Morgunblaðið - 10.07.1993, Síða 43

Morgunblaðið - 10.07.1993, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993 KNATTSPYRNA Heiðar meðtvö „Við þurftum virkilega að rífa liðið upp eftir töp í síðustu tveimur leikjum," sagði Heið- ar Ómarsson, sem skoraði bæði mörkin í 2:0 sigri ÍR á BÍ í 2. deild þegar liðin mættust í Breiðholtinu í gærkvöldi. ís- firðingar áttu þó síst minna í leiknum en tókst ekki að nýta færin. Talsverður hliðarvindur setti svip á leikinn og gekk lið- unum illa að ná upp spili. Heiðar skoraði fyrra markið strax á 7. mínútu þrátt fyrir að gestirnir væru ágengari við mark IR. Svavar Stefán Ævarsson átti skot Stefánsson í markslá ÍR á 16. skrifar mínútu og bróðir hans, Jóhann, náði ekki að nýta gott færi fimmtán mínútum síðar. Undir lok fyrri hálfleiks tókst heimamönnum að vetja á línu. Snemma í síðari -hálfleik náði Þorleifur Oskarsson, markvörður ÍR, að leggjast á boltann eftir gott skot frá Tosic Dorde. Eftir það fór að draga af gestunum og IR-ingar náðu ekki að nýta nokkur upplögð færi. Heiðar komst einn upp eftir misheppnaða spyrnu frá marki BÍ, en skaut í stöng og skömmu síðar varði Jónas Sigur- steinsson, markvörður BÍ, frá Heiðari af stuttu færi inní mark- teig. Enn var títtnefndur Heiðar á ferðinni rétt undir leikslok þegar hann vann kapphlaup við Jónas markvörð, komst aleinn innfyrir og renndi boltanum í autt markið. „Gengi okkar hefur verið slæmt undanfarið, nema leikurinn gegn Tindastól sem við unnum, en þessi leikur var með þeim betri. Þetta er allt að koma, það birtir yfir og við erum ekki svartsýnir,“ sagði Stefán Tryggvason fyrirliði BI eft- ir leikinn. „Við höfum notað sömu leikmennina mikið en höfum alveg feikinóg af mannskap. Ætli við hölum stigin ekki inn í seinni umferðinni.“ ÚRSLIT 2. DEILD ÍR-BÍ............................2:0 Hreiðar Ómarsson 2. 3. DEILD Haukar - Skallagrímur............1:0 Guðmundur Valur Sigurðsson. Selfoss - Völsungur..............2:2 Sveinn Jónsson, Magni Blöndal — Jónas Garðarsson, Róbert Skarphéðinsson. Dalvík - Reynir S................2:0 Garðar Níelsson, Þorsteinn Guðbjömsson. H'Tveimur leikjum var frestað vegna bikar- leikja í vikunni: HK - Gróttu og Víði - Magna. 4. DEILD Njarðvík - Leiknir R............8:1 Um helgina Knattspyrna Þrír leikir verða leiknir í 1. deild kvenna í dag. Þróttur Nes. - Valur og Breiðablik - ÍBA leika ki. 14, en KR - Akranes kl. 16. Heil umferð verður leikin i 3. deild karla á mánudaginn kl. 20. Þá leika Grótta - Selfoss, Völsungur - Haukar, Skallagrímur - Víðir, Magni - Dalvík og Reynir S. - HK. Hlaup Borgarhlaup fyrir 14 ára og yngri hefst við Borgarkringluna kl. 12 í dag. Hlaupnir verða 2,5 km. íþróttahátið HSK Héraðssamband Skarphéðins verður með fþróttahátíð á Hvolsvelli um helgina. Keppn- in hefst kl. 10 laugardag og lýkur kl. 18 á sunnudag. Héraðsmót UMSE Héraðsmót UMSE fer fram á Dalvíkurvelli um helgina. Mótið hóst í gærkvöldi, en lýk- ur á sunnudag kl. 15.25. Golf Opna Einskipsótið er haldið i dag á Nesvell- inum. Leiknar verða 18 holur með og án forgjafar. Opna hjóna- og parakeppnin verður hjá Golfklúbbi Suðumesja f dag. Leiknar verða 18 holur með og án forgjafar. Serbíumaður í her- búðir Valsmanna „Viljum styrkja leikmannahóp okkar," VALSMENN taka á móti 26 ára Serbíumanni, sem kemur til landsins í dag — og mun æfa með þeim til reynslu næstu daga. Hér er um að ræða 26 ára leikmann, sem getur bæði leikið sem miðvallarspilari og varnarmaður. Valsmenn áttu von á tveimur leikmönnum, en fengu að vita að hinn leikmaðurinn — sóknarleik- maður, hafi skirfað undir samning við lið í Serbíu f fyrradag. sagði Kristinn Björnsson, þjálfari Vals Eg vona að leikmaðurinn falli inn í hóp okkar og komi tii með að slyrkja hann. Að fá leik- manninn sem við vitum lítið sem ekkert um er algjört happdrætti. Við getum orðið heppnir eins og Skagamenn, sem fengu Serbann Mihajilo Bibercic til liðs við sig rétt fyrir íslandsmót, en hann hef- ur skorað S nær hverjum leik,“ sagði Kristinn Bjömsson, þjálfari Valsmanna, i viðtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi. „Við bíðum spenntir eftir að sjá hvað leikmað- urinn kann fyrir sér, en hann mætir á fyrstu æfinguna hjá okkur á sunnudaginn.“ „Það eru margar ástæðum fyrir því að við tókum þessa ákvörðun. Við vonuðumst eftir að Guðni Bergsson myndi leika með okkur og biðum spenntir eftir að Guðni byrjaði, en hann átti að leysa ákveðin vandamál sem komu upp eftir síðasta keppnistímabil. Það er ekki hægt að ioka augun- um fyrir því að þrír leikmenn fóru frá Val — Einar Páll Tómasson til Svíþjóðar, Salih Heimir Porca til Fylkis og Izudin Daði Dervie til KR, en þeir voru allir lykimenn í Valsliðinu í fyrra. Þá hefur Baldur Bragason lítið sem ekkert leikið með okkur, en hann tábrotnaði. Baldur er rétt byijaður að æfa og bíðum við eftir honum. Þá von- umst við eftir að leikmaðurinn frá Serbíu falli inn í myndina. Ef svo verður og Baldur verður kominn á ferðina, styrkist leikmannahópur okkar mikið,“ sagði Kristinn Bjömsson. Dregið í átta liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar — allir leikirnir á dagskrá mánudaginn 19. júlí Enfiin hvag CO o yyClB%jiri píww od €M uivivur - segir Sævar Jónsson fyrirliði bikarmeistara Vals sem geta slegið met KR frá 1964 í átta liða úrslitunum Morgunblaðið/Einar Falur Bæta Valsmenn met KR-inga? Fulltrúar Valsmanna við dráttinn í gær, en þeir stefna að því að bæta met KR-inga, sem léku 15 leiki í röð án taps í bikarkeppninni 1960-64, en Valsmenn hafa nú náð sama árangri. Frá vinstri: Sævar Jónsson, fyrirliði, Bjami Sigurðs- son markvörður og Kristinn Björnsson, þjálfari liðsins. Það er sonur Bjama, Sigurður Daði, sem situr á mjólkurbrúsan- um sem nöfn liðanna voru dregin upp úr. BIKARMEISTARAR Vals mæta Fylki í átta-liða úrslitum Mjólk- urbikarkeppninnar í ár í Ár- bænum. Liðin mættust þar í undanúrslitum keppninnar í fyrra, er Fylkir lék í 2. deild og þá höfðu Hlíðarendastrákarnir betur; en töpuðu svo fyrtr Fylki í Árbænum í deildinni fyrr í sumar. Valsmenn standa á vissum tímamótum nú því þeir geta bætt met KR frá 1964. KR-ingar, sem urðu bikar- meistarar f imm fyrstu árin sem keppnin var haldin, 1960-64, sigruðu þá í 15 leikjum í röð og Valsmenn, bikarmeistarar síðustu þriggja ára, eiga nú að baki 15 bikarleiki í röð án taps. Leikirnir fjórir fara allir fram annan mánudag, 19. júlí, kl. 20. Auk leiks Fylkis og Vals er þar um að ræða eftirtalda leiki: KR- ÍBV, ÍBK-Leiftur og ÍA-Víkingur. Pressan á Fylki Sævar Jónsson, fyrirliði Vals, sagði eftir dráttinn í gær að umræð- an um bikarkeppninna snerist að miklu leyti orðið um það að slá Valsmenn út. „En mér finnst ekki meiri pressa á okkur en áður þrátt fyrir það. Ég held að hún sé meiri á árinu eftir fyrsta sigurinn, því það getur í rauninni enginn ætlast til þess af okkur nú, að við vinnum bikarinn fjórða árið í röð — það er því engin pressa á okkur. Ég held að hún verði því meiri á Fylki en okkur í leiknum," sagði Sævar við Morgunblaðið. Magnúsi Jónatanssyni, þjálfara Fylkis, leist vel á að fá Val í heim- sókn. „Það hlýtur að vera spenn- andi fyrir Fylkisliðið, og alla Arbæ- inga reyndar, að taka á móti mesta bikarliði ísíands fyrr og síðar, sem ég tel Valsliðið vera. Við fáum þarna annað tækifæri gegn þeim; þeir slógu okkur út úr bikarkeppn- inni í 4-liða úrslitum í fyrra — og fóru létt með það — en vonandi stöndum við okkur betur nú,“ sagði Magnús, og taldi það hljóta að vera metnaðarmál allra að binda enda á sigurgöngu bikarmeistara þriggja síðustu ára. Magnús taldi Valsmenn hafa átt frekar slakan leik er Fylk- ir sigraði þá í deildinni fyrr í sum- ar, „þannig að ég geri ráð fyrir því að þessi leikur verði miklu erfiðari. Enda eftir miklu að slægjast því það styttist óðum í úrslitaleik." Alveg sama... KR-ingar hafa ekki fengið heimaleik í bikarkeppninni síðan Skagamenn, sem þá léku í 2. deild, komu í heimsókn sumarið 1990. pt-ingar taka hins vegar á móti ÍBV að þessu sinni, og Vesturbæ- ingamir voru fyrst og fremst ánægður með að leika á heimavelli Drátturínn Félögin sem mætast í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar, mánudaginn 19. júlí, eru: Fylkir - Valur Akranes - Víkingur Keflavík - Leiftur Ólafsfirði KR - ÍBV sínum. „Eyjamenn eru þeir sem næst hafa komist því í tvö ár að vinna okkur heima; það var þegar við spiluðum við þá á KR-vellinum um daginn. Þetta verður því örugg- lega hörkuleikur og ekkert gefið eftir,“ sagði Atli Eðvaldsson, leik- maður og aðstoðarþjálfari KR í gær. Friðrik Friðriksson, markvörður ÍBV, var sammála því sem Atli seg- ir að Eyjamenn hafi verið nálægt sigri á KR-vellinum á dögunum; vildi reyndar meina að það hafí verið mikill klaufaskapur að sigra ekki miðað við þau færi sem liðið skapaði sér. „Mér er alveg sama hvar við vinnum þá, hér heima eða í Reykjavík. En það verður örugg- lega ennþá ljúfara að vinna þá á útivelli," sagði Friðrik á léttu nótun- um, en bætti við: „Án grins þá eru KR-ingamir auðvitað gríðarlega sterkir, þannig að leikurinn verður mjög erfiður." Draumadrátturinn Leiftur er eina liðið úr 2. deild sem enn er með í keppninni. Mar- teinn Geirsson, þjálfari liðsins hafði vonast eftir heimaleik eins og allir aðrir. „Ég var að gæla við að fá Víkingana norður, en þetta er allt í lagi. Við erum sáttir," sagði hann um ferðina til Keflavíkur. Suður- nesjamenn sigruðu 1:0 á heimavelli í 2. deildinni í fyrra en jafntefli varð á Ólafsfirði. „Þetta var draumadrátturinn,“ sagði Óli Þór Magnússon, fram- herji ÍBK, sem tryggði liðinu ein- mitt áframhaldandi þátttökurétt í fyrrakvöld gegn Þór. „En þó ég segi það tökum við leikinn að sjálf- sögðu jafn alvarlega og aðra leiki. Aðalmálið er að fá heimaleik — það skiptir miklu_ máli í bikarkeppn- inni,“ sagði Óli Þór, og bætti við að hann hefði helst viljað að KR og ÍA lentu saman. „Ég hefði helst viljað vera laus við annað hvort þeirra úr keppninni." Ágætt að fá annað tækifæri Lárus Guðmundsson, þjálfari Víkinga, sagði það skiljanlega eng- an óskadrátt að lenda gegn Skaga- mönnum á útivelli, „en það er þó ágætt að fá annað tækifæri. Ég held allir séu áfyáðir í að rétta sinn' hlut — við viljum laga ímynd okkar á Skaganum," sagði þjálfarinn og vísaði til stórtapsins, 10:1, í deild- inni þar á dögunum. „Það er oft þannig í bikarkeppninni, að ein- hverra hluta vegna er ekkert erfið- ara að spila gegn hinum svokölluðu toppliðum en einhveijum öðrum,“ sagði Lárus ennfremur. „Við erum fyrst og fremst ánægðir með að fá heimaleik. Þó að við höfum unnið stórsigur á Vík- ingum í deildinni á dögunum, vitum við að Víkingar verða ekki auðveld. , bráð. Við erum ekki búnir að gleyma leiknum gegn KA á Akur- eyri í bikarkeppninni í fyrra. Þá vorum við taldir öruggir sigurveg- arar, en máttum þola tap. KA féll það ár í 2. deild, en við urðum meistarar. Það verður full alvara í leik okkar er við mætum Víking- um,“ sagði Gunnar Sigurðsson, for- maður Knattspyrnufélags ÍA.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.