Morgunblaðið - 10.07.1993, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 10.07.1993, Blaðsíða 44
MORGVNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK Slm 091100, SÍMBRÉF 0911S1, PÓSTHÓLF 1555 / AKVREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Mikil sala hjá Coldwater fyrri hluta árs 840 milljóna söluaukmng MIKIL söluaukning hefur orðið hjá Coldwater í Bandaríkjunum á fyrstu sex mánuðum þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Söluaukningin nemur tæplega 12 milljónum dollara eða 840 millj- ónum króna á núverandi gengi. Magnús Gústafsson, forsljóri Coldwater, segir að salan hafi að verðmæti um 14%. Af einstökum afurðaflokkum Coldwater varð söluaukningin mest í unninni vöru eða 39% en salan á flökunum jókst um 13%. Gott verð hefur verið á þorskflökum sem Coldwater selur þrátt fyrir harða '■'tPltmkeppni eða upp undir þrír doll- arar fyrir pundið sem er með því hæsta sem fengist hefur. Geysihörð samkeppni „Samkeppnin er geysihörð á markaðinum hér enda mikið fram- boð af fiski,“ segir Magnús. „Við höfum orðið varir við mikið af und- irboðum, ekki síst frá einstakling- um á íslandi sem boðið hafa flök á niður undir tvo dollara fyrir pund- ið á meðan við höfum fengið tæp- ^jjpga þrjá dollara. Hér er örugglega ■ um svokallaðan Rússafisk að ræða en þess er ekki getið í tilboðunum. Viðskiptavinir okkar hafa getað treyst því um árabil að fá gæða- vöru frá íslandi og sá góði árangur sem við höfum náð á markaðinum er ekki hvað síst því að þakka. Ef undirboðin halda áfram þar sem verið er að selja annað hráefni aukist að magni til um 31% og undir því yfirskini að um gæðafísk frá Islandi sé að ræða mun það skaða okkur verulega." Birgðir nægar í máli Magnúsar Gústafssonar kemur fram að birgðir af þorskflök- um séu nú nægar á Bandaríkja- markaði en stór hluti þeirra birgða sé fiskur sem Kanadamenn hafi framleitt úr Rússaþorski og illa hafi gengið að selja. Hann sé því boðinn á mjög lágu verði. Magnús segir að þrátt fyrir þessa samkeppni séu vonir bundnar við að verð haldist þokkalegt á markaðinum. „Þær vonir geta þó brugðist ef samkeppnin harðnar enn með óvægum undirboðum. Nú þegar við horfumst í augu við minnsta þorskkvóta um árabil er mikilvægara en fyrr að ná há- marksafrakstri af því sem upp úr sjónum kemur með áreiðanleika og gæðaframleiðslu, en það mun ekki takast ef íslendingar bjóða niður fiskinn hver fyrir öðrum eða jafn- vel lélega vöru frá íslandi," segir Magnús. Morgunblaðið/Kriatinn Gert við net á Raufarhöfn Á RAUFARHÖFN snýst allt um sjávarútveg. Nú er bíða ennfremur eftir nýju skipi sem gæti hleypt enn loðnan komin til bæjarins, vinnsla er hafín í Síldarverk- meira lífí í byggðarlagið. smiðjunum og brúnir fólks lyftast. íbúar Raufarhafnar Sjá miðopnu: „Loðnan vitamínssprauta ...“ Gæludýra- grafreitur í bígerð FIMM skipulagsnefndum á höfuðborgarsvæðinu hefur borist bréf þar sem kannaðar eru undirtektir við stofnun gæludýragrafreits í borginni eða nágrenni hennar. Tómas Sigurðsson, sem skrifaði bréfið, segir að hugmynd hans sé að borgaryfirvöld útvegi landsvæði, til leigu eða kaupleigu, en hann sjái sjálfur um reksturinn. Hann segir að í garðinum verði pláss fyrir dýr af öllum stærðum og gerðum. Tómas sagðist hafa fengið hugmyndina fyrir mörgum árum enda þekkti hann fjölmarga gæludýraeigendur sem staðið hefðu frammi fyrir vandamáli við fráfall gæludýrsins. „Dýrin hafa aðallega verið grafín í görð- um. Sum hafa líka lent í rusla- tunnum. Önnur hafa verið brennd,“ sagði hann og benti á að með tilkomu grafreits þyrftu menn ekki að hafa áhyggjur af því að skilja illa við dýrin og gætu vitjað leiðanna að vild. Vígsla Tómas sagði að ekki væri sér- stök fyrirmynd að grafreitnum þó að hann hefði heyrt af graf- reitum af þessu tagi víða erlend- is. Hann sagðist hafa þá hug- mynd að reiturinn yrði vígður en sagðist ekki hafa kannað við- brögð kirkjunnar við því. Mecklenburger Hochseefischerei og SH ganga frá samningi um umboðssölu Söhimiðstöðin selji allar afurðir þýzku togaranna Morgunblaðið/Þorkell Upp til sólar SÓLIN skein á höfuðborgarbúaí gær þótt enn væri nokkuð kalt. Sumir brugðu undir sig betri fætinum og fóru í sund eins og þessir ungu Reykvík- ingar en óhætt er að fullyrða að lund flestra hefur lést eftir fremur drunga- lega daga að undanförnu. Ekki ættu Sunnlendingar heldur að þurfa að kvarta undan veðrinu í dag ef marka má veðurspá því spáð er að hiti kom- ist þar upp í 15 stig um hádaginn. Norðanlands verður enn kalt, 5 stig við norðurströndina. Dagana á eftir helst 10-14 stiga hiti um hádaginn sunnanlands en kaldara verður áfram fyrir norðan. SÖLUMIÐSTÖÐ Hraðfrystihúsanna og þýzka útgerðarfélagið Mecklenburger Hochseefischerei hafa gengið frá samningi um að SH taki allar afurðir hinna átta verksmiðjutogara fyrirtækis- ins í umboðssölu. Þar er einkum um flakaðan og heilfrystan karfa að ræða. Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki stjórna fyrirtækjanna. Verði hann staðfestur, felur hann meðal annars í sér að hið þýzka fyrirtæki mun selja karfa á Þýzkalands- markað í gegnum íslenzkt sölukerfi. Mecklenburger Hochseefisc- herei er að 60% í eigu Útgerðarfélags Akureyringa. Samkvæmt heimildum MorgUn- blaðsins var gengið frá samningi fyrirtækjanna í vikunni. Kvóti MHF er á þriðja tugþúsund tonna, eink- um karfi en einnig síld og makríll. Tveir af átta togurum MHF hafa verið við karfaveiðar suður af land- inu og hafa lagt afurðir sínar upp hér á landi, en þær hafa síðan ver- ið fluttar með flutningaskipum til meginlands Evrópu. Gert er ráð fyrir að áfram verði eitthvað af aflanum lagt upp hér, en eins muni togararnir sigla með afurðir sínar til Þýzkalands. Stefnt að sölu undir merki SH Verksmiðjutogarar MHF hafa búnað til að flaka fisk eða heil- frysta. Ætlunin er að SH aðstoði fyrirtækið við gæðaátak, þannig að afli þess standist allar íslenzkar gæðakröfur og verði seldur í gegn- um sölukerfí SH undir vörumerkinu Icelandic. Eitt og eitt skip í einu verður tekið fyrir, en þar til aflinn uppfyllir gæðakröfur verður aflinn seldur undir eigin merki MHF. Meiri markaðsþekking Islendinga Með samningi við Sölumiðstöðina hefur Mecklenburger Hocheeisherei möguleika á að koma afurðum sín- um á markað víðajim heim í gegn- um markaðsskrifstofur SH, til dæmis í Frakklandi og Japan, en einnig á Þýzkalandsmarkað. Ástæða þess að þýzka fyrirtækið velur íslenzkan millilið til að selja á heimamarkað, er sú að þetta gamla austur-þýzka útgerðarfélag hefur takmarkaða markaðsþekk- ingu í vesturhluta landsins. Þekking Islendinga á fiskmarkaðnum í Vest- ur-Þýzkalandi er mun meiri og betri möguleikar á að fá bezta verð fyrir fiskinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.