 10.07.1993, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993
Hver er tilgangur lífsins?
Frá Bronko Bj. Haraldssyni:
Hver er tilgangur lífsins? er
stundum spurning dagsins hjá DV.
Og svarið er: Við erum hér á þess-
ari jörð (plánetu) til þess að læra
alit um Guð, skapara okkar og okk-
ur sjálf, til að þroskast andlega og
breyta rétt; að elska náungann eins
og sjálfan sig og hjálpa bágstöddum
nær og fjær. Þá Hfir maður lífinu
lifandi. „Þannig lýsi ljós yðar mönn-
unum, til þess að þeir sjái góðverk
yðar og vegsami Föður yðar á himn-
um,“ Matteus 5,16.
Og markmið lífsins á jörðinni er
að frelsast frá eilífum endurfæðing-
um og komast áfram á braut — á
braut út í geimnum í samfélag við
háþróaðar verur. Til er bók sem
heitir „Ami — Child of the Stars“
eftir Enrique Barrios, sem kom út
1989 í S-Ameríku sem útskýrir allt
þetta á einfaldan hátt. Jafnvel barn
getur skilið þetta. Sannlega segi
ég yður: Nema þér snúið við og
verðið eins og bömin, sem trúa á
það ómögulega og undursamlega,
komist þér alls ekki inn í himna-
ríki. Segið því ekki áhyggjufullir:
Hvað eigum við að borða? eða:
Hvað eigum við að drekka? eða:
Hverju eigum við að klæðast? Því
að eftir þessu sækjast heiðingjar
og guðleysingjar. Yðar himneski
Faðir veit, að þér þarfnast alls
þessa. En leitið fyrst ríkis hans og
réttlætis, og þá mun allt þetta veit-
ast yður að auki. Gef oss í dag
vort daglegt brauð — orð þitt! Matt-
eus 18,3 og 6,25-34, Galatabréfið
5,13-26.
Táningar í dag vita því miður
ekkert um þennan boðskap. Það
ríkir algjört guðleysi víðar en hérna.
Þess vegna hafa börnin ekkert hald
í lifinu, þau grípa í tómt og gefast
upp. Sjálfsvíg og eiturlyf á meðal
þeirra hefur aukist til muna. Börnin
læra snemma að fýrirlíta fullorðna
fólkið fyrir hræsni og efnishyggju,
sérstaklega hjá prestunum og öðr-
um embættismönnum og uppalend-
um, Eskíel 34,1-16. Það er ekki
einu sinni farið með bænir í skólan-
um. Þau fá ekkert vegarnesti út í
lífið — sannleikurinn um Drottinn
Guð, Jesús Krist og endurfæðing;
Jóhannes 3:3,7,13; Markús
10,29-30; Jóh. 8,58. Þeir byggja
vandræði sem eru í vandræðum var
mér sagt einu sinni fyrir löngu.
Lögmál karma er að hver maður
mætir því, sem hann á skilið vegna
breytni sinnar í fyrra lífi. Eins og
þú sáir munt þú og uppskera! Og
hver sem uppsker, fær laun og safn-
ar ávexti til eilífs lífs, til þess að
bæði sá sem sáir og sá sem upp-
sker geti glaðst sameiginlega. Og
sérhver mun 'fá sín eigin laun eftir
sínu eigin erfiði. Því að þetta er
sannleikurinn: Sá sem sáir er hinn
sami og sá sem uppsker — í endur-
fæðingu! Já, sá sem gróðursetur og
sá sem vökvar eru eitt, Jóh.
4,36-37 og I. Kor. 3,8.
BRONKO BJ. HARALDSSON,
Hverfisgötu 28, Reykjavík.
Trékyllingi svarað
P Frá Árna ísakssyni:
í Morgunblaðinu 22. júní síðast-
liðinn var fyrirspurn til veiðimála-
stjóra frá Trékyllingi varðandi
veiðieftirlit í sjó. Þar er bent á, að
veiðieftirlitsmaður frá hágsmuna-
aðilum hafi fylgst með sjávarlögn-
um í sjó við Hrútafjörð og spurt
um réttmæti þess.
Eftirlit með veiðum á laxi og sil-
ungi hér á landi er breytilegt, sem
að hluta byggist á því, að hið opin-
bera hefur ekki talið réttmætt að
kosta slíkt eftirlit að fullu og talið
eðlilegt að hluti kostnaðar væri
greiddur af hagsmunaaðilum.
í aðalatriðum er um þrenns kon-
ar eftirlitsmenn að ræða:
1. Eftirlitsmenn með ám og ósa-
• svæðum, sem eingöngu eru launað-
ir af veiðiréttareigendum. Þessir
aðilar eru óhjákvæmilega oft tengd-
A ir hagsmunaaðilum.
2. Veiðieftirlitsmenn með sjávar-
veiði, sem að hluta eru launaðir af
hagsmunaaðilum og að hluta af
hinu opinbera. Lögð er áhersla á,
að þessir eftirlitsmenn séu óháðir
hagsmunaaðilum.
3. Veiðieftirlitsmenn með sjávar-
veiði, sem alfarið eru launaðir af
hinu opinbera og óháðir hagsmuna-
aðilum.
Skörun og samvinna getur verið
á milli þessara eftirlitsmanna og
má benda á að þrír aðilar hafa rétt
til eftirlits í Hrútafirði og næsta
nágrenni á þessu sumri. Þannig
hefur eftirlitsmaður við Hrútafjarð-
ará fulla heimild til eftirlits með
sjávarlögnum í Hrútafirði, enda
vinnur hann í náinni samvinnu við
aðra eftirlitsmenn, lögreglu og
sýslumenn Strandasýslu og Húna-
vatnssýslu.
Varðandi ráðningu eftirlits-
VELVAKANDI
AÐALSTÖÐIN
HEYR!
• )
+
ÞATTUR Katrínar Snæhólm
Baldursdóttur, „Maddama, kerl-
ing, frönken, frú,“ sem er á dag-
skrá Aðalstöðvarinnar frá kl. 7
til 9 á morgnana er alveg frá-
bær, jákvæður og virkilega gef-
andi.
Katrín hefur svo aðlaðandi og
róandi rödd sem gott er að hlusta
á svona í morgunsárið.
í þættinum fjallar Katrín á
mjög jákvæðan hátt um lífið og
tilveruna almennt og er henni í
því efni ekkert óviðkomandi. Ég
hrífst þó fyrst og fremst af um-
fjöllun hennar um andleg mál-
efni, sem ég og fleiri fáum aldrei
nóg af. Hvet ég fjölmiðla til þess
að sinna þeim málefnum í ríkara
mæli en hingað til.
Tónlistarval Katrínar ér afar
smekklegt og hentar útsending-
artíma þáttarins mjög vel. Hef
ég lengi verið að leita að slíkri
tónlist á öllum tímum dags í stað
þess síbyljuflóðs sem hlustendum
flestra útvararpsstöðvanna er
boðið uppá allan sólarhringinn.
Væri vel til fundið af stjórn-
endum Aðalstöðvarinar að finna
fleiri stjórnendur á borð við Katr-
ínu til þess að geta lengt útsend-
ingartíma stöðvarinnar á já-
kvæðu og uppbyggjandi efni.
Aðrir íjölmiðlar mættu eins og
áður segir taka sér Aðalstöðina
til fyrirmyndar og hafa meira af
jákvæðu efni sem hægt er að
hlusta á, í stað allra hörmung-
anna sem fjölmiðlar keppast við
að uppfræða hlustendur sína um.
Áfram Katrín, haltu áfram að
vekja fólk til jákvæðrar hugsun-
ar!
Ánægður hlustandi.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Peysur í Þjórsárdal
TVÆR peysur, hvít, írsk ullar-
peysa, merkt íris Dungal, hin grá
norsk ullarpeysa með rauðu og
hvítu munstri, merkt Níels D.
Guðmundsson, töpuðust í Þjórs-
árdal sl. helgi. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma 53388 eða
42288. Fundarlaun.
Týnt hjól
FJÓLUBLÁTT fjallahjól af gerð-
inni Peugoet, Blue Lagoon, hvarf
úr miðbæ Reykjavíkur fyrir
stuttu. Á hjólið er ritað á áber-
andi hátt „Made in France".
Hafí einhver orðið hjólsins var
er hann beðinn að hringja í síma
26269. Fundarlaun
GÆLUDÝR
Hvolpur
LÍTILL, sætur, fimm vikna
hvolpur (hundur) fæst gefins á
gott heimili. Foreldrar eru sér-
staklega hlýðnir, greindir og
skapgóðir, faðir af Golden
Retriever-kyni en móðir af ís-
lensku kyni. Upplýsingar í síma
96-26228.
manna er því til að svara, að land-
búnaðarráðherra skipar eftirlits-
menn, oft eftir beiðni hagsmuna-
aðila og samkvæmt meðmælum
veiðimálastjóra.
ÁRNI ÍSAKSSON
veiðimálastjóri.
Pennavinir
Frá ísrael skrifar frímerkjasafn-
ari sem vill komast í samband við
íslenska safnara með skipti fyrir
augum:
Mordechai Ya’ary,
P.O. Box 65236,
61651 Tel Aviv,
Israel.
Nítján ára Ghanastúlka með
áhuga á sundi, bréfaskriftum og
póstkortum:
Erica Donkor,
c/o Eric Siripi,
Box 328 Agoua-Swedru,
Ghana.
Átján ára japönsk stúlka með
áhuga á bréfaskriftum og tónlist:
Kyoko Tokunaga,
1218-47 Ofunakoshi-cho,
Isahaya-shi,
Nagasaki-ken,
854 Japan.
Franskur 23 ára piltur með
áhuga á tungumálum, safnar frí-
merkjum og myndböndum:
Patrick Pastor,
9 Place du Guery,
63800 Cournon,
France.
Sænskur heimspekinemi með
áhuga á tónlist og ferðalögum í
óbyggðum, skrifar bréf sitt á bjag-
aðri en auðskiljanlegri íslensku vill
eignast pennavini og óskar eftir því
að þeir skrifi honum á íslensku:
Thomas Fahrenholz,
Dalabergsvagen 5,
30241 Halmstad,
Sweden.
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
AJARNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUQVELLI
OG A RÁÐHÚSTORGI
41.
Nuer
tvöfaldur
l.vinninour!
Vertu með
draumurinn gæti orðið að veruleika !
GRAFÍSK HÖNNON: MERKISMENN HF