Morgunblaðið - 17.09.1993, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.09.1993, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1993 11 „Samtal“ Sunnudaginn 19. september kl. 15 verður myndbandasýning með viðtölum við listamenn um list þeirra og hugleið- ingar opnuð í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Listamennirnir eru: Ásta Ólafsdóttir, Haraldur Jónsson, Helgi ÞörguS FriðjáRggon, Kristinn E. Hrafns- son, Rúrí og Þorvaldur Þorsteinsson. Listamennimir hafa allir tengst starfi Gerðubergs með sýningum á verkum sín- um þar eða á annan hátt. Verða viðtölin sýnd á þremur skermum í einu. Sýningin stendur til 3. október. Opið er alla virka daga kl. 10-22 og um helg- ar frá kl. 13-17. Tónlist Minningartónleikar um Sigríði og Ragnar H. Ragnar Kammerhópurinn Ýmir heldur tónleika í sal Gmnnskóla {safjarðar sunnudags- kvöldið 19. september ki. 20.30. Tónleik- arnir em haldnir í minningu hjónanna Ragnars H. Ragnar og Sigríðar J. Ragnar. Ragnar stjómaði Tónlistarskóla ísa- fjarðar frá stofnun hans árið 1948 til ársins 1984 og naut til þess aðstoðar Sigríðar konu sinnar, sem kenndi við skólann. Ragnar iést árið 1987, en Sig- ríður féll frá í mars á þessu ári. Á undanförnum ámm hafa árlega verið haldnir á tsafirði tónleikar helgaðir minningu Ragnars og hefur þá jafnan ís- lensk tónlist verið í öndvegi. Það er í mjög í anda Ragnars, sem var mikill áhugamað- ur um framgang íslenskrar tónlistar auk þoss sem hann var einn þekktasti píanó- kennari á Islandi um áratuga skeið. Að þessu sinni er það kammerhópur- inn Ýmir sem leikur á minningartónleik- unum. Þessi hópur kom fyrst saman á haustdögum 1992 í þeim tilgangi að frumflytja fimm íslensk verk, sem urðu til að fmmkvæði Japanans Michio Nakaj- ima, en hann var áhugamður um ís- lenska samtímalist. Hópinn skipa: Auður Hafsteinsdóttir, fiðla, Bryndís Halla Gylfadóttir, selló, Einar Jóhannesson, klarinett, Einar St. Jónsson, trompet, Maarten van der Valk, slagverk og Öm Magnússon, píanó. Á efnisskránni eru þijú íslensk verk eftir Áskel Másson, Jónas Tómasson og Karólínu Eiríksdóttur, en einnig verk eftir frönsku tónskáldin Maurice Ravel og Jean Francaix. Leiklist „Standandi pína“ í Tjarnarbíói Nýtt bandarískt leikverk verður fmm- sýnt ÍTjamarbiói sunnudaginn 19. septem- ber kl. 20. Það er eftir leikstjórann og leikskáldið Bill Cain og heitir á ensku Stand-up Tragedy, sem þýtt hefur verið Standandi pína. Leikritið ijallar um lffsbaráttu unglinga í New York, gerist i kaþólskum gagn- fræðaskóla fyrir spænskumælandi drengi í einu af fátækustu hverfum borgarinnar. Nýráðinn kennari ákveður að fóma öllu til að hjálpa einum dreng og koma honum til manns. Hópur atvinnuleikara, Fijálsi leik- hópurinn, stendur að sýningunni í Tjarn- arbíói og leikstjóri er Halldór E. Lax- ness. Tónlistin er eftir Craig Sibley en henni stjómar Valgeir Skagfjörð. Ástrós Gunnarsdóttir samdi dansana í leikritinu. Leikarar em; Gunnar Helgason, Felix Bragason, Þorsteinn Bachmann, Gunnar Gunnsteinsson, Valgeir Skagfjörð, Þórir Bergsson, Vilhjálmur Hjálmarsson, Rób- ert Guðmundsson og Páll Banoini. Jón Reykdal að staðsetja. Jón hefur hins vegar öðlast gott vald á gvasslitunum, og því má fyllilega vænta þess að brátt megi sjá stað meiri myndrænna átaka forms og lita í verkum hans í þessum miðli. Sýning Jóns Reykdal í Stöðlakoti við Bókhlöðustíg stendur til sunnu- dagsins 19. september. Rétt og rangt um íslenskan landbúnað — nr.6 af 8 Islenskir bændur hafa hagrætt meira en flestir aðrir á liðnum árum.... Fullyrt er: Hið rétta er: Það vantar hvatninguna fyrir bændur til þess að hagræða. Niður með kotbúskapinn - „bændur verði ríkir!“ Islensk búvara er alltof dýr. Bændur eru í beinum tengslum við markaðinn. Afkoma þeirra er algjörlega háð neyslu landsmanna sem um leið þýðir að verðlagning þarf að vera sem hagstæðust íyrir neytendur m.v. hina fjölbreyttu valkosti sem bjóðast nú. Tekjur bænda ráðast síðan af því hve vel þeim tekst að hagræða og halda niðri framleiðslukostnaði. Þetta þýðir að framleiðslan ferist stöðugt á ferri hendur. Sem dæmi um það má nefna að á síðasta áratug fækkaði mjólkurframleiðendum um tæp 35%. Á sama tíma jókst framleiðsla hvers kúabónda um tæp 50%. Bændur eiga einfaldlega allt sitt undir því að búreksturinn gangi vel og áð vörurnar seljist sem allra best. Þess vegna er hvatning til hagræðingar og útsjónarsemi ávallt til staðar. Það er mikill misskilningur að búrekstur gangi því betur sem búin séu stærri. Meira að segja í reiknitölvum er auðvelt að sjá hvenær stækkun rekstrareininganna hættir að skila aukinni hagkvæmni. Flestir átta sig nú á því að samræmi þarf að vera á milli bústærðar og þess landrýmis sem búið hefúr aðgang að til að afsetja úrgang. Annars þolir landið ekki álagið, mengun skapast og grunnvatn spillist. Það leiðir síðan til „dauða“ í ám og vötnum. Markaðsmenn um allan heim þekkja muninn á gæðum og verðlagningu frá verksmiðjubúum annars vegar og vistvænum fjölskyldubúum hins vegar. í umræðunni hafa menn þar að auki ruglað saman „kotbúskap“ og landbúnaði þar sem bændur sinna búrekstrinum einungis í hluta- starfi. Einmitt slíkur búskapur t.d. í sauðfjárrækt er í augnablikinu jafnvel líkleg- astur til þess að standa af sér tímabundnar þrengingar. Skynsamleg stærðar- hagkvæmni er að sjálfsögðu það sem allir sækjast eftir, jafnt hjá bændum sem í úrvinnslu landbúnaðarafurða, en það eru hins vegar engin ein vísindi algild í þeim efnum vegna breytilegra aðstæðna. Stutt sumar og erfitt veðurfar mun alltaf gera íslenskum bændum erfitt fyrir í verðsamkeppni við gróðursæl héruð nágrannaþjóðanna. Á móti geta íslendingar haldið áfram að framleiða hágæðavöru með sjálfbærum búnaðarhátmm og teflt þeim óhikað fram gegn t.d. verksmiðjuframleiðslu þar sem notkun ýmis konar lyfja og hjálparefna fer stöðugt vaxandi. Einnig gegn vörum sem framleiddár eru með litlum tilkostnaði í skjóli rányrkju og á svæðum þar sem jarðvegs- og loftmengun er umtalsverð. I þessu markaðsumhverfi eiga íslenskir bændur allt sitt undir því að þeim takist að framleiða sem besta vöru á eins lágu verði og frekast er unnt og í þeim efnum hefúr mikill árangur náðst á skömmum tíma. Sem dæmi má nefna að frá áramótunum '89/'90 hefur raunverð helstu búvara stórlækkað. Mjólk hefúr lækkað um 12%, nautakjöt um 25%, lambakjöt um 11%, svínakjöt um 13%, kjúklingar um 17% og egg um 22%. En það þarf meira að koma til. Á öllum öðrum framleiðslustigum landbúnaðarins þarf að halda áfram að hagræða og lækka tilkostnað svo sem í vinnslu, dreifingu og sölu. Það er hins vegar ekki rétt að líta á landbúnaðinn einan í þessu sambandi. Almennt séð er verðlag hátt á íslandi miðað við það sem gerist í okkar heimshluta fýrst og ffemst vegna dýrari aðfanga og smæðar markaðarins. í því sambandi má t.d. benda á verð dagblaða og þjónustu bankastofnana. ...og þeir munu halda áfram á sömu braut til hagsbóta fyrir sjálfa sig og íslenska þjóð! ISLENSKIR BÆNDUR fit ,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.